Skessuhorn - 05.05.2021, Page 12
miðvikudagur 5. maí 202112
Sóknarnefnd grundarfjarðarkirkju
auglýsti nýverið eftir sjálfboðalið-
um til að hreinsa gömlu klæðn-
inguna af kirkjunni en hún var kom-
in til ára sinna. Nokkrir velunnarar
kirkjunnar létu ekki sitt eftir liggja
og mættu galvaskir vopnaðir kú-
beinum, skóflum, hjólbörum og
fleiri nauðsynlegum búnaði og hóf-
ust handa á laugardagsmorguninn.
góður gangur var í verkinu þegar
ljósmyndari Skessuhorns kíkti við
en þá var búið að hreinsa stóran
hluta af klæðningunni. tfk
að morgni síðasta laugardags fór
vaskur hópur félaga úr rótarý-
klúbbi akraness upp á akrafjall til
að setja göngubrúna yfir Berjadalsá.
Hún er jafnan tekin niður á haustin
til að verja hana fyrir vetrarflóðum.
með brú á þessum stað er göngu-
leiðin á fjallið mun greiðfærari.
Sumir rótarýmanna tóku með sér
fjölskyldumeðlimi enda veitti ekki
af öllu tiltæku vöðvaafli en brúin
er talsvert þung þótt hún láti ekki
mikið yfir sér. meðfylgjandi mynd-
ir tók atli Harðarson af hluta hóps-
ins þegar brúnni var komið fyrir og
loks þegar hún var orðin göngufær.
mm
Nú í vikubyrjun hófst viðgerð á
innra-Hólmskirkju við Hvalfjörð.
að sögn séra Þráins Haraldssonar
sóknarprests er fyrirhugað að gera
við steypuskemmdir og mála kirkj-
una, skipta um þak og laga tréverk-
ið í turninum. vonir standa til að
viðgerðum geti lokið á næsta ári, en
það ár verður kirkjan 130 ára. upp-
runalega var innra-Hólmskirkja
byggð úr timbri, en síðar voru út-
veggirnir notaðir sem steypumót
og steyptur 17 cm þykkir vegg-
ir utan á kirkjuna. Þeir veggir hafa
smám saman sprungið og gefið sig
og hefur byggingin látið verulega á
sjá.
„Það er árgangur 1949 sem
fermdist í kirkjunni 1963 sem hefur
haft veg og vanda af því að koma
framkvæmdum af stað. vorið 1963,
rétt áður en þau fermdust, var lok-
ið við miklar viðgerðir á kirkjunni
og nú er sannarlega kominn tíma
á viðgerð að nýju,“ segir Þráinn.
Hann segir að sóknarnefndin hafi
haldið jólabasar og hefur nú safn-
ast það mikið að hægt er að hefja
framkvæmdir. „Fjármunir sem nú
þegar hafa safnast munu hins veg-
ar ekki duga til að klára viðgerðir
á kirkjunni. Framundan er því að
safna meiri peningum til verksins
og sækja um styrki á ýmsum stöð-
um. Einnig viljum við leita til ein-
staklinga sem vilja styðja við þetta
verkefni. innra-Hólmskirkja verð-
ur 130 ára árið 2022 og er draum-
urinn að geta haldið veglega hátíð
í endurbættri kirkju á afmælisári,“
segir séra Þráinn.
Hann minnir að endingu á söfn-
unarreikning vegna kirkjunn-
ar: 0326-22-1873 og kennitala
660169-5129.
mm
Búið er að slá upp vinnupöllum við kirkjuna og á mánudaginn hófu málarar og
múrarar vinnu við lagfæringar á útveggjum. Gert verður við sprungur, málning
hreinsuð af, sérstakt efni borið á kirkjuskipið og að endingu málað. Í næsta
áfanga verður skipt um þakefni og turninn lagfærður.
Viðgerðar hafnar á ytra byrði
Innra-Hólmskirkju
Komu brúnni fyrir yfir Berjadalsá
Séra Aðalsteinn Þorvaldsson var kampakátur í tilefni dagsins.
Klæðningunni flett af
Grundarfjarðarkirkju
Grundarfjarðarkirkja laugardaginn 1. maí þar sem sjálfboðaliðar voru við vinnu.
Þeir Örn Ármann Jónasson og Runólfur Guðmundsson létu sig ekki vanta í þetta
verkefni.
Þorsteinn Friðfinnsson smiður mundar hér skófluna við hreinsunarstörfin.