Skessuhorn - 05.05.2021, Page 18
miðvikudagur 5. maí 202118
verktakar eru við vinnu á höfninni
í grundarfirði flesta daga vikunnar
þessi misserin og engin breyting var
á því þegar fréttaritari Skessuhorns
tók sinn vanalega bryggjurúnt síð-
asta fimmtudag. Þá voru starfs-
menn almennu umhverfisþjónust-
unnar að störfum eins og vanalega
og svo voru verktakar frá Trésmiðj-
unni gráborg að setja upp steypu-
mót og undirbúa uppsetningu á
lagnahúsi sem verður við höfnina.
Það er ekki slegið slöku við á svæð-
inu þessa dagana en vonast er til að
byrjað verði að steypa plötuna um
miðjan maí. tfk
Freydís Bjarnadóttir opnaði versl-
un sína í grundarfirði formlega á
sumardaginn fyrsta. Þar tók hún á
móti gestum og bauð upp á ýmis-
legt góðgæti. verslunin er staðsett
í kjallaranum að Fagurhóli 2 og
verður opin eitthvað eftir hádegi
flesta daga en það er nánar auglýst
á vefsíðu verslunarinnar. Það þarf
væntanlega ekki að taka það fram
að vefverslunin er opin allan sólar-
hringinn alla daga ársins. tfk
Hafist var handa fyrir síðustu helgi
að setja upp ný sæti í hvítum lit í
stúkunni á akranesvelli. alls er búið
að setja upp um 250 sæti í stúkunni
þegar þetta er skrifað og allt kapp
lagt á að framkvæmdum verði lok-
ið fyrir fyrsta heimaleik Skaga-
manna næsta laugardagskvöld. Þá
þarf einnig að merkja öll sæti með
númerum vegna Covid-19 og ljóst
að það verður handagangur í öskj-
unni þegar líða tekur á vikuna á
akranesvelli.
vaks
Næstkomandi laugardag verður
Sindratorfæran á Hellu en það eru
Flugbjörgunarsveitin á Hellu og
akstursíþróttanefnd umf. Heklu
sem standa að keppninni líkt og
undanfarin ár. Þetta er í fyrsta skipti
í rúmlega 50 ára sögu torfærunnar
að hún er einungis sýnd í beinni
útsendingu. Skjáskot er fyrirtæk-
ið sem ætlar að koma þessu heim
í stofu til landsmanna með fjórum
myndavélum, incar, drónum, lýs-
endum og öllu tilheyrandi, til þess
að gera upplifunina sem allra næst
því að vera á staðnum.
21 keppandi er skráður til leiks í
tveimur flokkum, þó nokkuð er um
nýliða og nýsmíðaða bíla sem koma
sterkir til leiks. Einnig nokkrir
gamlir íslandsmeistarar að mæta
eftir nokkurt hlé. Því má búast við
harðri baráttu. Sandbrekkurnar, áin
og mýrin verða á sýnum stað. Hægt
er að kaupa miða á útsendinguna
á www.motorsport.is. Einn hepp-
inn miðakaupandi verður dreginn
út og nælir sér í 322 hluta Toptul
verkfæraskáp frá Sindra. Útsending
hefst uppúr kl. 09:00 og keppnin kl.
11:00. mm
útibússtjóra Olís
Dagur í lífi...
Nafn: Björn Haraldur Hilm-
arsson
Fjölskylduhagir/búseta: gift-
ur guðríði Þórðardóttur og við
eigum þrjá syni saman; guðna,
Hilmar og aðalstein.
Starfsheiti/fyrirtæki: Útibús-
stjóri Olíuverzlunar íslands á
Snæfellsnesi. aðsetur í Ólafs-
vík.
Áhugamál: golf og fótbolti
Dagurinn: 27. apríl 2021
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? vaknaði um kl 7.00 og
byrjaði á því að kyssa konuna
mína.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? kornflex.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? klukkan 8.00 fór ég
akandi á bíl.
Fyrstu verk í vinnunni: Fá
mér kaffibolla og spjalla við
samstarfsfólkið mitt. Fara síðan
yfir tölvupósta.
Hvað varstu að gera klukkan
10? vinna tölvuvinnu.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Borðaði bjúgu með kartöflum
og grænum baunum, var frekar
stutt í mat í dag.
Hvað varstu að gera klukkan
14: vann í versluninni og svar-
aði tölvupóstum.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
Byrjaði að vinna tilboð og hætti
upp úr klukkan 18.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Fór að vinna í garðinum og
húsinu okkar.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Ég er svo heppinn að
konan mín eldar alltaf frábæran
mat. Ég er ekki góður við elda-
vélina en er liðtækur í að ganga
frá. í þau fáu skipti sem mér er
falið að útbúa kvöldmat, þá er
kalt borð.
Hvernig var kvöldið? vinna
úti í garði til að verða kl. 22.00.
Hvenær fórstu að sofa? um
kl. 22.30.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Horfði á fréttir á rÚv.
Hvað stendur upp úr eft-
ir daginn? Fékk símtal um að
fá bóluefni við Covid 19 þann
22.04 og síðan samveran með
fjölskyldunni.
Eitthvað að lokum? Lífið er
frábært og verður alltaf betra og
betra.
Bjössi í vinnunni hjá Olís í Ólafsvík.
Ljósm. af.
Akranesvöllur eftir fyrsta áfanga sætaskiptanna.
Sætaskipti á Akranesvelli
Hjónin Hermann Geir Þórsson og Freydís Bjarnadóttir á sumardaginn fyrsta.
FB Sport í Grundarfirði
opnað formlega
Sindratorfæran verður í
beinni á laugardaginn
Eiður Björnsson og Magnús Jósepsson
stilla upp steypumótunum svo allt sé
eftir kúnstarinnar reglum.
Byrjað að steypa á
bryggjunni í Grundarfirði
Magnús Jósepsson smiður hjá Trésmiðjunni Gráborg festir upp mótin.
Aðalgeir Vignisson og Hafsteinn
Garðarsson fara yfir málin.