Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 20
miðvikudagur 5. maí 202120 kiwanisklúbburinn Þyrill á akra- nesi afhendir þessa dagana öll- um börnum í 1. bekk grunnskóla á starfssvæði sínu nýja reiðhjóla- hjálma. Skólarnir eru grunda- skóli og Brekkubæjarskóli á akra- nesi, grunnskólinn í Borgarnesi og Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit. Börn í fyrsta bekk þessara skóla eru 149 talsins. afhending hefur nú farið fram í þremur fyrst töldu skólunum en afhending í Heiðar- skóla verður á næstu dögum. kiwanisklúbbar landsins hafa staðið fyrir þessu verkefni í ára- tugi og hafa yfir 70 þúsund hjálm- ar verið afhendir börnum. um er að ræða vandaða öryggishjálma, en þeim fylgja buff og endur- skinsmerki til að hámarka öryggi og notagildi þeirra. Jafnframt er börnunum leiðbeint um notkun hjálmanna. Sem fyrr er Eimskip styrktaraðili kiwanis í hjálmaverk- efninu. mm Nú um helgina tók gildi bann á akrafjalli við lausagöngu hunda og gildir það út október. rétt er því að benda öllum hundum á að vera ekki að þvælast einir á fjallinu og hvað þá í stórum hópum því það getur hrætt fólk og önnur dýr. Best er að taka með sér eigandann á fjallið og hafa hann í bandi en láta líta út fyr- ir að hann sé með ykkur í taumi. Ef þið hundarnir hittist þar er best að tala í hálfum hljóðum því eigend- urnir gætu notað það sem þið seg- ið gegn ykkur og jafnvel í slæmum tilgangi. Ef þið hittið kindur á fjall- inu má alls ekki gelta á þær og ef þær eru að reyna að ná augnsam- bandi við ykkur er best að vera soldið kindarlegir á svipinn því það þola þær alls ekki. Þá væri gott ef þið gætuð laumað því að þeim að vera ekki að þvælast við bílastæð- ið og narta í bíla. Einnig láta þær í leiðinni skila því til vina sinna hest- anna að gera það ekki heldur því þeir gætu átt það til að fá nagandi samviskubit yfir þessu öllu saman. verum í bandi! vaks „Á vestfjörðum eru tækifærin fleiri en íbúarnir,“ segir í tilkynningu frá vestfirskum aðilum í nýsköp- un. „Svæðið er ríkt af náttúruauð- lindum, náttúran er allt umlykjandi og hér má finna samheldni og ein- staka hlýju sem ríkir á milli fólks. Tækifærin bíða hreinlega eftir því að við grípum þau og nýtum til uppbyggingar kröftugs samfélags og atvinnulífs á svæðinu.“ Það eru Skúrin, samfélags- og nýsköpunar- miðstöð á Flateyri, djúpið, frum- kvöðlaskjól í Bolungarvík og verk- efnastjóri á Flateyri sem standa að leiðtogaþjálfun fyrir frumkvöðla sumarið 2021. verkefnið er unn- ið í samvinnu við vinnumálastofn- un, Lýðskólann á Flateyri, Future Food institute/FaO og samfélags- og nýsköpunarmiðstöðvar á vest- fjörðum. „með verkefninu er markmiðið að skapa vettvang fyrir unga frum- kvöðla til að koma saman og takast á við krefjandi áskoranir og rann- saka nýjar lausnir á staðbundnum sem og alþjóðlegum áskorunum. Lögð verður áherslu á víðtæka sýn í forystu og að byggja upp færni til sjálfshjálpar og samfélagsþró- unar. Stuðlað verður að því að efla frumkvöðlastarf meðal ungs fólks á svæðinu með þjálfun og vinnu sem miðar enn fremur að því að koma á tengslum á milli þátttakenda og efla samstarf á milli byggðanna á vest- fjörðum. að lokum er markmiðið að tengja ungt og upprennandi fólk við framsækin fyrirtæki af svæðinu og tryggja þannig tengingar sem halda til framtíðar.“ Fyrir hverja? markhópar Lausnavers eru ung- ir frumkvöðlar og verðandi leið- togar sem búa á vestfjörðum, hafa búið þar, hyggjast setjast þar að eða hafa þor og vilja til að taka þátt í uppbyggingu svæðis- ins. „við leitum að þátttakend- um sem hafa brennandi vilja og áhuga á því að leggja sitt af mörk- um til samfélagsþróunar í heima- byggð og á svæðinu öllu. vald- ir verða til þátttöku einstaklingar sem hafa sýnt frumkvæði og þor og eru tilbúin til að reyna á sig, takast á við áskoranir og leita að verðmætum lausnum til framtíðar uppbyggingar á svæðinu. Lausna- ver hentar jafnt íslendingum sem og öðrum og fer kennsla og verk- efnavinna fram á ensku þegar það á við. Námsbrautin Lausnaver er skipulagt sem þriggja mánaða námsbraut og verður haldið í júní, júlí og ágúst á þessu ári. Þátttakendur hittast (á staðn- um eða á fjarfundum) í vinnustof- um, hafa aðgang að leiðbeinanda (mentor), vinna að einstaklings- og hópaverkefnum og taka þátt í annars konar viðburðum. Náms- brautin endar svo með stærri við- burði í samstarfi við Future Food institute (https://futurefood.net- work/institute/). viðfangsefnin eru miðuð að Sjálfbærnimarkmið- um Sameinuðu þjóðanna Sdg og er námsefnið þróað í samstarfi við Future Food institute (íT). gjald fyrir þátttöku í Lausnaveri er 50 þúsund krónur sem greiðist þeg- ar þátttaka hefur verið staðfest. Þátttakendur geta valið að greiða gjaldið sjálfir en til greina kem- ur einnig að leita til fyrirtækja eða stofnana á svæðinu um styrk til þátttöku auk þess sem flest- ir starfsmenntasjóðir verkalýðs- félaganna styrkja félagsmenn sína til slíks náms. umsóknarfrest- ur er til 15. maí n.k. og sendist á: https://lausnaver.is/ mm Lausaganga hunda bönnuð á Akrafjalli – Verum í bandi! Skiltin við Akrafjall. LausnaVer mun þjálfa vest- firska leiðtoga framtíðarinnar Hildur Karen sýndi börnunum hvarð gerðist ef egg í hjálmi var látið falla í jörðina úr mikilli hæð. Einnig hvað gerðist ef eggið félli hjálmlaust í jörðina. Þá var ekki að spyrja að leikslokum. Afhenda fyrstu bekkingum reiðhjólahjálma Hjálmar í Brekkubæjarskóla voru afhentir síðastliðinn föstudag þegar börnin voru á leið heim í helgarfrí. Fyrir aftan standa þeir Stefán Lárus Pálsson og Halldór F Jónsson frá Kiwanisklúbbnum Þyrli. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir sýndi börnunum hvernig stilla á hjálmana til að þeir geri sitt gagn. Módelið er Fanney María Þorbjarnardóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.