Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 27
miðvikudagur 5. maí 2021 27
Vísnahorn
vorinu gengur stundum
eitthvað misvel að nálg-
ast okkur þrátt fyrir hlýnandi veðurfar. Nú
eða kannske erum við bara svona kröfuhörð?
Það er nú ekki nýtt með mannskepnuna. Nú á
dögunum orti gunnar Straumland:
Á mér dynur slydduslabb,
slær mig austanbylur.
Er þá vorið aprílgabb
sem ekki nokkur skilur?
Og trúlega um líkt leyti heyrðist frá Friðrik
Steingrímssyni:
Kalt í spánni ennþá er
út við hafið nyrsta,
seinka verður sýnist mér
sumardegi fyrsta.
Fyrir utan peningavandamálið hafa fá
vandamál orðið eins þekkt og tengdamóð-
urvandamálið þó það hafi til þessa sneitt hjá
undirrituðum, enda varla til sú móðir sem
ekki vill barni sínu það besta en sumum verð-
ur það þó á að henda steini úr glerhúsi. Hins-
vegar veit ég raunverulega ekkert um tildrög
eftirfarandi vísu Bjarna gíslasonar annað en
það sem hún segir sjálf:
Þótt ég hafi heims um slóðir
hrasað afvega.
Tilvonandi tengdamóðir:
„Talaðu varlega“.
Sem betur fer eru þó mun fleiri sem eru al-
gjörlega lausir við þennan vanda, það er bara
ekki eins gaman að tala um þegar allt geng-
ur vel. Öldruð kona sem lá fyrir dauðanum
kvaddi tengdason sinn með þessum orðum og
er ekki að heyra að mörg vandamál hafi verið
í þeirra samskiptum:
Aldrei heyrðist anda kalt
orð af þínum vörum.
Þakka þér fyrir eitt og allt,
eg er nú á förum.
iðulega kemur upp trúlofunarþörfin í
unga fólkinu á vorin og þá ekki síður þörf
kvennanna til að endurskipuleggja allt mögu-
legt og ómögulegt innanhúss. Þegar Þangskála
Lilja gottskálksdóttir var í tilhugalífinu með
Pétri sem varð síðari maður hennar orti bróðir
hennar, Jón gottskálksson skagamannaskáld:
Rúmið færa fór í gær
- fer það ærið betur.
Hugljúf mær vill hafa nær
hjartakæran Pétur.
Það var hinsvegar Bjarni frá gröf sem velti
fyrir sér eilífðarmálunum með þessum hætti:
Þótt líkaminn sé lúka af mold
og líklega brenni í Víti sálin,
finnst mér gott að hafa hold.
-Það hressir upp á kvennamálin.
Egill Jónasson á Húsavík aftur á móti svar-
aði spurningunni „Hvað metur þú mest við
konur“ á þennan hátt:
Karlmennirnir kvenna biðja.
Kossum hafa fáar neitað.-
En það er víst kölluð þungamiðja
þetta sem mest er eftir leitað.
Það stendur víst til að við kjósum okkur nýtt
þing í haust og hugsanlega nýja stjórn hvern-
ig sem það fer nú allt saman. vonandi verða
einhverjir ánægðir með nýju stjórnina svona
fyrstu dagana að minnsta kosti hvað sem síðar
kann að verða. gunnlaugur Pétursson frá Sel-
haga orti um þáverandi ríkisstjórn en hvaða
skilning ber að leggja í orðin verður hver og
einn að ákveða fyrir sig:
Skeiðar til ég hef og hnífs
en hvergi má við fórninni.
Af öllu hjarta eilífs lífs
óska ég ríkisstjórninni.
Sjaldnast skortir á það í aðdraganda kosn-
inga að velviljaðir stjórnmálamenn bendi
okkur á hvað við eigum að kjósa og hver hætta
gæti stafað af því ef við kysum eitthvað annað.
Líklega verður þeim töluvert ágengt því ég
reikna með að flestir sem á annað borð kjósa
kjósi þá einhvern af þeim listum sem í fram-
boði eru. Fyrir allmörgum árum orti Frey-
steinn gunnarsson í kosningaundirbúningi:
Grásleppan veiðist suður með sjó,
það sýnir hvað hún er gáfnasljó
að alltaf fiskast þar nægtanóg
í netin á hverjum vetri.-
-En aðrir fiskar í öðrum sjó
eru víst lítið betri.
Einhverra hluta vegna gera pólitíkusar ekki
mjög mikið af því að hlaða lofi á mótfram-
bjóðendur sína svona stuttu fyrir kosningar að
minnsta kosti. veit ég ekki hvað veldur, því
allir stjórnmálamenn telja sjálfa sig hin mestu
afbragðseintök. Hallgrímur frá Ljárskógum
orti um einhvern sómamann (sem kannske
hefur verið í framboði þó ég hafi ekki hug-
mynd um það):
Orðahákur apa kann
andinn brákast níði.
Allt er kák, sem yrkir hann
eða hrákasmíði.
Já þingmenn okkar eru eilíf og óþrjót-
andi uppspretta „gagnrýninnar umræðu“ og
meiri líkur á að sú auðlind standi af sér ýms-
ar hremmingar en ferðamannaauðlindin sem
margir hafa talið óþrotlega. Fyrir allmörgum
árum stóðu yfir endurbætur á alþingishúsinu
og var meðal annars smíðuð ný útihurð sem
þótti dýr á þeim tíma. Þá var kveðið:
Þingmenn okkar aldrei ráðvana stóðu
á úrbótatillögum verður ei nokkur þurrð.
Nú fara þeir senn að brugga bjargráðin
góðu
bak við nýja milljón krónu hurð.
Jóhann guðmundsson frá Stapa orti brag-
arbót:
Þingmenn okkar enga sýna dáð
er á viti og gæðum mikil þurrð,
ég held þeir séu að brugga banaráð
bak við nýja milljón krónu hurð.
má vera að einhverjum hafi í seinni tíð
fundist spádómsgáfa Jóhanns koma óþarflega
glöggt fram. Þegar Helgi Hóseasson sletti
skyrinu (sem hann átti sjálfur) á þingmenn
við þingsetningu 1972 orti Benedikt frá Hof-
teigi:
Á Alþingi er eins og fyr
ekki mikil glæta.
Mundi ekki meira skyr
mega úr þessu bæta.
um einhvern ágætan mann orti Egill Jón-
asson en ég hef bara því miður enga hugmynd
um það hverrar skoðunar hann var í pólitík:
Að guð muni hafa ætlað sér, að gera úr
honum mann,
það getur engum dulist sem að skoðann.
Af leirnum hefur sjálfsagt verið lagt til nóg
í hann,
en líklega hefur mistekist að hnoð´ann.
Bjarni frá gröf bætti svo um betur:
Að Drottinn hafi skapað líf úr leir
er lítill vafi. Biblían þess getur.
En ef þeir hefðu átt við þetta tveir
Agli hefði tekist hnoðið betur.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
En það er víst kölluð þungamiðja - þetta sem mest er eftir leitað
Breið þróunarfélag fékk fyrr á
þessu ári styrk úr uppbyggingar-
sjóði vesturlands til að vinna sviðs-
myndavinnu og greina forsendur
rekstrar í Hafbjargarhúsi við Breið-
argötu 2 á akranesi. Sviðsmyndirn-
ar eru unnar af Ásu katrínu Bjarna-
dóttur, mastersnema í sjálfbærri
borgarhönnun. Þær byggja á grein-
ingu á svæðinu, sögu þess og stað-
aranda með sjálfbærni að leiðar-
ljósi. Sviðsmyndunum er skipt upp
í þrjá flokka eftir umfangi inngrips.
Niðurstaða vinnunnar er að mik-
ilvægt sé að byrja innávið og vekja
athygli á svæðinu sjálfu, húsnæð-
inu sem og einstöku umhverfi. auk
þess yrði byrjað á að vekja áhuga
ferðamanna á svæðinu. ráðlegast
væri því að byrja á sviðsmynd eitt
þar sem Hafbjargarhúsið yrði leigt
út til aðila sem myndu halda tón-
listar- og kvikmyndaviðburði og
byrja þannig á því að vekja athygli
á svæðinu.
Næst eða samhliða yrði farið í
sviðsmynd tvö þar sem um meðal
inngrip væri að ræða og húsnæð-
ið leigt út fyrir stærri viðburði og
þá hægt að leigja gáma eða matar-
trukka þar sem seldur yrði stemn-
ings matur samhliða viðburðum.
Farið yrði í lágmarks framkvæmdir
til þess að gera húsnæðið meira að-
laðandi og jafnvel settur glervegg-
ur út í Skarfavör til að hleypa birtu
inn og njóta stórbrotins útsýnis út
á flóann.
allt þetta myndi svo leiða til þess
að sviðsmynd þrjú fælist í að fjár-
festar myndu byrja á að veita svæð-
inu eftirtekt og þá sjá þá óviðjafna-
legu eiginleika sem Hafbjargar-
húsið og umhverfi þess hafa uppá
að bjóða með sinni einstöku nátt-
úrufegurð og sögu. með bjartari
tíma að leiðarljósi í ferðaþjónustu
myndu fjárfestar mögulega vilja
taka þátt í þessu verkefni sem gæti
undið upp á sig í enn fleiri verkefn-
um á svæðinu.
meðfylgjandi myndir sýna út-
færslur af sviðsmyndavinnu Ásu
katrínar.
mm/hg
Sviðsmynd 3.
Unnið með þrjár sviðsmyndir vegna Hafbjargarhúss
Áætlanir byggjast
á að í og við
Hafbjargarhúsið
færist líf og fjör.
Sviðsmynd 1. Sviðsmynd 2.