Skessuhorn - 05.05.2021, Side 30
miðvikudagur 5. maí 202130
Hvert er besta lagið í klef-
anum?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Jaðarsbökkum
á Akranesi)
Bryndís Rún Þórólfsdóttir
„Þetta lag er ía-Halli melló.“
Selma Dögg Þorsteinsdóttir
„Fire Burning-Sean kingston.“
Eva María Jónsdóttir
„No Church in The Wild-
JaY-Z, kanye West, Frank
Ocean, The-dream.“
Erna Björt Elíasdóttir
„gönna-SælirBois.“
Erla Karítas Jóhannesdóttir
„antisocial-Ed Sheeran, Trav-
is Scott.“
Skagakonur eru úr leik í mjólk-
urbikarnum eftir 2:4 tap gegn
augnabliki í leik sem fram fór á
kópavogsvelli á laugardag. Leik-
urinn byrjaði vel hjá ía þegar
anna Þóra Hannesdóttir kom liði
sínu yfir á 19. mínútu. En heima-
konur í augnabliki náðu að jafna
metin á 33. mínútu með marki
vigdísar Lilju kristjánsdóttur og
staðan 1:1 í hálfleik. Snemma í
síðari hálfleik náðu heimakon-
ur forystunni með marki Eydís-
ar Helgadóttur en dagný Hall-
dórsdóttir jafnaði fimm mínút-
um síðar fyrir ía. En heimakon-
ur í augnabliki náðu síðan að
skora tvö mörk með tveggja mín-
útna millibili upp úr miðjum síð-
ari hálfleik og tryggja sér sigur-
inn. vigdís Lilja kristjánsdóttir
skoraði sitt annað mark og þriðja
mark heimamanna og kom þeim
yfir að nýju í leiknum en það var
síðan Eva maría Jónsdóttir sem
varð fyrir því óláni að skora sjálfs-
mark.
se/ Ljósm. sas.
Skagamenn heimsóttu valsmenn á
Hlíðarenda síðastliðið föstudags-
kvöld í opnunarleik Pepsí max
deilarinnar þetta árið. Þrátt fyrir að
valsmönnum sé spáð baráttu um ís-
landsmeistaratitlinn og Skagmönn-
um fallbaráttu í sumar þá mættu
gestirnir ákveðnir til leiks og gáfu
fá færi á sér í fyrri hálfleik. vals-
menn héldu boltanum betur eins
og við var að búast en vörn Skaga-
manna var örugg og náðu heima-
menn ekkert að skapa sér tækifæri
af viti í hálfleiknum. Skagamenn
komust næst því að ná forystunni í
hálfleiknum eftir tvær góðar skyndi-
sóknir. varnarmönnum vals tókst á
síðustu stundu að komast fyrir skot
Hákons inga Jónssonar og viktor
Jónsson átti góðan skalla eftir fyrir-
gjöf sem fór rétt yfir markið.
valsmenn mættu af miklum
krafti inn í síðari hálfleikinn og
uppskáru fyrsta mark leiksins á 55.
mínútu þegar Patrick Pedersen
komst einn inn fyrir vörn Skaga-
manna og skoraði markahrókurinn
af öryggi framhjá Árna í markinu.
Þrátt fyrir þetta voru Skagamenn
vel inn í leiknum. En tvö afdrifa-
rík gul spjöld á ísak Snæ Þorvalds-
son með sex mínútna millibili gerði
nánast út um leikinn. Á 60. mín-
útu var ísak í baráttu við Patrick
Pedersen. var vart hægt að segja
að ísak hafi komið við danann en
með mjög leikrænum tilburðum
tókst honum að veiða gult spjald
á Skagamanninn. aðeins sex mín-
útum síðar braut ísak á Hauki Páli
Sigurðssyni og fékk sitt annað gula
spjald í leiknum og þar með rautt.
Eftir það varð róðurinn þung-
ur hjá Skagamönnum og krist-
inn Freyr Sigurðsson skoraði ann-
að mark valsmanna á 72. mínútu
af stuttu færi og tryggði sigurinn
endanlega. ísak Snær Þorvaldsson
var öflugur á miðsvæðinu á meðan
hans naut við og var slæmt að missa
hann af velli. Þá átti enski varnar-
maðurinn alex davey mjög góð-
an leik í miðju varnarinnar og hafa
Skagamenn greinilega nælt sér í öfl-
ugan varnarmann sem á eftir að nýt-
ast liðinu vel í sumar.
Jóhannes karl guðjónsson, þjálf-
ari Skagamanna, sagði eftir leikinn
að hann hefði verið ánægður með
frammistöðuna í fyrri hálfleik og
hefði liðið verið óheppið að ná ekki
forystunni þá. En vendipunkturinn
hefði verið ódýra fyrra gula spjald-
ið á ísak. Hann hældi samt dómara
leiksins, vilhjálmi a. Þórarinssyni
fyrir leikinn, en var ósáttur með
gulu spjöldin og fannst ekki gæta
samræmis í þeim. dómarinn gaf
Skagamönnum sjö gul spjöld á með-
an heimamenn fengu ekkert og vakti
Jóhannes athygli á því þegar Birk-
ir már Sævarsson fór í Árna mark-
vörð sem þá var með báðar hendur
á boltanum en fékk ekki svo mikið
sem tiltal frá dómara leiksins.
Næsti leikur Skagamanna er á
laugardaginn kl. 19.15 gegn vík-
ingi á akranesvelli. Þeir geta tekið
margt jákvætt út úr leiknum gegn
val í næsta leik og ná vonandi að
landa sínum fyrstu stigum, en ísak
Snær tekur út leikbann í leiknum.
se/ Ljósm. fotbolti.net/ Hafliði
Breiðfjörð.
víkingur Ólafsvík gerði góða ferð
til reykjavíkur á laugardag og sigr-
aði Þrótt nokkuð örugglega 3:1 í
mjólkurbikarnum í leik sem fram
fór á Eimskipsvellinum í Laug-
ardal. Það var Harley Bryn Will-
ard sem skoraði fyrsta markið fyr-
ir gestina eftir um hálftíma leik.
Willard var aftur á ferðinni þremur
mínútum fyrir leikhlé með marki
úr vítaspyrnu og staðan því 2:0 í
hálfleik. kareem isiaka skoraði
svo þriðja mark víkinga um miðj-
an síðari hálfleik en Þróttarar náðu
svo að klóra í bakkann skömmu fyr-
ir leikslok með marki Samuels ge-
orgs Ford. Öruggur sigur víkinga
var engu að síður í höfn.
se/ Ljósm. Þorsteinn Ólafs
Öruggur sigur Víkings gegn Þrótti
Tap hjá Skagamönnum í
opnunarleiknum á Hlíðarenda
Gestirnir fagna fyrsta markinu sem Anna Þóra skoraði.
Skagakonur úr leik í Mjólkurbikarnum
Skagakonur í sókn