Skessuhorn - 16.06.2021, Qupperneq 14
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202114
Nemendur í 10. bekk í Grunda-
skóla á akranesi unnu öflugt
hreinsunarstarf á dögunum en
starfið var unnið í fjáröflunarskyni
fyrir útskriftarferð þeirra. Frá þessu
er sagt á vefsíðu akraneskaupstað-
ar en útskriftar nemar í Grunda-
skóla hafa ýmist safnað fyrir ferð-
inni með sölu á brauði í skólanum
sem og tekið að sér gangbrauta-
vörslu fyrir yngri nemendur. Co-
vid faraldurinn setti vissulega strik
í reikninginn hjá þeim í ár þar sem
brauðsalan var ekki opin og gang-
brautargæsla takmörkuð þar sem
nemendur voru á víð og dreif um
sveitarfélagið vegna framkvæmda
á skólahúsnæðinu núna í vor. Þau
hreinsuðu til í kalmansvík að El-
ínarhöfða, á Breiðinni og Langa-
sandi að Leyni og í Garðalundi og
klapparholti ásamt því að möl var
færð til á safnasvæðinu í Görðum.
Virkilega vel gert hjá þessum kraft-
miklu krökkum að fegra akranes
og nágrenni. vaks
adHd samtökin eru í mikilli upp-
sveiflu þessi misserin. aðalskrifstofa
samtakanna er að Háaleitisbraut 13
í Reykjavík en jafnframt hafa verið
sett á stofn útibú á Norður-, aust-
ur- og Suðurlandi auk Vestmanna-
eyja. Nú er verið að undirbúa stofn-
un útibús á Vesturlandi og síðan
verður hringnum lokað með Vest-
fjörðum. Fyrirhugað er að stofn-
fundur adHd Vesturlands verði
í ágúst. Vesturlandsútibúið mun
þjóna akranesi, Borgarnesi, Snæ-
fellsnesi, Borgarfirði og nærsveitum
og er gert ráð fyrir að útibúið muni
hefja starfsemi í haust.
adHd samtökin eru landssam-
tök til stuðnings börnum og full-
orðnum með athyglisbrest, ofvirkni
og skyldar raskanir. Á vef samtak-
anna segir meðal annars: „Mark-
mið adHd samtakanna er að börn
og fullorðnir með athyglisbrest,
ofvirkni og skyldar raskanir mæti
skilningi alls staðar í samfélaginu og
fái þjónustu sem stuðlar að félags-
legri aðlögun þeirra, möguleikum í
námi og starfi og almennt bættum
lífsgæðum.“
Blaðamaður Skessuhorns ræddi
við Elínu H. Hinriksdóttur, sér-
fræðing adHd samtakanna um
fyrirhugað útibú á Vesturlandi. að
sögn Elínar er mikil þörf á útibúum
á landsbyggðinni. „Oft á tíðum upp-
lifir fólk með adHd eða foreldrar
barna með adHd sig vera einangr-
að og þekkja fáa sem eru að kljást við
vandamál tengdum adHd í einni
eða annarri mynd. Með tilkomu úti-
bús adHd samtakanna er einstak-
lingum gefinn kostur á að sækja sér
fræðslu og jafningjastuðning.
Spjallfundir einu sinni
í mánuði
Í því skyni eru haldnir spjallfundir
einu sinni í mánuði. „Yfirleitt kem-
ur einhver sérfræðingur frá höfuð-
stöðvunum og flytur innlegg um
fyrirfram ákveðið málefni. Það getur
verið hvað eina sem tengist adHd;
kvíði unglinga, systkini og adHd,
svefnvandi, skólastarf og lyfjamál
svo dæmi séu nefnd. að innlegg-
inu loknu eru frjálsar umræður,
hvort sem er um málefni fundarins
að ræða eða annað sem fólki liggur
á hjarta. Ekki er nauðsynlegt að tjá
sig og sumir koma eingöngu til að
hlusta.“ Hér gefst kostur á að hitta
aðra og spjalla um sameiginleg við-
fangsefni. Á Covid tímum hafa sam-
tökin fært spjallfundi mikið yfir á
stafrænt form. „Það skapast hins
vegar ekki sama „dýnamík“ á raf-
rænum fundi eins og þegar fólk hitt-
ist augliti til auglitis. Í kjölfar stofn-
fundar útibúsins verður settur í loft-
ið facebook hópur er nefnist adHd
Vesturland en þar verður að finna
nýjustu fréttir tengdar adHd.
útibúin eru ekki með eigið húsnæði
heldur fara fundirnir iðulega fram í
skólum eða fundarsölum á viðkom-
andi stað.“
Sjálfboðastarf
að sögn Elínar er allt starf úti-
búa adHd samtakanna unnið í
sjálfboðavinnu. „Markmiðið er að
breiða út boðskapinn og sem hluta
af því hafa samtökin tvisvar á ári
boðið upp á stærri fræðslufundi.
Þar hefur verið fjallað um adHd
á breiðum grunni og leitast er við
að hafa sérfræðinga í fremstu röð
meðal fyrirlesara. Síðasti fundur var
haldinn í sal Íslenskrar Erfðagrein-
ingar og nefndist „adHd þjóðin“.
Þar var meðal annars fjallað um al-
þjóðlega rannsókn sem framkvæmd
var í samvinnu við Íslenska Erfða-
greiningu og gekk hún út á að kanna
tengsl erfða og adHd. Einnig
hafa samtökin staðið fyrir fræðslu-
fundi sem sneri að nýrri rannsókn
á tengslum adHd og mataræð-
is, framkvæmda af Bertrand Lauth
geðlækni og Bryndísi E. Birgisdótt-
ur næringarfræðing. Þessir fund-
ir hafa legið niðri á Covidtímum en
við höfum fullan hug á að hefja leik
að nýju strax í haust.“
Þá segir Elín að á vef samtak-
anna, www.adhd.is, sé að finna mik-
ið magn upplýsinga og fræðsluefnis
um adHd. Á síðastliðnu ári voru
framleidd myndbönd sem nefn-
ast; „Hvað er adHd“ ásamt hlað-
varpsþáttunum „Lífið með adHd“
og hafa þau slegið í gegn og fengið
mikið áhorf og hlustun. Einnig er
þar að finna alla bæklinga sem sam-
tökin hafa gefið út ásamt vefverslun
með bækur og ýmsum vörum sem
létt geta fólki með adHd lífið. frg
Hótel Rjúkandi er á Vegamótum,
á krossgötum fyrir miðju Snæfells-
ness, og er því stutt í alla helstu
áfangastaði á Nesinu; Þjóðgarð-
inn, Snæfellsjökul, arnarstapa,
kirkjufell og Stykkishólm. Hótel-
ið er einnig kaffihús þar sem boð-
ið er upp á léttan kaffihúsamatseð-
il á daginn, heimabakað bakkelsi
og gæða kaffi frá kaffibrugghúsinu
við Granda. kaffihúsið er afar vin-
sælt meðal gesta sem búa eða eru að
ferðast á Snæfellsnesinu. kaffihús-
ið er opið á daginn, alla daga vik-
unnar.
Hótelið er fjölskyldufyrirtæki
og hefur rekið veitingastaðinn
frá árinu 1998. Árin 2013-2014
var ráðist í framkvæmdir og hótel
byggt. Það er með 14 herbergjum,
öll herbergin eru með sérinngangi
og eru þau búin helstu þægindum
eins og sér baðherbergi með sturtu,
internettengingu, sjónvarpi, hár-
blásara og hraðsuðukatli.
Blaðamaður var staddur í Stað-
arsveit í síðustu viku og kíkti við á
Rjúkanda og hitti á hótelstjórann,
Ólöfu Eyjólfsdóttur, og heyrði í
henni hljóðið. Ólöf sagði að henni
litist vel á sumarið sem væri fram
undan og að hún væri spennt að
hitta fastagesti sem og nýja.
Veitingastaðurinn á Rjúkanda
býður upp á a la carte matseðil þar
sem boðið er upp á kjöt, fisk og
grænmetisrétti og ásamt því er hin
vinsæla bláskel úr Breiðafirðinum
á boðstólum. Veitingastaðurinn er
yfirleitt opinn alla daga frá klukk-
an 17-20 en nánari upplýsingar um
opnunartíma er að finna á fésbók-
arsíðu Rjúkanda.
vaks/ Ljósm. Ólöf Eyjólfsdóttir
Hluti nemenda Grundaskóla í hreinsunarátakinu.
Ljósm. Vefsíða Akraneskaupstaðar
Hreinsuðu hluta af
strandlengju Akraness
Kaffi og kaka er alltaf vinsælt.
Rjúkandi heitt kaffi á Rjúkanda
Séð inn í matsalinn á Rjúkanda.
Elín H. Hinriksdóttir, sérfræðingur ADHD samtakanna. Ljósm. aðsend.
Nýtt útibú ADHD samtakanna opnað
á Vesturlandi í ágúst