Skessuhorn - 16.06.2021, Side 25
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 2021 25
SIRKUSNÁMSKEIÐ HRINGLEIKS
12.–13. júlí í Frystiklefanum
á Rifi (8–16 ára)
Miðasala, skráning og allar
frekari upplýsingar á tix.is
Fylgist með Hringleik á
Facebook og Instagram
10. JÚLÍ
11. JÚLÍ
18. JÚNÍ
19. JÚNÍ
Akranes
Varmaland
Stykkishólmur
Náttúrusýning á Snæfellsnesi
ALLRA VEÐRA VON
NÝSIRKUSSÝNING UNDIR BERUM HIMNI
Safnahús Borgarfjarðar
Laugardaginn 26. júní er fyrsti dagur sýningarinnar Borgarfjarðarblóma í
Hallsteinssal. Á sýningunni má sjá verk sem myndlistarmaðurinn Viktor Pétur
Hannesson hefur unnið á ferðum sínum um héraðið, m.a. frá miðnæturflakki
um Kaldadal og fjörugöngu í Borgarnesi. Verkin eru unnin með jurtum sem
hann safnar á svæðinu, allt frá njólarótum og hundasúrufræjum yfir í
dimmblá krækiberin.
Ekki verður um formlega opnun að ræða vegna aðstæðna en stefnt er að
því að auglýsa viðveru listamannsins síðar. - Verið velkomin !
Hallsteinssalur er í Safnahúsinu að Bjarnarbr.
4-6 í Borgarnesi. Opið er 13.00-18.00 virka
daga og 13.00 til 17.00 um helgar. Ókeypis
aðgangur en söfnunarbaukur á staðnum.
433 7200 - www.safnahus.is
Sýning á verkum Viktors Péturs Hannessonar
26.06. - 29.07. 2021
Borgarfjarðarblómi
Í lokakaffi starfsfólks Grunn-
skóla Snæfellsbæjar í síðustu viku
voru kvaddir þeir starfsmenn sem
nú láta af störfum hjá skólanum.
Einn þeirra sem kvaddur var að
þessu sinni er atli alexandersson
sem lætur nú af störfum við skól-
ann eftir 49 ár en hann hefur starf-
að við skólann nánast alla starfsævi
sína. Voru atla færð blóm og gjaf-
ir frá samstarfsfólki sínu og honum
þakkað fyrir sitt góða starf sem ein-
kennst hefur af fagmennsku, sam-
viskusemi og metnaði í gegnum
tíðina.
Á myndinni er atli ásamt Hilmari
Má arasyni skólastjóra og kristni
jónassyni bæjarstjóra. Við sama
tækifæri var Theódóra Friðbjörns-
dóttir kvödd en hún hefur starfað
við skólann í sex ár en hverfur nú
til starfa í Hafnarfirði. Einnig fara
í ársleyfi þau Eygló Bára jónsdóttir
og Fadel a Fadel og munu þau bæði
starfa í Reykjavík næsta skólaár.
þa
dæluskipið dísa kom við í Grund-
arfirði um síðustu helgi til að dýpka
höfnina. dísa stoppaði þó stutt við
enda aðeins um smávægilegar lag-
færingar að ræða á botninum. Þá
var sléttað úr nokkrum hryggjum á
botni hafnarinnar en dísa var farin
um það bil sólarhring eftir að hún
kom.
tfk
Hjónin Bjartmar Hannesson og
kolbrún Sveinsdóttir, bændur á
Norður-Reykjum í Hálsasveit,
hófu slátt á mánudaginn. Spáð var
að hangið gæti þurrt næstu tvo daga
og heimatúnið sprottið þokka-
lega og því sagði Bjartmar í sam-
tali við Skessuhorn að ekki hefði
verið eftir neinu að bíða með að at-
huga hvort tækin væru í lagi. Slógu
þau hjón því fjóra hektara sem þau
þurrka og binda í rúllur í tæka tíð
fyrir sautjánda júní, því eins og seg-
ir í lok þjóðhátíðartexta Bjartmars
sjálfs, Hæ, hó, jibbí, jei; er vissara
að vera við öllu búinn: „En rign-
ingin bindur enda á þetta gleði-
geim, því gáttir opnast himins og
allir halda heim.“
mm Bjartmar og Kolla hafa áður verið fyrst bænda til að hefja slátt.
Ljósm. úr safni frá 11. júní 2012.
Sláttur er hafinn á Norður-Reykjum
Ilmandi nýslegin taðan á heimatúninu. Ljósm. ks.
Atli kvaddur eftir
49 ára starf við skólann
Dæluskipið við vinnu alveg við hafnarkantinn.
Dæluskipið Dísa dýpkar
höfnina í Grundarfirði