Skessuhorn - 16.06.2021, Síða 27
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 2021 27
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
1
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með félagsþjónustu sveitarfélagsins,
þjónustar íbúa Hvalfjarðarsveitar á því sviði, er ráðgefandi
fyrir sveitarstjórn og nefndir og vinnur skv. samþykktum þeirra.
Félagsmálastjóri vinnur að faglegri uppbyggingu og stefnumótun í
málaflokkum sem heyra undir starfssviðið.
Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið
félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar:
Félagsleg þjónusta, ráðgjöf, greining og aðstoð•
Málefni fatlaðra•
Málefni aldraðra og félagsleg heimaþjónusta•
Barnavernd•
Málefni barna og ungmenna•
Húsnæðismál•
Forvarnar- og jafnréttismál•
Félagsmálastjóri ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu
og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða.
Félagsmálastjóri sinnir teymisvinnu og starfar með mismunandi
fagstéttum á þjónustusvæði sveitarfélagsins. Félagsmálastjóri er
starfsmaður fjölskyldu- og frístundanefndar.
Almennt stjórnunarsvið:
Félagsmálastjóri starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir
sem gilda um félagsþjónustu sveitarfélaga, eftir lögum er varða
opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum
sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á
hverjum tíma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf í félagsráðgjöf er skilyrði•
Þekking og reynsla í félagsráðgjöf, barnavernd og málefnum fatlaðra •
er skilyrði
Reynsla af stjórnun úr sambærilegu umhverfi er æskileg•
Þekking á svæði félagsþjónustunnar er mikill kostur•
Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika•
Sjálfstæði í vinnubrögðum og þjónustulund•
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi•
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.•
Reynsla af notkun kerfanna One System og Navision er kostur•
Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2021. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið.
Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301
Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is
Félagsmálastjóri
Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 650 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er
dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt
skólastarf.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi
við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is
Laust er til umsóknar starf félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf innan
stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum
félagsþjónustu sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
BAKKAHVAMMUR 8D
370 - Búðardal
Til leigu 3ja herbergja, 74,9 m² íbúð í raðhúsi við Bakkahvamm 8d í Búðardal.
Eignin skiptist í forstofu með fataskáp, 2 svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og tengi
fyrir þvottavél, stofu, eldhús og geymslu. Ísskápur og uppþvottavél eru í eign, en þau tæki
verða ekki endurnýjuð eða gert við þegar þau bila. Gengið verður frá lóð vor/sumar 2021.
Hægt er að sækja um íbúð á www.briet.is
þetta litla land sem er að reyna
að berjast til baka en hefur engan
her. Þau hafa ekki marga valkosti.
auðvitað eigum við aldrei að sam-
þykkja sjálfsmorðssprengjur en ég
allavega skil að þetta er neyðarúr-
ræði fyrir Palestínumenn sem eru
að berjast fyrir lífi sínu,“ útskýrir
Elín.
Íslendingar mest
á hlið Palestínu
„Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér
málum Ísraels og Palestínu vil ég
bara segja að það eru margar hlið-
ar sem þarf að skoða. Við sjáum
bara smá brot af stóru myndinni
í fjölmiðlum. Það er erfitt að taka
afstöðu frá þeim upplýsingum sem
við fáum. Það er því mikilvægt
að lesa fleira en fréttamiðla til að
skilja stöðuna þarna. Fólk ætti að
lesa fræðigreinar og skoða tíma-
línuna,“ segir Elín og bætir við
að hafi fólk spurningar megi hafa
samband við hana. „Ég hef stund-
um fengið spurningar frá fólki í
kringum mig og mér þykir gam-
an að fólk vilji fræðslu og ég reyni
að svara eftir bestu getu. Það er
nefnilega svo margt sem við verð-
um að taka til greina í þessari um-
ræðu. Pólitíkin í Bandaríkjunum,
Rússlandi og fleiri ríkjum um all-
an heim hefur líka áhrif á ástand-
ið þarna. Því meira sem ég kynni
mér stöðuna þarna því betur skil
ég báðar hliðar og sé að við fáum
ekki alla söguna í fjölmiðlum.
Flestir Íslendingar eru á hlið Pal-
estínu og ég spái oft í af hverju það
sé. kannski er það vegna þess að
Palestína er lítið land með engan
her og lítil völd eins og við. Ætli
við sjáum okkur ekki aðeins í litla
manninum,“ segir Elín Huld að
endingu. arg
Heimili í Ísrael eftir sprengingu frá Gaza. Ljósm. bbc.com