Skessuhorn - 16.06.2021, Qupperneq 28
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202128
framkvæmdastjóra Kaffi Kyrrðar
Dagur í lífi...
Nafn: katrín Huld Bjarnadóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Ógift og
barnlaus. Bý í Borgarnesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Fram-
kvæmdastjóri / Blómasetrið - kaffi
kyrrð
Áhugamál: Ferðalög, ljósmyndun,
andleg málefni
Dagurinn: Mánudagurinn 14. júní
2021.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir?
Ég vakna yfirleitt snemma en
vaknaði kl. 07:00 í dag. Fyrsta sem
ég gerði var að segja „Takk“ þegar
fæturnir snertu gólfið. Svo var það
baðherbergið, sturta og allt sem
því fylgir.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Bulletproof kaffi
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig?
Ég fór akandi í vinnuna kl. 07:30,
byrjaði að hugleiða og fá mér kaffi.
Ég mæli hjartanlega með hug-
vekjunum hans Guðna Gunn-
ars sem er live á Facebook síðu
Rope Yoga setursins alla þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 06:50 og
á sunnudögum kl. 09:00. Á meðan
ég drekk kaffibollann horfi ég oft
á einhvern þátt. Núna er ég föst í
RuPaul drag Race sem eru algjörir
snilldar þættir því þeir eru stútfull-
ir af kærleika, litum og gleði. Ég
byrjaði svo að vinna kl. 09:00.
Fyrstu verk í vinnunni?
Skúra yfir staðinn okkar, sinna álf-
unum, fara yfir pósta og huga að
verkefnum dagsins.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Við tókum starfsmannafund fyr-
ir opnun í dag. Eftir hann fór ég í
göngutúr með hundinn okkar Álf
sem er einstaklega góður hluti af
deginum. Veðrið var gott og Borg-
arnes skartaði sínu fegursta.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Ég var að gefa öðrum hádegismat í
góðum gír.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Vinna, kannski hef ég akkúrat ver-
ið að gera góðan cappuccino fyr-
ir gest.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni?
Ég hætti kl. 18:00 í dag því ég fór
suður til Reykjavíkur. Það síðasta
sem ég geri er að ganga frá öllu og
athuga stöðuna með gestina sem
eru hjá okkur í gistingu.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Fór til Reykjavíkur þar sem ég fór í
göngutúr og í dýrindis veislu.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði?
Bleikja með salati og grjónum, allt-
af nóg af ólífuolíu á besta veitinga-
stað bæjarins.
Hvernig var kvöldið? allskonar
Hvenær fórstu að sofa? um
klukkan 23:00
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Borðaði yndislegan eftirrétt og fór
í sturtu.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn?
að finna sumarstemningu og glað-
lyndi hjá gestunum okkar.
Eitthvað að lokum?
Ég ætla að ljúka þessu á einkunn-
arorðum Blómasetursins - kaffi
kyrrðar sem er: „Lifið - Elskið –
Njótið,“ og býð alla hjartanlega
velkomna.
Guðmundur Grétar Bjarnason er
verktaki í Hlíðarholti í Staðarsveit.
Hann býr þar ásamt unnustu sinni,
Veru Sól Bjarnadóttur, og nýfæddri
dóttur þeirra, Bjarneyju dögg.
Hann rekur jarðvinnuverktakafyr-
irtækið B. Vigfússon ásamt föður
sínum, Bjarna Vigfússyni, og bróð-
ur, Vigfúsi Þráni Bjarnasyni. Nóg
hefur verið að gera hjá þeim síð-
ustu ár. Þeir hafa til dæmis verið að
vinna í nokkur ár fyrir umhverfis-
stofnun í Þjóðgarðinum á Snæfells-
nesi, unnið í jarðvinnu ásamt því að
búa til göngustíga og bílastæði. Þá
hafa þeir einnig séð um snjómokst-
ur fyrir Snæfellsbæ frá árinu 2018.
Þeir eru með gröfur sem spanna
frá 1.800 kílóum upp í 45 tonn en
einnig aðrar vélar og þar má með-
al annars nefna vörubíla, kranabíla,
sanddreifara, snjóblásara og trak-
tora.
Guðmundur byrjaði að vinna á
bænum Bláfeldi á ellefta ári og síðar
á Lýsuhóli en er alinn upp á kálfár-
völlum. Hann byrjaði að vinna hjá
föður sínum þegar hann var 16 ára
og hefur að mestu verið þar nema
fjögur ár þegar hann var að vinna
hjá Ragnari og Ásgeiri í Grundar-
firði sem bílstjóri í kringum hrunið.
Guðmundur er alinn upp við hey-
skap og sá alltaf eftir honum þeg-
ar hann fór í jarðvinnuna. Því sá
hann tækifæri á þessu ári, stofnaði
fyrirtækið Steinahlíð ehf. og ákvað
að fjárfesta í rúllusamstæðu sem
er heyvinnuvél sem bindur heyið í
rúllur og pakkar þeim líka í plast.
Er kominn með sex
aðila í þjónustu
En hvað kom til að hann fékk þessa
hugmynd? „Í vetur var ég að vinna
hjá einum í sveitinni sem ég var að
vinna hjá í gamla daga þegar ég
var unglingur í heyskap og byrj-
aði í smá fíflagangi að spyrja hann
hvort ég ætti ekki að þjónusta hann
í rúlluverktöku. Svo kom meiri al-
vara í málið sem endaði með því að
ég er að kaupa nýja rúllusamstæðu
og ég er kominn með sex aðila með
misstór bú sem ætla að kaupa af
mér þjónustu hér í sveitinni. Það á
bara eftir að koma í ljós hvað þetta
verður í rúllufjölda. Menn eru að
hætta að nota gamlar rúlluvélar
sem þjappa illa þannig að tölurnar
sem bændurnir gefa upp hvað þeir
eru með margar rúllur eiga eftir að
breytast. Það verða færri rúllur út
úr nýju rúlluvélinni og þetta kem-
ur í ljós eftir sumarið hvernig raun-
talan verður. Eins og þetta lítur út
núna ætti þetta allt að sleppa til.“
Guðmundur segir að þekkt sé er-
lendis svona leiga og þjónusta en að
þetta hafi verið að færast í aukana
hér heima: „allir sem ég talaði við
þegar ég var að fá tilboð í vélar og
annað sögðu að þetta landslag væri
að breytast mikið. Það er hagstæð-
ara fyrir bændur að kaupa þessa
vinnu að og þá getur einn átt vélina
og farið víðar með hana. Þetta eru
dýr tæki og flestir sjá hag í þessu.“
Tækin farin að eldast
En er markaðurinn á svæðinu nógu
stór? „Ég hélt ekki en ég var mjög
hissa þegar ég fór að ræða við menn
hvað þeir voru áhugasamir um
þetta og þá sérstaklega þegar búið
var að taka ákvörðun um að kaupa
tækin. Flestir hafa verið með þetta
sjálfir en svo eru tækin farin að eld-
ast og orðin verðlaus þannig og
þá sjá menn ekki mikinn hag í því
að vera að endurnýja. Ég var með
ákveðið margar rúllur í huga sem
þurfti til að prófa og þá ætlaði ég
að kaupa notaða vél og sjá hvern-
ig þetta kæmi út. En svo kom í ljós
að það væri grundvöllur fyrir því
að kaupa nýja vél og var ákveðið að
kaupa vél með plastbindingu til að
losna við netið á rúllunum Þetta er
tilraun hjá okkur og við ætlum að
sjá hvernig þetta kemur út í sumar
og erum bara nokkuð bjartsýnir,“
segir Guðmundur að lokum.
vaks
Alinn upp við heyskap og hyggst gera út með rúllusamstæðu
Guðmundur við John Deer traktorinn sinn í Hlíðarholti.