Skessuhorn - 16.06.2021, Side 30
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202130
Sigurvin Haraldsson er fæddur árið
1986 og ólst upp á akranesi. Hann
flutti til akureyrar árið 2010. Hann
kom aftur á Skagann fjórum árum
síðar áður en hann fluttist til Reykja-
víkur árið 2017 og býr þar með konu
sinni og fósturbarni. Foreldrar hans
heita Haraldur Ásgeir Ásmunds-
son og María Gunnarsdóttir. Simmi,
eins og Sigurvin er oftast kallaður, á
þrjú systkini. Simmi er búinn að vera
í skemmtanabransanum í rúm 20 ár
bæði sem plötusnúður og skemmti-
kraftur. Hann hefur síðustu ár ver-
ið að vinna hjá Bifreiðastöð ÞÞÞ á
akranesi en í hjáverkum hefur hann
síðustu tvö til þrjú ár verið að reyna
fyrir sér í raftónlistinni undir nafn-
inu Luminate. Simmi kíkti í spjall á
ritstjórn Skessuhorns í síðustu viku
og var fyrst spurður hvernig það hafi
komið til að hann fór að gefa út tón-
list.
„Luminate er verkefni sem ég hef
verið að gæla við í þónokkuð mörg
ár. Fyrsta lagið sem ég samdi und-
ir nafninu Luminate heitir king Of
Light og er á smáskífunni War Of
The kingdome. upphaflega ætl-
aði ég að senda það í íslensku Euro-
vision keppnina. Ég var búinn að fá
söngvara sem gerði textann og fékk
Haffa Haff til að aðstoða mig með
lagið. En einhvern veginn fór þetta
að spinna út frá sér og svo varð ekk-
ert úr Eurovision laginu og ég hélt
áfram með þetta.“
Var með fjögur lög
í Vonarstræti
Árið 2019 komu út fjórar plötur á
sama árinu með Luminate. Plöturn-
ar heita kelia, My dreams, Reborn
og Otherworld. Þetta eru ansi mik-
il afköst á sama árinu, hver er skýr-
ingin? „Þetta er allt saman uppsafn-
að frá einhverjum tíma og ég gróf
djúpt í hugmyndabankann. Svo er
þetta mörg lög af smáskífum sem
innihalda 2-3 lög. Ég reyni alltaf að
fara inn í öðruvísi heim með lögun-
um mínum. Fólk getur túlkað þetta
hvernig sem það vill. Það er ekki
mikið sungið í lögunum því þetta er
eins og þegar maður horfir á kvik-
myndir, þá er tónlistin svona að ýta
undir hvernig fólk hugsar. Ein platan
er með lögum úr kvikmyndinni Von-
arstræti frá árinu 2014 og ég gaf hana
aftur út undir þessu nafni. Ég á fjög-
ur lög í stærstu senu myndarinnar
sem er partísenan á snekkjunni. Það
kom til að ég var að læra hljóðtækni í
stúdíó Sýrlandi fyrir norðan og í út-
skriftinni kom Baldvin Z, leikstjóri
myndarinnar, og hann bauð mér að
taka þátt í myndinni.“
Villi Vill, Toto
og Van Halen
En hvenær byrjaði þú að hafa áhuga á
tónlist? „Bara þegar ég var smágutti,
en ég byrjaði ekki að grúska í tónlist
fyrr en í grunnskóla. Svo kynnist ég
forritun sem sérhæfir sig í tónlistar-
hljóðum og þá snerist þetta í að vera
að semja á hljóðfæri og fara alfarið í
raftónlist. Ég get bjargað mér á gít-
ar og á píanó en nota aðallega píanó
í minni tónlist. Maður getur samið
nánast hvað sem er í gegnum tölvur
og upptökur. Maður kannski tekur
eitthvað upp, setur það í tölvuna og
klippir það og breytir hljóðinu. Þetta
byrjaði allt fyrir um tíu árum síðan
þegar ég gaf út þrjú lög og komst á
samning hjá bandarísku útgáfufyr-
irtæki í smá tíma. Svo gaf ég út eitt
lag í gegnum breskt útgáfufyrirtæki
og síðan lagðist maður í smá dvala.
Ég var ekki alveg að finna mig í því
sem ég var að gera þá þegar ég var
um tvítugt.“
Simmi segir að hann hafi hlust-
að mikið á Vilhjálm Vilhjálmsson í
gegnum tíðina og þá hlustaði hann
mikið á hljómsveitirnar Toto og Van
Halen þegar hann var yngri. En í dag
er hann aðdáandi raftónlistarmanna
eins og The Prodigy og deadmouse
og þá sérstaklega Skrillex sem hann
segir að hafi breytt stefnunni ansi
mikið í raftónlistinni.
Er einfari í tónlist
Hefurðu aldrei verið í hljómsveit?
„Ég fúnkera einhvern veginn ekki
með öðrum og er hálfgerður ein-
fari í tónlistinni. Mér finnst ekk-
ert skemmtilegt að koma með ein-
hverjar hugmyndir og þær eru svo
bara kæfðar í fæðingu af öðrum. Þess
vegna byrjaði ég með Luminate því
það er eitthvað sem mig dettur í hug
að gera og þar fæ ég að ráða öllu.“
En hvað merkir þetta Luminate?
„Það merkir ljós. Ég rakst á þetta
orð einhvers staðar og mér leist vel
á það og ákvað að nota það. Þó tón-
listin mín sé þung og í dekkri kant-
inum þá er þetta mismunandi hvern-
ig fólk túlkar þetta. Ég gef bara út
það sem mér dettur í hug, mér get-
ur dottið í hug einn daginn að semja
ballöðu og svo hinn daginn eitthvað
allt annað.“
Breiðin tilvalið
tónleikasvæði
En hefur Simmi haldið tónleika und-
ir nafninu Luminate? „Ekki síð-
ustu fimm ár eða svo. Það var ætl-
unin með Luminate í fyrra en svo
kom Covid og ég setti það á ís. Ég
er svona aðeins að hugsa það hvern-
ig ég myndi vilja hafa þessa tónleika,
það er fullt af góðum tónleikastöðum
eins og til dæmis á Breiðinni á akra-
nesi. Mér datt í hug að fara efst í Vit-
ann, hengja hátalarana utan á hann
og vera efst í honum. Svo er líka
komið flott hellulagt svæði rétt hjá
Vitanum sem væri tilvalið því þetta
er svæði þar sem enginn verður fyrir
ónæði sama hversu hátt tónlistin er
spiluð.“
Leitarljós
Hvernig myndir þú lýsa tónlist-
inni þinni? „Hún er mjög fjölbreytt,
svona ævintýraleg fjölbreytni. Ég hef
aðeins verið að vinna með goðafræð-
ina; valkyrjur, Óðinn, Fenrir og veg-
vísirinn. Ég reyni að túlka íslensku
goðafræðina með mínum lögum.
Ég gaf út þessar fjórar plötur undir
Luminate allar með enskum heitum
og textum. Núna nýlega gaf ég út lag
á íslensku með texta sem ég samdi
fyrir nokkrum árum síðan, ég fann
það í tölvunni og fór að vinna í því.
Ég fékk nokkrar hugmyndir hvern-
ig ég vildi hafa hljóminn í söngnum
sem er eins og einhver karakter í æv-
intýramynd og þetta er svona ástar-
lag milli tveggja veralda. Mig vant-
aði nafn á það og vitnaði í nafnið á
Luminate, Leitarljós og hef fengið
ágætis viðtökur við því, hér heima
og erlendis. Lagið kemur í endur-
bættri útgáfu 17. júní næstkomandi
og er endurhljóðblandað af mér.“
Þess má að endingu geta að Lum-
inate er á Spotify, iTunes og öllum
helstu streymisveitum. vaks
Simmi að störfum sem plötusnúður fyrir nokkrum árum.
Ljósm/einkasafn
Maður getur nánast samið hvað sem
er í gegnum tölvur
Kemur sér fyrir í raftónlistinni með listamannsnafnið Luminate
Simmi í vinnunni hjá ÞÞÞ. Ljósm/vaks
Luminate að störfum í stúdíóinu. Ljósm/einkasafn