Skessuhorn - 16.06.2021, Page 32
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202132
Nýjasta viðbót í veitingaflóruna
í Borgarnesi, Bara Ölstofa Lýð-
veldisins, verður opnuð formlega á
morgun, á þjóðhátíðardegi Íslend-
inga. „Við vorum með allt tilbúið
á föstudaginn og vorum í rauninni
með smá generalprufu um helgina
sem gekk vel,“ segir Hlynur Þór
Ragnarsson, einn af fjórum eigend-
um ölstofunnar, í samtali við blaða-
mann Skessuhorns. „Við vorum í
rauninni með opna hurð hérna um
helgina og ef einhver vildi kíkja inn
þá var hann velkominn,“ bætir Sól-
ey Ósk Sigurgeirsdóttir við. Bara
Ölstofa Lýðveldisins er til húsa þar
sem dússabar var í fleiri ár með
rekstur, að Brákarbraut 3, og eftir
mikla vinnu síðustu mánuði verða
dyrnar nú opnaðar fyrir viðskipta-
vini.
Unnið um helgar
og á kvöldin
Það eru fjórmenningarnir Hlyn-
ur Þór Ragnarsson, systurnar Sól-
ey Ósk og Rakel dögg Sigurgeirs-
dætur og Magnús Björn jóhanns-
son sem eru eigendur staðarins.
Þau fengu lyklavöldin í byrjun árs
og strax frá fyrsta degi var hafist
handa við að gera staðinn kláran til
reksturs. „Þetta er búið að vera upp
og niður en mest megnið búið að
ganga ótrúlega vel. allt sem þú sérð
hérna erum við,“ segir Sóley við
blaðamann. „Hlynur og Maggi eru
náttúrulega búnir að vera sveittir
hérna eftir vinnu að vinna í þessu
verkefni og koma staðnum í stand,“
bætir hún við. Öll eru þau fjögur í
annarri vinnu svo allar framkvæmd-
ir hafa farið fram um helgar eða eft-
ir vinnu á kvöldin. „Við fengum í
rauninni fyrst „frí“ á föstudaginn,
þá var allt tilbúið,“ bætir Hlynur við
stoltur. „Þegar ég horfi yfir ferlið í
dag, þá tók alveg smá tíma að átta
sig á að þetta væri komið hjá okkur.
Við ákváðum líka strax frá upphafi
að gera þetta rétt,“ segir Sóley og
Hlynur bætir við: „Samvinnan við
þá sem við þurfum að vera í sam-
vinnu við til þess að fá að gera þetta
hefur gengið ljómandi vel. Það er
alveg hægt að fá fullt af undanþág-
um, en að fara í þá baráttu eða gera
þetta rétt frá upphafi, eins og ætlast
er til, er betra. 25% af staðnum er
til dæmis undir salernisaðstöðu.“
Afslöppuð stemning
Fjórmenningunum hafi vel tek-
ist til við að umturna staðnum og
byggja upp að nýju. ummerki um
fyrri rekstur í húsinu er hvergi hægt
að finna. Staðurinn endurspegl-
ar persónuleika eigendanna því
um leið og gengið er inn á staðinn
tekur við manni hlý, afslöppuð og
vinaleg stemning. „Við sjáum ekki
fyrir okkur að fólk fari héðan rall-
andi út, þess vegna erum við ekki að
einblína á að hafa opið til klukkan 3
um nótt. Bara að fólki líði vel hérna
hjá okkur og að það líði eins og það
hafi verið í heimsókn hjá besta vini
eða bestu vinkonu. Það er svoleiðis
andrúmsloft sem við erum að reyna
að skapa, að þú getur setið hérna,
fengið þér góða drykki, slappað af
og notið þín,“ segir Sóley Ósk um
hvernig þau vilja að fólki líði þegar
það frá sér.
Bara Ölstofa
Lýðveldisins
Staðurinn hefur fengið nafnið Bara
Ölstofa Lýðveldisins og spyr blaða-
maður hvernig það nafn hafi komið
til. „Bara kemur svolítið þegar við
vorum nýbúin að kaupa staðinn og
vorum í hugmyndavinnu. Hvað er
þetta? Bara bar. Svo við útbjugg-
um á samfélagsmiðlum síðu fyr-
ir staðinn undir nafninu Bara bar
í Borgarnesi,“ útskýrir Sóley. „Það
er nokkurn veginn búið að festast
svo það kom eiginlega ekki annað
til greina en að hafa bara í nafninu.
Svo er Ölstofa Lýðveldisins svolítið
fyrir strákana,“ bætir hún við. „Við
þurfum að hafa þetta hæfilega há-
fleygt,“ bætir Hlynur við kíminn.
„af hverju ekki? Þetta er lýðveldi
og þetta er ölstofa. Það er enginn
annar að gera þetta betur en við,
megum við þá ekki bara gera það,“
bætir hann við léttur í lund.
Úrvalið verður íslenskt
Gott og fjölbreytt úrval af íslensk-
um bjór verður í boði á staðnum og
vilja fjórmenningarnir bjóða við-
skiptavinum sínum upp á „flawless
serving“ eins og Hlynur kallar það.
Það er í raun að hver og einn bjór
verður afgreiddur í glasi frá þeim
framleiðanda sem hann kemur frá.
„Þú átt ekki að drekka Steðja úr
kaldaglasi eða öfugt,“ segir Hlyn-
ur um viðmiðið sem þau vilja til-
einka sér. „Við erum nú þegar með
fjóra á krana, allir eru þeir lager-
bjórar, þannig að þeir eru svona
keimlíkir í grunninn eða í brugg-
unarferlinu en þetta eru mismun-
andi bragðtegundir engu að síður.
kaldi, Steðji, Ölvusholt og Litla
Brugghúsið, allt valið af okkur sem
okkur þykja góðir lagerbjórar. Við
byrjum með þá á krana. Svo mun-
um við aðeins rótera með tíman-
um og sjá hvað fólk vill og hver eft-
irspurnin verður. En við munum
byrja á þessum fjórum. Seinna von-
andi komum við með ale, iPa og
eitthvað annað. Líka, þegar hátíð-
irnar koma, viljum við bjóða upp á
jólabjóra, páskabjóra og þar fram
eftir götum,“ bætir hann spennt-
ur við.
Einnig verða þau með gott úr-
val á flösku eða upp í 20 mismun-
andi tegundir. Margt af því verður
það sama en einnig frá mismun-
andi framleiðendum. „Við erum til
dæmis með ale frá þremur fram-
leiðendum og hveitibjór frá fjór-
um,“ segir Hlynur. Fyrir utan bjór-
inn verður einnig í boði rautt og
hvítt ásamt allskonar kokteilum.
„Svo verðum við með svona krá-
armat; kjúklingavængi, blómkáls-
vængi og pulsur og kartöflumús.
Við verðum með fjóra til fimm rétti
til að byrja með,“ bætir Sóley við.
Opna á morgun
Formleg opnun á Bara Ölstofu
Lýðveldisins í Borgarnesi verður á
morgun kl. 16:00 og verður opið til
kl. 23:00. Framvegis verður staður-
inn opinn frá 14-23:00 og ef það er
góð stemning, þá hafa þau opnun-
arleyfi til kl. 01 um helgar, föstu-
daga og laugardaga. „Við stefnum
á að hafa einhverskonar viðburði
hérna mánaðarlega. Svo verður
hægt að sýna einhverja leiki hérna í
sjónvarpinu eða aðra eins sjónvarps
viðburði,“ segir Sóley Ósk full til-
hlökkunar. „Við viljum veita góða
þjónustu. Það er til dæmis ekkert
mál að hópar komi, það þarf bara
að hafa samband við okkur. Þetta
verður svolítil heimastemning þó
það séu allir velkomnir að sjálf-
sögðu,“ segja þau spennt að lokum.
glh
Auðvelt er að finna kósí horn á nýja staðnum til að planta sér niður og eiga
notalega stund.
Bara Ölstofa Lýðveldisins verður opnuð á morgun
Rætt við eigendur nýju ölstofunnar í Borgarnesi
Eigendurnir: Hlynur Þór, Magnús Björn, Sóley Ósk og Rakel Dögg (lengst til hægri), ásamt fyrsta viðskiptavini Bara Ölstofu,
Yvonne frá USA. Ljósm. aðsend.
Bara Ölstofa Lýðveldisins er staðsett að Brákarbraut 3, við aðalgötuna í Borgar-
nesi.
Staðurinn fékk umfangsmikla andlitslyftingu eftir að fjórmenningarnir tóku við
lyklavöldunum í janúar á þessu ári. Þau vilja að viðskiptavinir sínir geti slappað af
og notið sín þegar þeir koma í heimsókn á ölstofuna.
Boðið verður upp á fjóra lagerbjóra af krana frá íslenskum framleiðendum. Að
auki verður gott úrval á flöskum, eða yfir 20 tegundir.