Skessuhorn


Skessuhorn - 16.06.2021, Page 37

Skessuhorn - 16.06.2021, Page 37
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 2021 37 Akranes – 11. júní til 9. júlí. Bland í poka - skúlptúrasýning Tinnu Royal. Dagana 11. júní til 9. júlí mun Tinna Royal, bæjarlistamaður Akra- ness, vera með skúlptúrasýningu í Bókasafni Akraness. Sýningin er að- gengileg öllum á opnunartíma bóka- safnsins. 17. júní - Allt Vesturland Hátíðarhöld á þjóðhátíðardegi Ís- lendinga víða á Vesturlandi sem og annars staðar á landinu. Akranes - 17. til 20. júní. Norðurálsmótið á Akranesi. Mótið hefst 17. júní með mótsdegi fyrir 8. flokk drengja og stúlkna. 18.- 20. júní er mót fyrir 7. flokk drengja, sem hefst 18. júní og er til 20. júní. Akranes – miðvikudagur 16. júní. Skagamenn taka á móti KA á Akra- nesvelli í Pepsi Max deild karla í fót- bolta. Leikurinn hefst kl. 18:00. Borgarbyggð – laugardagur 19. júní. Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs. Gengið til Englands! Gangan hefst á hlaðinu á Iðunnarstöðum í Lundar- reykjadal, þar sem Hótel Basalt er í byggingu. Leiðin er ríflega 10 km löng og telst vera 2 skór. Áætlaður göngu- tími er 5 – 6 klst. Göngustjóri verður Gísli Einarsson. Allir velkomnir. Hvalfjarðarsveit – laugardagur 19. júní. Fly-in dagur Hvalfjarðardaga á Leirá. Flughátíð á Leirá í tilefni Hvalfjarðardaga. 19. júní 2021 kl. 13:00-17:00. Félagar í Fisfélagi Reykjavíkur koma og lenda vél- um sínum á Leirá. Þyrla frá helo.is verður með útsýnisflug og stefnt er að því að Landhelgisgæslan verði með þyrlu til sýnis á svæð- inu. Dagurinn er jafnframt fjáröfl- unardagur í Hvalfjarðarsveit fyrir Björgunarfélag Akraness. Sjá nán- ar auglýsingu hér í blaðinu. Snæfellsnes – 19. til 27. júní. Afmælisdagskrá Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Dagana 19. júní til 27. júní verður mikil afmælisdag- skrá til heiðurs afmæli Þjóðgarðs- ins Snæfellsjökuls en 20 ár eru lið- in frá stofnun hans. Sjá nánar á miðopnu. Akranes – þriðjudagur 22. júní. Skagakonur taka á móti Víkingi R. á Norðurálsvelli í Lengjudeild kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:15. Ólafsvík – þriðjudagur 22. júní. Reynir Hellisandi tekur á móti Ála- fossi á Ólafsvíkurvelli í 4. deild, C riðli. Leikurinn hefst kl. 20:00. Óska eftir íbúð á Akranesi Við erum par að leita að tveggja herbergja íbúð sem leyfir dýrahald á Skaganum. Við erum reyklaus og það fylgja okkur engin læti. Upp- lýsingar í síma: 888-0936. Íbúð til leigu, Akranesi Laus strax! Til leigu mjög snyrti- leg 3ja herb. íbúð, u.þ.b. 80 m2, að Eyrarflöt 6, Akranesi. Uppl. í s. 864-3000 og á netfanginu gghus@ gghus.is. Leiga - lítið húsnæði í sveitinni Góðan dag. Ég er að leita að lít- illi íbúð eða húsnæði í Borgarfirði, í sveitinni. Skoða flest. Er í fastri vinnu og reglulegar tekjur. Uppl. r1114@protonmail.com. Óskast keypt Óska eftir að kaupa gamlan ódýr- an gemsa. Hafið samband í net- fang jonsragnh@gmail.com Til sölu Tab 320 BASIC Dropi Tab 320, árg 2019, sólarsella. Verð: 3.300.000 kr. S: 867-0685 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Óskast keypt Á döfinni Smáauglýsingar Nýfæddir Vestlendingar 7. júní. Stúlka. Þyngd: 4.022 gr. Lengd: 52,5 cm. Foreldrar: Anna Sigurborg Elísdóttir og Óðinn Freyr Jóhannsson, Akranesi. Ljós- móðir: Guðrún Fema Ágústsdóttir 10. júní. Stúlka. Þyngd: 3.342 gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Björg Hjaltested og Hallur Einarsson, Vestmannaeyjum. Ljósmóðir: Haf- dís Rúnarsdóttir. 14. júní. Drengur. Þyngd: 3.646 gr. Lengd: 49,5 cm. Foreldrar: Birta Kjærnested Jóhannsdóttir og Sveinn Þór Þorvaldsson, Akra- nesi. Ljósmóðir: G. Erna Valent- ínusdóttir. Það er hlutverk hins almenna Sjálf- stæðismanns að setja saman sterk- asta listann fyrir kjördæmið okk- ar. Hver er öflugasta uppsetning- in? Hvernig hefur gengið og hver er framtíðarsýnin? Ég hef notið þeirrar gæfu að fylgj- ast náið með störfum þingmanna Sjálfstæðisflokksins þeirra Harald- ar Benediktssonar og Þórdísar kol- brúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Þau hafa bæði unnið öflugt og kraft- mikið starf í þágu okkar kjördæmis þannig að mikinn skugga hefur fall- ið á aðra þingmenn kjördæmisins. Nú er staðan sú að þau gefa bæði kost á sér í oddvitasætið í kjördæm- inu svo okkur kjósendum í próf- kjöri er vandi á höndum enda tveir frábærir þingmenn í þeim slag. Sjálfur hef ég tekið þá ákvörðun að styðja Harald Benediktsson í fyrsta sætið því að mínu mati tel ég ár- angursríkast að styðja Harald áfram sem oddvita. Þannig nýtist hann kjördæminu best. Þórdísi styð ég áfram sem ráðherra þar sem áhersla hennar þarf alltaf að vera meira en bara okkar kjördæmi. Þannig nýtast kraftar þeirra beggja best. Nú líður að kjördegi í próf- kjöri okkar Sjálfstæðismanna sem fer fram 16. og 19. júní með kjör- stöðum á flestum þéttbýlisstöðum. Hvern svo sem þú kýst þá er lykilat- riðið að taka þátt. Síðan snúum við bökum saman og leggjum allt kapp á að tryggja inn þriðja þingmann- inn okkar. Áfram X-d. Carl Jóhann Gräns Höfundur er formaður Sjálfstæðis- félags Akraness. Ágætu lesendur. Frambjóðendur og stuðningsmenn þeirra fara mikinn og ætla sér árangur af ljósleiðara- væðingu landsins. Í því ljósi er mik- ilvægt að halda til haga þeim skaða sem varð af sölu Símans upp úr síð- ustu aldamótum og skiptingu Pósts og Síma. Hvar eru símapeningarn- ir sem átti að nota í innviði? Lands- feðurnir Halldór og davíð lofuðu 66-70 milljörðum í innviði og m.a. Landsspítalann og ljósleiðaravæð- ingu. Ætla má að hvarf símapen- inganna og hrunið hafi tafið ljós- leiðaravæðingu og margt fleira er snýr að innviðum um áratugi. Veld- ur hver á heldur. Míla er það fé- lag sem tók við innviðum Símans og hefði átt að byggja upp ljósleið- arakerfið út um landið. að henda þessu í sveitarfélög er ekki markviss aðgerð né sam- fella í verkefninu. Farsælast hefði verið að leggja víða ljósleiðara með rafstrengjum Rarik og Orkubús Vestfjarða. Það hefði komið brot- hættum byggðum best, sem eru nú mölbrotnar og þurfa að bíða eft- ir þriggja fasa rafmagni í mörg ár. Enn berast fréttir af að „kroppa“ eigi í innviði Mílu. allir þekkja sorgarsöguna um Póstinn sem fór nánast í gegnum rústabjörgun og að sjálfsögðu erum við skattgreið- endur sem borgum brúsann. Það er mikilvægt að spyrja fyrir hverjar kosningar: Hvað varð um símapeninginn? Stefán Skafti Steinólfsson, kjósandi. Pennagrein Símapeningarnir og ljósleiðarinn Pennagrein Tökum þátt - veljum sigurlið

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.