Morgunblaðið - 26.01.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 26.01.2021, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  21. tölublað  109. árgangur  KÖLT OG UND- ARLEGAR KVIKMYNDIR ÖFLUGT SKIP ÞURFA AÐ NÝTA STERK- AR KYNSLÓÐIR SKANDI ACERCY 10 HANDBOLTINN 27SÆLUTILFINNING 28 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bannað verður að nýta vindorku á nokkuð stórum hluta landsins, ef drög umhverfisráðherra að frum- varpi að breytingum á lögum um rammaáætlun og samhliða þings- ályktunartillagu um stefnumörkun um flokkun landsvæða ná fram að ganga. Nær fyrirhugað bannsvæði yfir nokkuð á annað hundrað frið- lýst svæði og svæði sem á að frið- lýsa á næstunni, auk Vatnajökuls- þjóðgarðs og óbyggðra víðerna á miðhálendinu. Á öðrum viðkvæmum svæðum, til dæmis svæði innan 10 kílómetra frá friðlýstum svæðum og yfir 120 mikilvægum fuglasvæðum, er mögulegt að virkja vindorku að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Koma þau mál til kasta verkefn- isstjórnar um rammaáætlun og umhverfisráðherra. Sjálfkrafa vísað frá Áformum um virkjanir á frið- uðum svæðum verður aftur á móti sjálfkrafa vísað frá í upphafi ferils en verkefnisstjórn um rammaáætl- un mun ekki hafa afskipti af áformum á svæðum utan bann- flokkanna. Þar reynir frekar á skipulag sveitarfélaga og mat á umhverfisáhrifum. Kallað hefur verið eftir sérstök- um reglum um nýtingu vindork- unnar sem lýtur að mörgu leyti öðrum lögmálum en vatnsafl og jarðvarmi. Þeim kröfum er svarað með þeim tillögum sem nú hafa verið kynntar í samráðsgátt stjórnvalda. Mikil áform Mikill áhugi er á nýtingu vind- orkunnar. Þannig var tilkynnt um 34 vindorkuver til núverandi verk- efnisstjórnar rammaáætlunar. Samanlagt afl þessara virkjana er 3.200 megavött. Þar fyrir utan eru Blöndulundur Landsvirkjunar sem er í nýtingarflokki frá fyrri verk- efnisstjórn og Búrfellslundur sama fyrirtækis sem settur var í bið- flokk en Landsvirkjun hefur nú endurhannað. Þar fyrir utan er vitað um eitt vindorkuver sem komið er í umhverfismatsferli en var ekki tilkynnt til rammaáætl- unar. Hluti landsins útilokaður  Bannað verður að reisa vindorkuver á friðlýstum svæðum, svæðum sem ætlunin er að friðlýsa og á miðhálendinu  Tillögur að sérstökum reglum um vindorku MVindorkuver bönnuð ... »11  „Ég er búinn að stefna leynt og ljóst að því að gera þessa mynd í 25 ár þannig að þetta er einhver lengsta með- ganga kvik- myndar sem um getur,“ segir Hilmar Oddsson kvikmyndaleik- stjóri. Hilmar hefur fengið vilyrði fyrir 110 milljóna framleiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands til að gera kvikmyndina Á ferð með mömmu og tökur hefjast í haust. Með aðalhlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson og Kristbjörg Kjeld auk þess sem Hera Hilmarsdóttir, dóttir leikstjórans, fer með stórt hlutverk. »6 Stórskotalið í nýrri vegamynd Hilmars Hilmar Oddsson Konráð S. Guðjónsson, að- stoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir að erlend fjárfesting skipti mjög miklu máli er kemur að því að byggja upp nýjar og gamlar atvinnugreinar og geti stutt við flestan atvinnu- rekstur. „Í þeirri stöðu sem við erum í núna vantar sár- lega fjárfestingu, enda mikið atvinnuleysi. Það er til mikils að vinna að laða erlent fjár- magn til landsins,“ segir Konráð. Hann segir að þegar rofi til í faraldrinum og fé byrji aftur að flæða á milli landa, hljóti að myndast tækifæri í þessum efnum. Bein erlend fjárfesting hefur síðustu misseri verið mjög lítil hér á landi sem hlutfall af lands- framleiðslu og Ísland stendur nágrannalönd- unum langt að baki, að sögn Konráðs. Bein erlend fjárfesting í heiminum öllum dróst saman um 42% á síðasta ári, samkvæmt Ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun, UNCTAD. Bein erlend fjárfesting í heiminum var 1,5 trilljónir Bandaríkjadala árið 2019, en var 859 ma. dala á síðasta ári. »12 Sárvantar erlenda fjárfestingu Costco Dæmi um beina erlenda fjár- festingu.  Ísland langt að baki nágrannalöndum  Nokkurrar bjartsýni gætti meðal útgerðar- manna sem rætt var við í gær um að bætt yrði við loðnukvótann. Meðal annars í ljósi þess að rannsóknaskip voru í loðnu við hafísröndina úti af Vestfjörðum þegar þau urðu frá að hverfa. Einnig með það í huga að ungloðnu- mæling haustið 2019 á árganginum sem á að bera uppi veiðina í vetur gaf upphafskvóta upp á 170 þúsund tonn. Sú ráðgjöf var dregin til baka í haust. Kraftur verður í loðnumælingum í vikunni. Vonir standa til að með sjö skipum takist að ná heildarmælingu á loðnugöngum og þá að Vestfjarðasvæðinu og Grænlandssundi með- töldu. »4 Bjartsýnir á meiri kvóta Tvisvar á einum sólarhring var allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sent að sama einbýlishúsi við Kaldasel í Breiðholti. Fyrra útkallið barst um klukkan 6:40 í gær- morgun og seinna útkallið barst klukkan 20:10 en þá hafði kviknað í þaki hússins að nýju. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuð- borgarsvæðisins getur eldur blossað aftur upp í brunarústum eftir stórbruna eins og þennan. Slökkvistarfi lauk á ellefta tímanum í gærkvöldi. Einn var inni í húsinu þegar fyrst kviknaði í en hann komst út af sjálfsdáðum þegar slökkvilið bar að garði. Húsið fékk nýlega nýja eigendur, að sögn Gunnars Hilmarssonar, aðalvarðstjóra lög- reglustöðvarinnar við Dalveg. Tækni- og rannsóknardeild lögreglu vann á vettvangi í gær en hennar vinnu þar er nú lokið. Nú vinnur deildin úr þeim gögnum sem aflað var í gær. Myndin hér að ofan var tekin eftir að aftur kviknaði í húsinu í gærkvöldi. »2 Eldur í einbýlishúsi við Kaldasel í Breiðholti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kviknaði tvisvar í á einum sólarhring

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.