Morgunblaðið - 26.01.2021, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
✝ Arndís Stein-grímsdóttir
fæddist 24. sept-
ember 1933 í
Reykjavík. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Ísafold,
Garðabæ 13. janúar
2021. Foreldrar
hennar voru Stein-
grímur Jónsson,
rafmagnsstjóri
Reykjavíkur, f. 18.
júní 1890, d. 21. janúar 1975, og
Lára Árnadóttir húsmóðir, f. 13.
október 1892, d. 19. júlí 1973.
Systkini Arndísar voru Guðrún
Sigríður, f. 1920, d. 2006, Sig-
ríður Ólöf, f. 1922, d. 2004,
Þóra, f. 1924, d. 2014, og Jón, f.
1928, d. 2011.
Arndís var ógift og barnlaus.
Börn systkina hennar eru Óttar
Birgir Ellingsen, Steingrímur
Ólafur Ellingsen, Lára María
Ellingsen, Björg Ellingsen, Lára
skóla Reykjavíkur 1960-1970 og
kennari við sama skóla frá 1971-
1990. Eftir það starfaði hún við
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
fram að starfslokum. Arndís var
formaður Félags tónlistarkenn-
ara 1976-1977. Hún var einnig
stofnfélagi í Gigtarfélagi Ís-
lands. Arndís tók að sér einka-
kennslu í píanóleik alla starfs-
ævina. Arndís fékk heiðursverð-
laun Evrópusambands
píanókennara á 40 ára afmæli
sambandsins 2019.
Arndís ólst upp á Laufásvegi
73 í Reykjavík. Bjó mestalla æv-
ina miðsvæðis í Reykjavík, en
flutti á Strikið 8 í Garðabæ
2007. Frá ársbyrjun 2018 bjó
hún á hjúkrunarheimilinu Ísa-
fold í Garðabæ, þar sem hún
lést.
Arndís verður jarðsungin frá
Áskirkju í dag, 26. janúar 2021,
og hefst athöfnin klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni:
https://www.sonik.is/arndis
Aðeins nánustu aðstandendur
og vinir verða viðstaddir at-
höfnina.
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andat
Margrét Sigurð-
ardóttir, Guðrún
Sigurðardóttir,
Katrín Sigurð-
ardóttir, Stein-
grímur Jónsson,
Þóra Jónsdóttir og
Vigdís Löve Jóns-
dóttir.
Arndís lauk prófi
frá Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar
1950. Var við nám í
píanóleik við Tónlistarskóla
Reykjavíkur 1950-1956. Fór síð-
an í áframhaldandi píanónám í
Vínarborg 1956-1958. Var einn-
ig við nám við Royal Academy
of Music í London 1962-1963, en
varð heim að hverfa vegna gigt-
arsjúkdóms, sem háði henni alla
fullorðinsævina. Arndís sótti
einnig tónlistarnámskeið í Sviss,
Ítalíu og Austurríki auk margra
námskeiða á Íslandi. Arndís var
stundakennari við Tónlistar-
„Adda er dáin.“ Svona hljómaði
símtalið sem ég fékk. Þrátt fyrir
háan aldur var það óvænt.
Adda frænka hefur verið hluti
af mínu lífi svo lengi sem ég man.
Hún er móðursystir mín og al-
gengur gestur á æskuheimilinu og
þátttakandi í mörgum hefðum
sem þar tíðkuðust. Árlega voru til
dæmis tínd rifsber og sultuð og
fyrir jólin bakaðar smákökur. Þá
var mikið fjör hjá systrunum en
ég man mig sem áhorfanda sem
naut góðs af og fékk að smakka,
en í þá daga voru smákökurnar
heilagar og ekki borðaðar fyrr en
á jólum.
Adda var alltaf góð við barnið,
spjallaði og gerði grín. Lengi grín-
aðist hún með aldurinn en hún var
29 ára í ótrúlega mörg ár. Lengi
vel trúði ég því en svo kom að því
að brandarinn virkaði ekki lengur
og annað tók við.
Adda var menntuð í píanóleik
og ævistarfið píanókennsla. Ég
var 7 ára þegar ég var sett í píanó-
tíma til hennar en það var líklega
erfiðara fyrir hana en mig því ég
hafði engan áhuga á píanóæfing-
um, vildi bara spila lög sem ég
þekkti. Á endanum var þessum til-
raunum til píanókennslu hætt en
ég bý alltaf að þessu því ég lærði
að lesa nótur og get enn í dag spil-
að og sungið eftir þeim.
Adda þjáðist af liðagigt frá því
fyrir tvítugt og litaðist líf hennar
af því. Mótlætið af þeim sökum
var mikið en samt aldrei látið
trufla meira en þurfti. Sem dæmi
þá gat hún, píanókennarinn, ekki
spilað á píanóið vegna gigtarinn-
ar. Adda fann út úr því þannig að
hún gat haldið áfram að kenna
þrátt fyrir það. Hún var á undan
sinni samtíð í því að huga að mat-
aræði til að bæta heilsuna. Hún
vissi hvað hreyfing og þjálfum var
mikilvæg til að vinna gegn gigt-
inni og sagði að æfingar væru
mikilvægastar þegar hún væri
mjög slæm. Hún var dugleg að
rækta sjálfa sig þannig að hún
gæti lifað sem eðlilegustu og
bestu lífi, án utan að komandi
hjálpar.
Hún hafið gaman af að ferðast
og á árum áður fór hún til ýmissa
landa. Stærsta ferðalag hennar
var þó án efa þegar hún fór til
Kína en það voru ekki margir sem
ferðuðust þangað á þeim árum.
Það var auðvitað ógleymanleg
upplifun en ég man að ég var fegin
þegar hún var komin til baka því
mér stóð alls ekki á sama um að
hún færi á svo fjarlægar slóðir.
Þegar ég var orðin fullorðin
urðum við trúnaðarvinkonur og
var hún mér mikill stuðningur
þegar ég lenti í hremmingum í
mínu lífi. Eitt sinn barst það í tal
að mér fannst ég vera orðin það
gömul að það yrði erfitt að snúa
hlutunum mér í hag. Ég veit ekki
hvert Adda ætlaði þegar hún
heyrði þetta en ég var um fimm-
tugt og hún um áttrætt. Svar
hennar var “þú gömul, talaðu við
mig þegar þú ferð að nálgast átt-
rætt’’. Þetta hristi upp í mér og
hef ég oft rifjað upp þessa setn-
ingu þegar ég dett í einhverjar
slíkar hugsanir.
Ég get með sanni sagt að þó
Öddu hafi ekki tekist að kenna
mér á píanóið þá kenndi hún mér
margt annað og dýrmætara. Hún
stappaði í mig stálinu þegar illa
stóð á og var lifandi fyrirmynd í að
gefast ekki upp þó á móti blási.
Dugnaður hennar var aðdáunar-
verður.
Nú kveð ég þig frænka mín í
þeirri trú að nú sé allt betra.
Blessuð sé minning þín og hvíl í
friði.
Katrín Sigurðardóttir (Kata).
Kynslóðir koma, kynslóðir fara.
Slík spakmæli verða öllum ljós
þegar einhver sem alltaf hefur
verið til kveður jarðlífið. Við frá-
fall Arndísar Steingrímsdóttur,
Öddu föðursystur minnar, verða
þessi vísdómsorð skáldsins enn
áþreifanlegri því þar með er horf-
in öll kynslóð barnabarna langafa
míns Árna Sveinssonar kaup-
manns á Ísafirði og langömmu
minnar Guðrúnar Brynjúlfsdóttur
frá Mýrum í Dýrafirði, með þeirri
undantekningu einni að enn er á
lífi sonardóttir þeirra, Olivia Ol-
son í Winnipeg í Kanada, 91 árs.
Fyrst hitti ég Öddu þegar ég
tæplega eins árs gamall kom til
Íslands með foreldrum mínum frá
Ameríku sumarið 1952. Eins og
gefur að skilja man ég ekkert eftir
fyrstu fundum okkar. Og ekki
heldur þegar hún tveimur árum
síðar heimsótti okkur á austur-
strönd Bandaríkjanna. Við fórum
meðal annars til New York, en
hvorki man ég Öddu né New
York. Þegar við fluttumst heim
haustið 1954 varð Adda samferða
mér og mömmu í flugvél Loftleiða
en pabbi fór með búslóð og bíl með
Tröllafossi Eimskipafélagsins.
Á uppvaxtarárunum eru flestar
minningarnar tengdar fjölskyldu-
boðum á Laufásveginum en Adda
bjó í foreldrahúsum meðan hún
stundaði píanónám í Reykjavík og
síðar í Austurríki og Englandi.
Minnisstæð er líka ferð foreldra
minna og yngstu systur norður í
Hörgárdal til að sækja mig eftir
mánaðardvöl í sveit, en Adda slóst
í förina.
Adda bauðst til að kenna mér á
píanó. Ég var þá farinn að hlusta á
Rolling Stones og vissi að í hljóm-
sveitinni var píanóleikari sem
vegna útlits fékk ekki að vera með
opinberlega. Var ekki nægilega
dapurlegur á svipinn og kinnfiska-
soginn, og skemmdi því ímynd
hljómsveitarinnar. Mér leist því
vel á að læra á píanó. Það sem
Adda ætlaði að kenna mér var þó
víðs fjarri rokkmúsíkinni. Ég var
því fljótur að draga í land og hætti
eftir bara tvo eða þrjá tíma. Fleiri
æskuminningar koma upp í hug-
ann en verða ekki tíundaðar hér.
Hin síðari ár þegar ég fór að
velta fyrir mér ýmsu sem tengdist
fjölskyldunni og gerst hafði áður
en ég fæddist eða mundi eftir mér
var gott að leita til Öddu með
spurningar, einkum þegar hún
var orðin ein eftir systkina sinna.
Adda var ótrúlega minnug, og
sumt gat ég sannreynt með því að
leita uppi heimildir sem staðfestu
það sem hún sagði mér. Mörg sím-
töl héðan frá Svíþjóð snerust um
eitthvað sem mig langaði allt í
einu til að vita og ég hafði engan
annan til að spyrja. Öddu tókst yf-
irleitt að leysa úr spurningum
mínum. Ég gat svo stundum fund-
ið eitthvað sem fyllti í frásögnina
og gat þannig frætt Öddu um eitt-
hvað sem henni fannst gaman að
fá að vita.
Það verður skrýtið að geta ekki
lengur hringt í Öddu og spurt um
eitthvað sem upp kemur í hugann.
En ég er þakklátur fyrir allt sem
okkur fór á milli og fyrir allt sem
hún sagði mér og gerði fyrir mig.
Blessuð sé minning Arndísar
Steingrímsdóttur.
Steingrímur Jónsson.
Arndís, sem alltaf var kölluð
Adda, var afskaplega sæt stelpa,
spengileg á velli, með rautt, eig-
inlega kastaníubrúnt hár. Við
bjuggum í sama hverfi í Reykja-
vík, hún við austurenda Laufás-
vegar, þ.e. nr. 73, en ég við austur-
enda Bergstaðastrætis, nr. 76.
Adda var árinu eldri en ég, en það
breytti því ekki að við urðum góð-
ar vinkonur og entist það ævi
hennar út. Þegar Adda hóf skóla-
göngu, sem samkvæmt lögum
þess tíma hófst við 7 ára aldur, þ.e.
ári á undan mér, urðu bekkjar-
félagarnir hennar helstu vinir og
félagar eins og eðlilegt má telja.
Adda var skemmtileg og ein-
staklega gaman sækja hana heim.
Hún bjó við þau forréttindi að eiga
margar og óvenjufallegar dúkkur,
sem allar komu frá ævintýraland-
inu Bandaríkjunum. Faðir Öddu,
Steingrímur Jónsson rafmagns-
stjóri, fór oft til Bandaríkjanna,
sem við kölluðum Ameríku, í emb-
ættiserindum og kom færandi
hendi með dúkkurnar. Þær áttu
fullt af fallegum fötum og var al-
veg einstakt að fá að klæða þær í
fötin sín. Auk þess átti Adda
dúkkuvagn en skerminn á honum
var hægt að spenna upp og niður
eins og á alvöru barnavagni, en við
stelpurnar í hverfinu áttum flest-
ar dúkkuvagn úr tré, sem var mál-
aður fallegum litum.
Adda var gædd góðum tónlist-
arhæfileikum og fór snemma að
læra á píanó, sem leiddi til þess að
hún varð píanókennari að ævi-
starfi. En ekki fer alltaf saman
„gæfa og gjörvileiki“ eins og
dæmin sanna. Það ólán, svo að ég
segi ekki ógæfa, henti Öddu að
liðagigt tók að herja á hana á ung-
lingsaldri, ekki síst fingurliði. Þarf
ekki að fara mörgum orðum um
það, hvílíkt högg það var að þessi
vágestur skyldi einmitt taka sér
bólfestu í fingrum, en það sem
veitti henni mestu ánægjustund-
irnar var jafnframt hennar lífsvið-
urværi. En því fór fjarri að Adda
léti bugast, ótrauð hélt hún áfram
og nú var ferðinni heitið til Vín-
arborgar og þar dvaldist hún við
nám í píanóleik.
Þar var fjölmenn Íslendinganý-
lenda við nám og störf á þessum
árum, þar á meðal margir vinir
mínir. Þegar heim var komið
mynduðu margir þeirra hóp sem
hittist reglulega og úr þeim hópi
þróaðist síðar fimm manna hópur,
réttara sagt kvenna, sem hittist
alltaf á gamlársdag – af öllum
dögum. Ég var svo lánsöm að fá að
vera með í þessum hópi, þótt ekki
hefði ég verið Vínarbúi. Fyrstu ár-
in hittumst við heima hjá Öddu,
sem bjó á bernskuheimili sínu við
Laufásveg, en með tímanum fór-
um við að hittast til skiptis, hver
hjá annarri. Hef ég á ekki tölu á,
hve mörg ár þetta varði.
En enginn má sköpum renna
og þær kallaðar til æðri heima
með árunum. Lengi vorum við
Adda einar eftir af hópnum, þar til
hún fékk kallið 13. janúar sl.
Það var gott og gefandi að eiga
vináttu Öddu og umfram allt
skemmtilegt.
Ættingjum og vinum sendi ég
einlægar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Arndísar
Steingrímsdóttur.
Bergljót Líndal.
Í síðasta símtali mínu við Öddu
föðursystur mína lýsti hún
ánægju yfir því að hafa fengið
langþráða sprautu við Covid-19.
Við það tækifæri var tekin mynd,
sem birtist á heimasíðu Hrafn-
istuheimilanna og sagðist hún
vera orðin „fótómódel“. Það var
einstök stund fyrir hana, sem gaf
henni von um að nú þyrfti hún
bráðum ekki að hafa áhyggjur af
því að smitast af veirunni vondu
og gæti bæði farið að taka á móti
fólki í heimsókn til sín og farið út í
þjóðfélagið. Hana langaði sérstak-
lega að sjá breytinguna, sem orðið
hefur á miðbæ Reykjavíkur. Við
höfðum keyrt um götur Þingholts-
ins fyrir nokkrum árum þar sem
hún sagði mér sögur af fólkinu
sem bjó í húsunum og gaf mér
mynd af mannlífinu frá uppvaxt-
arárum hennar. Adda þekkti
Þingholtin, enda ólst hún upp í
húsinu við Laufásveg 73, sem afi
minn og amma byggðu á sínum
tíma.
Adda var yngst af fimm systk-
inum og „grínið“ hjá systkinum
hennar, þegar spurt var um hvað
þau væru mörg, var svarið að þau
væru fjögur og svo var Adda, en
hún var fimm árum yngri en
næsta systkini fyrir ofan, sem
voru fædd á árunum 1920-1928.
Allar systur pabba míns voru
flottar og skemmtilegar, en í mín-
um huga var Adda langfallegust
þeirra. Það var því ekki leiðinlegt
að heyra mömmu mína segja að
sér fyndist ég líkjast Öddu í útliti.
Adda heimsótti okkur oft þegar
við systkinin vorum ung og bjugg-
um í Rafstöðinni og hún tók líka
að sér að koma og gefa kisunni
okkar þegar við fórum í ferðalög,
sem henni fannst kannski ekki al-
veg eins skemmtilegt og mér
fannst öruggt vitandi af að Adda
hugsaði um kisu á meðan. Adda
bauðst til að kenna okkur systk-
inum á píanó, sem varð til þess að
ég fór síðan í Tónlistarskóla
Reykjavíkur, með stuðningi og
hvatningu frá henni. Tónlistar-
áhuga minn á ég að mörgu leyti
Öddu að þakka, ásamt Láru
ömmu og pabba, og það gladdi
mig mikið að sjá Öddu gefa sér
tíma í að fylgjast með börnum
mínum í þeirra tónlistarnámi.
Adda flutti á hjúkrunarheimilið
fyrir þremur árum þegar hún gat
ekki lengur búið ein. Samskiptin
héldu áfram, annað hvort með
heimsóknum eða símhringingum.
Adda fylgdist með því sem gerðist
í fjölskyldunni og þjóðlífinu; hún
mundi afmælisdaga okkar og
hafði samband til að óska okkur til
hamingju með daginn.
Kveðjustund frænku minnar úr
þessu jarðlífi bar brátt að. Bólu-
setning við Covid-19 gaf von um
betra líf á nýju ári, en önnur veik-
indi komu í veg fyrir það. Adda
föðursystir mín dó skyndilega og
það er bæði með sorg og söknuði,
en um leið þakklæti fyrir líf okkar
saman, sem ég kveð frænku mína
yfir í næsta tilverustig, sem hún
trúði að væri til. Adda var einstök.
Hún var bæði skapmikil og blíð.
Hún var dugleg að láta skoðun
sína í ljós og stóð á sínu, en gat
líka oft séð kómísku hliðina þegar
svo bar við, eins og þegar hún
sagðist hafa „tekið Kára á þetta“
eftir ákveðin samskipti, sem voru
henni erfið. Megi Guð og góðar
vættir fylgja frænku minni.
Frændfólk okkar, afkomendur
Vestur-Íslendinga, sem við höld-
um enn sambandi við senda sam-
úðarkveðjur vegna fráfalls Arn-
dísar Steingrímsdóttur.
Vigdís Löve Jónsdóttir.
Arndís
Steingrímsdóttir
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur
og frændi,
SÆVAR ÞÓR HILMARSSON,
Haugesund, Noregi,
lést á heimili sínu 15. október.
Minningarathöfn fer fram síðar á Íslandi.
Hilmar Kristensson Sigrún Halldórsdóttir
Helga M. Gestsd. Sørtveit John Sørtveit
Jón Gestur Sørtveit Áslaug Jónsdóttir
Kristinn Adolf Hilmarsson Hafdís Ármannsdóttir
og frændsystkini
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON
frá Brekku í Norðurárdal,
Bólstaðarhlíð 52,
lést á Landspítalanum 20. janúar.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Æsa Jóhannesdóttir
Sigríður Arna Ólafsdóttir Sævar Þór Gylfason
Ólafur Albert Sævarsson Þóra Björk Þorgeirsdóttir
Maríus Sævarsson
Trausti Sævarsson
Ragnheiður Rut Ólafsdóttir Möller
BIRGIR GRÉTAR SIGURPÁLSSON
frá Vík, Fáskrúðsfirði,
lést á sjúkrahúsi Neskaupstaðar 23. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ættingjar og vinir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
JÓN BREIÐFJÖRÐ HÖSKULDSSON,
Litlabæjarvör 15, Álftanesi,
andaðist laugardaginn 23. janúar á
Vífilsstöðum í faðmi fjölskyldunnar.
Útförin verður auglýst síðar.
Elín Jóhannsdóttir
Margrét Jónsdóttir Einar S. Helgason
Kristinn G. Jónsson Teresita Jónsson
Jóhann Jónsson Jóna Konráðsdóttir
barnabörn og langafabörn
Dagbjört Höskuldsdóttir
Elskulegur sonur okkar, faðir og bróðir,
PÉTUR KARL PÉTURSSON,
lést sunnudaginn 10. janúar.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Sigríður Kristín Steinarsdóttir
Pétur Pétursson
Adrian Máni Pétursson
Pétur Ómar Pétursson
G. Lúkas Leo Pétursson
Guðrún Sif Pétursson
Birgitta Ósk Pétursdóttir
Viktor Ingi Pétursson
Gabríel Blær Pétursson