Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Flokkar hafa ýmisráð við að raða á
lista. Stundum raða
menn sér sjálfir, enda
flokkarnir lítið annað
en umgjörð um ein-
staklingsframtak. Og
listarnir þurfa svo sem
ekki að vera verri fyrir
það. Önnur aðferð er
að flokkurinn velji hóp
manna til að velja á
lista og þá fæst út listi
án þess að átök opin-
berist og þegar vel tekst til eru allir
nokkuð sáttir og flokkurinn stendur
sterkur á eftir. Þá er sú aðferð, sem
almennt er heppilegust, að leyfa
flokksmönnum að velja á listann, oft-
ast með prófkjöri en stundum á
stórum flokksfundi. Þetta eru í gróf-
um dráttum þær aðferðir sem í boði
eru og hafa allar reynst bæði vel og
illa, en almennt má þó segja að þær
hafi dugað flokkunum nokkuð vel.
Svo er til enn ein leið, „sænskaleið“ Samfylkingarinnar, þar
sem flokksmönnum er leyft að kjósa,
en þó án þess að úrslit kosningar-
innar eigi að gera opinber og án
þess að kosningin eigi nokkru að
skipta þegar valnefndin, sem á að
raða á listann, tekur sína ákvörðun.
Þessi leið var fyrirsjáanlega mjöggölluð enda hefur komið í ljós að
andstæðingar þingmannsins Ágústs
Ólafs Ágústssonar beittu bolabrögð-
um í skjóli leynimakks við að koma
honum af þingi. Um þetta hefur val-
nefndarmaðurinn Birgir Dýrfjörð
fjallað lauslega og sagt sig úr val-
nefndinni, en vegna þess að valnefnd-
arfólki var gert að undirrita trúnað-
aryfirlýsingu má hann ekki upplýsa
nánar um hvaða vélar áttu sér stað.
Ætli flokkurinn sér að halda trú-verðugleika fyrir kosningar í
haust er nauðsynlegt að hann aflétti
trúnaði og upplýsi hvað það var sem
þoldi ekki dagsins ljós.
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Vélabrögð framin
í skjóli trúnaðar
STAKSTEINAR
Birgir Dýrfjörð
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ekki er talið útilokað að hægt verði að
ganga frá kjarasamningi á sáttafundi
í dag á Egilsstöðum í kjaraviðræðum
Afls starfsgreinafélags og Rafiðnað-
arsambands Íslands við Alcoa
Fjarðaál. Það var þó í gær talið geta
ráðist af því hvort tækist að leiða til
lykta eitt mál sem út af stóð. „Þetta er
komið mjög langt hjá okkur og maður
er enn þá mjög bjartsýnn á að það ná-
ist að klára þetta,“ segir Kristján
Þórður Snæbjarnarson, formaður
RSÍ. Sáttafundur síðastliðinn þriðju-
dag var árangursríkur en hann stóð
yfir langt fram eftir kvöldi. Kristján
segir fundinn hafa gengið mjög vel og
góðar umræður farið fram.
Í gær var unnið að úrlausn þessa
eina máls sem eftir stendur og ræðst
framhaldið af hvort gengur upp að
leysa úr því. „Það er verið að vinna
textavinnu og eftir er að ljúka einu
máli áður en hægt verður að ganga
frá þessu. Meginramminn er kom-
inn,“ segir Kristján, sem segir að þá
sé stefnt að því að viðsemjendur hitt-
ist aftur í dag fyrir austan en verið sé
að hnýta síðustu lausu endana til að
það gangi eftir. RSÍ og Afl eru saman
í viðræðunum fyrir hönd tæplega 400
starfsmanna álversins.
Góður gangur í álversviðræðum
Langur sáttafundur skilaði góðum
árangri Hnýta síðustu lausu endana
Morgunblaðið/ÞÖK
Alcoa Fjarðaál Væntanlegur samn-
ingur nær til um 400 starfsmanna.
Biskup Íslands hefur auglýst eftir
presti í aukna prestsþjónustu við
innflytjendur á Íslandi.
Sr. Toshiki Toma var prestur inn-
flytjenda í Háteigssókn frá desem-
ber 1993 til maí 1996. Hann hefur
verið prestur innflytjenda á vegum
þjóðkirkjunnar frá nóvember 1996.
Þessi tímabundna staða sem nú er
auglýst er hugsuð sem aukaþjónusta
með honum, einhvers konar stuðn-
ingur, samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu biskups. Enda hefur orðið
mikil fjölgun innflytjenda hér und-
anfarin misseri.
Starfið er eitt af störfum sérþjón-
ustupresta þjóðkirkjunnar og lýtur
tilsjón prófasts Reykjavíkur-
prófastsdæmis vestra. Breiðholts-
kirkja er miðstöð þjónustu kirkj-
unnar við innflytjendur.
Starfsstöð er í Reykjavík en starf-
inu geta fylgt ferðalög innanlands.
Um er að ræða tímabundið starf
til 31. desember 2021 og er miðað við
að viðkomandi hefji störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til miðnættis
11. febrúar 2021.
Í starfslýsingu segir að um sé að
ræða mjög fjölbreytt og margþætt
verkefni og reyni því mjög á skipu-
lagshæfni og samskiptahæfileika.
„Sérþjónustuprestur við innflytj-
endur mun þjóna stórum hópi út-
lendinga á Íslandi, svo sem hælisleit-
endum, flóttafólki og innflytjendum í
nánu samstarfi við starfandi prest
innflytjenda. Undir starfið fellur
einnig ýmiss konar tengd kirkjuleg
þjónusta við kirkjuna skv. nánari
ákvörðun biskups,“ segir í starfslýs-
ingunni á vef þjóðkirkjunnar.
sisi@mbl.is
Þjónusta við inn-
flytjendur aukin
Biskup auglýsir
eftir presti í tíma-
bundið starf
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Breiðholtskirkja Þar er miðstöð
þjónustunnar við innflytjendur.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15