Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 58
Morgunblaðið/Eggert Ógnandi Guðmundur Hólmar Helgason sækir að varnarmönnum Vals sem virðast hálfhræddir við Selfyssinginn. Guðmundur skoraði fimm mörk. HANDBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Haukar urðu í gær fyrsta liðið til að leggja Mosfellinga að velli í Olís- deild karla í handknattleik á þessu keppnistímabili. Haukar unnu Aft- ureldingu, og þar með sinn gamla þjálfara Gunnar Magnússon, 30:24. Þar með hafa öll lið í deildinni tapað leik en Afturelding hafði leikið fimm fyrstu leikina án þess að tapa. Með sigrinum fóru Haukar upp fyrir Aftureldingu og eru með 10 stig en Afturelding er með níu stig. Forföll eru í liði Aftureldingar eins og fram hefur komið en Afturelding hafði þó tveggja marka forskot að loknum fyrri hálfleik 15:13. Eftir um tíu mínútna leik í síðari hálfleik náðu Haukar þriggja marka forskoti og juku forskotið smám saman það sem eftir lifði leiks. „Hafnfirðingar byrjuðu leikinn illa og voru lengi í gang. Björgvin Páll Gústavsson hélt þeim inni í leiknum með nokkrum góðum vörslum í upphafi leiks. Þeir virtust svo vera að ná undirtökunum í leikn- um undir lok fyrri hálfeiks en tókst aftur að missa leikinn frá sér á klaufalegan hátt. Það var allt annað lið sem mætti til leiks í síðari hálfleik og varnar- leikur þess var miklu betri. Aron Kristjánsson breytti úr 6-0-vörn í 5-1-vörn og það var lykillinn að sigri Hauka. Eins var Aron duglegur að hreyfa við sínu liði og það voru því nánast alltaf ferskir fætur á vell- inum í kvöld. Mosfellingar virkuðu vel gíraðir í upphafi leiks og þrátt fyrir að missa fyrirliða sinn Einar Inga Hrafnsson af velli meiddan, snemma leiks, virt- ist það ekki riðla leik liðsins neitt sérstaklega mikið. Þá ber að hrósa Aftureldingu fyrir að koma til baka í fyrri hálfleik eftir að hafa lent undir. Liðið byrjaði hins vegar seinni hálfleikinn illa og átti engin svör gegn 5-1-vörn Hauka. Eftir því sem leið á leikinn fjaraði mikið undan lið- inu enda hópurinn þunnskipaður og margir lykilmenn að glíma við meiðsli. Liðið skoraði ekki mark á tíu mínútna kafla í síðari hálfleik og það reyndist dýrt. Haukar eru með góða breidd sem þeir nýta vel. Allir leikmenn liðsins virðast vera með hlutverk sín á hreinu og það eru allir tilbúnir að leggja sitt á vogarskálarnar,“ skrif- aði Bjarna Helgason meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Seigla hjá Seltirningum Nýliðar Gróttu sýndu seiglu eina ferðina enn og náðu í stig í Vest- mannaeyjum þegar ÍBV og Grótta gerðu jafntefli 32:32. Hornamað- urinn Andri Þór Helgason skoraði jöfnunarmarkið úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn og einungis vítakastið eftir. „Eyjamenn voru með unninn leik í höndunum þegar 14 sekúndur voru eftir en þá tók ÍBV leikhlé. Liðinu tókst þó að tapa boltanum á fimm sekúndum. Gestirnir hirtu boltann og komust í sókn þar sem brotið var á þeim í dauðafæri og vítið dæmt. Andri skoraði eins og áður segir á vítalínunni en hann hafði klikkað á vítinu á undan,“ skrifaði Guðmundur Tómas Sigfússon meðal annars í um- fjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson var illviðráðanlegur og skoraði 10 mörk fyrir ÍBV. Ásgeir Snær Vignisson sneri aftur eftir meiðsli og skoraði sex mörk og brenndi ekki af skoti. Birgir Steinn Jónsson skoraði átta mörk fyrir Gróttu. Framarar safna stigum Fram nældi í bæði stigin þegar Þór og Fram mættust í Höllinni á Akureyri. Fram sigraði 22:19 og fylgdi þar með eftir góðum sigri gegn Val í síðustu umferð. Fram er nú með sjö stig en Þór er með tvö stig. „Þórsarar komust í tveggja marka forystu í upphafi síðari hálfleiks en eftir það gengu Framarar á lagið og náðu undirtökunum. Lárus Helgi varði vel í marki Framara og vörnin góð fyrir framan, þó var munurinn aðeins eitt mark þegar um korter var eftir. Þá sigu gestirnir fram úr og unnu að lokum 22:19-sigur,“ skrifaði Baldvin Kári Magnússon meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Igor Kopishinsky var markahæst- ur Þórsara með fimm mörk. Ólafur Jóhann Magnússon var markahæst- ur Framara einnig með fimm mörk. Eftir leikinn eru Framarar með sjö stig eftir sjö umferðir, heimamenn eru hins vegar með tvö stig eftir sjö leiki. Ragnar öflugur á Hlíðarenda Leik Vals og Selfoss lauk skömmu áður en blaðið fór í prentun. Selfoss hafði betur á Hlíðarenda 30:24. Ragnar Jóhannsson stimplaði sig vel inn eftir margra ára dvöl erlend- is og skoraði fimm mörk fyrir Sel- fyssinga. Finnur Ingi Stefánsson var langmarkahæstur hjá Val með níu mörk. Ævintýralegur lokakafli var hjá FH og KA í Kaplakrika í Hafn- arfirði. Á 58. mínútu var FH yfir 31:27 en KA-menn skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér annað stigið. Eins og í Eyjum kom jöfn- unarmark úr vítakasti undir lokin en markið skoraði Andri Snær Stef- ánsson. Einar Rafn Eiðsson skoraði sjö mörk fyrir FH og Einar Birgir Stefánsson skoraði átta mörk fyrir KA og var með 100% skotnýtingu.  Leik ÍR og Stjörnunnar var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. ÍR-ingar voru stigalaus- ir og Stjarnan þriðja neðst með þrjú stig fyrir leikinn. Úrslit leiksins er hægt að finna á mbl.is ásamt um- fjöllun um leiki gærdagsins. Haukar tóku toppsætið í Mosfellsbæ  Fyrsta tap Aftureldingar  Drama- tísk jafntefli í Eyjum og Kaplakrika Morgunblaðið/Eggert Slagur Einar Ingi Hrafnsson hjá Aftureldingu reynir að koma í veg fyrir að Geir Guðmundsson Haukamaður nái skoti að marki Mosfellinga. 58 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 England Leeds – Everton....................................... 1:2  Gylfi Þór Sigurðsson var fyrirliði Ever- ton, skoraði fyrra markið og átti þátt í því seinna, og fór af velli á 90. mínútu. Burnley – Manchester City .................... 0:2  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley. Fulham – Leicester.................................. 0:2 Aston Villa – West Ham........................ (0:2) Liverpool – Brighton............................. (0:1)  Tveimur síðustu leikjunum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/ enski. B-deild: Rotherham – Derby ................................. 3:0 Deildabikar kvenna, undanúrslit: Chelsea – West Ham................................ 6:0  Dagný Brynjarsdóttir var ekki í leik- mannahópi West Ham. Danmörk OB – Lyngby............................................. 0:1  Aron Elís Þrándarson, Sveinn Aron Guðjohnsen og Teitur Magnússon voru all- ir utan hóps hjá OB.  Frederik Schram var varamarkvörður Lyngby í leiknum. Staðan: Midtjylland 13 8 3 2 23:14 27 Brøndby 13 9 0 4 26:19 27 Randers 14 8 1 5 24:12 25 AGF 14 7 4 3 26:16 25 København 14 7 2 5 25:23 23 SønderjyskE 13 6 3 4 21:17 21 AaB 14 5 4 5 17:21 19 Nordsjælland 13 4 4 5 22:19 16 OB 14 4 4 6 18:21 16 Vejle 14 4 4 6 18:24 16 Lyngby 14 1 4 9 13:30 7 Horsens 14 1 3 10 10:27 6 Belgía Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Waasland-Beveren – Oostende.............. 2:3  Ari Freyr Skúlason var ekki í leik- mannahópi Oostende. Grikkland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit, seinni leikir: Larissa – PAOK ....................................... 1:2  Sverrir Ingi Ingason var ekki í leik- mannahópi PAOK.  PAOK áfram, 7:1 samanlagt. Olympiacos – Panetolikos ...................... 3:0  Ögmundur Kristinsson varði mark Olympiacos í leiknum.  Olympiacos áfram, 6:0 samanlagt. Ungverjaland Újpest – Ferencváros.............................. 0:4  Aron Bjarnason var allan tímann á vara- mannabekk Újpest. Þýskaland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Essen – Leverkusen........................ (frl.) 2:1 Dortmund – Paderborn................... (frl.) 3:2 Werder Bremen – Greuter Fürth........... 2:0 RB Leipzig – Bochum.............................. 4:0 Wolfsburg – Schalke ................................ 1:0  Olísdeild karla Afturelding – Haukar .......................... 24:30 ÍBV – Grótta ......................................... 32:32 Þór Ak. – Fram..................................... 19:22 Valur – Selfoss ...................................... 24:30 FH – KA................................................ 31:31 ÍR – Stjarnan ..................................... (23:23)  Ekki lokið áður en blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/handbolti. Staðan fyrir leik ÍR og Stjörnunnar: Haukar 6 5 0 1 170:142 10 FH 7 4 1 2 198:179 9 ÍBV 6 4 1 1 174:161 9 Afturelding 6 4 1 1 146:144 9 Valur 7 4 0 3 204:190 8 Selfoss 5 3 1 1 130:124 7 Fram 7 3 1 3 162:162 7 KA 6 1 3 2 151:151 5 Grótta 7 1 3 3 169:174 5 Stjarnan 5 1 1 3 129:138 3 Þór Ak. 7 1 0 6 162:188 2 ÍR 5 0 0 5 121:163 0 Evrópudeild karla D-riðill: Kadetten – RN Löwen ........................ 27:34  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.  Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyr- ir Löwen.  RN Löwen 9, GOG 6, Trimo Trebnje 4, Kadetten 4, Pelister 3, Tatabánya 0. Danmörk Fredericia – Kolding........................... 31:38  Ágúst Elí Björgvinsson varði 22 skot í marki Kolding, 22 prósent markvarsla.  GOG 32, Aalborg 29, Holstebro 24, Bjerr- ingbro/Silkeborg 23, SönderjyskE 19, Skjern 19, Kolding 19, Fredericia 18, Skan- derborg 18, Ribe-Esbjerg 15, Aarhus 14, Mors 13, Ringsted 5, Lemvig 2. Svíþjóð Alingsås – Helsingborg ...................... 36:27  Aron Dagur Pálsson skoraði 4 mörk fyr- ir Alingsås.  Efstu lið: Malmö 33, Ystad IF 33, Alings- ås 29, Sävehof 28, Skövde 25.   Jana Sól Valdimarsdóttir, 17 ára knattspyrnustúlka úr Stjörnunni, er gengin til liðs við Val og hefur skrifað undir samning við Hlíðar- endafélagið. Jana Sól, sem leikur stöðu kantmanns, hefur spilað í þrjú ár með meistaraflokki Stjörn- unnar þrátt fyrir ungan aldur. Hún á að baki 21 leik með Garðabæjar- liðinu í úrvalsdeildinni og hefur skorað í þeim þrjú mörk en Jana spilaði tólf af sextán leikjum liðsins í deildinni á síðasta tímabili. Þá á hún að baki níu leiki með yngri landsliðum Íslands. Jana Sól komin í raðir Vals Ljósmynd/Valur Valur Jana Sól Valdimarsdóttir kemur frá Stjörnunni. Ágúst Elí Björgvinsson landsliðs- markvörður í handknattleik átti sannkallaðan stórleik í dönsku úr- valsdeildinni í gærkvöld þegar lið hans Kolding vann góðan útisigur á Fredericia. Lokatölur í miklum markaleik urðu 38:31 fyrir Kolding en samt var Ágúst með hvorki meira né minna en 45 prósent markvörslu og varði 22 skot heima- manna. Með þessum úrslitum höfðu liðin sætaskipti en Kolding er nú í 7. sæti með 19 stig úr 19 leikjum en Fredericia er í áttunda sæti með 18 stig úr 18 leikjum. Ágúst var frábær í Fredericia Morgunblaðið/Eggert 22 Ágúst Elí Björgvinsson var í miklum ham í gærkvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.