Morgunblaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 59
Í gegnum tíðina hafa margir
reynt að tengja sig við íþrótta-
leiki sem órjúfanlegir partar af
þeim. Ég er að sjálfsögðu að
vísa í styrktaraðila og stórfyr-
irtæki með þessum orðum mín-
um en auðvitað hafa þjálfarar,
leikmenn og stjórnendur reynt
að binda þannig um hnútana að
ekki sé hægt að spila fótbolta
án þeirra.
Eitt slagorð sem situr einna
helst í mér tengt þessu er aug-
lýsing frá bjórframleiðandanum
Carlsberg. „Hluti af leiknum“ var
slagorðið, eins og það sé ekki
hægt að horfa á fótboltaleik án
þess að fá sér bjór. Það er líka
áhugavert að sjá íþróttavöru-
framleiðendur reyna að selja
takkaskóna sína. Það er oft eins
og leikmönnum sé fyrirmunað
að skora ef þeir spila ekki í Nike
Mercurial eða einhverju álíka.
Ekki misskilja mig samt, ég
geri mér nokkurn veginn grein
fyrir hagfræðihugtakinu fram-
boð og eftirspurn, og föt sem
áhrifamikill einstaklingur klæð-
ist eru líklegri til þess að seljast
frekar en ef Kalli úti í bæ væri
að birta myndir af sér í her-
mannalitaða Gucci-jakkanum
sínum.
Það var mikið fagnaðarefni
þegar keppni í íþróttum hófst á
nýjan leik hér á landi. Ég er bú-
inn að vera nokkuð duglegur að
mæta á völlinn enda var maður
farinn að sakna þess virkilega
að fylgjast með lifandi kappleik
úr stúkunni. Það sem vantar
hins vegar eru stuðningsmenn-
irnir. Ég er ekki að skora á neinn
að hleypa fólki á kappleiki að
nýju, ég er ekki nægilega vitlaus
til þess miðað við aðstæður í
dag.
Þegar ég virkilega hugsa
þetta þá er bara einn órjúfan-
legur hluti af íþróttum að mínu
mati og það eru stuðningsmenn-
irnir. Leikurinn er svo sann-
arlega ekki eins án þeirra.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
FRJÁLSAR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það eru bjartir tímar fram undan
hjá íslensku frjálsíþróttafólki, en
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra skipaði
nýjan starfshóp í vikunni sem á að
koma með tillögur að fyrirkomulagi
nýs þjóðarleikvangs fyrir frjáls-
íþróttafólk.
Starfshópinn skipa þau Kristjana
Ósk Birgisdóttir og Ómar Einarsson
fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Þór-
ey Edda Elísdóttir fyrir Íþrótta- og
ólympíusamband Íslands, Marta
Guðrún Skúladóttr og Örvar Ólafs-
son fyrir mennta- og menningar-
málaráðuneytið og Freyr Ólafsson
formaður Frjálsíþróttasambands Ís-
lands.
„Þetta er fyrst og fremst mikið
fagnaðarefni fyrir alla í frjáls-
íþróttahreyfingunni,“ sagði Freyr
Ólafsson í samtali við Morgunblaðið
um fréttir vikunnar en hann hefur
verið formaður FRÍ frá árinu 2016.
„Ég er mjög ánægður með að
þetta sé að raungerast eftir langa
mæðu og þó að skipun starfshóps sé
sjaldan nóg til þess að hrinda hlut-
um í framkvæmd þá er þetta mjög
sterk vísbending um að nú eigi loks-
ins að loka hringnum og klára dæm-
ið í Laugardalnum.
Eins og allir vita er langt síðan
samtalið milli Reykjavíkurborgar og
KSÍ um nýjan Laugardalsvöll hófst.
Það var öllum ljóst að ef það ætti að
gera þjóðarleikvanginn í Laugardal
að knattspyrnuvelli þá þyrfti að
leysa mál frjálsíþróttanna.
Það er þess vegna ekki seinna
vænna að koma þessum hlutum á
hreint og því fyrr því betra.“
Þá vonast hann til þess að verkið
verði komið í farveg eftir tvö ár.
„Við í starfshópnum munum að
sjálfsögðu gera okkar besta og
markmiðið er að skila af okkur góð-
um og vel útfærðum tillögum fyrir 1.
maí. Það á ennþá eftir að ganga frá
endanlegu samkomulagi milli ríkis
og borgar um framlag ríkisins í
þessa uppbyggingu en Lilja [Al-
freðsdóttir] stígur nú ákveðið fram í
þessu máli, sem er traustvekjandi.
Það eru mörg aðstöðumál í Laug-
ardalnum sem þarf að leysa og
íþróttafélögin Þróttur og Ármann
hafa sem dæmi bæði beðið lengi eft-
ir lausnum á sínum húsnæðismálum.
Ég er hins vegar mjög vongóður um
að kapallinn sé loksins að ganga
upp, sem eru frábærar fréttir fyrir
allt íþróttastarf í Laugardalnum.
Það er nánast öruggt að það verði
Reykjavíkurborg sem mun sjá um
framkvæmd verksins og þetta tekur
alltaf tíma eftir að það er búið að
samþykkja drög að uppbyggingu
leikvangsins. Árið er 2021 og ég
hugsa að þetta verði aldrei að veru-
leika fyrr en í fyrsta lagi 2023.“
Frábært tækifæri
FRÍ hefur þegar hafist handa við
að teikna upp drög að nýjum þjóð-
arleikvangi.
„Starfshópurinn var skipaður í
gær [fyrradag] og fyrsta mál á dag-
skrá er að boða til fundar. Mark-
miðið er að fara af stað strax í næstu
viku en á sama tíma er búið að
leggja ákveðinn grunn að þessari
vinnu sem við erum að fara út í. Við
erum búin að vinna okkar heima-
vinnu mjög vel hjá Frjálsíþrótta-
sambandinu og Reykjavíkurborg
hefur gert alls konar forkannanir í
kringum verkefnið líka.
Persónulega sé ég fyrir mér ann-
ars vegar leikvang sem tryggir að
við getum tekið þátt í alþjóða-
samstarfi, sem er algjört lykilatriði.
Eins sé ég fyrir mér opinn leikvang
sem er tengdur við hlaupabrautir í
Laugardalnum sem hleypir lýðheils-
unni að vellinum með upphituðum
og vel upplýstum brautum.
Þetta er frábært tækifæri til þess
að gera Laugardalinn að hjarta í
hlaupum og almennri lýðheilsu, ekki
bara þegar landsleikir eru. Þá væri
frábært að geta tengt saman frjáls-
íþróttahöllina í Laugardalnum og
þennan nýja leikvang.“
Nýr þjóðarleikvangur er ekki
bara mikilvægur fyrir afreks-
íþróttafólk í frjálsum íþróttum held-
ur líka fyrir unga og aldna.
„Þetta er lykilforsenda; að geta
haft spennandi og reglulega alþjóð-
lega frjálsíþróttakeppni hér á landi.
Við tökum virkan þátt í Norður-
landa- og Evrópusamstarfi og það
er gríðarlega mikilvægt fyrir alla
ungu íþróttamennina okkar að eiga
kost á því að taka þátt í krefjandi
verkefnum, bæði heima og heiman.
Undanfarin ár höfum við algjör-
lega verið úr leik þar sem við höfum
ekki haft neinn vettvang fyrir þess-
ar keppnir hér á landi. Við sjáum
fram á þvílík tækifæri fyrir alla,
ekki bara börn og unglinga heldur
líka fyrir eldra fólk í frjálsum íþrótt-
um. Það er fullt af stórum frjáls-
íþróttamótum fyrir fólk í eldri kant-
inum sem við missum af vegna
aðstöðuleysis.
Við erum í þröngri stöðu og búin
að vera það ansi lengi og það er þess
vegna virkilega gaman að sjá loks-
ins ljós við enda ganganna,“ sagði
Freyr í samtali við Morgunblaðið.
Sér ljós við enda ganganna
Frjálsíþróttasamband Íslands sér fram á nýjan þjóðarleikvang á næstu árum
Staðan orðin þröng og margir íslenskir iðkendur úr leik vegna aðstöðuleysis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðarleikvangur Laugardalsvöllurinn er ekki lengur nothæfur sem
alþjóðlegur keppnisvöllur í frjálsíþróttum og þörfin því mikil.
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
knattleik mætir í dag Grikklandi í
undankeppni EM en leikið er í Lju-
blijana í Slóveníu. Íslenski hóp-
urinn fór utan á laugardag og gisti
eina nótt í Hollandi á leið sinni til
Slóveníu. Fyrirkomulag keppn-
innar tekur mið af heimsfaraldr-
inum og ferðalögum hefur verið
fækkað. Mun íslenska liðið því leika
tvo leiki í Slóveníu en hinn síðari
verður gegn Slóveníu á laugardag-
inn. Síðast lék íslenska liðið í nóv-
ember og var þá svipaður háttur
hafður á og var leikið á Krít.
Leikið gegn
Grikkjum í dag
Ljósmynd/FIBA
Undankeppni Dagbjört Dögg
Karlsdóttir í leik á móti Slóveníu.
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, er ekki í
leikmannahópnum sem Arsenal
hefur tilkynnt fyrir leiki liðsins í út-
sláttarkeppni Evrópudeildar
UEFA.
Þar sem takmarkaður fjöldi er-
lendra leikmanna má vera í þeim 25
manna hópi sem hvert félag til-
kynnir fyrir keppnina hefur Arsen-
al skráð inn markverðina Bernd
Leno og Mat Ryan og síðan verður
einn af enskum unglingalandsliðs-
markvörðum félagsins tilkynntur
sem þriðji markvörður liðsins.
Leikur ekki fleiri
leiki í keppninni
AFP
Arsenal Rúnar Alex Rúnarsson er
ekki í 25 manna hópnum.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
MVA-höllin: Höttur – Þór Ak.............. 18.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Haukar ... 19.15
Origo-höll: Valur – Þór Þ ..................... 20.15
Nj.gryfjan: Njarðvík – Stjarnan ......... 20.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ásvellir: Haukar U – HK.......................... 20
Hertz-höll: Kría – Víkingur ................. 20.30
Í KVÖLD!
Spánn
Estudiantes – Zaragoza...................... 73:79
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 10 stig
fyrir Zaragoza, tók sex fráköst og átti eina
stoðsendingu á 23 mínútum.
Evrópubikarinn
16-liða úrslit, H-riðill:
Andorra – Gran Canaria .................... 74:79
Haukur Helgi Pálsson lék ekki með An-
dorra vegna meiðsla.
Unics Kazan 4/0, Andorra 2/2, Mornar
Bar 1/3, Gran Canaria 1/3.
Litháen
Siaulai – Juventus ............................... 92:87
Elvar Már Friðriksson skoraði níu stig
fyrir Siauliai, átti sex stoðsendingar og tók
tvö fráköst á 27 mínútum.
NBA-deildin
Orlando – Toronto ............................ 108:123
Brooklyn – LA Clippers................... 124:120
Indiana – Memphis........................... 134:116
Washington – Portland .................... 121:132
Utah – Detroit................................... 117:105
Golden State – Boston...................... 107:111
Gylfi Þór Sigurðsson hefur nú skor-
að gegn átján af þeim tuttugu fé-
lögum sem nú leika í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu og gegn 27
félögum samtals. Hann skoraði sitt
64. mark á ferlinum í deildinni í gær-
kvöld þegar Everton lagði Leeds að
velli, 2:1, á Elland Road og bætti þar
með Leeds á listann yfir þau félög
sem hann hefur skorað gegn.
Einu félögin sem nú leika í úrvals-
deildinni sem Gylfi hefur ekki skor-
að hjá eru Wolves og Brighton.
Gylfi skoraði strax á 9. mínútu og
Dominic Calvert-Lewin bætti við
marki fyrir hlé upp úr hornspyrnu
Íslendingsins. Rapinha minnkaði
muninn fyrir Leeds í byrjun síðari
hálfleiks en Everton stóðst þunga
pressu og lyfti sér upp í fimmta sæti
deildarinnar.
Manchester City náði þriggja
stiga forystu með því að vinna Jó-
hann Berg Guðmundsson og félaga í
Burnley á útivelli, 2:0. Gabriel Jesus
og Raheem Sterling skoruðu mörkin
í fyrri hálfleiknum.
Tveimur leikjum í deildinni var
ólokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá
mbl.is/sport/enski.
AFP
Mark Gylfi Þór Sigurðsson sendir boltann í mark Leeds á 9. mínútu eftir
fyrirgjöf frá Lucas Digne og skorar sitt 64. mark í úrvalsdeildinni.
Gylfi hefur skorað
gegn 27 liðum
Fyrsta markið hans gegn Leeds