Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
● Ekki er útlit fyrir
að Icelandair muni
hefja flug til Ísr-
aels á næstunni.
Þetta segir Ásdís
Ýr Pétursdóttir,
upplýsingafulltrúi
flugfélagsins, í
samtali við Morg-
unblaðið.
Eins og fram
hefur komið miðar
bólusetningu vel þar í landi, en nú þeg-
ar hefur um þriðjungur þjóðarinnar
fengið fyrri skammt bóluefnis lyfjaris-
ans Pfizer. Ef fram heldur sem horfir
má ráðgera að hjarðónæmi náist á
næstu vikum eða mánuðum. Þrátt fyrir
það segir Ásdís að horfa verði til fleiri
þátta en einungis hjarðónæmis.
Ástand í öðrum löndum hafi jafnframt
áhrif á spurn eftir flugleiðinni.
„Við skoðum alla þá áfangastaði
sem næg eftirspurn til að standa undir
flugi kann að myndast á. Bólusetn-
ingum miðar vel í Ísrael en óvíst er
hvort næg eftirspurn geti myndast fyr-
ir flug til og frá landinu í gegnum Ís-
land á meðan tengiflug til Bandaríkj-
anna liggur nánast alveg niðri vegna
ferðatakmarkana. Bandaríkjamarkaður
væri mikilvægur fyrir slíkt flug.“
aronthordur@mbl.is
Flug til Ísraels ekki á
dagskrá sem stendur
Ásdís Ýr
Pétursdóttir
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir í
samtali við Morgunblaðið að kaup
fjölmiðlafyrirtækisins Nordic Enter-
tainment Group (NENT Group), sem
rekur Viaplay, stærstu streymisveitu
á Norðurlöndum, á útsendingarrétti
á landsleikjum íslenska landsliðsins
frá og með keppnistímabilinu 2022-
2023 sé umhugsunarverð þróun.
Um er að ræða sex ára samkomu-
lag sem nær til sextíu íslenskra
landsleikja. Eins og segir í tilkynn-
ingu sem NENT Group sendi frá sér
fyrr í vikunni er þetta í fyrsta sinn í
sögunni sem UEFA, knattspyrnu-
samband Evrópu, gerir einkaréttar-
samning við streymisveitu.
Viaplay hóf göngu sína á Íslandi 1.
apríl 2020 og gerðust meira en 5%
heimila áskrifendur á fyrstu vikun-
um.
Morgunblaðið fékk ekki upplýsing-
ar um hvað UEFA fékk greitt fyrir
réttinn, en aðilar sem þekkja þennan
markað telja að verðmiðinn sé a.m.k.
100 milljónir króna á ári. Af því fær
KSÍ ákveðinn hluta.
Aðför að íþróttastöðvum
Aðili á fjömiðlamarkaði sem Morg-
unblaðið ræddi við nefndi að inn-
koma Viaplay á íþróttaleikjamarkað-
inn væri aðför að íslenskum
íþróttastöðvum. Nýverið náði NENT
group einnig samningi til þriggja ára
um sýningar hér á landi á leikjum í
Meistaradeild Evrópu í fótbolta.
Réttinum deilir fyrirtækið með Sýn.
„Þetta er umhugsunarvert, og ekki
í takt við það sem fólkið í landinu vill.
Landsleikir eru mjög vinsælt sjón-
varpsefni sem til þessa hafa verið í
opinni dagskrá, eða í það minnsta
mjög vel aðgengilegir fyrir alla,“ seg-
ir Stefán.
Hann segir að RÚV hafi boðið í út-
sendingarréttinn, enda sé það hluti
af almannaþjónustuhlutverki fyrir-
tækisins. „Við höfðum hins vegar
ekki fjárhagslega burði til að keppa
við það sem var þarna á ferðinni.“
Stefán segir að málið snúi líka að
afstöðu stjórnvalda til þess hvað af
svona efni sé það samfélagslega mik-
ilvægt að það eigi að vera opið og að-
gengilegt öllum, bæði fjárhagslega
og tæknilega. „Í nágrannalöndunum
hafa verið settar reglur um þetta, en
slíkt hefur ekki verið gert hér á
landi.“
Stefán segir að RÚV geti með
dreifikerfi sínu náð til meira en 99%
þjóðarinnar og setji mikið fjármagn í
að viðhalda því dreifikerfi.
Spurður hvort RÚV væri til í sam-
starf við Viaplay um dreifingu efnis-
ins ef óskað yrði eftir því játar Stef-
án því. „Við erum opin fyrir
samstarfi og samvinnu við alla eins
og alltaf, í ljósi okkar mikilvæga
þjónustuhlutverks.“
Gott netsamband
Guðni Bergsson formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands, KSÍ, segir
að UEFA sjái um sameiginlegt útboð
sjónvarpsréttarins fyrir hönd knatt-
spyrnusambanda í Evrópu.
Spurður hvort honum finnist
dreifileiðir Viaplay yfir netið ásætt-
anlegar fyrir landsleiki segir Guðni
að netsamband hér á landi sé það
gott að það ætti ekki að vera vanda-
mál. Aðspurður segir hann að nýi
samningurinn skili meira fé til sam-
bandsins en eldri samningar.
Guðni segir að KSÍ njóti ekki opin-
berra styrkja og þurfi að sjá um og
kosta mótahald, fræðslu- og lands-
liðsstarf. „Einhvern veginn þarf að
greiða fyrir það. Landsleikir hafa
verið áður í áskriftarsjónvarpi og eru
það um alla Evrópu í dag,“ segir
Guðni og bætir við að hluti leikjanna
60 verði í opinni dagskrá. „Þessar
tekjur skipta sköpum fyrir starfsemi
KSÍ og fyrir íslenska knattspyrnu.“
Kaup Viaplay á landsleikj-
um umhugsunarverð þróun
Morgunblaðið/Eggert
Bolti Frá árinu 2022-2028 verður að vera með 1.599 króna áskrift að
streymisveitunni Viaplay til að sjá alla leiki íslenska karlalandsliðsins.
Íþróttaefni
» Til að sjá landsleiki þarf að
greiða 1.599 kr. á mánuði.
» Á hverju ári sýnir NENT
Group meira en 50.000
klukkustundir frá íþrótta-
viðburðum í beinni útsendingu.
» Viaplay vill verða leiðandi
íþróttastöð í löndum þar sem
íþróttaefni streymisveitunnar
er í boði.
» Einungis verða sýndir leikir
íslenska karlalandsliðsins.
Verðmiðinn mögulega 100 m.kr. Aukið fé til KSÍ Dreifing ekki vandamál
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands greindi frá því í gær að vextir
muni haldast óbreyttir. Er það í
samræmi við spár Íslandsbanka og
Landsbanka, sem spáð höfðu
óbreyttum vöxtum. Vextir á sjö daga
bundnum innlánum verða áfram
0,75% auk þess sem stýrivextir hald-
ast 2,25%.
Í febrúarhefti Peningamála kem-
ur fram að innlend eftirspurn hafi
verið þróttmeiri árið 2020 en áður
hafði verið ráðgert. Efnahagssam-
drátturinn var af þeim sökum minni.
Áfram er gert ráð fyrir vexti í inn-
lendri eftirspurn sem vega mun á
móti lakari útflutningshorfum. Þró-
un mála mun þó markast af fram-
vindu farsóttarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Seðlabankastjóri Ásgeir Jónsson,
formaður peningastefnunefndar.
Vextir Seðlabankans
haldast óbreyttir
Stýrivextir aldrei verið eins lágir
Í fréttatilkynningu frá Marel kemur
fram að hagnaður fyrirtækisins hafi
numið 102,6 milljónum evra á síðasta
ári, andvirði liðlega 16 milljarða
króna. Haganaðurinn var þó meiri
árið 2019 þegar hann var 110 millj-
ónir evra, andvirði rúmra 17 millj-
arða á núvirði.
Einskiptiskostnaður vegna hag-
ræðingar fyrr á árinu 2020, sem ekki
er sérstaklega leiðrétt fyrir, var um
fjórar milljónir evra, andvirði 628
milljóna króna. Hagræðingar-
aðgerðir á fyrri helmingi ársins
muni skila sér að fullu árið 2021,
með lækkun á kostnaðargrunni sem
nemur átta milljónum evra á árs-
grundvelli, segir í tilkynningu. Til
viðbótar hafi nýtt vinnulag og staf-
rænar lausnir á tímum heimsfarald-
urs sýnt fram á tækifæri til frekari
hagræðingar og skilvirkni í rekstri.
Marel skilaði 16 milljarða
króna hagnaði árið 2020
4. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.65
Sterlingspund 177.21
Kanadadalur 101.21
Dönsk króna 20.989
Norsk króna 15.081
Sænsk króna 15.364
Svissn. franki 144.41
Japanskt jen 1.2344
SDR 186.24
Evra 156.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.6184
Hrávöruverð
Gull 1847.1 ($/únsa)
Ál 1985.5 ($/tonn) LME
Hráolía 56.35 ($/fatið) Brent
STUTT