Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Yfirgengileg vandræði Evrópusam-
bandsins (ESB) við öflun og dreif-
ingu bóluefna eru öllum ljós, sem og
nær óskiljanleg viðbrögð fram-
kvæmdastjórnar ESB í liðinni viku.
Sú sorgarsaga öll hefur enn frekar
veikt tiltrúna á sambandið, jafnt í
aðildarríkjum sambandsins sem á
alþjóðavettvangi.
Þar beinast augu flestra að Ursulu
von der Leyen, hinum þýska forseta
framkvæmdastjórnarinnar, þótt hún
hafi raunar reynt að benda á ýmsa
aðra sökudólga meðal kollega sinna
við lítinn fögnuð.
Sérstaklega stendur í mönnum að
hún þverneitar að biðjast afsökunar
á nokkru, heldur því jafnvel fram að
bólusetningaráætlunin gangi vel og
bendir því til sönnunar á að ESB sé
komið fram úr Afríku í bólusetningu
miðað við höfðatölu. Ýmsir hafa orð-
ið til þess að hvetja hana til afsagnar,
en hún harðneitar því og segir að
menn geti dæmi hana þegar embætt-
istímabili hennar lýkur eftir þrjú ár.
Er það þó ekki svo að það séu ein-
hverjir sérstakir óvildarmenn henn-
ar, framkvæmdastjórnarinnar eða
Evrópusamrunans, sem gagnrýna
framgöngu hennar svo hart. Þar á
meðal eru menn eins og Jean-Claude
Juncker, forveri hennar, og Michel
Barnier, einn reyndasti og innsti
koppur í búrinu í Brussel.
Efasemdir um ESB
Það er þó ekkert hjá þeirri
gremju, sem víða ríkir í garð fram-
kvæmdastjórnarinnar meðal
almennings og stjórnmálamanna í
aðildarríkjunum.
Jafnvel í Þýskalandi verða efa-
semdaraddir um framkvæmda-
stjórnina æ háværari. Ekki af því að
þeir séu minna áhugasamir um Evr-
ópuhugsjónina en fyrr, heldur vegna
þess að tiltrúin á embættismanna-
valdið í Brussel er nánast horfin.
Margir Þjóðverjar voru óánægðir
með vanmáttug viðbrögð ESB við
fjármálakreppunni, en þeir eru bál-
reiðir vegna viðbragðanna við kór-
ónukreppunni og þá sérstaklega
varðandi bóluefnin, sem voru háð
mannlegum mætti.
Menn hafa lengi sætt sig við lýð-
ræðishallann í ESB vegna þess að
þeir treystu því að tæknikratarnir og
sérfræðingarnir stæðu í stykkinu.
Nú blasir vanhæfnin og seinagang-
urinn við öllum, með hundruð þús-
unda mannslífa að veði, svo ákallið
um brotthvarf von der Leyen er lág-
markskrafa. Eftir mun sigla þrýst-
ingur á stjórnskipulagsbreytingar á
ESB.
AFP
Vanmáttug Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Afsagnar Ursulu krafist
Hart sótt að von der Leyen vegna bóluefnahneykslanna Hún vill hvorki fara
né biðjast afsökunar Auknar efasemdir um stjórnskipan ESB í aðildarríkjunum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rúmlega 1.400 manns voru hand-
teknir í Moskvu og St. Pétursborg,
tveimur stærstu borgum Rússlands,
í fyrrinótt en fjöldi manns mótmælti
á götum úti eftir að tilkynnt var að
stjórnarandstæðingurinn Alexei Na-
valní hefði verið dæmdur í tveggja
ára og átta mánaða fangelsi fyrir rof
á skilorði sínu.
Verjandi Navalnís segir að máli
hans hafi þegar verið áfrýjað, en
upphaflegur dómur var til þriggja og
hálfs árs. Navalní sat hins vegar í
stofufangelsi í tíu mánuði árið 2014
og dregst sá tími frá refsingunni.
Bandaríkjamenn, Bretar, Frakk-
ar, Þjóðverjar og Evrópusambandið
fordæmdu öll niðurstöðu dómsins,
og sagði Angela Merkel Þýskalands-
kanslari hann eiga ekkert skylt við
réttlæti. Talsmaður Merkel varaði
svo í gær við því að ekki væri hægt
að útiloka frekari viðskiptaþvinganir
gagnvart Rússum af hálfu Evrópu-
sambandsins vegna málsins.
Þjóðverjar hyggjast hins vegar
ekki slíta samstarfi sínu við Rússa
um NordStream 2-gasleiðsluna, en
henni er ætlað að tvöfalda getu
Rússa til þess að selja jarðgas til
Þjóðverja. Bandaríkjastjórn hefur
gert athugasemdir við lagningu
leiðslunnar, þar sem hún geri Þjóð-
verja háðari Rússum. Tóku Frakkar
undir þær gagnrýnisraddir á mánu-
daginn.
Rússnesk stjórnvöld vísuðu allri
gagnrýni á framferði sitt á bug í gær,
og sagði Dímítrí Peskov, talsmaður
Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta,
að ólöglegar mótmælaaðgerðir rétt-
lættu hörð svör lögreglunnar, en hún
beitti kylfum og táragasi til þess að
dreifa mótmælendum í fyrrinótt.
Útiloka ekki við-
skiptaþvinganir
Um 1.400 handteknir fyrir mótmæli
AFP
Moskva Lögreglumenn standa vörð
um styttuna af Zhukov marskálki
við Rauða torgið í Moskvu.
Herforingjastjórnin í Búrma, sem
rændi völdum á mánudaginn, ákvað
í gær að ákæra Aung San Suu Kyi,
leiðtoga stjórnarflokksins NLD,
fyrir brot á lögum um innflutning
eftir að tíu labb-rabb-tæki fundust
á skrifstofu hennar eftir leit hers-
ins. Var hún dæmd í tveggja vikna
gæsluvarðhald. Þá var Win Myint,
forseti landsins, ákærður fyrir brot
á sóttvarnalögum og sömuleiðis
sendur í tveggja vikna varðhald.
Hermenn gæta nú allra helstu
borga landsins og hafa því ekki
sprottið upp fjölmenn götumót-
mæli. Barið var í potta og pönnur í
mótmælaskyni í borginni Jangon í
gær, annað kvöldið í röð, auk þess
sem andstæðingar hersins hafa tek-
ið upp á því að lyfta þremur fingr-
um sem mótmælatákni, en sama
hefur sést í mótmælum í bæði Taí-
landi og í Hong Kong.
BÚRMA
AFP
Mótmæli Andstæðingar hersins lyfta
þremur fingrum í mótmælaskyni.
Aung San Suu Kyi
sett í gæsluvarðhald
Sergio Matt-
arella Ítalíu-
forseti fól í gær
Mario Draghi,
fyrrverandi
seðlabankastjóra
Evrópu, að
mynda nýja rík-
isstjórn á Ítalíu.
Draghi mun nú
reyna að mynda
starfhæfan
meirihluta í báðum deildum ítalska
þingsins sem geti tekið við stjórnar-
taumunum úr hendi ríkisstjórnar
Guiseppes Contes, fráfarandi for-
sætisráðherra.
Draghi kallaði eftir einingu allra
flokka í gær og hyggst hann fyrst
reyna að mynda þjóðstjórn.
ÍTALÍA
Draghi falið að
mynda ríkisstjórn
Mario
Draghi
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Jeff Bezos mun stíga niður úr for-
stjórastóli Amazon á þriðja ársfjórð-
ungi og gerast stjórnarformaður
netrisans. Við tekur Andy Jassy, sem
lengi hefur verið hægri hönd Bezos.
Þetta er mesta breyting í yfirstjórn
Amazon í sögu þess.
Bezos, sem er 57 ára gamall, vill
snúa sér að nýjum og frumlegum
verkefnum og láta af daglegri stjórn
Amazon, en gert er ráð fyrir því að
hann verði áfram starfandi stjórnar-
formaður fyrirtækisins, sem hann
stofnaði í bílskúr í Seattle fyrir lið-
lega 26 árum og er enn stærsti hlut-
hafinn í.
Fá fyrirtæki hafa vaxið jafnskjótt
og Amazon, en það hefur enn styrkst
í heimsfaraldrinum, þar sem póst-
verslun og netþjónusta hefur dafnað
sem aldrei fyrr. Það sést vel á af-
komutölum fyrirtækisins, sem kynnt-
ar voru í sama mund, en tekjur þess á
síðasta ársfjórðungi 2020 jukust um
heil 44%, námu 126 milljörðum
bandaríkjadala og hagnaðurinn
meira en tvöfaldaðist.
Amazon stendur samt sem áður
frammi fyrir margvíslegum vanda,
ekki síst í samskiptum við stjórnvöld.
Kröfur um aukið regluverk verða æ
háværari, fjölmargar rannsóknir á
samkeppnisháttum þess standa yfir
og á Bandaríkjaþingi stendur yfir
lagasmíð, sem gæti neytt fyrirtækið
til verulegrar endurskipulagningar.
Bezos hefur stýrt fyrirtækinu frá
upphafi og er orðlagður fyrir að
þekkja starfsemi þess í þaula. Hann
hefur auðgast gríðarlega á því og öðl-
ast veruleg völd. Auðlegð hans er
metin á 196 milljarða dala, en hann
og Elon Musk skiptast á 1. og 2. sæti
yfir ríkustu menn heims. Hann er
virtur viðskiptamaður, þótt sú virð-
ing sé vissulega óttablandin hjá sum-
um.
Bezos hættir sem forstjóri Amazon
Verður starfandi stjórnarformaður
Hyggst sinna nýjum verkefnum
AFP
Frumkvöðull Jeff Bezos hægir á sér.