Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 48

Morgunblaðið - 04.02.2021, Síða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 ✝ Sigríður Guð-mundsdóttir, Sigga okkar, fædd- ist í Reykjavík 26. ágúst 1968. Hún lést að kvöldi 23. janúar 2021 á Landspít- alanum deild 11E. Foreldrar hennar eru Guðmundur Eg- ilsson, f. 31. ágúst 1949, foreldrar hans Egill H. Hjálm- arsson, f. 8. október 1910, d. 6. júní 1990, Helga Jasonardóttir, f. 20. janúar 1920, d. 23. apríl 1994, móðir Hulda Pétursdóttir, f. 18. ágúst 1949, foreldrar hennar Pétur Pétursson, f. 16. maí 1917, d. 12. nóvember 2004, Sigríður Skarphéðinsdóttir, f. 3. júlí 1923. Systur Siggu eru Helga Guð- mundsdóttir, f. 13. nóvember 1973, maki Jón Gunnlaugur Sæv- arsson, f. 16. júlí 1972. Fanney Guðmundsdóttir, f. 23. desember 1982, maki Svavar Már Gunn- arsson, f. 10. júní 1980. Eig- inmaður Siggu er Bjarni Ein- arsson, f. 16. janúar 1966. Foreldrar hans Einar K. Sum- arliðason, f. 6. júlí 1919, d. 31. giftu sig 31. ágúst 1991 og fluttu í Rofabæ og höfðu þau aðsetur í Árbænum nánast allar götur síð- an. Sigga gekk í Langholtsskóla og þaðan lá leiðin í Verslunar- skóla Íslands þaðan sem hún út- skrifaðist vorið 1988. Seinna stundaði hún nám í viðskipta- fræði, með vinnu, auk þess að halda heimili, og lauk svo við- skiptafræðiprófi BSc frá Háskól- anum í Reykjavík í júní 2007. Sigga tók líka hin ýmsu nám- skeið til stuðnings við menntun sína. Á unglingsárum vann Sigga með skóla hjá versluninni Kjal- fell, eftir stúdentspróf starfaði Sigga við bókhald, t.d. hjá Hag- virki hf., Lögmannsstofunni Síðumúla 9, Ellingsen hf., Rauða krossi Íslands, Össuri hf., Delo- itte hf., Askar Capital hf. og hafði á þeim tíma einnig umsjón með sjálfstæðum rekstri eigin- manns síns, var aðalbókari hjá skrifstofu Listaháskóla Íslands og síðast starfaði hún hjá Ís- landspósti þar til heilsan leyfði ekki meir í apríl 2019. Útför Siggu okkar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 4. febrúar 2021, vegna fjölda- takmarkana verða aðeins nán- ustu ættingjar og vinir við- staddir. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: https://youtu.be/RoU6YEldGpI Virkan hlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat janúar 2008, Ingi- björg Guðmunds- dóttir, f. 20. janúar 1927, d. 10. desem- ber 1994. Systkini Bjarna eru Jóhanna Einarsdóttir, f. 6. september 1947, maki Hilmar Sæ- mundsson, f. 3. sept- ember 1944. Hákon Ólafsson, f. 29. mars 1960, d. 20. maí 2015, maki Sunneva Giss- urardóttir, f. 31. október 1960, og tvíburarnir Sumarliði Gísli Einarsson og Sveinbjörn Ein- arsson, f. 12. febrúar 1962. Börn Siggu og Bjarna eru Guðmundur Bjarnason, f. 23. október 1992, unnusta Esther Friðriksdóttir, f. 9. nóvember 1994, Dagur Bjarna- son, f. 9. mars 1996, og Birta Bjarnadóttir, f. 9. desember 2004. Sigga ólst upp í Álftamýri til 7 ára aldurs og eftir það í Álf- heimum þar sem hún bjó ásamt foreldrum sínum og systrum. Sigga var 18 ára gömul þegar hún kynntist Bjarna sínum og flutti hún til hans 19 ára. Þau Elsku Sigga mín. Þú sagðir í ræðu í fimmtugs- afmælinu mínu svo skemmtilega frá því þegar þú fórst í sumar- vinnu til Noregs eftir þriðja árið í Versló og við vorum búin að vera saman í 7 mánuði, að þú hefðir skrifað 35 ástarbréf en ég eitt ást- arbréf. Þú nefndir reyndar mér til framdráttar að öll collect símtölin sem þú hringdir í mig og ég hefði borgað hefðu dugað í allavega tvær flugferðir með Icelandair á Saga class til Noregs því þau voru svo mörg og kostuðu líka mikið á þessum tíma. Og að ég hefði kom- ið út og verið í tvær vikur í Noregi, við vorum svo ástfangin hvort af öðru. Síðan réttir þú upp höndina og sagðir: ég er með bréfið og ég ætla að lesa það fyrir ykkur já já já og allir hlógu. Allt kraumandi í tilfinningum og eldheit ást og allt bara á fullu, eins og þú sagðir og skrifaðir 1987 og svo byrjaði lesturinn: Komdu sæl og blessuð Sigga mín. Þegar ég skrifa þetta bréf er ég rétt til nýkominn úr vinnunni og sit við skrifborðið hans Bjössa bróður, því blaðið kemst ekki fyrir á mínu skrifborði. Eldheit ást eins og þú sagðir. Ég ætla ekki að skýra frekar frá upplestrinum þínum því hann hefur bara of hátt skemmtana- gildi, Sigga mín. Það var eins og bréfið væri skrifað af áttræðum bíladellumanni úr afdölum en ekki tvítugum dreng og það vafðist ekki fyrir þér að drepa alla úr hlátri með upplestrinum. Þú sagð- ir líka eftir að þú last upp bréfið í ræðunni að þú hefðir komið þrem- ur vikum fyrr heim frá Noregi, það hefði örugglega verið bréfið, það var svo gott. Það eru forrétt- indi og heiður Sigga mín að hafa kynnst þér og gifst og fyrir börnin okkar að hafa átt þig sem mömmu, foreldra þína og ömmu fyrir að hafa átt þig sem dóttur og barna- barn, systur þínar fyrir að eiga þig sem systur, skyldmenni þín og mín, vini og vinkonur, vinnufélaga og alla aðra að hafa deilt með þér ævinni. Ást mín á þér Sigga mín hefur bara aukist með árunum sem hafa liðið og er sú ást óendanlega mikil og sterk. Það þarf ekkert að hafa þetta bréf lengra því það vita allir hvað þú býrð yfir mikilli manngæsku og öðrum kostum og ert elskuð af öll- um. Ha det bra, og passaðu þig á nossurunum. Þinn Bjarni Einarsson (ástarbréf nr. 2). Það er ekki sanngjarnt að ég sé að skrifa minningargrein um mitt elskulega barnabarn, hana nöfnu mína. Glöð hefði ég viljað skipta við hana, en þessu ræður maður ekki. Það er ekki hægt að semja við dauðann, við stöndum bara hjá og vonum og vonum að kraftaverk verði, en þegar kallið kemur grát- um við yndislega manneskju sem gaf okkur svo mikið. Við reynum að hugga okkur við fallegu minn- ingarnar sem við eigum svo marg- ar um hana Siggu okkar, þessa fal- legu og kraftmiklu konu. Já, hún var falleg, utan sem innan, glað- vær, skemmtileg, hjálpsöm og þeirra eiginleika naut ég í ríkum mæli. Og svo átti hún Bjarna sem skemmdi ekki fyrir. Þau voru ást- fangin og samhent frá fyrstu stundu þar til yfir lauk. Bjarni stóð sem klettur við hlið hennar í baráttunni við skaðvaldinn og eins yndislegu börnin þeirra þrjú, missir þeirra er ólýsanlega mikill. Þau voru 19 ára, Hulda og Guð- mundur, elsta dóttir okkar Péturs, þegar þau eignuðust þessa litlu stúlku sem var skírð Sigríður. „Af hverju varstu svona skrýtin í framan mamma þegar Hulda sagði hvað barnið ætti að heita?“ spurði Pétur Hans, 9 ára sonur minn. Þetta kom mér mjög á óvart, átti frekar von á einhverju nýtískulegra, en vænt þótti mér samt um þetta, því mér hefur allt- af þótt mjög vænt um nafnið mitt og hvaðan það er komið. Sigga var gjarnan hrókur alls fagnaðar þegar fjölskyldan kom saman. Hver í fjölskyldunni man ekki eftir ættarmótinu á Fitjum í Skorradal þar sem Sigga var veislustjóri með miklum tilþrifum í kvöldmatnum í hlöðunni? Oft var hlegið mikið þegar þessi fjöl- skylda kom saman en þó held ég að þarna hafi allt verið toppað. Einnig skipulagði hún alls konar útileiki og ekki má gleyma Hrísa- veislunum þar sem Sigga var oftar en ekki potturinn og pannan í gleðinni. Eitt árið ætlaði ég sem oftar að fara í ferð með Bændaferðum til Portorose, ætlaði bara ein sem var ekkert mál, þá hringir Sigga og segist vera búin að panta ferð til Portorose og breyta úr eins manns herbergi í tveggja manna fyrir okkur tvær. „Og hvað með Bjarna og krakkana?“ segi ég. „Það er allt í lagi, þau vilja endi- lega að ég fari,“ svaraði Sigga. Kannski var Sigga smá stjórnsöm en hún fór einstaklega vel með það. Sumir hafa sagt að stjórn- semin tengist nafninu. Við fórum því saman, Siggurnar, í 10 daga ferð og þó að Sigga væri lang- yngst í hópnum hamlaði það því ekki að hún small vel inn í hópinn og við skemmtum okkur konung- lega. Hvert einasta gamlárskvöld, þau 16 ár síðan Pétur, afi hennar Siggu dó, hef ég verið hjá þeim Bjarna og Siggu, með Huldu og Guðmundi og systrunum Helgu og Fanneyju og börnunum. Stórt skarð hefur verið hoggið í stóru fjölskylduna okkar Péturs míns og eitt get ég sagt ykkur, það er ekki slæmt að verða gamall þegar maður á fjölskyldu eins og ég á. Það er svo ótal margs að minnast en læt staðar numið hér með þakklæti, elsku Sigga, fyrir alla þína ást og hjálpsemi í minn garð. Um leið vil ég votta Bjarna, Guð- mundi, Degi og Birtu, Huldu og Guðmundi og systrunum Helgu og Fanneyju mína dýpstu samúð. Sigríður (Sigga) amma. Mikið ótrúlega er erfitt að setj- ast niður og skrifa minningar- grein um systur sína sem er farin einungis 52 ára gömul. Hversu óréttlátt getur lífið stundum verið. Sigga systir! Alltaf þegar ég talaði um Siggu, þá sagði ég alltaf Sigga systir. Sigga systir var stuð- bolti, ótrúlega skemmtileg, orð- heppin, hnyttin, hreinskilin, sterk og kaldhæðin, sem kom henni til góða í baráttunni við krabbafjand- ann. Hún var mikill baráttujaxl og ákveðin á góðan máta. Það var mikið áfall þegar hún greindist aftur með krabbamein 2018 og þá komið í beinin. En hún tók strax þann pólinn í hæðina að hún vildi ekkert væl og kjaftæði. Hún ætl- aði að hafa gaman og njóta með sínu fólki og það gerði hún svo sannarlega. Hún ferðaðist erlend- is og innanlands með Bjarna sín- um og börnum. Sigga systir kunni sko að skemmta sér og hafa gaman og var mikil félagsvera sem sést á öll- um vinahópunum sem hún og Bjarni hafa hlaðið í kringum sig í gegnum árin. En þurfti samt alltaf líka sinn „alone time“, prjónaði þá oft eins og enginn væri morgun- dagurinn og nutu vinir og ættingj- ar góðs af því. Elsku Sigga systir, takk fyrir allt. Takk fyrir öll góðu ráðin og að ég hafi alltaf getað leitað til þín. Takk fyrir að standa þétt við bakið á mér þegar Gulli minn veiktist og fyrir að koma með mér á fundi því tengda. Takk fyrir alla dansana sem við dönsuðum þegar við vor- um litlar. Ég elska þig og mun aldrei hætta að tala um Siggu systur. Nú er baráttan búin og sökn- uðurinn nær óbærilegur en við ætlum ekki að leggja árar í bát. Við ætlum að lifa áfram fyrir Siggu systur, hafa gaman og skála í Cava eins og Siggu einni var lag- ið. Skál fyrir Siggu systur! Elsku Bjarni, Guðmundur, Dagur og Birta, ykkar missir er svo mikill. Megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur og styrkja ykkur í sorginni. Minningarnar lifa. Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Þúsund kossar og knús í draumalandið þar til við hittumst aftur. Helga systir. Þegar merkilegir atburðir eiga sér stað í lífi hvers manns þá mun- um við oft mjög vel eftir stað og stund. Þannig var það með fæð- ingu Siggu. Ég man nákvæmlega hvar ég var stödd þegar mamma hringdi í mig í sveitina og tilkynnti mér að Hulda systir væri búin að eignast sitt fyrsta barn og það væri stúlka. Mikið var ég spennt að koma í bæinn og hitta stúlkuna. Ég sá fyrir mér að ég yrði besta barnapían, þá 14 ára gömul, og sú varð raunin, alla vega í mínum augum. Sigga var frá upphafi Sigga okkar allra í fjölskyldunni. Sem barn var Sigga afskaplega falleg og góð og þannig hélst það allt til enda. Á uppvaxtarárum Siggu virtist hún vera frekar hlé- dræg og aldrei tranaði hún sér fram en mál þróuðust nú samt þannig að alls staðar þar sem Sigga drap niður fæti í lífinu þá varð hún hún alltaf einhvern veg- inn aðalkonan. Án þess að hafa nokkuð fyrir því, alltaf jafn skemmtileg, gefandi og með mik- inn húmor fyrir sér og öðrum. Sigga var skírð í höfuðið á móð- urömmu sinni Sigríði Skarphéð- insdóttur sem í dag er 97 ára og býr á Hrafnistu í Hafnarfirði. Sigga mamma og Sigga frænka áttu einstakt samband í gegnum árin. Eitt árið fór Sigga frænka með ömmu sinni til útlanda og skemmtu þær sér konunglega tvær saman. Mamma minnist þessarar ferðar með mikilli hlýju. Þannig var Sigga frænka alltaf tilbúin að gleðja aðra og hafa gam- an. Við fjölskyldan eigum dýrmæt- ar minningar með Siggu fremsta í flokki í allri skipulagningu. Það voru haldin ættarmót og aðrar veglegar veislur, svo sem Hrí- sahátíð og ættarmót í Skorradal þar sem fjölskyldan á rætur. Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með Siggu í gegnum lífið. Ung að árum kynnt- ist hún Bjarna sínum og eignuðust þau þrjú börn, Guðmund, Dag og Birtu. Sigga sagði frá því að þegar hún kynntist Bjarna þá var hún á leið til Noregs að vinna. Ástin á Bjarna eyðilagði næstum því alla ferðina því hún saknaði hans svo ofurmikið. Þegar Bjarni varð fimmtugur var haldin mikil veisla og að sjálfsögðu hélt Sigga ræðu til heiðurs Bjarna sínum. Þarna stóð hún uppi í stiga og sagði sög- ur. Besta sagan var þegar hún las upp úr ástarbréfi frá Bjarna til hennar til Noregs. Bjarni eins og hann er frekar jarðbundinn mað- ur var nú ekki að velta sér upp úr væminni ástarþvælu heldur sagði henni fréttir af góðum bílakaupum ef ég man rétt. Það var grátið af hlátri og gleymist seint. Bjarni og Sigga voru öllum góð fyrirmynd, ástrík og ævintýragjörn í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Í gegnum lífið saman hafa þau eignast ótrú- legan fjölda vina sem hafa stutt þau á alla lund í gegnum þá erf- iðleika sem þau hafa gengið í gegnum á síðustu árum. Fjöl- skyldan Hulda, Guðmundur, Helga, Fanney, makar og börn hafa reynst þeim vel og staðið þétt við bakið á fjölskyldunni. Ég sendi fjölskyldu og vinum mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Sigga okkar mun lifa með okk- ur um ókomin ár. Guðrún Pétursdóttir. Það er með miklum söknuði sem við jarðsetjum Siggu okkar í dag. Vandfundin eru orð til að lýsa þeim harmleik þegar kona fellur frá svo langt fyrir aldur fram. Og vandleitað er að konu sem elskaði lífið jafn mikið og kunni að lifa því. Sigga hefur í raun lifað eftir mot- tóinu „Lífið er núna“ allt sitt líf; með jákvæðni og fordómaleysi hefur hún staðið í stafni í lífi svo margra, ávallt með fjölskyldu og vini í fyrsta sæti. Ég var svo lánsöm að eignast Siggu að vinkonu þegar við kynnt- umst í Versló á okkar yngri árum. Við leituðum í félagsskap hvor annarrar og urðum sessunautar þar og svo síðar samferða á ferð okkar um lífið. Við áttum okkar spretti og verkefnin voru af ýmsu tagi. Ég minnist hennar sem frá- bærs dansfélaga, spilafélaga, blakfélaga, badmintonfélaga, en ekki síst sem einlægs hlustanda og klappstýru í blíðu og stríðu. Þá er ég ekki síst þakklát fyrir síð- ustu mánuði þar sem í lok hennar stærsta verkefnis ákváðum við þrjár vinkonurnar að lesa saman og enduðum auðvitað á að ræða örlög kvenna og fæðingu og dauða – ljós og myrkur. Kæra fjölskylda, megið þið finna styrk á þessum erfiða tíma og leita huggunar í hugrekki og æðruleysi Siggu. Minning um dásamlega manneskju mun lifa að eilífu meðal okkar. Þórdís Ingadóttir. Mín besta vinkona og sálarsyst- ir hefur kvatt. Það er ótrúlega erf- itt og sárt að hugsa til þess að fá ekki að hitta Siggu mína aftur en ég er svo þakklát að hafa átt hana sem vinkonu í 45 ár. Við kynnt- umst sjö ára í Langholtsskóla. Þrátt fyrir feimnina urðum við strax mjög góðar vinkonur og samrýmdar. Svo samrýmdar að það var farið að tala um okkur sem eina persónu. Við höfum oft rifjað þetta upp og hlegið mikið. Æsku- árin í Álfheimunum voru skemmtilegur og lærdómsríkur tími. Í minningunni vorum við allt- af á ferðinni, við æfðum badmin- ton, fórum á skíði og skauta, reið- námskeið og svo mætti lengi telja. Í gagnfræðaskóla myndaðist sterkur og samheldinn vinahópur. Ég minnist sérstaklega allra víd- eókvöldanna þar sem horft var á hryllingsmyndir, spilakvölda og ógleymanlegra bíóferða. Ekki vissum við að sá skemmtilegi tími sem við unnum saman í Kjalfelli, sjoppu og verslun, myndi vera kveikjan að því að við báðar end- uðum í viðskiptafræði. Að gagn- fræðaskóla loknum fór ég í MS en Sigga í Versló. Samband okkar var áfram sterkt þó við veldum hvor sinn menntaskólann, m.a. kom Sigga oft á MS-böllin. Svo kom Bjarni inn í líf Siggu með lát- um en samt hélst okkar sterka tenging. Alltaf var heimili þeirra Bjarna opið öllum og þau voru frá- bærir gestgjafar. Sigga var mjög skipulögð og átti auðvelt með að henda upp partíum og veislum með stuttum fyrirvara. Hún elskaði að dansa og sló alltaf í gegn á dansgólfinu. Oft var hún veislustjóri eins og í brúð- kaupinu mínu og hélt ræður við mörg tilefni. Dömuboðið sem hún hélt þegar hún var 45 ára var sko alvöru! Alltaf var hringt fyrst í Siggu þegar skipuleggja þurfti veislu. Árlega fór vinkonuhópur- inn úr gagnfræðaskóla í bústaða- ferðir þar sem búningaþema var tekið alla leið. Þar gegndi Sigga lykilhlutverki og kom með fjöl- breyttar hugmyndir að búningum, mat og drykk. Við eigum ómetan- legar minningar frá þessum skemmtilegu ferðum og óteljandi myndir til að skoða og hlæja að. Við fórum í ófáar utanlandsferðir saman. Upp úr stendur fertugs- afmælisferð með vinahóp á tón- leika í Kaupmannahöfn og Euro- vision-ferð til Lissabon árið 2018 sem var okkar síðasta ferð saman. Sigga elskaði að ferðast innan- lands með fjölskyldunni og góðum vinum. Hún var afar vinmörg og vinsæl og var í mörgum vinahóp- um. Það var hægt að segja að hún væri yfirbókuð, svo vinsæl var hún. Hún var dugleg að rækta vin- áttuna. Í gegnum árin var Sigga ráðgjafi minn í einu og öllu og sagði hún oft að hún vildi að hún væri duglegri að fara eftir sínum eigin ráðum og hló innilega. Sigga var glaðvær og létt í lund og stutt var í Siggubrosið. Hún var skemmtileg og þægileg í um- gengni og viðmóti. Leiðindi áttu ekki upp á pallborðið hjá Siggu og tæklaði hún þau oftast með sínum létta húmor. Hún hafði þann ein- staka hæfileika að hlusta og láta fólki líða vel. Fólk sótti í hana enda hafði hún svo góða nærveru. Sigga var töffari, alltaf flott og smart og það breyttist ekki í veikindunum. Síðustu tvö og hálft ár hafa ver- ið mjög erfið en með ótrúlegum lífsvilja og jákvæðni átti Sigga margar góðar stundir með fjöl- skyldu og vinum þennan tíma. Missirinn, söknuðurinn og sorgin eru ólýsanlega mikil en minning- arnar lifa. Elsku einstaka Sigga mín, takk fyrir allt, elska þig. Ég sendi Bjarna, Guðmundi, Degi, Birtu, foreldrum og systrum innilegar samúðarkveðjur. Laufey Guðjónsdóttir. Að kveðja Siggu er undarleg tilfinning. Við vissum að hverju stefndi eftir erfiða baráttu síðustu mánaða en það að kveðja er ólýs- anlega sárt. Við kynntumst Siggu í Lang- holtsskóla en réttara væri að segja að við hefðum kynnst Siggu og Laufeyju því að þær voru æsku- vinkonur og mjög nánar. Margt var brallað og minningarnar eru margar eftir rúmlega 40 ára vin- áttu. Á unglingsárunum var horft á vídeó, unnið í Kjalló og hittingar á kvöldin þar sem hlustað var á dásamlega tónlist áttunda áratug- arins. Einnig var atriði bekkjarins í Stundinni okkar ógleymanlegt. Svo urðum við aðeins eldri og héldum í framhaldsskóla, við í MS en Sigga ákvað að fara í Versló. Á menntaskólaárunum fór Sigga í örlagaríka ferð í Þórsmörk þar sem hún hitti hann Bjarna sinn. Þau gengu í hjónaband og eign- uðust yndisleg börn, þau Guð- mund, Dag og Birtu. Hjónaband Siggu og Bjarna var hamingju- ríkt, þau voru mjög náin og miklir félagar og það var eftirtektarvert hvað Sigga talaði alltaf fallega um hann Bjarna sinn. Þau elskuðu að ferðast saman innanlands sem ut- an, voru frábærir gestgjafar og vinahópurinn stór. Sigga var skemmtileg, hlý, stjórnsöm (enda þurfti að stjórna okkur hinum), hláturmild og hreinskilin. Hún var stílistinn okkar, dansdrottning og kenndi okkur selfie bros (með mis- góðum árangri). Hún elskaði fal- lega Chie Mihara-skó, flotta skartgripi, Cava, veisluhöld og að skipuleggja bústaðaferðirnar okk- ar sem voru ófáar í gegnum árin. Fertugsafmælisferðin okkar á Kylie Minogue-tónleika í Kaup- mannahöfn toppar flest og fer í dýrmæta minningabankann. Þetta er í annað sinn sem við kveðjum kæra vinkonu úr hópn- um okkar en Anna Rún lést fyrir 7 árum. Sorgin og söknuðurinn er mikill en minningarnar eru margar og skemmtilegar og við yljum okkur við þær. Sigríður Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.