Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 49

Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021 Við vottum fjölskyldu Siggu okkar dýpstu samúð. Minningin um dansdrottn- inguna okkar lifir. Linda, Guðrún Júl. og Guðrún Sólveig. Það var fríður hópur sem hóf nám í 4. bekk C í Verslunarskóla Íslands haustið 1985. Bekkinn skipuðu krakkar sem höfðu byrjað nám í Versló árið áður úr öðrum hópum en runnu nú saman í einn. Fyrir marga voru því mörg ný andlit og sessunautar sem þurfti að gefa gaum og kynnast. Það verður að segjast eins og er að það þurfti einungis eitt partí og þá var kominn bekkjarandi sem við sem tilheyrum hópnum minnumst alla tíð með gleði í hjarta. Meðal nem- enda í 4.C var hún Sigga okkar. Sigga lét ekki mikið fyrir sér fara í fyrstu en þegar á haustið leið og kynni okkar urðu meiri var öllum ljóst að Sigga okkar var gull að manni. Fyrir stelpuhópinn í bekknum dugi ekki samvera allan skóladaginn og því var stofnaður saumaklúbbur sem hittist reglu- lega á kvöldin líka. Saumaklúbb- urinn var lengi ekki með formlegt nafn, en þegar leið á veturinn var ákveðið að hann skyldi heita saumaklúbburinn Friðjón og við vorum allar Friðjónur. Við höfum nú hist reglulega í 35 ár og böndin á milli okkar eru órjúfanleg. Sigga okkar hefur átt stóran þátt í því að halda hópnum saman í gegnum tíðina og þurft að tuska okkur hin- ar til ef henni hefur þótt við vera orðnar „of gamlar“ til að gera eitt- hvað skemmtilegt. Með sínum óendanlega húmor, heiðarlegu skoðunum og fallega brosi hefur hún haft áhrif á okkur allar. Því skiljum við hreinlega ekki hvernig á því stendur að við erum í þeim sporum nú að kveðja okkar góðu vinkonu, sem skilur eftir sig svo stórt skarð í hópnum. En við ylj- um okkur við dýrmætar minning- ar með Siggu okkar. Minningar sem samanstanda af ótal sam- verustundum þar sem ýmis um- ræðuefni stór og smá hafa verið rædd og brotin til mergjar ásamt ferðalögum, árshátíðum og ýms- um skemmtunum. Hugur okkar og hjarta er hjá Bjarna, Guðmundi, Degi og Birtu. Við viljum senda ykkur alla okkar hlýju, kærleika og styrk. Minning- ar um Siggu okkar munu lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Með góðri kveðju frá Friðjón- um, Anna Rún, Bryndís, Erla F., Erla María, Erna, Helena, Helga Birna, Hulda, Jóhanna María, Kristín, Kristjana, Sigríður S., Tinna og Þórdís. Elsku Sigga mín, að við skulum vera að kveðja þig í hinsta sinn í dag er mér óbærileg tilhugsun. Það sem lífið getur verið ósann- gjarnt. Mér fannst alltaf að ég ætti pínulítið í þér þar sem við vor- um mikið saman sem börn því ein- ungis fimm ár voru á milli okkar og samgangur mikill í fjölskyld- unni. Við vorum eins og systur. Ég á svo margar yndislegar minning- ar um okkur og ég mun geyma þær og varðveita til æviloka. Frá því að við bróðir minn, Pétur Hans, sóttum þig á leikskólann og lékum við þig þangað til mamma þín kom úr vinnunni að sækja þig, dásamlegu stundirnar okkar í Skorradalnum við vatnið og þegar ég passaði ykkur systurnar og þú fylgdist nú vel með, hvort það væru einhverjir strákar að koma í heimsókn. Og ekki má gleyma öll- um gamlárskvöldunum hjá mömmu og pabba, það sem við skemmtum okkur við að fylgjast með fullorðna fólkinu. Við vorum svo að segja samferða með að stofna fjölskyldur, eiga börnin okkar og vorum duglegar að heim- sækja hvor aðra. Ekki má svo gleyma öllum fjölskyldupartíun- um og ættarmótunum þar sem þú hélst oft uppi stuðinu. Það gleym- ist aldrei partíið hjá ykkur í Við- arásnum, þegar við fórum öll fjöl- skyldan saman upp í skíðaskálann í Hveradölum að borða og fórum svo aftur í partí heim til ykkar Bjarna. Þvílíkt kvöld sem við átt- um saman, og svo mörgum árum seinna, á ættarmóti, dróst þú upp upptöku frá þessu kvöldi. Guð minn góður hvað var hlegið. Ég vil trúa því að þú sért núna í faðmi Péturs afa þíns og fleiri og þú hafir fengið hvíld frá þínum kvölum sem þessi ömurlegi sjúk- dómur lagði á þig. Elsku Sigga, ég var svo heppin að þekkja þig og upplifa ýmislegt fallegt og skemmtilegt með þér í lífinu, það mun aldrei gleymast. Hvíl í friði, elsku Sigga mín. Bjarni, Guðmundur, Dagur og Birta, Hulda og Guðmundur, Helga og Fanney, ykkar sorg er ólýsanleg og vil ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Munum, lífið er núna. Kristín Pétursdóttir. Með sorg í hjarta og söknuði kveðjum við kæra vinkonu okkar í dag en fyrst og fremst erum við þakklát fyrir að hafa verið svo heppin að eiga þennan vinskap. Það er ekki hægt að lýsa með orð- um hversu ótrúleg hún Sigga var. Í barráttu sinni við vágest þann sem herjaði á hana í hartnær 11 ár kvartaði hún aldrei, aldrei. Meinið sem á hana herjaði hafði betur eft- ir langa og erfiða baráttu. Með æðruleysi, þrautseigju, jákvæðni og elju hélt hún áfram og lét ekk- ert stoppa sig í því að lifa lífinu og njóta til fulls. Alltaf tilbúin í ný ævintýri, prakkaraskap, útilegur, utanlandsferðir, skála fyrir lífinu og dansa. Sigga var mikill fagur- keri sem elskaði glitrandi skart- gripi og fallega skó, þegar háu hælarnir voru henni um megn fékk hún sér flatbotna glamúrskó og dansaði áfram. En nú er komið að leiðarlokum og við kveðjum með söknuði, ást og þakklæti. Bjarna, börnunum, tengdadótt- ur, foreldrum, systrum og ömmu sendum við okkar dýpstu samúða- kveðjur. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni og nú ertu gengin á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Elsku Sigga okkar takk fyrir allt og allt. Henrietta og Guðjón (Baddi). Fyrir nokkrum árum hittust sex einstaklingar í Háskólanum í Reykjavík, mikill og góður vin- skapur myndaðist strax og studd- um við hvert annað í gegnum námið því eins og gefur að skilja gengur ýmislegt á í lífi sex ein- staklinga. Sigga var akkerið okk- ar, alltaf eins, alltaf til staðar, allt- af til í að aðstoða, alltaf til í að hlusta og alltaf til í partí og kampavín. Sigga var ekkert að flækja hlutina og hafði ekki þol- inmæði fyrir neinu kjaftæði, ekki frekar en við hin, og því gekk okk- ur einstaklega vel að vinna saman. Við þekktum fljótt hæfileika hvert annars, vissum hver var bestur í hverju, nýttum okkur það og treystum hvert öðru. Fljótlega ákváðum við öll að færa okkur úr kvöldskóla í dagskóla. Allir náðu að kortleggja vinnu, heimilislíf og aðrar skyldur svo sem barneignir, en öll vorum við í því að fjölga mannkyninu á þessum árum. Það er stórt og mikið skarð höggvið í okkar góða vinahóp við fráfall Siggu og mun hún ávallt skipa stóran sess í hjarta okkar. Hún þessi dásamlega, duglega, fallega og sterka vinkona okkar barðist hetjulega allan tímann meðan hún var veik og það sem við dáðumst að henni. Kraftur hennar og elja mun gefa okkur byr undir báða vængi og minna okkur á að lifa og gleðjast, því við vitum að það hefði hún svo sannarlega vilj- að. Við eigum dásamlegar minn- ingar og ein þeirra er samvera þar sem við sitjum saman á sumar- björtu kvöldi við Tjörnina í Reykjavík og bara erum, hér og nú í kyrrð á þeirri stundu og ekk- ert gat truflað okkur. Þakklæti er okkur efst í huga, þakklæti fyrir að hafa fengið að verða samferða Siggu okkar. Þó svo að ferðalagið hafi ekki verið eins langt og við vildum unum við ávallt halda heiðri hennar og vináttu á lofti með reglulegum Sigguboðum. Bjarna, Guðmundi, Degi og Birtu sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur, megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Elsa Björk Knútsdóttir, Flosi Eiríksson, Guðjón Hauksson, Helga Guðrún Lárusdóttir, María Ósk Birgisdóttir. Haustið 1984 kom saman hópur 16 ára ungmenna í fyrsta skiptið í skólastofu í Þingholtunum þar sem Versló var til húsa. Þessi ein- staki hópur kom úr ýmsum áttum en saman mynduðum við 3. bekk C – sem reyndist einstakur –og þar kynntumst við líka henni Siggu okkar. Það var skemmtileg- ur vetur fram undan; mikið brall- að, hlegið, sungið og stundum grátið saman. Brosmildi og lífs- gleði Siggu var smitandi og var alltaf gaman þegar hún var með í för. Á þessum eina vetri mynduð- ust vinasambönd sem hafa haldið allt fram til dagsins í dag. Sumarið 1987 ákváðu þær Addý og Sigga að fara í sumar- vinnu til Noregs til að reyta arfa, því þær höfðu heyrt af einstakri veðurblíðu í því landi og að þetta væri skemmtileg sumarvinna. Einhvern veginn tókst Eyjólfi að sannfæra þær um að hann ætti að fylgja með. Bjarni var á þessum árum kominn inn í líf Siggu en hún lét það ekki stoppa sig og hélt í víking með okkur. Létum við Norðmenn alveg vita af því að við þrjú værum til og þyrftum pláss, sérstaklega á diskótekinu í Dram- men. Ekki lærðum við almennt mikið í norsku, og ekki hafði rignt eins mikið í Noregi síðustu 50 árin og þetta sumar, en við þroskuð- umst mikið og lærðum að meta góða vini. Á Verslóárunum mynd- aðist annar hópur sem gengur undir því virðulega nafni „Þing- vallahópurinn“. Í þeim hópi, eins og annars staðar, var Sigga alltaf hrókur alls fagnaðar og alla tíð traustur vinur. Eftir því sem dag- legt amstur tók yfir urðu hitting- arnir færri en þeim mun skemmti- legri þegar gamlir tímar voru rifjaðir upp og nýjar minningar skapaðar. Sérstaklega er okkur minnisstæð skíða- og afmælisferð norður á Akureyri fyrir þremur árum. Veðrið kom í veg fyrir að hægt væri að fara á skíði yfir höf- uð en þeim mun skemmtilegri varð samveran með góðum mat og drykk og náðum við meira að segja að fara á þorrablót. Það lýsir Siggu okkar best að þrátt fyrir að hún væri farin að finna fyrir ein- kennum veikinda sinna á ný í þessari ferð lét hún sem ekkert væri og hélt í lífsgleðina, enda ekki gefin fyrir drama. Í ferðinni kenndi hún okkur að taka al- mennilegar „sjálfur“ og reyndi að kenna okkur að meta Cava. Fram undan var erfið barátta hjá Siggu við vágest sem alltof oft tekur frá okkur þá sem eru okkur kærir. Siggan okkar tókst á við veikindin af miklu æðruleysi og hélt alltaf í jákvæðnina. Hún kallaði það sjálf „stóra verkefnið“ og leyfði okkur að fylgjast með baráttunni þar sem enn og aftur kom berlega í ljós hversu stór hennar persóna var. Það eru forréttindi að hafa kynnst henni og fengið að verða samferða í gegnum lífið og hún mun fylgja okkur í anda um ókomna tíð – því hún kenndi okkur að æðruleysi og jákvæðni er besta vopnið þegar við stöndum frammi fyrir verkefnum sem virðast, og stundum eru, óyfirstígandi. Góða ferð elsku Siggan okkar, það verð- ur skálað síðar í Cava bæði á Ak- ureyri og í Garðabæ þér til heið- urs. Elsku Bjarna, Guðmundi, Degi og Birtu sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum, megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur. Eyjólfur og Steinunn, Ásdís og Páll. Þrautseigja er bara orð. En það lýsir henni Siggu okkar svo vel. Æðrulaus, þrautseig, kjörkuð, traust, skemmtileg og vinur vina sinna eru einnig orð sem koma í hugann. Bjarni og Gulli eru æskuvinir og fóstbræður. Gulli hitti Siggu fyrst í Holly en kvöldið enduðu turtildúfurnar aftan í Econoline hjá Gulla á rúntinum eftir ball. Gulli var svo svaramaður í brúð- kaupinu þeirra nokkrum árum seinna og vonandi fyrirgefur Sigga bláu sokkana við svörtu föt- in sem svaramaðurinn er enn þá miður sín yfir. En dveljum ekki við smáatriðin í höll minninganna. Örlögin hafa fléttað okkur saman í þéttan streng vináttu með alls konar gleði jafnt sem sorgar- stundum, rétt eins og lífið er. Árin líða og við erum öll komin með fjölskyldu og börn. Skyldurn- ar kalla en svo eldast börnin og léttist á heimilum og við tökum aftur upp fyrri iðju sem eru ferða- lög og endalaust skemmtileg sam- vera. Jeppaferðir á hálendið, sum- arferðir og alls konar skemmtilegheit einkenndu okkar vinskap. Sigga talaði ekki mest, hafði ekki hæst eða bar skoðun sína á torg, en allir vissu hvað hún meinti. Sigga og Bjarni voru sálufélag- ar. Þau voru svo samstíga í öllu og miklar fyrirmyndir, höfðingjar heim að sækja. Það er svo gott að umgangast fólk sem fer sínar eig- in leiðir til hamingjunnar, þau vissu best að það þarf ekki að fylgja fjöldanum til að finna ham- ingjuna. Þrautseigja einkenndi Siggu í hennar veikindum og reyndar löngu fyrir það. Það var aldrei mikið rætt um veikindin og stund- um var það okkur hinum erfitt. Sigga ætlaði að sigra sinn sjúk- dóm og það komst ekkert annað að og við hin gátum ekki annað en hrifist með í einlægri baráttu. Þó svo að Sigga hafi að lokum lotið í lægra haldi fyrir vágestinum óg- urlega stóð hún samt eftir sem sigurvegarinn sem nýtti hverja stund til hins ýtrasta. Við fórum saman í einstakt sumarfrí síðastliðið sumar er við fórum ásamt góðum vinum í úti- legu um Norðurland. Einn af há- punktum ferðarinnar voru tón- leikar á Siglufirði sem Sigga var búin að skipuleggja. Til að gera langa sögu stutta var lagt upp með að dans væri í lágmarki og nær- vera í hámarki en auðvitað endaði þetta þannig að við fórum öll í slóð Siggu á dansgólfinu í góðum konga. Þrátt fyrir að líkaminn hlýddi ekki alltaf var andinn upp á sitt besta og Sigga síðust að kveðja dansgólfið. Verslunar- mannahelgin var líka einstök og dýrmæt og aftur yfirgaf okkar kona svæðið síðust. Það má segja að hún yfirgæfi sviðið á þessum tímapunkti eins og sönn drottning og þannig munum við Siggu okk- ar. Við gátum ekki að neinu marki hitt hana eftir haustið. Eitt er að missa okkar góðu vinkonu og ann- að er að fá ekki að deila síðustu vikum og mánuðum með henni og gera henni lífið bærilegra. Sigga var svo falleg sál. Hún var svo raunsæ og hrein og það gerði hana að hinum fullkomna sálufélaga fyrir Bjarna. Við hlökkum til að fylgja Bjarna, Guðmundi, Degi og Birtu inn í framtíðina og sjá þau dafna eins og Sigga sá fyrir þeirra hönd. Ykkar vinir, Gunnlaugur og Linda. Komið er að kveðjustund alltof snemma. Söknuðurinn er mikill og endalausar minningarnar hrann- ast upp. Sigga var mikill gleðigjafi og alltaf fjör í kringum hana. Að skipuleggja samveru eða partí með fallegum skreytingum og geggjuðum veitingum tók ekki langan tíma hjá henni. Smá glam- úr, góð tónlist, mikil gleði, kampa- vín, fallegir skór og skart – þar var Sigga í essinu sínu. Kynni okkar hófust fyrir 23 ár- um þegar við hjónin keyptum par- hús í smíðum. Við vissum af því að hjón á sama aldri og við ættu hinn helminginn. Við nánari eftir- grennslan kom í ljós að við stelp- urnar vorum náskyldar, vissum hvor af annarri en þekktumst mjög lítið. Það átti aldeilis eftir að breytast og myndaðist góður vin- skapur sem varir enn. Sambýlið var mjög náið og gott og alltaf hægt að leita til Siggu og Bjarna. Börnin bættust við og nutu sam- vistanna með frændsystkinum sínum. Fyrir 13 árum myndaðist sú hefð hjá okkur fjölskyldunum að við eyddum áramótunum saman og það þurfti að skipuleggja hvernig sú gleði skyldi fara fram. Við vorum reyndar ekkert að flækja hlutina. Matseðillinn sá sami ár eftir ár, enda fullkominn að okkar mati. Milli jóla og nýárs skunduðum við frænkur í miðbæ- inn, nánar tiltekið á kaffi Mokka, pöntuðum okkur heita drykki og vöfflur með sultu og rjóma. Inn- kaupalistann afgreiddum við á núll-einni, þetta var ekkert flókið. Sigga átti nefnilega svarta bók sem samviskusamlega var skráð í ár frá ári hvað hafði verið keypt inn árið áður, hversu margir voru í mat (stundum fleiri, stundum færri) og hvort einhver afgangur hefði verið. Lengri tími fór í að gera upp árið og njóta samver- unnar. Börnunum okkar finnst þetta mjög góð og skemmtileg hefð og spyrja alltaf í byrjun des- ember hvort við verðum ekki örugglega saman á áramótunum. Elsku Bjarni, Guðmundur, Dagur, Birta, Esther, Hulda, Guð- mundur, Helga, Fanney og amma Sigga, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Minning um einstakan gleðigjafa yljar á sorgarstundu. Skál fyrir þér Sigga! Kristín og Sveinn. Elsku besta Sigga okkar er fall- in frá. Mikið og djúpt skarð er höggv- ið í líf okkar allra sem nutum þess að eiga með henni samverustundir í okkar góða vinahópi Auðkýfinga- klúbbnum, en það er vinahópur sem hefur haldist frá framhalds- skólaárum okkar. Sigga var alltaf jákvæð og hress sama á hverju gekk og hélt hún uppi stuðinu hvar sem hún var. Alltaf bar hún sig vel og lét ekki veikindin stjórna sér eða stoppa ef mögulegt var. Við vinahópurinn eigum okkur nokkra fasta hittinga á ári og þar voru Sigga og Bjarni alltaf mætt með gleðina að vopni. Vinahópur- inn naut þess að ferðast um landið og voru Sigga og Bjarni fastur punktur í þeim ferðum enda elsk- uðu þau að ferðast jafnt sumar sem vetur. Margar góðar sögur og minn- ingar eru til af Siggu og langar okkur vini að minnast á það sem einkenndi að okkar mati þessa gleðisprengju sem hún Sigga okk- ar var. Ráma röddin og dillandi hlát- urinn hennar koma strax upp í hugann, Sigga úti með prjónana sína, fallegu barnafötin og peys- urnar virtust hreinlega renna af prjónunum fyrirhafnarlaust. Að sjálfsögðu voru búbblurnar ekki langt undan í fallegu glasi og gjarnan fjörlegar umræður um hvort skála ætti í kampavíni, Cava eða Prosecco og hver munurinn væri yfirhöfuð. Þegar kom að matargerðinni kom Sigga alltaf sterk inn og var gjarnan með einhver framandi salöt með steikinni og allt var ör- lítið fallegra borið fram hjá henni en okkur hinum. Við munum öll minnast síðustu verslunarmanna- helgar en þar mætti Sigga með forláta fín silfurkampavínsglös sem hún hafði keypt á antíksölu á Dalvík þá um sumarið. Mikið fóru glösin okkar konu vel og passaði þessi stíll henni sérstaklega vel. Sigga okkar var yfirleitt fyrst á dansgólfið og fór þaðan síðust enda elskaði hún stuð og að dansa í fallegum skóm. Euphoria með Loreen var alltaf í sérstöku uppá- haldi. Þetta lag mun ávallt vekja góðar og hlýjar minningar. Sigga hafði einstaklega góða nærveru og var vinsælt að setjast hjá þeim Bjarna í nýuppáhellt kaffi í hjólhýsinu þeirra. Sigga var mikil félagsvera og fjölskyldu- manneskja og sýndi hún okkur mikla umhyggju og einlægan áhuga. Ekki má gleyma spilaklúbbn- um okkar, SPAUG, þar sem við stelpurnar í hópnum hittumst reglulega, borðum góðan mat, skálum og spilum Mexican Train. Spilaklúbburinn er nýi sauma- klúbburinn og er alltaf gaman að hittast, spjalla saman og hlæja. Okkar kona var að sjálfsögðu mætt, tilbúin að taka þátt í leik og hlátri í bland við alvöru, hvernig sem heilsufarið var. Siggu okkar verður svo sann- arlega sárt saknað en við verðum dugleg að halda minningu hennar á lofti með skemmtilegum sögum og fallegum minningum. Við sendum elsku Bjarna, Guð- mundi, Esther, Degi, Birtu og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur, missir ykkar er mikill og sár. Ásta og Svafar, Bára og Þórarinn, Erla og Sig- urður, Linda og Gunn- laugur, Linda og Ólafur, María Rún og Vigfús, Margrét Ása og Özur, Ragnheiður og Birgir, Guðrún og Guðmundur, Sigrún og Birgir, Sigrún og Jón Valur, Sigrún og Ragnar, Unnur og Sigfús, Unnur og Þórður, Valdís og Sveinn, Þröstur. Það er ótrúlegt og óraunveru- legt elsku Sigga að vera að skrifa minningargrein um þig. Vinir og vinahópar söfnuðust hreinlega í kringum þig því það var alltaf gaman með þér. Við sáumst fyrst í sex ára bekk í Álftamýrarskóla og svo kynnt- umst við betur þegar ég kom í Langholtsskóla. Saman fórum við í Versló og vá hvað það var gaman þetta fyrsta ár okkar í 3-C þar sem við kynntumst nýjum vinum sem við eigum ennþá. Svo var það saumaklúbburinn með stelpunum úr Langholtsskóla sem var stofn- aður fyrir næstum 30 árum fyrir hálfgerða tilviljun og það sem við erum búnar að bralla í gegnum tíðina – vá! Við erum búnar að vera að fara í gegnum myndir þessa síðustu daga og það var sko aldeilis gaman hjá okkur. Fras- arnir „The Icelandic viking wom- an í Amsterdam, Sigga Breit í Boston og svo má lengi telja, já það er sko hægt að hlæja í gegn- um tárin. Ég verð ævinlega þakklát fyrir ferðina okkar til Stokkhólms 2017 sem þú dreifst okkur í af því þú fannst miða á Mamma Mia Abba- showið og fyrir ferðina nokkrum mánuðum seinna með Versló- hópnum til Akureyrar sem var önnur dásemdarhelgi og við get- um yljað okkur við minningarnar en þarna varstu farin að finna fyr- ir helvítis krabbanum þó svo greiningin hafi ekki verið komin. Það er margs að minnast og margt að þakka og ég þakka þér elsku Sigga fyrir vináttuna öll þessi ár. Elsku Bjarni, Guðmundur, Dagur, Birta, foreldrar og systur og allir vinir hennar Siggu, inni- legar samúðarkveðjur til ykkar allra. Elín Hanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.