Morgunblaðið - 04.02.2021, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2021
Franska kvikmyndahátíðin fer fram
í tuttugasta og fyrsta sinn frá og
með deginum í dag, 4. febrúar, til og
með 14. febrúar í Bíó Paradís og
einnig á netinu í streymisveitu kvik-
myndahússins, Heimabíó Paradís.
Franska sendiráðið á Íslandi og Alli-
ance Française standa að hátíðinni í
samstarfi við Institut français og
kanadíska sendiráðið býður auk
þess upp á kanadíska kvikmynda-
helgi 13.-14. febrúar á netinu.
Opnunarmynd hátíðarinnar er
Sumarið ’85 (Été 85) eftir hinn virta
leikstjóra François Ozon en dag-
skrána í heild má finna á biopara-
dis.is.
Þegar hafa helstu myndir hátíðar-
innar verið kynntar hér í Morgun-
blaðinu en við hefur bæst Psycho-
magic – heilandi list, eftir einn af
öldungum franskrar kvikmynda-
gerðar, Alejandro Jodorowsky, sem
orðinn er 91 árs. Í myndinni veitir
hann innsýn í þá heilunar- eða sál-
fræðimeðferð sem hann kallar
„psychomagic“; blandar saman
heimspeki, sálfræði, dulspeki, frá
Freud til shamanisma, Kabbalah til
Gurdjeff og öllu þar á milli, eins og
segir í tilkynningu. Atriði úr þekkt-
ustu kvikmyndum hans eru klippt
inn í myndina og gefa verkum hans
ný sjónarhorn og merkingu, segir
þar. Jodorowsky er síleskur að upp-
runa en hefur verið búsettur í París í
marga áratugi.
Af öðrum myndum hátíðarinnar
má nefna Miskunn eða Roubaix, une
lumiére á frummálinu sem segir af
lögreglumanni sem reynir að finna
morðingja eldri konu. Nágrannar
fórnarlambsins, tvær ungar konur,
eru handteknar fyrir morðið en ekki
er allt sem sýnist, segir á vef Bíós
Paradísar.
Forvitnileg Úr Psychomagic– heilandi list eftir Alexander Jodorowsky.
Franska hátíðin hefst
Vera er yfirskrift samsýningar
þeirra Christine Gísla, Jónu Þor-
valdsdóttur og Katrínar Gísladótt-
ur – Kötru á ljósmyndum og kera-
míkskúlptúrum sem verður opin í
Gallery Grásteini á Skólavörðustíg
4 frá kl. 16 í dag, fimmtudag.
Verkin á sýningunni eru afrakst-
ur átta mánaða samvinnu lista-
kvennanna þar sem fléttast saman
hugleiðingar um tilveruna, líðandi
stund og tilveruna í kringum okk-
ur. Allar vinna þær með abstrakt
form, hver á sínum forsendum, svo
úr verður, eins og segir í tilkynn-
ingu, skemmtileg samsetning ljós-
mynda og þrívíðra verka.
Sýningin Vera er opin alla daga
til 28. febrúar á afgreiðslutíma
Gallery Grásteins.
Vera Listakonurnar Katrín, Jóna og
Christine sýna saman í Grásteini.
Christine, Jóna og Katra í Grásteini
Árni Valur Axfjörð opnar í dag,
fimmtudag, í SÍM-salnum Hafnarstræti
16 fyrstu einkasýningu sína eftir
tveggja ára nám við Keramikdeild
Myndlistaskólans í Reykjavík sem hann
lauk vorið 2020.
Á sýningu eru skúlptúrar unnir í
postulín ásamt skissum og teikningum.
Árni kveðst vinna verkin út frá þeirri
hugmynd að mannskepnan deili
sameiginlegri undirmeðvitund og þeim
möguleikum sem þar dvelja. Í verk-
unum spyr hann spurninga sem varða
hugmyndir og hugtök sem maðurinn
hefur ekki enn dregið fram í dagsljósið
og veltir jafnframt jafnframt fyrir sér
spurningum um hluti sem menn hafa
ekki enn búið til, byggt eða framleitt,
eins og segir í tilkynningu.
Skúlptúrarnir eru að hluta til unnir
eftir teikningum Árna Vals en líka út
frá innsæi hans og núvitund. Skúlptúr Eitt verka Árna Vals á sýningunni.
Postulínsskúlptúrar Árna Vals á sýningu
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mér finnst þetta alveg stórkostlegt
og ég er svo þakklát,“ segir Elísabet
Kristín Jökulsdóttir rithöfundur, en
tilkynnt hefur verið að hún verði
heiðurslistamaður alþjóðlega mynd-
listartvíæringsins Sequences sem
haldinn verður í 10. sinn 15.-24. októ-
ber 2021. Sýningarstjórar eru Þór-
anna Dögg Björnsdóttir listakona og
Þráinn Hjálmarsson tónskáld.
Í tilkynningu frá hátíðinni er haft
eftir Þórönnu að verk Elísabetar séu
„sem barómeter á samfélagið hverju
sinni. Elísabet er síkvik og örlát í um-
fjöllun sinni um mennskuna og með
gjörningum sínum og orðlist spinnur
hún þræði milli ólíkra listforma. Hún
hefur rutt brautina í umræðu um
geðheilbrigði og með frásögnum sín-
um gefur hún okkur tækifæri til að
stækka sálina og spegla okkur í sam-
mannlegu litrófi tilfinninganna.“
Rauðir hestar bíða ofan í kassa
„Það er auvitað algjörlega guð-
dómlegt að fá allar þessar viður-
kenningar. Ég held að það muni taka
mig nokkurn tíma að átta mig á þessu
öllu. Ég trúi því til dæmis ekki enn að
ég hafi hlotið Íslensku bókmennta-
verðlaunin og myndi eflaust halda að
mig hefði bara dreymt þetta ef ég
hefði ekki verðlaunagripinn fyrir
framan mig,“ segir Elísabet og bend-
ir á að til standi að þýða verðlauna-
bókina Aprílsólarkulda „yfir á
nóbelstungumálið sænsku auk þess
sem hópur listamanna er að skoða að
setja bókina á svið. Annar hópur er
að vinna að uppsetningu á leikriti
mínu Blóðug kanína. Það er búið að
kollvarpa mér og lífi mínu með allri
þessari uppskeru.“
Spurð hvort hún sé farin að velta
fyrir sér hvað hún ætli að sýna eða
gera á Sequences X svarar Elísabet
um hæl: „Ég er náttúrulega einn
gangandi gjörningur þegar ég er í því
stuðinu,“ segir Elísabet sem reglu-
lega hefur framið gjörninga á löngum
listamannsferli sínum.
„Fyrsti gjörningurinn sem ég
gerði var að kveikja í ritvél í fjöru þar
sem skip hafði strandað til að sýna
hvernig strandað skip geti breyst í
skáldskap þótt líði 20 ár,“ segir El-
ísabet og rifjar upp að gjörningurinn
hafi verið tekinn upp og sýndur í
sjónvarpinu 1994. „Frægasti gjörn-
ingur minn, svo ég tali nú eins og Pic-
asso, er þegar ég kveikti í bók og las
upp úr henni meðan hún brann,“ seg-
ir Elísabet og bendir á að hún hafi
endurtekið þann gjörning reglulega í
gegnum tíðina.
„Ég er með góða myndlistarsýn-
ingu tilbúna sem er búin að bíða mun-
aðarlaus ofan í kassa í um áratug og
hefur aldrei verið sýnd opinberlega,“
segir Elísabet og segist því hafa tekið
því fagnandi þegar sýningarstjórar
Sequences X ámálguðu það við hana
að sýna þá sýningu á komandi hátíð.
„Sýningin samanstendur af naífum
teikningum mínum af rauðum hest-
um og sögu af stelpu sem hafði verið
lokuð inni í dimmu herbergi svo lengi
að hana langaði að deyja. Þegar hún
sker sig á púls kemur út úr blóðinu
rauður hestur sem stelpan getur
gripið í og þannig þeysast þau út úr
herberginu,“ segir Elísabet og bendir
á að rauðu hestarnir tákni þannig
bæði blóð hennar og hæfileika.
„En mig langar líka til að endur-
taka áfallagjörninginn sem ég framdi
fyrst á alþjóðlegu listahátíðinni
Ferskir vindar sem Mireya Samper
stýrði í Garði 2015,“ segir Elísabet
sem þar hengdi fjölda gjafapoka með
áföllum sínum á jólatré. „Hátíðir
opna inn í sál okkar og því skiljanlegt
að opnað sé á áföllin einmitt á jól-
unum,“ rifjar Elísabet upp, en hún
endurtók gjörninginn ári síðar í Bæj-
arbíói í Hafnarfirði. „Þar talaði ég um
þau 20-30 áföll sem ég hef orðið fyrir í
lífinu. Það getur verið mjög erfitt að
bera áfall einn og því bað ég gesti að
bera áföllin, sem voru rituð á gjafa-
poka, með mér. Ég hvatti gesti einnig
til að sveifla þessum gjafapokum úti á
torgum til að deila þessu með enn
fleirum,“ segir Elísabet sem dreymir
um að geta endurtekið gjörninginn í
Tjarnarbíói í haust. „Það er mjög
gott að vera í leikhúsi, því þá er mað-
ur í hættulegri nálægð við áhorf-
endur,“ segir Elísabet og bætir við:
„Og ég hlakka til að sjá hvaða gjörn-
ingur verður til á Sequences …“
„Ég er náttúrulega einn
gangandi gjörningur“
Elísabet Kristín Jökulsdóttir heiðurslistamaður Sequences X
Morgunblaðið/Eggert
Nálægð „Það er mjög gott að vera í leikhúsi, því þá er maður í hættulegri
nálægð við áhorfendur,“ segir listakonan Elísabet Kristín Jökulsdóttir.
Þóranna Dögg
Björnsdóttir
Þráinn
Hjálmarsson
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
www.borgarsogusafn.is
Sjó
min
jas
afn
ið í
Rey
kja
vík
frá
bæ
rum
Lan
dná
ms
sýn
ing
in
safnE
itt
Árb
æja
rsa
fn
Ljó
sm
ynd
asa
fn R
eyk
jav
íku
r
á fi
mm
Við
ey
stö
ðu
m