Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 1
SMARTLAND
Sumar-
tískan
2021
Útvíðar buxureru komnaraftur í móð.
Kjartan
Guð-brandsson
Mikilvægtað elska sigtil að geta
elskað
annað fólk.
Hvað
einkennir
best
klæddu
konur
Íslands?
Hvert eru þærað fara oghvaðan eruþær að koma?
Snyrti-vörurnar
vorið
2021
Eyeliner,skærar varirog mikill
maskari.
grún
íus-
ttir
jáhald
sung
st
nari
r.”
’Hjálparkonum að látadrauma sínarætastRÚN GU Ó
Veiranhefur haftmikil áhrifá húð
landans
Hvað er
til ráða
þegar kemurað húðum-
hirðu?
„Framh
eða lau
virði
almen
en áðu
SIG
TÍSKA, FÖRÐUN
OG LÍFSSTÍLL
SMARTLAND 56 SÍÐUR
F Ö S T U D A G U R 1 2. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 36. tölublað 109. árgangur
Samtök atvinnulífsins og Samtök
iðnaðarins vilja að Atvinnuleys-
istryggingasjóður verði lagður nið-
ur í núverandi mynd og annað fyr-
irkomulag fundið. Sjóðurinn sé
arfleifð löngu liðins tíma sem rekja
megi til stofnunar hans fyrir tæp-
um 70 árum. Hann sé ranglega
nefndur sjóður því hann safni ekki
fjármunum sem beri vexti og
ástæðulaust sé að viðhalda þeim
misskilningi. Þetta kemur fram í
umsögn SA og SI við frumvarps-
drög fjármálaráðuneytisins en í
þeim leggur ráðuneytið til breyt-
ingar á fyrirkomulagi trygginga-
gjalds og á hlutdeild vinnumark-
aðssjóða í gjaldinu. »11
Telja sjóðinn arfleifð
löngu liðins tíma
staðfest þær enda eigi eftir að full-
meta tjónið. Þá sé óvissan mikil.
Til að setja þessa fjármuni í sam-
hengi greiddi Happdrætti Háskóla
Íslands 1.180 millj. til skólans 2019.
Aðfaranótt fimmtudagsins 21. jan-
úar rofnaði kaldavatnslögn með þeim
afleiðingum að vatn flæddi um fimm
byggingar háskólans. Hafði þá staðið
yfir endurnýjun lagna hjá Veitum.
Gimli mjög illa farið
„Tjónið er mikið. Gólf og veggir
hafa skemmst en meðal annars eru
gifsveggir ónýtir. Þá skemmdust tæki
og húsgögn. Við erum að vinna að því
að koma þessu í lag en útlit er fyrir að
kennsla geti hafist í þessu rými í
haust. Fyrsta hæðin í Gimli skemmd-
ist mjög illa en þar voru m.a. stjórn-
sýsluskrifstofur. Þar eyðilagðist loft-
ræstibúnaður þar sem hlóðst upp
mikið vatn,“ segir Jón Atli. Dóm-
kvaddir matsmenn muni meta tjónið
og í kjölfarið muni staðan skýrast.
Spurður hvaða áhrif tjónið hafi á
uppbyggingaráform Háskóla Íslands
segist Jón Atli binda vonir við að tjón-
ið verði að fullu bætt af þeim aðilum
sem tjóninu hafa valdið.
„Ég myndi telja það eðlilegt og
sanngjarnt að þeir aðilar sem bera
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tjón vegna vatnslekans í Háskóla Ís-
lands er mjög verulegt en of snemmt
er að meta það til fulls.
Þetta segir Jón Atli Benediktsson,
rektor Háskóla Íslands.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa sérfræðingar áætlað að
tjónið sé á annan milljarð króna. Er
þá m.a. horft til mikilla skemmda á
raflögnum og húsgögnum.
Jón Atli segir aðspurður að mjög
háar fjárhæðir hafi verið nefndar
þegar allt er talið. Hann geti ekki
ábyrgð á tjóninu standi við sínar
skuldbindingar. Við vonumst til að
það gangi eftir og að það falli ekki
kostnaður á ríkið. Ríkisstofnanir eru
ekki tryggðar en ríkið hefur leiðir til
að bregðast við þegar svona áföll
skella á. Það er of snemmt að spá um
hvernig gengið verður frá því.“
Annríki hjá starfsfólkinu
Á hinn bóginn sé hluti mannafla
skólans upptekinn við að bregðast við
tjóninu, m.a. starfsfólk á fram-
kvæmda- og tæknisviði, en hann von-
ist til að áhrifin af því á starfsemina til
lengri tíma verði óveruleg.
Tjónið rúmur milljarður
Sérfræðingar meta vatnstjónið í HÍ Rektor vonar að ríkið fái tjónið bætt
Það sé eðlilegt og sanngjarnt að tjónvaldar standi við sínar skuldbindingar
Starfsmenn ÍAV vinna nú að smíði nýrrar brúar yfir Gljúfur-
holtsá í Ölfusi, sem er hluti af tvöföldun hringvegarins á þess-
um slóðum. „Í góðu tíðarfari ganga framkvæmdir vel og við-
vegarins. Sá er um sjö kílómetrar, það er frá Kotströnd í Ölf-
usi að Biskupstungnabraut ofan við Selfoss. Verklok eru áætl-
uð síðsumars 2023.
fangsefnin eru skemmtileg,“ segir Ágúst Jakob Ólafsson
verkstjóri. Um 30 manns eru nú að störfum í Ölfusinu, það er
brúarsmiðir og vinnuflokkar í tækjavinnu við lagningu nýja
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vegaframkvæmdir í Ölfusi ganga vel í góðu tíðarfari
Hagnaður viðskiptabankanna þriggja nam sam-
tals 29,7 milljörðum króna á síðasta ári. Hann
jókst um 7% á milli ára eða um tvo milljarða
króna.
Uppgjör Landsbankans var kynnt í gær og nam
hagnaður bankans 10,5 milljörðum króna á síðasta
ári eftir skatta. Hagnaður bankans minnkaði um
42% á milli ára. Hagnaður Íslandsbanka dróst
saman um tuttugu prósent á milli ára en hagnaður
Arion banka rúmlega tífaldaðist og nam alls 12,5
milljörðum árið 2020.
Arðsemi eigin fjár Landsbankans var 4,3% í
fyrra en var 7,9% árið á undan. Arðsemi eigin fjár
Arion banka jókst töluvert í fyrra og var 6,5%. Hjá
Íslandsbanka var arðsemi eigin fjár 7,9% árið 2020
en var 4,8% árið á undan.
Mikil fækkun útibúa frá hruni
Á síðustu tveimur áratugum hefur útibúum og
afgreiðslum viðskiptabankanna þriggja fækkað
hratt. Í dag eru útibúin alls um 60 talsins en upp
úr aldamótum voru þau 170. Í bankahruninu
voru enn um 150 útibú og afgreiðslur um allt
land.
Landsbankinn er nú með 27 útibú á landsbyggð-
inni, Íslandsbanki níu og Arion er með tólf. »6
Högnuðust um 30 milljarða í fyrra
Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna jókst milli ára Útibúum fækkar
Bankarnir Samanlagður hagnaður jókst á milli
ára. Útibúum hefur fækkað hratt síðustu ár.