Morgunblaðið - 12.02.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
10 gíra skipting, auto track milli-
kassi, multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á markað-
num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir
brettakantar, heithúðaður pallur með
gúmmímottu, sóllúga.
VERÐ
13.380.000 m.vsk
2021 GMC Denali Ultimate 2500
10 gíra skipting, auto track milli-
kassi, multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á markað-
num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir
brettakantar, heithúðaður pallur með
gúmmímottu, sóllúga.
VERÐ
13.480.000 m.vsk
2021 GMC Denali Ultimate 2500
Bjóðum upp á glæsilega 37” breytingu.
Innifalið í TREMOR-pakkanum er læst framdrif, 2” upphækkun að framan,
35” dekk, Drive mode stillingar, TREMOR demparar, minni svunta undir
framstuðara, hærra loftinntak.
Sem sagt original stórkostlegur
OFF ROAD bíll! 475 hö, 1050 pund
tog og 10 gíra sjálfskipting.
VERÐ FRÁ
12.990.000 m.vsk
2021 Ford F-350 TREMOR
Eigum á leiðinni nokkra Lariat, Lariat Sport og Platinum bíla.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þingmenn úr báðum deildum Banda-
ríkjaþings voru í bráðri lífshættu
þegar stuðningsmenn Donalds
Trumps réðust inn í þinghús Banda-
ríkjanna 6. janúar sl., að mati sak-
sóknara fulltrúadeildarinnar, sem
luku tveggja daga málflutningi sín-
um um klukkan 21.30 að íslenskum
tíma í gær.
Verjendateymi forsetans fyrrver-
andi fær svo daginn í dag og á morg-
un til þess að leggja fram málsvörn
Trumps, en upphaflega átti að gera
hlé á réttarhöldunum í dag að beiðni
Davids Schoen, annars verjenda
Trumps, vegna hvíldardags gyðinga.
Hann dró þá beiðni hins vegar óvænt
til baka í fyrradag.
Þegar verjendur hafa lokið mál-
flutningi sínum fá þingmenn deild-
arinnar fjóra klukkutíma til þess að
spyrja bæði saksóknara og verjend-
ur nánar út í málið. Gæti það farið
fram nú á sunnudaginn, en í kjölfarið
verður einnig rökrætt hvort kalla
þurfi til vitni eða fá frekari sönnun-
argögn.
Á fyrri degi málflutnings síns fór
saksóknarateymi fulltrúadeildarinn-
ar rækilega í gegnum atburði 6. jan-
úar með aðstoð myndbanda sem ekki
höfðu komið fyrir sjónir almennings
áður, en sumt af því var fengið úr ör-
yggismyndavélum þingsins eða úr
myndavélum sem lögreglumenn
gengu með á sér þennan dag.
Þar á meðal mátti sjá þegar líf-
verðir Mike Pence, þáverandi vara-
forseta, fylgdu honum og fjölskyldu
hans í öruggt skjól frá múgnum, en á
myndböndunum mátti sjá og heyra
að hluti hans hafði í hyggju að vinna
Pence mein, þar sem varaforsetinn
hefði ekki framfylgt skipunum
Trumps um að snúa við niðurstöðu
forsetakosninganna í nóvember.
Var sýnt myndband, þar sem mót-
mælandi með gjallarhorn las upp
fyrir aðra mótmælendur skilaboð frá
Trump á twitter, sem send voru
meðan innrásin var í fullum gangi,
þar sem Trump úthúðaði Pence.
Vildu saksóknarar þar með tengja
Trump við fyrirætlanir óeirðaseggj-
anna, en áköll heyrðust meðal þeirra
um að hengja bæri Pence í næsta tré.
„Hvar ertu, Nancy?“
Saksóknarar sýndu einnig mynd-
bönd sem sýndu mótmælendur leita
skipulega að Nancy Pelosi, forseta
fulltrúadeildarinnar og leiðtoga
demókrata í henni. „Nancy, hvar
ertu, Nancy?“ kölluðu þeir á meðan
þeir leituðu, en á sama tíma voru átta
úr starfsliði Pelosi í felum bak við
hurð sem hafði verið skorðuð af með
húsgögnum.
Pelosi þykir meðal umdeildari
stjórnmálamanna Bandaríkjanna.
Var hún sérstaklega óvinsæl hjá
Trump, sem tísti oft og iðulega og fór
um hana háðulegum orðum. „Við vit-
um af þeirra eigin orðum að hefðu
þeir fundið Pelosi þingforseta, hefðu
þeir drepið hana,“ sagði Stacey Plas-
kett, ein af saksóknurunum, en hún
er áheyrnarfulltrúi í neðri deildinni
frá Bandarísku Jómfrúaeyjum.
Óvíst um áhrif málflutningsins
Öldungadeildarþingmenn úr báð-
um flokkum voru sammála um að
málflutningur demókrata á fyrri
degi hefði verið mjög kröftugur og
vel framsettur.
Nokkrir af þingmönnum repúblik-
ana voru hins vegar ekki vissir um að
verjendum hefði tekist að sanna að
múgurinn hefði framið ofbeldisverk
sín að fyrirskipan Trumps.
Áætluðu háttsettir repúblikanar
að líklega myndu á bilinu 5-6 þing-
menn þeirra „svíkja lit“, en 17 repú-
blikanar þurfa að snúast á sveif með
50 demókrötum til þess að Trump
verði sakfelldur fyrir þær ásakanir
sem fulltrúadeildin setti fram.
Hugðust vinna þingmönnum mein
Saksóknarar fulltrúadeildarinnar luku málflutningi sínum gegn Donald Trump í gærkvöldi
Múgurinn leitaði að Pence og Pelosi Óvíst hvort nokkur þingmaður muni skipta um skoðun í málinu
AFP
Innrásin Stuðningsmenn Donalds Trumps hugðust vinna þingmönnum mein 6. janúar sl. að mati saksóknaranna.
Min Aung Hlaing, yfirmaður herfor-
ingjastjórnarinnar í Búrma, sem
einnig er þekkt sem Mjanmar, fyr-
irskipaði í gær opinberum starfs-
mönnum, sem tekið hafa þátt í alls-
herjarverkfalli gegn valdaráni
hersins, að snúa þegar í stað aftur til
starfa. Sagði hann að ef ekki yrði
orðið við kröfu sinni yrði gripið til
„virkra aðgerða“.
Mótmælt hefur verið í öllum
helstu borgum Búrma undanfarna
sex daga, og segjast mótmælendur
ekki ætla að láta af andófi sínu gegn
valdaráni hersins fyrr en Aung San
Suu Kyi, leiðtoga stjórnarflokksins
NLD, og Win Myint, forseta lands-
ins, er sleppt úr haldi, ásamt öðrum
sem herinn hefur tekið fasta í kjölfar
valdaránsins. Eru nú um 200 manns í
haldi herforingjastjórnarinnar.
Lögregla og öryggissveitir hafa
beitt sífellt meiri hörku til þess að
brjóta mótmælin á bak aftur, einkum
táragasi og gúmmíkúlum. Þá hefur
frést af nokkrum tilfellum þar sem
alvöruskotfærum var beitt gegn
mótmælendum, en lögreglumenn í
höfuðborginni Naypyidaw skutu
konu í höfuðið í fyrradag. Hún berst
nú fyrir lífi sínu á gjörgæsludeild, og
hafa mótmælendur notað myndir af
henni til þess að ýta undir reiði og
mótþróa gegn herforingjastjórninni.
Bretar skoða frekari aðgerðir
Dominic Raab, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði í gær að Bretar
væru að skoða hvaða frekari refsiað-
gerðir þeir myndu beita liðsmenn
herforingjastjórnarinnar vegna
valdaránsins, en nú þegar eru í gildi
aðgerðir gegn tveimur af herforingj-
unum vegna ofsókna þeirra á hendur
róhingjum.
Fagnaði Raab ákvörðun Joe Bi-
dens Bandaríkjaforseta um að frysta
eignir herforingjanna í Bandaríkjun-
um, en aðgerðir Bandaríkjastjórnar
snerta eignir sem metnar eru á um
einn milljarð bandaríkjadala.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, fordæmdi valdaránið í
síðustu viku og tók undir kröfur
Bandaríkjamanna og annarra vest-
rænna ríkja um að herforingjarnir
létu strax af völdum.
Þá hafa Bretar ásamt ríkjum Evr-
ópusambandsins kallað eftir sér-
stakri umræðu í mannréttindaráði
Sameinuðu þjóðanna, en sú umræða
var sett á dagskrá ráðsins í dag eftir
að 20 af þeim 47 ríkjum sem skipa
ráðið tóku undir kröfuna.
Þar verður farið yfir ályktun sem
Bretar og ESB hafa lagt fram, þar
sem valdaránið er fordæmt og þess
krafist að öllum föngum herforingja-
stjórnarinnar verði sleppt, auk þess
sem lýðræði verði komið á að nýju.
Ekki er víst hvort tillagan verði sam-
þykkt.
Skipar mótmælendum
að snúa aftur til starfa
Bretar íhuga refsiaðgerðir gegn herforingjastjórninni
AFP
Valdarán Mótmælin hafa teygt sig til annarra ríkja, og var valdaráninu m.a. mótmælt við háskóla SÞ í Tókýó í gær.