Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 20

Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 ✝ Ingibjörg Þor-kelsdóttir fæddist 20. júlí 1923 í Reykjavík. Hún andaðist 4. febrúar 2021 á Landakoti. Foreldrar Ingi- bjargar voru Þor- kell Þorkelsson veðurstofustjóri, f. 6. nóv. 1876, d. 7. maí 1961 og kona hans Rannveig Einarsdóttir, f. 3. jan. 1890, d. 1. maí 1962. Ingibjörg var næstyngst 6 systkina. Systkini hennar voru Gísli, f. 2. okt. 1912, Sigurður, f. 1. feb. 1914, Sigríður, f. 6. júní 1915, Rögnvaldur, f. 23. sept. 1916 og Einar, f. 31. ágúst 1925. Þau eru öll látin. Ingibjörg giftist 1. maí árið 1948 Kristni Helgasyni, f. 9. maí 1922, d. 11. maí 2003, inn- kaupastjóra og blómarækt- anda. Foreldrar hans voru Helgi Dagbjartsson verkamað- ur, f. 1. ágúst 1877, d. 6. mars 1941 og kona hans Ágústa Guðmundsdóttir, f. 21. júlí mars 1952. Sambýliskona Ragna Þórisdóttir leikskóla- kennari, f. 10. júní 1957. Þeirra börn eru: a) Kamilla, f. 30. nóvember 1989, og b) Mal- ín, f. 5. september 1991. 3) Gunnar Helgi, prófessor við HÍ, f. 19. mars 1958. Eig- inkona María Jónsdóttir fé- lagsráðgjafi, f. 9. ágúst 1966. Börn þeirra eru: a) Úlfhildur, f. 7. september 1993, og b) Ingibjörg, f. 25. október 1994. Auk þess átti María fyrir son- inn Jón Reyni Magnússon, f. 2. maí 1990, sambýliskona hans er Aldís Erna Pálsdóttir og sonur þeirra er Gauti Páll. 4) Axel sagnfræðingur, f. 21. október 1959. Ingibjörg ólst upp í miðbæ Reykjavíkur til 9 ára aldurs er fjölskyldan fluttist að Seg- ulhæðum í Rafstöðvarhverfinu við Elliðaár. Hún lauk stúd- entsprófi frá MR og vann á Veðurstofunni í nokkur ár eft- ir það. Hún lauk síðar kenn- araprófi og starfaði sem kenn- ari við Breiðagerðisskóla, einnig sem yfirkennari. Hún vann töluvert að gerð náms- efnis í stærðfræði fyrir Náms- gagnastofnun. Útför Ingibjargar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 12. febrúar 2021, og hefst at- höfnin kl. 13. 1885, d. 11. okt. 1943. Ingibjörg og Kristinn eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Þóra, fv. kennari, f. 14. júní 1950, gift Þorvaldi Karli Helgasyni, fv. biskupsritara, f. 9. apríl 1950. Þeirra börn eru: a) Ingibjörg, f. 13. september 1973, eiginmaður Vilhjálmur Kvaran. Börn henn- ar af fyrra hjónabandi eru Kristinn Helgi, Sólveig og Steinunn, b) stúlka, f. 5. júní 1975, d. sama dag, c) Helga, f. 15. ágúst 1976. Börn hennar eru Jóhannes, Þóranna og Kristinn, d) Rannveig, f. 16. mars 1980, eiginmaður Sverrir Scheving Thorsteinsson. Dæt- ur þeirra eru Áslaug, Ingi- björg og Þóra og e) Kristinn, f. 25. október 1981, eiginkona Fríður Skeggjadóttir Þormar. Börn þeirra eru Þuríður Katr- ín og Gunnar Helgi. 2) Gylfi sérkennari, f. 24. Ingibjörg tengdamóðir mín var einstök kona og langt á undan sinni samtíð. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1942. Hún ferðaðist, las heimsbókmenntir, lék á píanó og hefði farið í frek- ara háskólanám ef færi hefði gefist. Því var ekki til að dreifa þótt hún væri afburða náms- maður. Hún átti samt alla tíð bækurnar í læknisfræði sem hún keypti sér og átti það til síðar að glugga í þær þegar ömmubörnin voru veik. Ástin tók völdin þegar hún kynntist Kristni Helgasyni, giftist og eignaðist fjögur börn með hon- um, framtíðardraumar um að ganga menntaveginn þurfti að víkja í bili. Þegar Ingibjörg var á fimmtugsaldri fór hún í Kenn- araskólann, lauk prófi þaðan og starfaði sem farsæll kennari og yfirkennari þar til hún fór á eft- irlaun. Ingibjörg var heiðarleg, réttsýn og rökföst kona sem fylgdist einstaklega vel með þjóðfélagsumræðunni, sótti list- viðburði og bar hag fólks fyrir brjósti. Hún var í kór, Senjór- ítunum, og kom síðast á svið í Hörpu þegar hún var níræð en henni fannst smá erfitt að standa svona. Fróðleiksþorsti hennar og þörfin fyrir að læra voru aldrei langt undan og hún var komin á níræðisaldur þegar hún skráði sig í spænsku hjá endurmenntun Háskóla Íslands ásamt Diddu systur sinni. Mað- ur kom aldrei að tómum kof- unum hjá henni og hún gat leið- beint manni um flest, hvort sem það var garð- og blómarækt, handavinna, eldamennska eða yfirlestur á texta svo fátt eitt sé talið. Ingibjörg var mikil fjöl- skyldumanneskja og var mikill aðdáandi barnabarna og lang- ömmubarna sinna sem hún sinnti af mikilli alúð. Börnin mín voru svo lánsöm að njóta ástríkis hennar og kennsluhæfi- leikanna þar sem hún sýndi mikla þolinmæði og þrautseigju og þau komu aldrei að tómum kofunum enda hafði hún sjálf komið að því að skrifa stærð- fræðibækur. Þegar hún var ní- ræð þrælaði hún sér í gegnum kennslubók í latínu til að hjálpa ungviðinu en hún varð að játa að hún hefði nú aðeins þurft að hafa fyrir því. Ég mun minnast tengdamóður minnar með hlý- hug og samverustundanna sem við áttum. Spjallið, röltið um fallega garðinn hennar á sumrin sem var þakinn alls konar blóm- um sem hún kunni öll deili á eru meðal þess sem kemur upp í hugann. Ég vissi fátt betra en þegar hún bauð okkur í læri á sunnudögum eða kaffi og kökur. Hún bar aldurinn ótrúlega vel og lét í rauninni fyrst á sjá eftir að hún slasaðist 94 ára, hún var alltaf ung í anda og líkamlega fær alveg fram að þeim tíma og var mjög umhugað um allt og alla. Minning um einstaka konu lifir og ég er mjög þakklát fyrir mína hönd og barnanna minna að hafa notið samfylgdar henn- ar. María. Ég man svo vel þegar ég hitti Ingibjörgu tengdamóður mína í fyrsta sinn fyrir 36 árum í Grundargerðinu. Hún var kom- in yfir sextugt en leit alls ekki út fyrir það. Hún var nýmóðins kona í gallabuxum og smart peysu. Hún var glaðleg og kannski örlítið feimin, snögg í hreyfingum og fljót að hlaupa upp og niður stigana í Grundó. Kannski voru það stigarnir sem héldu henni svona ungri fram yfir nírætt. Margar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Ingibjörg var mjög hagsýn kona og nýtin. Hún dró stund- um fram eldgömul föt og fór í og alltaf var hún flott. Eitt sinn kom hún með 30 ára gamla sandala sem voru orðnir nýmóð- ins aftur, alveg heilir og fínir og við hlógum mikið að þessu. Ingibjörg var mikill sælkeri og átti alltaf til kökur sem hún hafði bakað. Ég man sérstak- lega eftir góðu súkkulaðikök- unni hennar, kakan var alltaf eins í öll þessi ár. Þegar stelp- urnar okkar Gylfa voru litlar langaði Ingibjörgu voða mikið til að gefa þeim súkkulaði og fannst ómögulegt hvað við vor- um stíf og vildum ekki leyfa henni það. Ingibjörg hafði gam- an af að spila við barnabörnin og tók þau gjarnan í aukatíma í stærðfræði ef þess þurfti, enda með margra ára reynslu sem kennari. Ingibjörg keypti dönsku blöð- in og las þau örugglega upp til agna. Þau voru alveg nauðsyn- leg til að hún gæti ráðið dansk- ar krossgátur. Hún var mjög viðræðugóð og hafði áhuga á öllu mögulegu en var um leið mjög hógvær manneskja. Hún var dugleg að læra eitthvað nýtt allt lífið, m.a. fór hún á spænsk- unámskeið og lærði að vatnslita eftir að hún fór á eftirlaun. Ingibjörg var flink í að skipta um umræðuefni ef umræður urðu heitar á heimilinu, t.d. um þjóðfélagsmál, og það gerðist nú oft í minningunni. Þá bauð hún upp á kaffi og eitthvað gott og beindi athyglinni að öðru. Mér eru minnisstæðar ferðir okkar í sumarbústaði, sérstak- lega kemur upp í hugann ferð á Snæfellsnes þar sem hún var að verða níræð og gekk endalaust með okkur og skoðaði kennileiti. Hún viðurkenndi aldrei að hún væri þreytt. Að gefast upp var ekki í boði hjá Ingibjörgu. Ég held samt að hún hafi verið al- veg uppgefin eftir daginn. Þegar við komum í Grundó og sólin skein fannst Ingibjörgu nauðsynlegt að setjast út í garð og bjóða upp á kaffi og meðlæti. Í minningunni var einhvern veginn svo oft sól og hiti í fal- lega skjólgóða garðinum þeirra Ingibjargar og Kristins. Garð- urinn í Grundó var fullur af æv- intýrum og fallegum plöntum og barnabörnin nutu þess að hlaupa um og leika í garðinum. Maður upplifði sig oft eins og að vera í útlöndum þar. Ingibjörg var þrautseig og gafst ekki upp fyrr en rétt í lok lífsins. Nú er hún elsku Ingibjörg laus við þjáningar og komin á betri stað. Ég þakka henni sam- fylgdina í öll þessi ár. Blessuð sé minning Ingibjargar Þorkels- dóttur. Ragna Björg Þórisdóttir. Ingibjörg og Kristinn, tengdaforeldrar mínir, voru glæsileg hjón. Þau kynntust á Keflavíkurflugvelli, en þar starfaði hún þá hjá Veðurstof- unni og Kristinn var lögreglu- þjónn. Síðar var hann við störf hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og í Palestínu 1950-51 og dvaldi Ingibjörg hjá honum í Palestínu í nokkra mánuði. Með eldri börnin fluttu þau í tvö ár til Ísafjarðar þar sem Kristinn var yfirlögregluþjónn. En lengst bjuggu þau í Reykjavík. Þau byggðu parhús í Grund- argerði með Sigríði systur Ingi- bjargar og manni hennar. Í meira en 50 ár bjuggu þær syst- ur hlið við hlið og samgangur var mikill. Þau voru meðal frumbyggja í Smáíbúðahverfinu. Í Grundargerði 9 var heimili hennar í 64 ár eða til æviloka. Fljótlega hófu þau að rækta garðinn við húsið sitt og varð hann að sannkölluðum skrúð- garði sem hlaut verðskuldaða athygli. Kristinn varð einn af brautryðjendum í að rækta dalí- ur. Margar blómstrandi plöntur mátti sjá í tveimur gróðurhús- um sem stóðu á lóðinni og heill- uðu unga sem aldna. Garðurinn og gróður voru líka yndi Ingi- bjargar sem var alin upp við ræktun og garðyrkju og meðan kraftar leyfðu gerði hún sitt til að halda garðinum við. Þarna leið henni vel. Ingibjörg settist á skólabekk þegar yngsta barnið hóf skóla- göngu og lauk kennaraprófi. Síðar bætti hún við sig á sviði kennslu, einkum í stærðfræði og sótti námskeið erlendis. Strax að námi loknu varð hún kennari við Breiðagerðisskóla. Hún var svo yfirkennari þar í áratug og einn vetur gegndi hún stöðu skólastjóra. Hún vann einnig fyrir Námsgagnastofnun. Áhugi hennar var á sviði stærðfræði og átti hún þátt í að rita kennslubækur í þeirri grein fyr- ir grunnskólanemendur. Við þau störf eignaðist hún góðar vinkonur. Hún naut sín í góðum félagsskap í saumklúbbi og meðal samstúdenta og annarra er hún átti samleið með. Ingi- björg var samviskusöm og skynsöm, glaðvær og gestrisin og tók vel á móti öllum sem hana sóttu heim. Þegar gamall skólamaður norður í landi, kvæntur frænku minni, heyrði hverrar ættar tengdamóðir mín væri sagði hann: „Já, þetta gáfufólk.“ Ingi- björg var gáfuð og skarpgreind, alin upp á menntaheimili. Faðir hennar var stærðfræðingur og eðlisfræðingur sem hélt fyrir aldamótin 1900 til Kaupmanna- hafnar að loknu stúdentsprófi til frekari mennta. Bræður Ingi- bjargar fóru líka til þangað til framhaldsnáms á sviði raunvís- inda og urðu allir verkfræðing- ar. Það er því ekki að undra að stærðfræði yrði áhugasvið Ingi- bjargar. Reyndar hafði hún í huga að nema veðurfræði í Nor- egi, en þá kom Kristinn inn í myndina og lífið tók aðra stefnu. Hún var vel að sér um mý- margt og fylgdist með sam- félagsmálum af áhuga. Hún vildi alltaf hafa eitthvað fyrir stafni, sótti myndlistarnám- skeið, nam spænsku um tíma, settist stundum við píanóið, greip í prjónana, leysti kross- gátur á dönsku. Hún var stolt af börnum sín- um sem öll eru vel menntuð, greind og áhugasöm um menn og málefni. Náið og gott sam- band var milli hennar og dótt- urinnar og víst er að Þóra mun sakna móður sinnar mikið. Við áttum notalegar morgunstundir með henni hin seinni ár, sem alla tíð bjó í húsinu. „Mikið er gaman að sjá ykkur,“ voru jafn- an orð hennar, þótt við hefðum nýlega komið. Axel var stoð hennar og stytta síðustu árin og án hans hefði hún ekki getað búið heima svona lengi. Hún lést á 98. aldursári. Blessuð sé minning Ingibjargar. Þorvaldur Karl Helgason. Þá er komið að kveðjustund amma mín. Efst í huga er þakk- læti fyrir fjölmargar samveru- stundir okkar. Sumar í Vaðnesi, aðrar á Spáni en flestar þeirra í Grundargerðinu. Heimilið sem í huga mér er jafn órjúfanlegur hluti af þér og Kristinn afi, þó að það séu að verða 18 ár frá því að hann kvaddi okkur. Amma og afi í Grundó. Hjá ykk- ur var gott að vera, úti sem inni. Í ilmandi gróðurhúsinu með dalíum og öðrum framandi blómum. Það er eins og sumarið byrji alltaf fyrr í Grundargerðinu og hvort sem við sátum við gos- brunninn eða á veröndinni að framan var oft eins og ég væri skyndilega staddur í útlöndum þegar við komum í heimsókn. Móttökurnar þínar svo hlýjar og innilegar að ég vissi að ég var alltaf velkominn inn á heim- ilið og þar leið mér alla tíð vel. Hægt var að ganga að því með nokkurri vissu hvaða kökur og veitingar væru á boðstólum, sem veitti notalega tilfinningu og tilhlökkun. Eftir því sem ár- in liðu fékk ég tækifæri til þess að sjá aðra hlið á þér, þessari glæsilegu konu sem ég fékk að kalla ömmu. Þú leyfðir mér að kynnast þér sem einstaklingi. Það var gaman að koma til þín og ræða um pólitík og heimsmál þótt við værum alls ekki alltaf sammála. Rökræður og skoð- anaskipti urðu áreynslulaus í notalegu stofunni með kökud- iskinn í seilingarfjarlægð. Ég man eftir að hafa hugsað hvort nemendur þínir hefðu fengið að sjá þessa hlið á þér en mér fannst þú alltaf hafa mikinn áhuga á öðru fólki og þá sér- staklega yngra fólki. Það fékk ég að upplifa eftir að ég sjálfur varð foreldri og er ég ánægður að eiginkona mín Fríður og börnin mín, Þuríður Katrín og Gunnar Helgi, hafi fengið að kynnast þér og Grundargerð- inu. Minningin þegar þú sann- færðir sex ára gamla Þuríði Katrínu um að hún væri að kenna þér, spilamanneskjunni miklu, ólsen-ólsen mun lifa með okkur um ókomin ár og fram- kalla bros fallegra minninga og góðra stunda. Hvíli í friði elsku amma, hvíldu í ró með afa. Kristinn Þorvaldsson. Heppin var ég með hana ömmu mín hana Ingibjörgu, sem tók alltaf á móti mér með bros á vör og náði alltaf að fylla heilt borð af bakkelsi á auga- bragði þótt maður kæmi óvænt. Hún gaf stórfjölskyldunni sam- verustundir með laufa- brauðsbakstri. Amma virtist alltaf eiga óþrjótandi magn lít- illa litskrúðugra páskaeggja um páskana. Við amma höfðum alltaf um nóg að spjalla, hvort sem það var um pólitík, það sem ég var að læra um í skólanum eða um það sem hún hafði upplifað á sinni ævi. Ég hef alltaf verið mjög stolt af henni ömmu minni. Þegar ég var lítil lærði ég stærðfræði upp úr bók sem hún hafði samið og seinna fór ég svo í aukatíma í stærðfræði til hennar. Hún virtist hafa endalaust þol, ég þurfti að biðja um pásu eftir tvo tíma, en hún hefði getað haldið áfram. Amma kenndi mér líka 7up, kóngakap- al og þrautseigju. Þegar ég var að byrja í háskólanum var ég svo lánsöm að amma bauð mér að búa hjá sér. Þá var hún tæp- lega níræð. Það var svo gaman að spjalla við ömmu og fá henn- ar skoðanir á málefnum líðandi stundar. En ég er líka þakklát fyrir rólegu og hversdagslegu stundirnar sem við áttum sam- an yfir morgunkaffi og súkku- laðibita. Í sólinni úti í garðinum að dást að rósunum eða að hlusta saman á útvarpið hvor í sínu horni með eitthvað að lesa. Ég man sérstaklega eftir einu sinni í janúar, eftir marga dimma daga og þungan vetur, þegar allt í einu dró frá sólu og geislarnir fylltu stofuna hennar. Amma vökvaði blómin og stakk svo upp á því að við héldum upp á sólina með smá kaffi og köku. Ég er þakklát fyrir að hafa átt ömmu mína að og hafa feng- ið að deila með henni bæði litlum og stórum stundum í líf- inu. Þín Kamilla. Ég kynntist Ingibjörgu og Kristni fyrir rúmlega fjórum áratugum þegar þau hjónin opnuðu í reynd heimili sitt fyrir mér og tóku mig inn í fjölskyld- una sem tengdadóttur. Ég átti lengi skjól í Grundargerðinu og á ótal fallegar minningar þaðan. Það var gott að vera tengda- dóttir þeirra hjóna og það var ómetanlegt að eiga þau áfram að vinum eftir að leiðir okkar Gunnars Helga skildi. Eftir að ég flutti af landi brott árið 1998 og stofnaði nýja fjölskyldu, nærðum við Ingi- björg áfram okkar vináttu með reglulegum bréfaskriftum og tækifærisgjöfum og ég var ávallt velkomin í heimsókn í Grundargerðið þegar ég átti leið um. Þegar ég les bréfin hennar núna aftur, blasir við mér þessi ótrúlega gáfaða og trygglynda kona, kona sem bar hag allra sinna svo ríkulega fyr- ir brjósti, kona sem fylgdist svo vel með og hafði skoðanir á þjóðfélagsmálum, kona sem ræktaði sinn eigin hug eftir ótal leiðum – kær vinkona. Takk elsku Ingibjörg fyrir vináttuna og tryggðina. Megir þú hvíla í friði! Þóra Magnúsdóttir. Ingibjörg var samstarfskona okkar um langt árabil, nánar til- tekið á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Starf okkar fólst í náms- efnisgerð í stærðfræði sem við unnum að ásamt nokkrum öðr- um á vegum skólarannsókna- deildar menntamálaráðuneytis- ins sem svo hét þá en deildin hafði það hlutverk að standa fyrir endurskoðun námsefnis í grunnskóla. Það eru engar ýkjur að segja að Ingibjörg hafi verið eins kon- ar mentor okkar sem urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna með henni. Þrátt fyrir að Ingibjörg hafi verið um 20 árum eldri en við fundum við aldrei fyrir aldursmuninum í hinni ein- staklega jákvæðu og skemmti- legu samvinnu. Ingibjörg var nefnilega óvenjuopin fyrir nýj- ungum, ávallt leitandi, sveigj- anleg í hugsun, tilbúin til að skoða ólíkar hugmyndir og fús að læra eitthvað nýtt. Jafnframt var hún afar rökföst og fylgin sér – samt alltaf á mjúku nót- unum. Samvinnan var því æv- inlega skemmtileg, jákvæð og afar menntandi, sem var ekki síst Ingibjörgu að þakka. Þegar Ingibjörg las yfir efni frá okkur gátum við verið þess fullvissar að engar villur fengju að laum- ast að. Sagt var um Ingibjörgu, bæði í gríni og alvöru, að hún hefði röntgenaugu en með því var átt við að engin vitleysa færi fram hjá henni. Vinátta okkar hélst eftir að samstarfinu lauk og hittumst við annað slagið alveg fram á síðasta ár þegar kórónuveiran kom í veg fyrir kaffisamdrykkj- ur okkar þriggja. Það var alltaf jafn ánægjulegt að hitta Ingi- björgu. Hún fylgdist vel með málefnum sem efst voru á baugi í samfélagsumræðunni, ekki síst þróuninni í skólamálum, og var einstaklega áhugasöm og athug- ul. Hún fylgdist vel með okkur og spurði ætíð frétta af fjöl- skyldunum, einkum börnunum okkar. Á síðustu æviárum Ingi- bjargar minnkaði hreyfigeta hennar og heyrn. Það voru einu aldurseinkennin sem við urðum varar við en kímnigáfan, minnið og ekki síst frjó og skýr hugs- unin gáfu ekkert eftir. Sem dæmi um jákvæðni og húmor Ingibjargar má nefna hvernig hún lýsti dagdvöl eldri borgara á Vesturgötu. Hún út- málaði hversu mikil tilbreyting væri fólgin í að fara út úr húsi, hitta skemmtilegt fólk og ekki síst að sitja og sauma með bekkjarbræðrum sínum, „strák- unum úr stærðfræðideildinni“. Það er gæfa að fá að eldast eins vel og Ingibjörg og búa við jafn góðar aðstæður og hún í ellinni. Hún bjó heima með að- stoð barna sinna en í sama húsi bjó sonur hennar sem var henni mikill styrkur. Við minnumst Ingibjargar með söknuði og þakklæti fyrir ómetanlega vináttu. Hanna Kristín Stefánsdóttir og Ragnhildur Bjarnadóttir. Ingibjörg Þorkelsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.