Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 11

Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Faxaflóahafnir ætla að endurbyggja Verbúðarbryggjuna í Gömlu höfninni í Reykjavík á þessu ári. Hún hefur verið dæmd ónýt og verður rifin. Bryggjan er fyrir framan Sjó- minjasafnið og hafa varðskipið Óðinn og dráttarbáturinn Magni gamli legið við hana undanfarin ár. Bryggja þessi hefur stundum verið nefnd Óðins- bryggja. Hönnun bryggjunnar er langt komin hjá verkfræðistofunni Eflu og er reiknað með að bjóða framkvæmd- ina sjálfa út í vor, að því er Inga Rut Hjaltadóttir, forstöðumaður tækni- deildar Faxaflóahafna, upplýsti Morgunblaðið um. Um síðustu helgi var auglýst útboð á söguðum harðvið og staurum í bryggjuna og verða til- boð opnuð 1. mars. Bryggjan verður 60 metra löng og sjö metra breið timburbryggja á timburstaurum. Hún verður end- urbyggð með svipuðu formi og nú er. Kostar 120 milljónir Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdirnar er um 120 milljónir króna. Þar af eru efniskaup um 45 milljónir. Stefnt er að því að fram- kvæmdir hefjist á öðrum ársfjórð- ungi. Reiknað er með að verkið taki 4-6 mánuði, segir Inga Rut. Í Vesturhöfn Gömlu hafnarinnar í Reykjavík eru fjórar timburbryggj- ur. Sú ysta, Síldarbryggjan, hefur verið breikkuð og endurbætt á síð- ustu áratugum og telst í þokkalegu ástandi. Innri bryggjurnar þrjár, við Kaffivagninn, kallast einu nafni Ver- búðabryggjur. Ytri bryggjurnar tvær voru opnaðar, tekinn af þeim mesti hallinn og þær endurnýjaðar upp úr 1990. Innsta bryggjan við Sjóminjasafn- ið hefur lítið viðhald fengið síðustu áratugi. Hún var dæmd ónýt árið 2018 og ákvað stjórn Faxaflóahafna að láta vinna að hönnun nýrrar bryggju og nú er komið að fram- kvæmdum. Morgunblaðið/sisi Óðinsbryggjan Bryggjan er afar illa farin eins og sjá má. Hún verður rifin áður en endurbygging hefst. Óðinsbryggjan verður endurbyggð  Bryggjan við Sjóminjasafnið dæmd ónýt og verður rifin Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Áform eru uppi um að breyta fyrir- komulagi tryggingagjaldsins sem launagreiðendur greiða sem skatt af heildarlaunum launafólks. Samtök at- vinnulífsins og Samtök iðnaðarins leggja til í umsögn um frumvarps- drög um þessar fyrirhuguðu breyt- ingar að Atvinnuleysistryggingasjóð- ur verði lagður niður í núverandi mynd og annað fyrirkomulag tekið upp. Ástæðulaust sé að viðhalda þeim misskilningi að hann sé raunveruleg- ur sjóður því hann safni engum fjár- munum né njóti vaxtatekna og sé arf- leifð löngu liðins tíma. Tryggingagjaldið er veigamikill tekjustofn, um 97 milljarðar á greiðslugrunni á fjárlögum yfirstand- andi árs, og er ráðstafað í atvinnu- leysisbætur Atvinnuleysistrygginga- sjóðs, Fæðingarorlofssjóð og til almannatrygginga, m.a. jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða. Breytingar og sveiflur hafa verið tíðar á umliðn- um árum og þegar útgjöld þessara sjóða hafa verið hærri en nemur mörkuðum tekjum af tryggingagjald- inu brúar ríkissjóður bilið af almennri skattheimtu. Sjá má að gjaldið hefur ekki dugað til að fjármagna lífeyristrygginga- kerfið. Árið 2015 voru 77% af útgjöld- um lífeyristrygginga greidd með al- menna tryggingagjaldinu en það stóð einungis undir 49% á seinasta ári. Hafa bein framlög úr ríkissjóði til að rísa undir útgjaldavextinum því farið vaxandi. Fjármálaráðuneytið hefur birt áform um breytingarnar á trygg- ingagjaldinu í samráðsgátt, þar sem lagt er til að prósentur tekna vinnu- markaðssjóðanna af gjaldinu og vægi gjaldsins í útgjöldum lífeyris- og slysatrygginga verði stillt af til að samræma tekjurnar betur við fjár- þörf sjóðanna á komandi árum. Styrkja á sveiflujöfnunarhlutverk At- vinnuleysistryggingasjóðs og taka upp ný viðmið fyrir ákvörðun stjórn- valda um breytingar á trygginga- gjöldum í framtíðinni. Framlög eiga ekki að skerðast við þetta. Telur ráðuneytið „að það fyrir- komulag á tekjuöflun og stuðningi við fólk á vinnumarkaði og atvinnuleit- endur sem mundi samrýmast best lögum um opinber fjármál væri að mörkun á tekjustofnum til fjármögn- unar á vinnumarkaðssjóðunum væri afnumin að fullu þannig að bótakerfin verði fjármögnuð beint úr ríkissjóði.“ Eru uppi hugmyndir um að stilla af prósentustig gjaldsins frá svonefndu „metnu jafnvægisatvinnuleysi“. SA og SI segja að þessar breyt- ingar ættu að auka fyrirsjáanleika, trúverðugleika og sjálfbærni trygg- ingakerfisins en leggja fram ýmsar tillögur, m.a. að atvinnutrygginga- gjaldið verði ákveðið til fimm ára í senn. ASÍ leggst í umsögn eindregið gegn öllum breytingum sem veikt gætu tekjuöflun ríkisins og telur varasamt að mörkun tekna vinnu- markaðssjóða verði afnumin. Framlögum til jöfnunar á örorkubyrði ekki jafnt skipt Til skoðunar er hvort rétt sé að endurskoða viðmið við útreikning á framlögum ríkisins til jöfnunar á ör- orkubyrði lífeyrissjóða og að þeir fái í staðinn framlag á fjárlögum. Í ljós kemur að misræmi er á jöfnunar- framlögunum. Í umsögn SA og SI kemur fram að í fyrra fengu þrír sjóð- ir 65% af jöfnunarframlaginu en þeir greiddu 40% af örorkulífeyri allra líf- eyrissjóða. Fimm aðrir sjóðir fengu 25% af framlaginu en greiddu 46% alls örorkulífeyris. Áforma breyt- ingar á trygg- ingagjaldi  SA og SI leggja til að Atvinnuleysis- tryggingasjóður verði lagður niður Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 50-70% afsláttur af útsöluvörum ÚtsölulokKjötframleiðsla hefur vaxið sam-hliða neyslu og innlend matvæla- framleiðsla stendur fyrir stórum hluta fæðuframboðs á Íslandi, eink- um próteini. Garðyrkjan sér fyrir um 43% af framboði grænmetis, bú- fjárrækt um 90% af kjöti, 96% af eggjum og 99% af mjólkurvörum en aðeins 1% af korni til manneldis er framleitt hér á landi. Þetta kemur fram í skýrslu Land- búnaðarháskóla Íslands um fæðuör- yggi, sem kynnt var í gær, en skýrsl- an var unnin að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Kristján Þór sagði á opnum kynn- ingarfundi um skýrsluna í gær, að niðurstöðurnar sýni sterka stöðu innlendrar matvælaframleiðslu en einnig hvað sé hægt að gera betur. Fram kemur í skýrslunni að kjöt- framleiðsla hafi farið vaxandi á Ís- landi samhliða aukinni neyslu frá ár- unum 1983 til 2019. Einnig hafa eggjaframleiðsla og mjólkurfram- leiðsla aukist síðustu áratugina. „Kjötframleiðsla hefur vaxið í takt við fólksfjölgun og ferðamanna- straum,“ sagði Jóhannes Svein- björnsson dósent, sem kynnti niður- stöður skýrslunnar á fundinum. Skýrsluhöfundar segja m.a. tæki- færi liggja í því að efla framleiðslu á korni, bæði sem fóður fyrir búfé og til manneldis, efla útiræktun græn- metis og efla innlenda áburðarfram- leiðslu með bættri nýtingu hráefna. Háð innflutningi Fram kemur í skýrslunni, að inn- lend matvælaframleiðsla sé háð inn- flutningi á aðföngum og þá sérstak- lega eldsneyti og áburði en einnig fóðri, sáðvöru, tækjum og rekstrar- vörum til framleiðslunnar. Þá sé eiginlegt fæðuöryggi Íslend- inga háð m.a. þeirri forsendu að auð- lindir framleiðslunnar séu til staðar, s.s. fiskistofnar og land til ræktunar, auk þekkingar á framleiðslu og að tæki til framleiðslu séu til staðar. Sterk staða mat- vælaframleiðslu  Kjötframleiðsla vex samhliða neyslu Fæðuöryggi Staða innlendrar matvælaframleiðslu er sterk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.