Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
Flutningur Hann hefur sjálfsagt skilað sínu og jafnvel rúmlega það. Í vikunni kom hins vegar kallið og sendibíllinn var fluttur á brott, sennilega á endastöð, dekkjalaus og fremur lúinn að sjá.
Kristinn Magnússon
Þeim, er þetta ritar, hefur
orðið tíðrætt um hinn frjálsa
heim. Um langt árabil var hinn
frjálsi heimur bandalag ríkja í
Norður-Ameríku og Vestur-
Evrópu.
Vissulega voru Bandaríkin
ekki í bandlagi við frjáls ríki og
frjálslynd ríki í Suður-Ameríku.
Sama var að segja um ríki í
Vestur-Evrópu þar sem lýðræði
átti undir högg að sækja. Ein-
ræðisstjórnir á Spáni og í Portú-
gal voru skuggi á lýðræði og frelsi í Vestur-
Evrópu. Um tíma átti lýðræði undir högg að
sækja í vöggu lýðræðisins, Grikklandi. NATO
sá í gegnum fingur við einræðisstjórnir í þess-
um löndum, með von um bjarta tíð. Evrópu-
sambandið og undanfarar þess veittu Grikk-
landi aðild að sambandinu um leið og
einræðisstjórn hrökklaðist frá völdum, án
þess að efnahagsleg skilyrði sambandsins
væru uppfyllt.
„Ljótu börnin“ og hlutlausu ríkin
Spánn og Portúgal voru skuggar á lýðræð-
ishefð í Evrópu. Evrópusambandið vildi nálg-
ast þessi lönd með það fyrir augum að tryggja
lýðræði í löndunum án beinna afskipta. Þann-
ig varð til sameiginlegur markaður í Evrópu.
Fyrir utan Evrópusambandið starfar Frí-
verslunarbandalag Evrópu (EFTA). Þar voru
löndin með skort á lýðræði, og lönd sem
kenndu sig við hlutleysi og mikla lýðræðis-
hefð. Þau lönd eru Sviss, Svíþjóð, Finnland og
Austurríki.
Um leið og Sovétríkin leystust upp, gengu
þrjú „hlutlaus“ ríki í Evrópusambandið. Og
síðan gjörvöll bandalagsríki Sovétríkjanna í
Austur-Evrópu. Þau lönd eiga sín vandamál í
þjóðernissinnuðum lýðsleikjuflokkum.
Rússland og hrávara
Eftir stendur Rússland með undarlegt
stjórnarfar, land sem gefur lítið fyrir mann-
réttindi og lýðræðisgildi frá Vestur-Evrópu.
Landið er háð útflutningi á hrávöru og
reynir að vera sjálfu sér nógt í matvælafram-
leiðslu með innflutningsbanni á
matvæli frá Íslandi. Hin nýja
stétt auðmanna í landinu er háð
frönskum vínum, skartgripum og
tískufatnaði. Neysluvörur eru
ekki framleiddar í Rússlandi.
Rússnesk alþýða þarf ekki á
vestrænni neysluvöru að halda.
„Hlutlausu löndin“
Svíþjóð, Finnland og Aust-
urríki gengu í Evrópusambandið
1995 og yfirgáfu EFTA. Sviss er
með gilda aðildarumsókn að
Evrópusambandinu, án við-
ræðna, líkt og Ísland.
Noregur hefur hafnað aðild að Evrópusam-
bandinu.
Ísland hafnaði hlutleysi í kjölfar síðari
heimsstyrjaldarinnar. Ekki var látið af þjóð-
rembingi í viðskiptaháttum. Verndarstefna
kreppunnar eftir 1930 lét ekki undan síga fyrr
en að hluta með Viðreisnarstjórninni upp úr
1960 og með aðild að Evrópsku efnahags-
svæði (EES), sameiginlegum markaði Evr-
ópu.
Það undanhald var í áföngum og með
dekstri við íslenska þjóðhyggju. Þannig þurfti
viðauka við samning um aðild að EFTA, frí-
verslunarsamningi um iðnaðarvöru, sérstök
ákvæði um útflutning á lambakjöti til Noregs,
án matvælaskorts í Noregi. Það var dúsan
sem landbúnaðarforystan í Sjálfstæðis-
flokknum þurfti til að samþykkja aðild að
EFTA.
Lýðræði að lokinni styrjöld
Það var alls ekki augljóst að Evrópa að lok-
inni seinni heimsstyrjöld þróaðist í átt að lýð-
ræði. Þýskalandi var skipt upp í fjögur her-
námssvæði. Sambandslýðveldi var stofnað
1949, sama ár og NATO.
Ismey lávarður, fyrsti aðalritari NATO,
sagði varnarbandalagið stofnað „til að halda
Bandaríkjunum inni, Sovétríkjunum úti og
Þýskalandi niðri“. Þýskaland reis úr rústum
stríðsins og varð sem betur fer ekki haldið
niðri.
Flest bandalagsríki Varsjárbandalagsins
hafa gengið til liðs við NATO.
Atlantshafsbandalagið, Evrópusambandið
og Fríverslunarbandalag Evrópu (EFTA) eru
bandalög lýðræðisríkja til að tryggja frelsi og
frið í Evrópu. Hvorugt er sjálfsagt í álfu, sem
barist hefur um aldir. Hundrað ára styrjöld,
þrjátíu ára styrjöld og heimsstyrjöldum milli
Þýskalands og Frakklands lauk með Élysée-
sáttmála Adenauer og de Gaulle 1963.
Nýr veruleiki
Fyrir utan þennan veruleika í Evrópu þró-
aðist nýr heimur við Kyrrahaf. Þar var til
aldalöng menning en neysluvörur frá Kyrra-
hafssvæðinu voru sjaldgæfar. Stundum finnst
mér að fyrsta kynning austrænnar iðnmenn-
ingar hafi birst Íslendingum í japönskum
veiðarfærum. Japanskt nótaefni gjörbreytti
nótaveiðum við strendur Íslands. Japanskir
bílar gerðu bíla að almenningseign á Íslandi.
En risinn svaf. Alþýðulýðveldið Kína átti
sína erfiðleika með menningarbyltingu. Út-
lagastjórn á Taívan fór með neitunarvald
Kína hjá Sameinuðu þjóðunum.
Maó dó og Deng Xiaoping ræsti risann með
stóru stökki. Hinn nýi leiðtogi taldi að ekki
skipti máli hvernig kötturinn væri á litinn
sem veiddi mýsnar. Alþýðulýðveldið tók sæti
útlagastjórnarinnar, þar sem erfitt var að
kjósa því kjördæmin voru hernumin.
Efnahagslegt risaveldi
Áður en hinn frjálsi heimur vissi af varð til
efnahagslegt risaveldi í Kína. Bandarískt
„auðvald“ er háð því að kínverskir bankar
samþykki bandarísk ríkisskuldabréf sem
greiðslu fyrir kínverskar vörur.
Greiðsluhalli Bandaríkjanna er háður því að
bandarísk ríkisskuldabréf eru almennt sam-
þykkt sem gjaldeyrisvarasjóður ríkja.
Ellefu af fjörutíu stærstu bönkum veraldar
eru kínverskir. Að auki er til þjóðarsjóður.
Allt eru þetta eignir í tölum af þeirri stærð-
argráðu, sem dauðlegt fólk hefur engan skiln-
ing á. Í Kínverska alþýðulýðveldinu er sparn-
aðarhneigð um 40% af tekjum.
Það verður álitamál hve lengi Wall Street í
New York verður fjármálamiðstöð veraldar.
Sennilega munu flestar flugvélar í Vestur-
Evrópu verða í eigu kínverskra banka innan
10 ára. Kínverskir bankar bjóða kjör, sem
bankar í Vestur-Evrópu ráða ekki við.
Belti, braut og áhrif
Alþýðulýðveldið Kína byggir ekki á þeirri
lýðræðishefð sem hinn frjálsi heimur þarf að
búa við. Lýðræði að forngrískri fyrirmynd er
ekki vandamál í Kína. Mannréttindi og þau
gildi sem þeim fylgja, eins og þau sem reynt
er að verja í Evrópu, eru ekki vandamál í Al-
þýðulýðveldinu Kína. Fyrsta maí sem almenn-
an frídag „vinna menn af sér“ síðar í Kína.
Bretland, hið sameinaða konungdæmi,
reynir að viðhalda breskum mannréttindum
og gildum í samskiptum við sínar gömlu ný-
lendur í Breska samveldinu. Þar fer með for-
ystu Karl Bretaprins, sem að öðru leyti er at-
vinnulaus.
Ríki hins frjálsa heims þurfa að svara
mörgum spurningum í samskiptum við Al-
þýðulýðveldið Kína áður en þátttaka í „Belti
og braut“ verður samþykkt.
Verkefni sem býður upp á uppbyggingu og
eignarhald á innviðum í ríkjum er ekki síður
varhugavert en netárásir á innviði í frjálsum
ríkjum.
Gildi, mannréttindi og kalt stríð
Vestræn gildi og mannréttindi hins frjálsa
heims eru ekki frjáls gæði. Gildi og mannrétt-
indi kunna að falla fyrir kínverskri kurteisi,
eftir að hafa staðið af sér stríðsátök fasista og
nasista fyrir miðja síðustu öld.
Þessi gildi stóðu einnig af sér hið kalda
stríð um járntjald í hugum ráðamanna í Evr-
ópu eftir síðara stríð.
Minnumst þess að járntjaldið féll ekki í
styrjaldarátökum, það féll vegna gjaldþrots
Sovétríkjanna og fylgiríkja þeirra.
Eftir Vilhjálm Bjarnason »Minnumst þess að járn-
tjaldið féll ekki í styrjald-
arátökum, það féll vegna
gjaldþrots Sovétríkjanna
og fylgiríkja þeirra.
Vilhjálmur Bjarnason
Nýr heimur og nýr veruleiki í frjálsum heimi
Höfundur var alþingismaður og
verður það aftur.