Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
✝ Jens Andrés-son fæddist 9.
apríl 1952 í
Reykjavík og ólst
þar upp. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 27.
janúar 2021.
Foreldrar hans
voru Andrés Guð-
jónsson, f. 13.6.
1921, d. 22.1. 2009,
fyrrverandi skóla-
stjóri Vélskóla Íslands, og kona
hans Ellen Margrethe Guð-
jónsson, f. 20.2. 1925, hjúkr-
unarfræðingur frá Fjóni í Dan-
mörku.
Jens átti tvo bræður, Ívar, f.
1954, d. 1977, og Grím, f. 1955.
Jens kvæntist 6. janúar 1996
Kristínu Þorsteinsdóttur, f. 6.1.
1956, félagsliða og eiga þau
eina dóttur, Önnu Kristínu, f.
1992. Fyrir átti Jens, Óskar, f.
1974, Ágúst, f. 1977, Ívar, f.
sín taka í samstarfi norrænna
ríkisstarfsmanna og varð fyrst-
ur Íslendinga til að gegna for-
mennsku í samtökum þeirra.
Árið 1997 var Jens kjörinn
varaformaður BSRB og var
hann varaformaður bandalags-
ins til 2006. Auk þess gegndi
hann fjölmörgum trúnaðar-
störfum fyrir SFR, BSRB og
verkalýðshreyfinguna í heild.
Kom hann mjög að vinnuvernd-
armálum, endurmenntun
starfsfólks, orlofsmálum og
mörgum öðrum málasviðum.
Árið 2007 réðst Jens til
starfa hjá Elkem, járnblendi-
verksmiðjunni í Hvalfirði, og
gerðist hann öryggisstjóri
fyrirtækisins. Jens lét af störf-
um hjá Elkem og fór á eft-
irlaun árið 2019.
Hann var félagi í Akóges frá
árinu 2000.
Jens verður jarðsunginn frá
kirkju Óháða safnaðarins í
Reykjavík í dag, 12. febrúar
2021, klukkan 14. Vegna að-
stæðna hefur verið boðið sér-
staklega til athafnarinnar.
1977, og Ellen
Margrethe, f. 1980.
Fyrir átti Kristín
Jón Þorstein, f.
1980, og er hann
fóstursonur Jens.
Jens lauk prófi í
vélvirkjun frá Iðn-
skólanum í Reykja-
vík 1973 og
útskrifaðist sem
vélstjóri frá Vél-
skóla Íslands 1976.
Hann var síðan til margra ára
á sjó bæði á hvalveiðiskipum
og togurum. Árin 1983-1986
var hann á Grænhöfðaeyjum
við þróunaraðstoð og starfs-
maður Vinnueftirlits ríkisins
frá 1986.
Jens sat í stjórn
Starfsmannafélags ríkisstofn-
ana, SFR, frá 1990 til 1996
þegar hann var kosinn formað-
ur félagsins. Formaður SFR
var hann til 2006. Lét hann til
Jæja Jens minn.
Þá ert þú farinn frá mér.
Kletturinn sem er búinn að vera
mér stoð og stytta í gegnum súrt
og sætt í 32 ár. Ekki óraði mig
fyrir því að þú værir farinn þegar
ég kom heim úr vinnu þann 27.
janúar. Við sem vorum að fara að
halda upp á silfurbrúðkaupið
okkar og þú varst búinn að velja
matinn fyrir kvöldið 28. janúar
með Guðmundi og Dóru. Þú
hlakkaðir til að geta aðeins
breytt til og við vorum svo alsæl
þegar ég kvaddi þig um morg-
uninn.
En þetta kom svo óvænt og er
svo mikið högg að ég er engan
veginn búin að ná mér. Einu get
ég lofað þér, að ég passa upp á
Önnu Kristínu og held utan um
Ívar og Jón. Það var það sem þú
vildir og lagðir þig fram við að
gera allt til síðasta dags.
Jens minn, það passaði hins
vegar enginn betur upp á mig en
þú og þess mun ég sakna mest.
Takk fyrir umhyggju, ástina og
hlýju sem þú veittir inn í líf mitt
og fjölskyldu okkar. Takk fyrir
öll skemmtilegu ferðalögin og
óvæntu uppákomurnar í þeim.
Því mun ég aldrei gleyma. Skal
ég segja sögur af því í komandi
fjölskylduboðum. Þar er skarð
fyrir skildi.
Góða ferð Jens minn, takk fyr-
ir allt!
Kristín Þorsteinsdóttir.
Elsku pabbi!
Þú kvaddir þennan heim allt of
fljótt, þú áttir eftir að aðstoða
mig við svo margt, nú þarf ég til
dæmis að fara með skattframtal-
ið mitt til miðils.
Þú varst kletturinn í lífinu
mínu og ég gat alltaf talað við þig
þegar ég var í vandræðum með
lífsins spurningar og sjálfan mig.
Þú leiddir mig inn á rétt svör og
stappaðir í mig stálinu. Þú
hringdir í mig á hverjum degi
bara til að heyra í mér og líka til
að aðstoða þig við ýmis verkefni.
Eftir að ég eignaðist stelpuna
mína þá spurðir þú alltaf fyrst
hvernig stelpan og mamman
hefðu það, eins og þú orðaðir það
„hvernig hafa stelpurnar mínar
það“ og „hugsaðu nú vel um
þær“.
Nú get ég ekki lengur hringt í
þig en núna er ég svo þakklátur
að eiga fullt af minningum eins
og árin í Afríku og apann sem þú
gafst mér. Þú hefðir verið frábær
afi stelpunnar minnar.
Ég ætla að láta hana kynnast
þér með sögum af þér og heim-
sóknum til ömmu Kristínar.
Ég elska þig pabbi !
Ívar Jensson.
Hvert á ég að hringja núna
þegar ég get ekki lengur hringt í
Jens?
Síðan ég sá þig á gólfinu um-
kringdan bráðaliðum að reyna að
koma þér til lífs aftur hef ég
hugsað um hvernig ég redda
þessu lífi án þín, hvert á ég að
leita, hvað á ég að gera?
Þegar pabbi minn dó varst þú
þarna eins og klettur, stóðst við
hliðina á mér, hélst utan um mig
og lagðir til hluti til að gera allt
betra. Gleymi því aldrei hvað það
var gott að hafa þig við hliðina á
mér til að klára hlutina og vinna
þá vel. Síðan sagðir þú við mig að
loknum öllum verkefnum við
andlát pabba: „Nonni minn, svo
gerum við bara lífið saman.“
Í minningunum felst ódauð-
leikinn og þær eru margar, allt
sem þú gerðir var til að lyfta okk-
ur upp, gefa okkur rými til að fá
að blómstra og gera mistök. Þeg-
ar þú komst um morguninn til
mín í vinnuna og sagðir stoltur að
nú væru hlutirnir komnir á góðan
rekspöl og ég þyrfti bara halda
áfram og styðja við þá sem væru
mér næstir vissi ég ekki að þetta
væru síðustu metrarnir með þér.
Mér efst í huga er ferð sem við
fórum saman til að ná í bíl. Þar
fórum við saman um æskuslóðir
þínar í Danmörku, þar ferðuð-
umst við saman og þú sagðir mér
sögur frá æskuslóðunum, afa þín-
um og öllum strákapörunum.
Hvað þá ferðin til Möltu, allar
stundirnar saman. Allar minn-
ingar með þér lifa með mér núna
og söknuður vegna þeirra sem
áttu að verða til.
Jens, þú varst ómetanleg við-
bót við líf mitt sem viðbótar-
pabbi, faðmur þinn var kærleiks-
ríkur og öxl þín styrkur inn í líf
ungs manns sem ómetanlegt var
að hafa hjá sér. Þú varst ráðgjafi
sem gafst manni uppbyggjandi
ráð, hönd þín kærleiksrík þegar á
bjátaði í lífinu og þegar allt virt-
ist vonlaust gekkst þú fram fyrir
skjöldu og ýttir við myrkrinu og
kveiktir ljós. Þú varst vitinn okk-
ar sem næst þér stóðu og leiddir
okkur fram hjá helstu skerjunum
og leiðbeindir okkur. Ég gæti
sagt ótal orð en það væri eins og
hljómandi málmur eða hvellandi
bjalla því kærleikurinn sem þú
gafst er það sem eftir situr og
styrkir hjartað á þessari stund.
Jens, við Svetlana söknum þín
meira en orð fá lýst. Hafðu okkar
bestu þakkir fyrir allt og allt.
Megi ferð þín yfir í austrið eilífa
verða þér farsæl og ég veit að
Gutti ætlar að ganga með þér á
þessari nýju vegferð sem þú nú
gengur á.
Takk pabbi!
Jón Þorsteinn og Svetlana.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með
þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur
hár,
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
Hvað jafnast á við andardráttinn
þinn?
Hve öll sú gleði’ er fyrr naut hugur
minn
er orðin hljómlaus utangátta’ og tóm
hjá undrinu að heyra þennan róm,
hjá undri því, að líta lítinn fót
í litlum skóm, og vita’ að heimsins
grjót
svo hart og sárt er honum fjarri enn,
og heimsins ráð sem brugga vondir
menn,
já vita eitthvað anda hér á jörð
er ofar standi minni þakkargjörð
í stundareilífð eina sumarnótt.
Ó, alheimsljós, ó, mynd sem hverfur
skjótt.
(Halldór Kiljan Laxness)
Ellen Margrethe Holm.
Í dag kveðjum við Jens Andr-
ésson. Hann var skyndilega kall-
aður burt frá fjölskyldu sinni, allt
of snemma að manni finnst.
Framtíðin virtist svo björt eins
og hún blasti við þeim Kristínu,
þrátt fyrir þetta einkennilega
ástand sem nú grúfir yfir heims-
byggðinni.
Kristínu er ég búin að þekkja
frá því hún var unglingur. Hún
var besta vinkona Áslaugar syst-
ur minnar heitinnar. Það gladdi
mig innilega þegar þau Jens
rugluðu saman reytum sínum.
Kidda er óvenjuleg og sterk per-
sóna og hún fann verðugan maka
þar sem Jens var: þar mætti
kvikur og frjór hugur öðrum á
sama róli, þau urðu hvort öðru
kjölfesta og kunnu líka að ljá
hvort öðru vængi.
Þau hjónin bjuggu sér fallegt
heimili í Grænumýri, þangað var
notalegt að líta inn. Þá var nokk-
uð öruggt að fara í Sundlaug
Vesturbæjar árla dags, á vísan að
róa, Kidda að synda kílómetrann
sinn og Jens að teygja úr sér í
pottinum. Jafnan urðu þar fagn-
aðarfundir.
Jens var sannkallað prúð-
menni, höfðingi heim að sækja og
æðrulaus þegar á móti blés. Þau
hjónin studdu hvort annað í einu
og öllu, samhent og greinilegt
var að þau uxu saman. Þau voru
komin á þann stað í lífinu að geta
leyft sér að ferðast og lyfta sér
upp án þess að vinna baki brotnu,
börnin flogin og sjúkdómar að
baki.
Elsku Kidda, hann Jens siglir
nú vestur á undan þér. Á strönd-
inni handan hafsins fagna honum
ýmsir kunnuglegir englar.
Jens lifir áfram í sterkri og
ljúfri minningu.
Ólöf Pétursdóttir.
Kæri Jens minn! Það var mik-
ið áfall þegar Nonni frændi
hringdi í mig og sagði mér þau
sorgartíðindi að þú værir dáinn.
Og síðasta skiptið sem ég sá þig
hafi verið í matarboði hjá ykkur
Kristínu.
Það eru sjö ár síðan ég kynnt-
ist þér þegar ég fór út í það að
kaupa mér búðina mína árið 2014
og man alla þá hjálp sem þú
bauðst fram. Og ófá voru þau
skiptin sem mér hefur verið boð-
ið heim til ykkar Kristínar í mat-
arboð síðan. Ég man líka eftir því
þegar þú komst með mér upp í
Borgarnes að skrifa undir kaup-
samninginn. Ótrúlegt að það séu
næstum sjö ár síðan!
Það var alltaf svo þægilegt að
tala við þig því þú vildir alltaf
hugsa málið til enda og ekki ana
að neinu. Ég mun ætíð minnast
mannsins í bílnum með hundinn í
aftursætinu, Gutta eða Vír. Og
þær mörgu ferðir sem þú skutl-
aðir mér í ýmis erindi. Þú varst
alltaf tilbúinn að rétta mér hjálp-
arhönd þegar ég bað þig að að-
stoða mig. Og alltaf var gott að
leita til þín. Einhvern veginn sá
ég alltaf fyrir mér að þið Kristín
ættuð eftir mörg góð ár saman í
ellinni, bæði ferðalög og annað.
En lífið er svo fljótt að breytast!
Ég mun ætíð minnast Vínartón-
leikanna með ykkur Kristínu
sem voru yndislegar jólagjafir og
skemmtilegt að fara með ykkur í
Hörpuna. Og Möltuferðin 2018
með ykkur og fjölskyldu er
ógleymanleg ferð.
Hvíldu í friði Jens minn!
Ég votta Kristínu, Ellen, Ív-
ari, Hafdísi, Jóni Þorsteini, Svet-
lönu, Önnu Kristínu og fjölskyld-
um mína dýpstu samúð.
Margt ég vildi þakka þér
og þess er gott að minnast
að þú ert einn af þeim sem mér
þótti gott að kynnast.
(Guðrún Jóhannsdóttir frá Braut-
arholti)
Inga Jónsdóttir.
Árið 2008, það merka ár, flutt-
um við fjölskyldan í Grænumýri
á Seltjarnarnesi. Þar fengum við
aðeins stærra rými fyrir okkur,
en það langbesta sem við fengum
við kaupin voru ekki aukafer-
metrarnir heldur næstu ná-
grannar okkar, þau Kristín og
Jens. Þau urðu mjög fljótt ekki
bara nágrannar heldur nánir vin-
ir okkar, sem hefur haldist þann-
ig til þessa dags. Það hefur í
stuttu máli verið ómetanlegt að
eiga þau að alla tíð frá flutnings-
deginum árið 2008. Við fjölskyld-
an höfum líka reynt að endur-
gjalda þeim fyrir okkur;
hundurinn þeirra, hann Gutti,
átti þannig oft skjól hjá okkur
meðan „foreldrar“ hans voru er-
lendis og þá ósjaldan á slóðum
þeirra spæjara Morse og Lewis í
Oxfordskíri Englands en Kristín
og Jens höfðu dálæti á þeim fé-
lögum. Við komum á „vöruskipt-
um“ milli okkar nágrannanna,
þau skutust til okkar ef eitthvað
vantaði á númer 28 og við til
þeirra ef eitthvað vantaði á núm-
er 22; Jens sagði reyndar oft að
þetta væri mjög ánægjulegt hlið-
arhagkerfi við þetta venjulega ís-
lenska.
Jens var vélfræðingur að
mennt, og strákarnir okkar Lísu
lærðu mjög fljótt að vélfræðing-
urinn gat lagað allt. Strákarnir
fóru þannig bara sjálfir yfir á 28
með það dót sem þurfti að laga,
bönkuðu upp á og auðvitað gat
Jens lagað það. Jens vildi allt fyr-
ir strákana okkar gera, og strák-
arnir fundu það. Hann taldi held-
ur aldrei eftir sér að aðstoða afar
óhandlagna heimilisföðurinn á
nr. 22 við hinar ýmsu fram-
kvæmdir, og gerði það þannig að
ég lærði af því í leiðinni. Þetta
gerði Jens á sinn hægláta og
hlýja hátt, og alltaf jafn velkomið
og aldrei tekið í mál að taka neitt
fyrir nema ef ég gat troðið upp á
hann kannski einum bjór frá
heimahögum forfeðra hans í
Danmörku.
Við Jens höfðum báðir áhuga á
pólitík, og við ræddum þau mál
yfir mörgum kaffibollum. Jens
kom úr jarðvegi verkalýðshreyf-
ingarinnar og hallaðist til vinstri,
ég úr gamla Sjálfstæðisflokknum
meðan sá flokkur var ennþá
fjöldahreyfing og hallaðist til
hægri; þetta breytti því ekki að
við vorum næstum alltaf sam-
mála, merkilegt nokk, um póli-
tískar stefnur og strauma. Ég
ber að auki mikla virðingu fyrir
Kristínu og Jens vegna baráttu
þeirra fyrir sjálfsögðum mann-
réttindum dóttur þeirra í bæjar-
félagi þar sem þau réttindi eru
ekki sjálfsögð, þar gaf Jens ekk-
ert eftir – það er ekki hægt annað
en að bera sjálfkrafa mikla virð-
ingu fyrir slíkum manni.
Og nú er Jens allt í einu farinn,
óvænt, og höggið er þungt. Þótt
við fjölskyldan höfum flutt á nýj-
ar slóðir síðastliðið haust eiga
Kristín og Jens sinn stað hjá okk-
ur. Þannig verður það alltaf. Við
vottum Kristínu, Önnu Kristínu
og öðrum aðstandendum okkar
innilegustu samúð.
Hlynur, Lísa, Egill Smári
og Kjartan Nói.
„Sæll, ég heiti Jens og ég er
annar af tveimur kommúnistum
á Seltjarnarnesi,“ sagði Jens
þegar hann tók í höndina á mér í
fyrsta skipti. Handtakinu, sem
var hlýlegt og traust, fylgdi
breitt bros.
Þetta voru okkar fyrstu kynni
árið 2010 og gaf tóninn fyrir það
koma skyldi í okkar samstarfi.
Jens og ég unnum saman í mörg
góð ár. Jens var afskaplega
traustur og heilsteyptur. Aldrei
neinn gassagangur eða óþörf
læti. Hann var eins og klettur við
sjóbarða strönd sem haggaðist
ekki sama á hverju dundi. Ef upp
komu áskoranir var hann ávallt
reiðubúinn að stíga fram sem
öldubrjótur og ef upp kom
ágreiningur hafði hann einstakan
hæfileika til að lægja slíkar öldur
með augnaráðinu einu saman.
Hlátur Jens var alltaf einlæg-
ur og smitandi því hann var mik-
ill húmoristi. Eftir því sem við
kynntumst betur kom í ljós mað-
ur sem barmaði sér ekki þrátt
fyrir áskoranir lífsins og maður
sem var skuldbundinn fjölskyldu
sinni umfram allt. Hann talaði
ávallt hlýlega og af stolti um
Kristínu sína og börnin sín.
Þar sem nokkur aldursmunur
er á okkur Jens þá bjó hann yfir
lífsreynslu sem hann deildi á
hógværan hátt. Á þeim stundum
varð hann lærifaðir minn og er ég
honum ævinlega þakklátur fyrir
það veganesti sem hann deildi
með mér.
Þær eru margar minningarn-
ar um Jens en ein af mínum
uppáhalds er veiðiferð sem við
fórum saman í Skagafjörð. Sem
ungur maður hafði Jens tengsl
við fjörðinn og átti greinilega
góðar minningar þaðan. Veiði-
ferðin var góð því þar sátum við
saman undir heiðskírum himni
og áttum í djúpum heimspekileg-
um umræðum um lífið og til-
veruna.
Þessar minningar tökum við
sem þekkjum þig með okkur inn í
framtíðina þar til við hittumst
aftur undir bláhimni kæri vinur.
Farðu í friði kæri Jens.
Gestur Pétursson.
Kæri samstarfsfélagi. Okkur
var brugðið að heyra af andláti
þínu sem bar svo skyndilega að.
Þú ætlaðir svo sannarlega að
njóta lífsins og ferðast um heim-
inn eftir að þú hættir að vinna hjá
okkur. Við erum þakklát því að
þú náðir að byrja ferðalagið þó
svo að frekari plön þurfi nú að
víkja.
Þú hófst störf hjá Elkem Ís-
land 1. mars 2007 í stöðu öryggis-
fulltrúa og var það mikið lán fyrir
okkur starfsmenn á Grundar-
tanga. Þú varst okkur góður
samstarfsmaður og við sem vor-
um að taka fyrstu skrefin gátum
alltaf leitað til þín þar sem þú
hlustaðir með athygli og veittir
okkur fagleg og föðurleg ráð. Þú
varst okkur, nánasta samstarfs-
fólki þínu, hvetjandi og leiðbein-
andi í senn en tókst sjálfur til-
sögn þó svo þú værir
gamalreyndur sjómaður, hokinn
af lífsreynslu.
Þú varst einstaklega þægileg-
ur í samskiptum þar sem þú
nálgaðist málefnin á yfirvegaðan
og mjúkan hátt en steigst fast til
jarðar þegar þess var þörf. Þú
varst góður í að hlusta á aðra,
þannig náðir þú árangri í að leysa
málin og þau verkefni sem þú
tókst þér fyrir hendur svo allir
skildu sáttir.
Þú varst maður fólksins og
varst ekkert að æsa þig yfir
litlum hlutum. Þú náðir að vera
báðum megin við borðið og skilja
önnur sjónarmið en þín eigin.
Þegar þú tókst til máls hlustuðu
allir á og talaðir þú aldrei fyrir
daufum eyrum. Með rökfærslu
og skynsemi náðir þú að þjálfa
samstarfsfólk þitt með öryggi í
fyrirrúmi.
Þú upplifðir margt á ævinni
sem kom þér að góðum notum.
Oftar en ekki var stutt í gamla
sjóarann sem vildi drífa málin
áfram og rumdi í þér ef hart blés
á móti. Menn komu ekki að tóm-
um kofa þegar þjóðmál eða póli-
tík bar á góma, þú hafðir einlæg-
an áhuga á þeim málum og
sterkar skoðanir sem oftar en
ekki studdu verkalýðinn. Þú
varst alltaf til í fíflaskap og vit-
leysu. Hlátur þinn er hvað minn-
isstæðastur, sérstaklega þegar
þú sagði sögur, en þær voru oftar
en ekki skemmtilegar, léttar og
bráðfyndnar og svo hlóst þú svo
dásamlega mest að þeim sjálfur.
Þú varst ljúfur, skemmtilegur
og traustur félagi og vinur sem
samstarfsmönnum þínum þótti
vænt um. Við kveðjum með sökn-
uði góðan dreng sem sárt verður
saknað.
Kær kveðja.
Fyrir hönd samstarfsfélaga
hjá Elkem Ísland,
Sigurjón Svavarsson.
Kæri vinur. Það eru enn svo
óraunverulegar fréttirnar um að
þú sért farinn frá okkur. Það að
hverfa svo skyndilega á braut er
ekki þinn stíll, þú sem varst van-
ur að gera alla hluti svo yfirvegað
í rólegheitunum og af öryggi.
Alltaf var hægt að leita til þín
með hvað sem var og reyndist þú
alltaf svo úrræðagóður. Þegar ég
leitaði til þín um hvort væri tíma-
bært að fara að taka út eftirlaun
þrátt fyrir að vera í fullri vinnu
þá tókstu þér góðan tíma til að
velta því fyrir þér. Þetta er allt
spurning um: hvað ætlar þú að
lifa lengi? Þeirri spurningu getur
enginn svarað og þar kaupum við
okkur hvorki inn eða út úr röð-
inni. Svo að til að eiga séns á ein-
hverjum eftirlaunum er best að
byrja strax. Svo varstu með alls
konar vangaveltur um hvað við
ættum nú mikið eftir að gera
saman.
Vinskapur okkar Jens Andr-
éssonar nær allt aftur til 1983,
vorum við ráðnir saman til Þró-
unarsamvinnustofnunar Íslands
til þess að vinna í verkefni sem
var verið að fara af stað með á
Grænhöfðaeyjum. Það var nú
ýmislegt brallað á Grænhöfða-
eyjum og eitt af því minnisstæð-
asta er þegar ekki var hægt að fá
nautakjöt í kostinn í eina veiði-
ferðina og fengum við fyrirmæli
um að ná í nautakjötsbita til bæj-
arins Pedra Badeju á eyjunni
Santiago sem er ein af Græn-
höfðaeyjum. Þegar þangað var
komið beið okkar naut á fæti og
eina í stöðunni hjá okkur var að
slátra nautinu og flytja það um
borð í bátinn. Okkur fórst þetta
vel úr hendi og engum varð meint
af. Árið 2010 fórum við saman til
Grænhöfðaeyja ásamt eiginkon-
um okkar og var það frábær ferð
þar sem við rifjuðum upp gömul
kynni af okkar fyrrverandi sam-
verkamönnum.
Það var gaman að ferðast með
Jens og Kristínu og höfum við
farið í nokkrar ferðir saman.
Gaman var að sigla saman um í
Englandi þar sem við fórum í
siglingu um héruð þar sem farið
Jens Andrésson