Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 29
steins og fengið teikningar sem hann átti mikið safn af og eða var fljótur að útbúa. Þrátt fyrir að vera innritaður á sjúkrahús sl. 6 mánuði, þá gerði Hafsteinn aldrei mikið úr veikindum sínum og var alltaf jákvæður um það að heilsan myndi lagast og ef það kom sæmilegt tímabil í veikind- unum þá fór hann af stað í vinnu, síðast í Sigölduvirkjun við að uppfæra gamla rafstöð með nýj- um stjórnbúnaði. Um leið og ég þakka Hafsteini kærlega fyrir öll árin okkar sam- an bæði í leik og starfi, þá vott- um við Dísa eiginkonu hans og fjölskyldunni allri okkar innileg- ustu samúð. Minningin um góðan dreng lifir. Björn Benediktsson. Ef ég ætti að lýsa Hafsteini með einu orði þá er fyrsta orðið sem kemur upp „hjálpsamur“. Það má segja að hann hafi fylgt með þegar stóra systir mín eignaðist kærasta, hann Gunnar, litla bróður hans Hafsteins. Ekki svo að hann hafi einhvern tím- ann verið fylgisveinn, eins sjálf- stæður og hann var. Við Gunnar eignuðumst báðir Skóda og stóð- um þétt saman þegar gera þurfti við, enda kunnum við hvorugur mikið til slíkra verka. Hafsteinn birtist þá bara einhvern veginn og vissi alltaf hvernig átti að gera hlutina. Vélar áttu hug hans allan og þar kom maður aldrei að tómum kofunum. Hann bjargaði okkur skátunum þegar okkur vantaði rafstöð við skála- viðgerðir í Krýsuvík. Alltaf var spjallað og ég man að hann var heillaður af varmadælum sem þá þekktust varla hér á landi og hljómaði eins og eilífðarvélar. Bílvélar tengdu okkur Hafstein oft saman, ég var með biluðu vélina og hann útvegaði aðstöðu og sérfræðiþekkinguna. Ég hik- aði aldrei við að rífa hlutina í sundur, ég hafði fulla trú á að Hafsteinn gæti bjargað ef illa færi. Hvað gat farið úrskeiðis þegar svona snillingur var ná- lægt? Síðasta vélaævintýrið var fyrir nokkrum árum þegar hann sagði sjálfsagt að ég fengi að setja nýja gamla vél í bíl sem ég átti á verkstæði þeirra Bjössa. Þetta varð stórt ævintýri því skipta þurfti um margt enda vél- in ekki úr eins bíl. Ávallt tilbúinn að hjálpa, lána verkfæri og ekki síst að hrósa og hvetja til dáða. Já, hann var svo aumingjagóður og ég naut þess svo sannarlega og er ég honum ævinlega þakk- látur. Ástæða þess að gaman var að vera í kringum hann var enda- laus jákvæðni og bjartsýni. Eld- klár að setja upp og þjónusta vararafstöðvar og ég hafði á til- finningunni að ekkert væri ómögulegt fyrir hann. Gúmmí- bátum, snjósleðum, flugvélum og fjallabílum stýrði hann til að komast til að þjónusta stöðvar á afskekktum stöðum. Ekki skemmdu fyrir sögurnar frá æskuárum hans, frá óhöppum og öllum prakkarastrikunum sem vart eru hafandi eftir hér. Og heyrði ég eflaust aðeins brot af þeim. Hafsteinn barðist við sjúkdóm sinn, sem lengst af gekk ekkert að greina, af miklu æðruleysi þrátt fyrir að hann hamlaði hon- um mikið. Hann gafst þó aldrei upp og þegar ég hringdi í hann um ára- mótin var hljóðið í honum ótrú- lega gott þó vitað væri að staðan væri orðin alvarleg. Hann kaus að horfa þannig á lífið. Þetta væri allt að mjakast í rétta átt. Það er erfitt að horfa á eftir svona hæfileikamanni og góðum dreng fara allt of fljótt. Kæra Anna, systkini, börn, barnabörn og barnabarnabörn og fjölskylda öll, við Kristjana vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð og Guð blessi minningu góðs vinar. Guðni Gíslason. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 ✝ Snorri Stein-þórsson, fv., matreiðslumaður í Ráðhúsi Reykja- víkur, fæddist í Reykjavík 27. maí 1951 en ólst upp í Hafnarfirði. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 2. febr- úar 2021. Foreldrar Snorra voru Steinþór Hóseas- son, f. 6.6. 1916, d. 4.6. 1968, vélstjóri í Hafnarfirði, og Sig- urragna Vilhjálmsdóttir, 20.6. 1915, d. 25.7. 1960. Foreldrar Steinþórs voru Hóseas Árnason og kona hans Guðrún Þórð- ardóttir frá Hóli í Biskups- tungum. Foreldrar Sigurrögnu voru Vilhjálmur Tómasson frá Mjóafirði og kona hans Guðrún Sigmundsdóttir frá Uppsölum í Vestmannaeyjum. Seinni kona Steinþórs var Hallfríður Gísladóttir, f. 23.8. 1911, d. 1.1. 1990. Dætur henn- ar: Kolbrún Karlsdóttir, Hrafn- hildur Björk Ólafsdóttir og Steinunn Inga Ólafsdóttir. Eftir að móðir Snorra lést var hann mikið hjá föðursystur sinni Þórhildi Hóseasdóttur og inu 1973-75 og hjá matstofu Miðfells 1975-85. Snorri réð sig síðan til Reykjavíkurborgar 1985 og var forstöðumaður mötuneytis borgarskrifstof- anna, Austurstræti 16, þar til mötuneytið var flutt yfir í Ráð- hús Reykjavíkur 1992 og vann þar til starfsloka 2016. Snorri kenndi við Hótel- og veitinga- skólann frá 1985-95. Snorri átti sæti í trúnaðarráði Félags mat- reiðslumanna frá 1975-79. Snorri stofnaði ásamt fjöl- skyldu sinni Gista ehf., 2006. Hann hefur verið félagi í Odd- fellowstúkunni Þormóði goða í Reykjavík frá 1981 og gegnt margháttuðum trúnaðarstörf- um fyrir stúkuna og þar með talið sem yfirmeistari hennar. Snorri kvæntist 1.9. 1973 Jónu Helgu Jónsdóttur, f. 7.9. 1952, skrifstofustjóra, en hún er dóttir Jóns J. Barðasonar, f. 12.5. 1922, d. 21.4. 1981 og konu hans Erlu Sigurðardótt- ur, f. 1.11. 1930, d. 16.10. 2008. Dóttir Snorra og Jónu Helgu er Dröfn Ösp Snorradóttir- Rozas stjórnmálafræðingur, f. 9.12. 1978, búsett í Los Angel- es, eiginmaður Drafnar er John Warren Rozas, f. 22.1, 1965 og vinna þau bæði við kvikmyndagerð í Los Angeles og á Íslandi. Útför Snorra fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík 12. febrúar 2021. Vegna Covid- fjöldatakmarkana er hún ein- ungis fyrir boðsgesti. manni hennar Jó- hannesi Hallgríms- syni, búsett á Hverfisgötu 58, Hafnarfirði, börn þeirra eru Sigþór, Vilborg og Hall- grímur. Bróðir Snorra er Vilhjálmur Steinþórsson, f. 19.2. 1945, fv. sjó- maður, búsettur í Seattle í Bandaríkjunum, dóttir hans er Sigurragna Vilhjálms- dóttir og eiginmaður hennar er Ingi Ó. Ingason, þau eru búsett í Hafnarfirði, dætur þeirra eru Birna Ingadóttir og Hildur Ingadóttir. Systir Snorra var Dröfn Steinþórsdóttir, f. 31.1. 1944 en lést langt fyrir aldur fram 6.6. 1959. Snorri lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 1968. Sama ár hóf hann nám í matreiðslu hjá Sig- ursæli Magnússyni veitinga- manni og lauk sveinsprófi frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1972 og meistararéttindi öðlaðist hann 1978. Hann starf- aði hjá Flugfélagi Íslands 1972- 73, Tjarnarbúð Oddfellowhús- Leiðir okkar Snorra Steinþórs- sonar lágu saman í Oddfellow- stúkunni Þormóði goða síðla árs 1986, en hann hafði gengið til liðs við stúkuna tæplega þrítugur að aldri. Hann var alla tíð virkur í starfi stúkunnar og gegndi þar fjöl- mörgum trúnaðarstörfum, var m.a. yfirmeistari stúkunnar. Fljótlega vorum við kjörnir í þá nefnd stúkunnar sem annast félagsstörf, Snorri sem formaður. Hann tók málin föstum tökum, dagskrá gerð fyrir allan veturinn og ýmsar nýjungar innleiddar sem sumar halda enn velli. Þetta voru okkar fyrstu kynni, sem efldu mér traust á manninum. Góðir skipulagshæfileikar hans og smekkvísi nýttust honum í öllu því sem hann tók sér fyrir hend- ur. Þar var alltaf fagmaður að verki og ekki spillti létt lundarfar og glöggskyggni á spaugilegar hliðar tilverunnar, sem hann hafði á hraðbergi. Áhugamál Snorra voru fjölmörg, má þar nefna ljósmyndun, stangveiði, lestur góðra bókmennta og ferða- lög innan- sem utanlands, þar sem hann kunni góð skil á menn- ingu og sögu þeirra landa sem heimsótt voru. Þá var hann fljótur að setja sig inn í tækni nútímans sem hann nýtti sér af áhuga. Það jók á vin- áttu okkar að við vorum veiði- félagar á Arnarvatnsheiði í rúm- an aldarfjórðung. Matreiðslumeistarinn Snorri sá að sjálfsögðu um alla matseld fyr- ir hópinn og var ekki í kot vísað, eitt sinn skötustappa, engar pyls- ur þar. Snorri naut sín vel í því um- hverfi, þar sem Langjökull og Ei- ríksjökull renna saman við ljósbláan himin og Arnarvatnið, blátt og spegiltært, glóir í sum- arnóttinni. Þar var margt skrafað og skeggrætt. Það skraf geymir nú ískaldur Eiríksjökull. Með Snorra Steinþórssyni er genginn traustur maður og drengur góð- ur, sem sárt verður saknað úr stórum vinahópi. Blessuð veri minning hans. Magnús Sædal. Við vinkonur Drafnar vorum svo heppnar að fá tækifæri til að kynnast foreldrum hennar og sér- staklega minnumst við þess hve Snorri tók okkur opnum örmum þegar við vorum í háskólanum. Eftir þreytandi fyrirlestra í stórum sölum hjá misáhugaverð- um kennurum fengum við iðulega að fara með Dröfn í mat hjá Snorra. Hann var frábær haukur í horni, tók manni opnum örmum og nærði þreytta nemendur. Snorri var frábær kokkur, hann var alltaf hress, tók öllum með skilyrðislausri góðmennsku og þolinmæði. Það hefur verið einstakt að fylgjast með fallegum og sterkum tengslum Snorra, Helgu og Drafnar í gegnum tíðina. Elsku Dröfn, Johnny, Helga og fjölskylda, missir ykkar er mikill, blessuð sé minning elsku Snorra. Þínar háskóla- og æskuvinkon- ur, Svanhildur og Hildur Sesselja. Elsku Snorri okkar, nú ertu farinn í draumalandið að lokum, eftir stutta en hetjulega baráttu við krabbann. Þú lést engan bil- bug á þér finna og tókst þessu öllu með húmor og ótrúlegu æðruleysi sem var ótrúlegt að upplifa. Núna ertu kominn heim til for- eldra þinna og systur sem þú misstir á unga aldri, það eru gleðifundir eftir langan tíma, Snorri minn. Þú varst fljótlega tekinn inn í tengdafjölskylduna þína nokkrum árum seinna sem tók þér sem sínum eigin syni frá fyrsta degi og elskaði þig mjög mikið. Mér þótti alltaf svo vænt um að hitta þig og Helgu í gegnum árin og sérstaklega á jólunum, því fáir menn eru eins skemmtilegir og klárir og þú! Tala nú ekki um matinn, þar sem gamli var nú sannur meistarakokkur að mennt. Þú varst mér mikil fyrirmynd og áhrifavaldur í lífinu öllu og ég fetaði á endanum í sömu fótspor og þú og gerðist matreiðslumað- ur. Þú áttir svo sannarlega stóran þátt í því þar sem ég fékk að hræra í fyrstu pottunum hjá þér sem ungur gutti í sumarvinnu í Ráðhúsi Reykjavíkur í nokkur sumur. Elsku Korri Snorkur minn, takk fyrir allt! Ég mun geyma þig og sakna þín ávallt. Ég fer óhræddur inn í framtíð- ina með þitt hugarfar að leiðar- ljósi, þú sanni maður! Megi ljós þitt ávallt skína. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þinn Jón Smári Tómasson. Snorri Steinþórsson ✝ Kristín MaríaJónsdóttir fæddist í Reykjavík 2. maí 1944. Hún lést á Landspít- alanum Hringbraut 30. janúar 2021. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Óskar Guðsteins- son, f. 9. ágúst 1916, d. 14. apríl 1975 og Svava Guðmundsdóttir, f. 6. janúar 1918, d. 19. september 1969. Systkini Kristínar eru: Örn, f. 1. september 1936. Guðsteinn, f. 20. desember 1938, d. 9. apríl 1939. Guðsteinn, f. 3. júní 1941. Guðrún, f. 27. janúar 1943. Erna, f. 21. nóvember 1947. Ríkharður, f. 30. desember 1953. Sammæðra er Sigurður Trausti Sigurðs- son, f. 6. ágúst 1952. Kristín giftist Pétri Sigurðssyni. Þau skildu, synir þeirra eru: 1. Jón Óskar, f. 27. apríl 1962, d, 21. nóv- ember 2007, börn hans eru 4: Ás- björn Arnar, f. 11. júlí 1983, Kristinn Þór, f. 20. febrúar 1988, Elin, f. 11. mars 1993 og Anja Nicole, f. 18. desember 1994. 2. Vignir, f. 13. maí 1964, kvæntur Öldu Þorsteinsdóttur, börn þeirra eru 2: Íris Dögg, f. 26. ágúst 1988 og Andri Heim- ir, f. 5. ágúst 1992. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 12. febr- úar 2021, klukkan 13. Hvað er mikilvægara en nærvera sálar? Ég er þakklát fyrir samferðafólk mitt, og sér- staklega fyrir þá sem sýna manni væntumþykju og stuðn- ing. Kristín mín var slík vin- kona. Það var heppin ung kona og sonur hennar sem fluttu á Týsgötu 4, 101, á hæð milli tveggja eðalkvenna, Leifu á efri hæðinni og Kristínar í kjallaranum. Mikill samgangur og vinátta var við báðar. Kristín átti litla og fallega íbúð sem hún var stanslaust að gera fallegri og betri. Það tók mig mörg ár að átta mig á því að líkamlega var hún fjölveik. Hún stoppaði aldrei og var alltaf að skipuleggja og fram- kvæma næstu breytingar. Kristín gekk ekki í digra sjóði en með þrautseigju og gleði tókst hún á við alla hluti. Til að geta gert það sem hún hafði í sínum frjóa huga þurfti góðan undirbúning og útsjón- arsemi. Konan var rausnarleg og naut þess að gefa öðrum. Hún var oft byrjuð að kaupa jóla- gjafirnar í janúar. Kristín bjargaði sér sjálf, hún saumaði og gerði við föt, bar út blöð eins og heilsan leyfði og leigði út herbergi af og til eftir að hún flutti í Dúfnahólana. Hún var alltaf eldheit í áhuga sínum á fótbolta og var nösk á réttu vinningsliðin í get- raunum með Gunnu systur og svo stefndi Kristín stöðugt á skemmtilegar sólarlandaferðir með systrum sínum. Kristín sendi m.a. dönskum sonardætr- um sínum glaðning frá Íslandi um hver jól þar til flutning- urinn kostaði meira en jólagjaf- ir og matur, lax, hangikjöt og nammi. Þá sendi hún bara pen- inginn. Kristín lagaði sig að að- stæðum sem voru oft erfiðar, sérstaklega þegar hún varð undirlögð af verkjum í öllum liðum líkamans. Hún kvartaði aldrei og var einstaklega björt, falleg og glaðleg kona. Ég heyrði hana aldrei tala illa um neinn nema stjórnmálamenn. Hún elskaði sitt fólk og gladdist einlæglega þegar hún fékk að heyra að þeim liði vel. Ég vissi að hún bjó um tíma í Bandaríkjunum með Jóni syni sínum og vann einnig í Svíþjóð þar sem hún safnaði lífeyri. Kristín var nokkuð pólítísk og var ekki sátt við skattlagningu þeirra sem minna máttu sín. Þegar henni var gert að end- urgreiða hluta af lífeyri sínum hér heima vegna viðbótar- greiðslna frá Svíþjóð þá lét hún Svíana vita að þeir mættu eiga lífeyrinn, hún tæki ekki þátt í svona vitleysu. Kristín vissi örugglega að endalokin nálguðust en var ekki að flíka því. Jafnvel milli morfínskammta á sjúkrahúsinu gerði hún að gamni sínu í sím- ann. Stuttu áður en hún lést sagði hún mér að hún væri að skipu- leggja lagfæringar á baðinu heima. En þegar nær dró talaði hún meira um fólkið sitt og að hún væri þakklát fyrir allar góðu stundirnar með þeim. Kristín sagði að þrjár konur hefðu veitt sér mestan stuðning á lífsleiðinni af sínu góða fólki. Það væru tengdamamma, mamma og Erna systir. Kristín sá um að leiði sonar hennar í Danmörku væri fallegt og vel lýst og hún vildi að minning um hann væri letruð á legsteininn sinn. Það var það síðasta sem ég heyrði frá henni því daginn eftir var meðvitundin farin og vonandi kvalirnar líka. Takk fyrir samveruna kæra vinkona. Ragnheiður Birna Fossdal. Nú er komið að leiðarlokum, kæra tengdamamma, við kveðj- um þig mín kæra og vitum að nú eru loksins allir verkir farn- ir og þú getur flogið um í leit að ævintýrum, enda algjörlega óhrædd ævintýrakona. Þú fórst ung til Bandaríkjanna, bjóst og starfaðir þar í nokkur ár. Eftir Bandaríkjadvölina fluttist þú til Íslands en eftir tiltölulega stutta dvöl fluttist þú aftur til útlanda en nú til Svíþjóðar. Þar starfaðir þú á saumastofu í nokkur ár. Vegna fjarveru þinnar frá Íslandi kynntist ég þér ekki fyrr en nokkrum árum eftir að við Vignir byrjuðum saman. Ég var nú nokkrum sinnum búin að tala við þig í síma áður en ég hitti þig í fyrsta skipti, ég man að þú varst nú svolítið am- erísk í tali á þeim tíma. Fyrstu jólagjöfinni gleymi ég aldrei, risakassi sóttur á pósthúsið, við héldum að jólapakkarnir til allra hefðu komið í einum kassa en nei, annað kom í ljós, þegar við opnuðum kassann þá var allt innihaldið til okkar. Við unga parið nýfarin að búa og áttum nánast ekki neitt nema það sem mamma mín og Unnur amma komu með í hagkaups- poka í hverri heimsókn. Upp úr þessum risajóla- pakka kom fullt af jólaskrauti frá Svíaríki, það kom líka hrærivél sem kostaði nú nokkra þúsundkallana á þessum tíma. Í kassanum leyndist líka vöfflu- járn og eitthvert meira smádót, vorum við agndofa yfir þessum gjöfum. Er þetta 40 ára gamla vöfflujárn enn til og allt jóla- skrautið líka. Þú hafðir einstakt lag á að velja góðar og vandaðar gjafir, Stína mín. Leiðin lá svo aftur heim, þá fluttist þú á Njálsgöt- una í sama hús og Jón og Nína bjuggu í. Alltaf var enski bolt- inn þér afar hugleikinn sem mér fannst fyrst alltaf pínu skrítið því engan kvenmann hafði ég hitt sem vissi eins mik- ið um enska boltann og þú. Þú varst áskrifandi að ensku blöð- unum til að fylgjast með og síð- an tippaðir þú á úrslitin, svo vel upplýst varstu að þú vannst 13 rétta í getraunum sem varð til þess að þú keyptir þér þína fyrstu íbúð á Týsgötunni. Ef mitt minni er rétt þá var vinn- ingurinn næstum helmingur af verði íbúðarinnar, geri aðrir betur í boltanum. Þér fannst al- veg ofboðslega gaman að ferðast og hefðir örugglega lagt í fleiri ævintýri um heiminn ef þú hefðir ekki fengið þessa gigt sem hægði mikið á þér, en þú ferðaðist nú samt þrátt fyrir að vera örugglega verkjuð alla daga og hafðir ofboðslega gam- an af. Eftir að Jón fluttist til Dan- merkur með Karin þá áttir þú mjög erfitt þó að heimsóknirn- ar til hans slægju kannski á mesta söknuðinn. Svo voru það nú systurnar þrjár eða skytt- urnar þrjár eins og ég kallaði ykkur. Þið voruð svo nánar og góðar vinkonur sem var eft- irtektarvert, ferðuðust saman erlendis, bjugguð rétt hjá hver annarri þannig að samgangur- inn var mikill. Alltaf var talað um Gunnu systur og Ernu systur í heim- sóknum og fór ekki á milli mála væntumþykjan á milli ykkar. Árið 2007 kom áfallið, símtal kom frá Danmörku um að hann Jón væri látinn. Ég held að þú hafir aldrei jafnað þig á því, elsku Stína mín, en nú eruð þið Jón sameinuð á ný og getið horft á youtube saman. Hvíldu í friði, elsku Stína. Þín tengdadóttir, Alda. Kristín María Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.