Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Lækjarvegur 6, Langanesbyggð, fnr. 216-7907, þingl. eig. Sara
Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Háskóli Íslands og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf. og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 17. febrúar nk. kl.
12:00.
Hvammur, Akureyri, fnr. 215-6376, þingl. eig. Kristján Ingimar
Ragnarsson, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, fimmtudaginn 18. febrúar nk.
kl. 12:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
11. febrúar 2021
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á
henni sjálfri, sem hér segir :
Vanefndaruppboð m.v.t. 3.mgr.47.gr.l nr. 90/1991:
Lindargata 50, Reykjavík, fnr. 200-3393, þingl. eig. Laugavegur ehf.,
gerðarbeiðendur Arion banki hf., Reykjavíkurborg og Vátrygginga-
félag Íslands hf., þriðjudaginn 16. febrúar nk. kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
11. febrúar 2021
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30. Zumba Gold kl. 10.30.
Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30-15. Vegna fjölda-
takmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur. Grímuskylda er í
Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og
passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Velkomin!
Árskógar Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Stólajóga með
Hönnu kl. 10. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga
6-8 kl. 16.30-17.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.15-
15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að
skrá sig í viðburði eða hópa í síma 411-2600.
Boðinn Línudans kl. 15, munið grímuskyldu og tveggja metra reglu.
Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Myndlist með
Margréti Z. kl. 09.30. Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Gönguferð um
hverfið kl. 10.30 ef færð og veður í lagi. Opið kaffihús kl. 14.30. Vegna
sóttvarnaregla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði
hjá okkur í síma 535-2760.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opnunartími kl. 8.10-16. Allir vel-
komnir. Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.00. Thai chi kl. 9-10. Hádegismat-
ur kl. 11.30-12.30. Postulínsnámskeið kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30-
15.30. Hjá okkur er grímuskylda og vegna fjöldatakmarkana þarf að
skrá sig fyrirfram í síma eða á skrifstofunni. Nánari uppl. í s. 411-2790.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Pool-hópur í Jóns-
húsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Dansleikfimi í Sjálands-
skóla kl. 16 og 16.45. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15.30, 16.10 og 16.50.
Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum og virða 2 metra reglu
athugið grímuskylda.
Gjábakki Kl. 8.30 til 10.30 handavinnustofa opin, bókið daginn áður.
Kl. 8.45 til 10.45 postulínsmálun. Kl. 11.30 til 12.30 matur. Kl. 13 til 15
tréskurður. Kl. 13 til 15 handavinnustofan opin, bókið daginn áður.
Gullsmári Handavinna kl. 9, skráning í síma 441 9912. Sóttvarnir,
grímuskylda og tveggja metra reglan.
Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30 og
9.30. Bingó á miðvikudögum kl. 13. Handverk á miðvikudögum kl. 13.
Píla á fimmtudögum kl. 13. Línudans á föstudögum kl. 10 og 11.
Grímuskylda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt að skrá
sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa-
vinna, opin vinnustofa kl. 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Bíódagar í
Hvassaleiti kl. 13.15 miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Bíómyndin
Á hverfanda hveli ,,Gone With The Wind“ sýnd í þremur hlutum.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30 og söngur í salnum á
Skólabraut kl. 10.45. Við höfum allar sóttvarnir. Allir velkomnir, en þó
þarf að halda 20 manna hámarkið.
með
morgun-
nu
200 mílur
Eitt af því góða og skemmti-
lega í lífinu er að hitta nýtt fólk,
spjalla og hlusta. Allir eiga sína
sögu. Þannig var það einn sólrík-
an júlídag 2009 að ég var kynnt
fyrir Valrós Árnadóttur sem við
kveðjum í dag. Það var eins og við
hefðum alltaf þekkst. Þessi fal-
lega bjarta kona, Valrós, tók mig
að hjarta sér og við urðum vin-
konur. Að kynnast henni var dýr-
mætt. Valrós var full af sólskini
og stráði geislum sínum á allt og
alla í umhverfinu. Ég sagði oft við
Dónald minn: „Hún Valrós er
örugglega ein vinsælasta konan á
Dalvík,“ slíkur var gestagangur-
inn hjá henni alla daga, auðvelt
fyrir mig að fullyrða þetta, því frá
eldhúsglugganum mínum blasir
við innkeyrsla hennar.
Valrós sagði mér svo margt
fróðlegt um Dalvík fyrrum og nú.
Hún þekkti lífið, varð ung ekkja
með fjögur börn þegar ástkær
eiginmaður hennar, Jóhann
Helgason, drukknaði í hörmu-
legu sjóslysi. Við tóku nýir tímar
hjá Valrós. Hún tók að sér marg-
vísleg störf, leigði út frá sér her-
bergi, allt til að eiga gott heimili
fyrir börnin. Löngu seinna bank-
aði ástin upp á hjá vinkonu minni.
Þar var kominn Almar Jónsson,
æskuvinur. Þau fengu mörg góð
ár saman.
Mér finnst Dalvík og Dalvík-
ingar sannarlega hafa kunnað að
meta mætu konuna Valrós Árna-
dóttur. Hún var heiðruð sem
fulltrúi sjómannskvenna á Fiski-
deginum mikla. Eins var Valrós
valin ein af 12 konum í Dalvík-
Valrós Árnadóttir
✝ Valrós Árna-dóttir fæddist
3. ágúst 1927 á
Hnjúki í Skíðadal.
Hún lést á dval-
arheimilinu Dalbæ
á Dalvík 1. febrúar
2021.
Útförin fer fram
12. febrúar kl.
13.30.
Stytt slóð á
streymi:
https://tinyurl.com/1von6vxk
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
urbyggð sem mark-
að hafa spor í sínu
samfélagi á örsýn-
ingu í Menningar-
húsinu Bergi. Í síð-
asta símtalinu okkar
nú í janúar sagði
mín kæra vinkona:
„Nú er mér að
fatast flugið Helga
mín, kemur þú ekki í
jarðarförina mína?“
Já, Valrós vissi vel
hvert stefndi, hún trúði á Jesú
Krist og var óttalaus fyrir vista-
skiptunum. Veri yndislega Valrós
góðum Guði falin með hjartans
þökk fyrir alla vináttuna.
Helga Mattína
Björnsdóttir, Dalvík.
Hetja. Það er orðið sem kemur
upp í hugann þegar ég minnist
Valrósar frænku minnar. Hún
var ekki eingöngu móðursystir
mín heldur einnig ein af mínum
bestu vinkonum.
Það var alltaf spenningur í
okkur systkinunum í „gamla
daga“ þegar foreldrar mínir fóru
með okkur í heimsókn á æsku-
slóðir mömmu. Þá var alltaf tekið
fyrsta stopp hjá Valrós frænku á
Dalvík. Þá tóku á móti manni
breiða brosið, góða geðið og hlýi
faðmurinn. Þetta voru einkenni
hennar elsku Valrósar minnar.
Hlýjan og straumurinn frá henni
voru engu lík.
Ég var svo lánsöm að búa á
Dalvíkinni í 25 ár og það var ynd-
islegt og ómetanlegt að geta leit-
að til hennar ef mig vantaði að-
stoð við hverskonar hannyrðir
eða saumaskap. Þar kom ég ald-
eilis ekki að tómum kofunum.
Það lék allt í höndunum á henni.
Og það var hlegið dátt og gant-
ast. Og alltaf hlaðið borð af
hverskonar heimagerðu góðgæti.
Við brölluðum ýmislegt saman
í gegnum tíðina og er mér efst í
minni þegar ég bað hana að
kenna mér að verka og fylla kút-
maga. Ég mun aldrei gleyma
þeim dagi. Við verkuðum á annað
hundrað stykki. Það var akkúrat
þá sem hún söng fyrst í mín eyru
lagið Sigríður, Þórdís, Björg. Ég
hélt að hún væri að skálda það, en
nei ekki aldeilis, það eru bara
þessi þrjú orð sem koma fyrir.
Síðan þá söng hún það oft fyrir
mig og alltaf enduðum við á að
hlæja dátt.
Ég var svo lánsöm að heim-
sækja hana og kveðja nokkrum
dögum áður en hún kvaddi þessa
jarðvist. Hún vissi hvert stefndi
og sagði að hún hefði ekki farið í
þetta ef hún hefði vitað hvað
þetta tæki langan tíma.
Ég minnist Valrósar minnar
með mikilli hlýju, söknuði og
þakklæti.
Megi allar góðar vættir vaka
yfir henni.
Elsku Fribba, Helga, Óli og
fjölskyldur, við hjónin vottum
ykkur okkar innilegustu samúð.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Þórunn Þórðardóttir.
Frá því ég man eftir mér hefur
Valrós móðursystir verið nálæg.
Hún var fjórum árum yngri en
mamma heitin og alla tíð afar
kært með þeim systrum. Ástina á
Valrósu frænku fengum við
systkinin með móðurmjólkinni.
Æskuminningar mínar um heim-
sóknirnar til Dalvíkur eru sveip-
aðar sólskini, kæti og ævintýra-
ljóma þótt ég ældi bæði lifur og
lungum á þá langri sjóferðinni frá
Siglufirði.
Frá þessum liðnu ljúfu æsku-
stundum hef ég vart farið um
Dalvík nema að líta við hjá Val-
rósu. Sama hvernig stóð á, mér
fannst ég ætíð hjartanlega vel-
komin og svo var veisla. Þétt og
langt faðmlagið sagði sína sögu.
Síðast hitti ég Valrósu í haust, þá
rúmlega 94 ára við Dalbæ. Þang-
að hafði hún nýverið ákveðið að
flytja. Við fengum að hittast úti
og þurftum að gæta okkar, ekk-
ert faðmlag en sama gæskan
gleðin og ljúfmennskan. Þarna
áttum við góðar samræður eins
og áður því hún frænka mín
fylgdist vel með, bjó yfir mikilli
reynslu, var vitur og hófstillt við
mat á mönnum og málefnum.
Hún reyndist mér ávallt vel og
þótti vænt um símtölin mín, eink-
um þegar ég saknaði mömmu.
Hún hafði góða nærveru enda
löðuðust margir að Valrósu
frænku. Hún var vinamörg og
vinsæl í sinni sveit.
Valrós var góð fyrirmynd.
Henni var eðlislægt að vera sjálf-
stæð og sjálfbjarga. Það var hún
svo sannarlega og gat borið höf-
uðið hátt. Þessi lífsglaða kær-
leiksríka kona var líka einstak-
lega hreinskiptin, seig og
dugandi. Hún hafði ung gifst Jó-
hanni Helgasyni, einum af
Kambsbræðrunum frá Siglufirði.
Á Dalvík eignuðust þau börnin
sín fjögur sem öllum hefur vegn-
að vel og bera foreldrunum fag-
urt vitni. Nær óbærilegur harm-
ur sló fjölskylduna um páskana
1963 þegar fyrirvaralaust skall á
mannskaðaveður við Eyjafjörð-
inn. Jóhann fórst með mótor-
bátnum Hafþóri ásamt fjórum
öðrum sjómönnum. Það var
þungt högg. Þau höfðu verið búin
að koma sér upp húsi áður en Jó-
hann fórst og nú var að standa sig
sem hún og gerði. Saumaði og
prjónaði allt meira og minna á
börnin því það lék í höndum
hennar.
Vann úti eins og hægt var,
bæði í fiski og við verslunarstörf.
Sennilega hefur Valrós oft verið
vansvefta á þessu æviskeiði.
Seinna lagði krabbameinið báða
tengdasynina og eldri soninn
Árna Steinar.
Valrós bjó nokkra áratugi með
Almari Jónssyni en þau höfðu
þekkst sem börn á Dalvík. Þau
áttu mörg góð ár saman á Karls-
rauðatorgi en Almar lést fyrir um
15 árum.
Hún ferðaðist töluvert, bæði
hér og til útlanda og keyrði sjálf
alveg fram undir það síðasta. Val-
rós stundaði útivist, sund og
göngur á sandinum. Hélt sínu
striki. Hún hafði unun af því að
vera fallega til fara og klæddist
glaðlegum litum. Hún var heiðr-
uð á Fiskidaginn mikla árið 2017,
þá liðlega 90 ára og var það vel.
Myndin sem tekin var þá og birt-
ist á mbl.is sýnir glæsilega konu
sem fæstir myndu trúa að væri
komin á tíræðisaldur.
Mikið á ég eftir að sakna Val-
rósar en fyrst og síðast er ég
þakklát fyrir alla hennar gæsku
og gjafir. Ég og fjölskylda mín
vottum eftirlifandi börnum Val-
rósar, Friðbjörgu Helgu og Óla
og fjölskyldum þeirra, innilega
samúð við fráfall hjartfólginnar
móður. Guð blessi minningu Val-
rósar Árnadóttur.
Árdís Þórðardóttir.
Elsku Valrós frænka okkar, nú
þegar komið er að hinstu kveðju-
stund og þú að leggja upp í lang-
ferðina þína við vegaslóða þessa
vetrar viljum við af hlýhug þakka
þér öll ljúf og góð kynni í gegnum
tíðina. Sérstaklega núna þau síð-
ustu árin, þar sem samskipti okk-
ar urðu tíðari og nándin meiri. Í
huga okkar beggja sitja eftir
hlýjar og notalegar minningar já-
kvæðrar samveru, innilegrar
gleði, hamingju og hláturs. Fas
þitt var einstakt, brosið alltaf til
staðar, kátínan svo innileg. Og
aldrei vantaði svo þakklætið frá
þinni hendi, jafnvel fyrir hið
minnsta. Við vitum að það verður
svo sannarlega vel tekið á móti
þér handan himinheima, þar sem
leið þín núna liggur. Þú sjálf lagð-
ir lífið þannig upp. Um ókomna
tíð munum við frændsystkinin
hugsa til þín með sól í hjartanu og
minnast einstakrar gæsku þinnar
í okkar garð. Vinátta þín var okk-
ur sérstaklega mikils virði.
Hann Jón Arnar sendir þér
hlýjar kveðjur og þakkar þér allt.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til fjölskyldu og ættingja
Valrósar.
Arnar Símonarson,
Ingigerður S. Júlíusdóttir.
Dáðrík gæðakona í dagsins stóru
önnum,
dýrust var þín gleði í fórn og móðurást.
Þú varst ein af ættjarðaróskadætrum
sönnum,
er aldrei köllun sinni í lífi og starfi
brást.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Með sorg í hjörtum okkar og
söknuði kveðjum við í dag elsku
vinkonu okkar og sundsystur,
Valrós Árnadóttur. Valrós var
ein af upphafskonum sundhóps-
ins og alltaf mætti hún til leiks
með gleðina og jákvæðnina í far-
teskinu. Það er eiginlega ekki
hægt að lýsa Valrós í örfáum
kveðjuorðum. Hún var einstök
kona sem lífið lék ekki alltaf við.
Á langri ævi urðu áföllin mörg og
óvægin en Valrós brotnaði aldrei.
Hún bognaði um stund en með
æðruleysi, auðmýkt og enda-
lausri elju og jákvæðni hélt hún
áfram og lifði lífinu til fulls.
Valrós var dásamlegt eintak af
manneskju. Guð blessi minningu
hennar.
Aðalsmerkið, elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Nú þegar komið er að leiðar-
lokum viljum við sundsystur Val-
rósar þakka fyrir vináttuna og
samfylgdina með kærleika og
söknuð í sinni.
Fribbu, Helgu, Óla og fjöl-
skyldum þeirra sendum við okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Ágústína (Dúdda),
Gígja, Guðlaug,
Hlín, Ragnheiður og
Svanhildur (Svansa).
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát