Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel
Sími 555 3100 www.donna.is
dreifingHeildsölu
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Við vinnum eftir þeirri skýru stefnu
að vera til staðar um land allt en
breyta jafnframt þjónustunni í takti
við þarfir samtímans,“ segir Lilja
Björk Einarsdóttir, bankastjóri
Landsbankans, þegar hún er spurð
um ástæðu þess að bankinn er með
mun fleiri útibú og afgreiðslur á
landsbyggðinni og höfuðborgar-
svæðinu en hinir stóru viðskipta-
bankarnir.
Landsbankinn er með 36 útibú og
afgreiðslur, þar af 29 á landsbyggð-
inni, fleiri en hinir stóru viðskipta-
bankarnir eru með samtals. Í um-
fjöllun um útibú viðskiptabankanna
sem birtist í blaðinu í gær vantaði að
geta um afgreiðslur Landsbankans á
Þórshöfn og Borgarfirði eystra.
Veitum þjónustu við hæfi
„Við hugsum um Landsbankann
sem þjónustufyrirtæki, lítum til þess
hvar fyrirtækin og viðskiptavinir
okkar eru og hvernig þjónustu þeir
nýta sér. Við lítum til þess hvernig
við getum veitt þjónustuna á hag-
kvæman og skil-
virkan máta.
Einnig lítum við
til þess hvernig
við getum veitt
þjónustu við hæfi,
en við erum sífellt
að meta þörfina,“
segir Lilja um
útibúanetið.
Hún segir að
þjónustan hafi
verið að þróast og ýmsar breytingar
verið gerðar á rekstrinum. Nefnir
styttri almennan afgreiðslutíma.
Það hafi leitt til fækkunar starfs-
fólks. Metið sé reglulega hvar sé
þörf á að vera. Þá sé smám saman
verið að draga úr húsnæðiskosti.
Nefnir Lilja söluna á hinu merka
Landsbankahúsi á Selfossi og sömu-
leiðis hafi Landsbankahúsið á Ísa-
firði verið sett á sölu. Húsin séu
áfram á stöðunum en fái nýtt hlut-
verk og bankinn fari í minna og
hentugra húsnæði. Á Djúpavogi sé
bankinn að fara úr allt of stóru húsi
inn í verslunarmiðstöðina sem íbú-
arnir sækja. Jafnframt sé fólki og
fyrirtækjum um allt land þjónað
með öflugum netbanka, fyrirtækja-
banka og góðum viðskiptatengslum.
Verðmæt reynsla starfsfólks
Það sést á viðbrögðum á stöð-
unum þegar þjónustustofnunum er
lokað að fólk er viðkvæmt fyrir slík-
um breytingum. Þau rök eru gjarn-
an færð fyrir lokun bankaútibúa að
fólk hafi lítið þangað að sækja, það
stundi öll sín bankaviðskipti í heima-
bankanum.
Lilja segir að Landsbankinn búi
að reynslumiklu starfsfólki og það
búi um allt land. Bankinn nýti
reynslu fólksins með því að fela því
verkefni. „Við lítum á reynslumikið
starfsfólk sem verðmæti sem við
viljum nýta sem allra best. Fólk kýs
að búa um allt land og við viljum að
það hafi tækifæri til að færa sig á
milli staða, eftir því sem aðstæður
þess breytast,“ segir Lilja en bætir
því við að vissulega sé kjarni starf-
seminnar á einum stað. Í því felist
hagkvæmni. Hún á von á því að í
framtíðinni muni verða einhver sam-
þjöppun á starfsemi bankans á
landsbyggðinni, að kjarnar á stærri
stöðum styrkist.
Morgunblaðið/Eggert
Höfuðstöðvar Landsbankinn hefur haft höfuðstöðvar við Austurstræti í Reykjavík frá árinu 1925.
Viljum vera þar sem
viðskiptavinir okkar eru
Bankastjóri Landsbankans segir að þjónustan breytist
Lilja Björk
Einarsdóttir
Ríkislögreglustjóri, í samráði við
sóttvarnalækni, hefur ákveðið að
færa almannavarnastig úr neyðar-
stigi niður á hættustig vegna kór-
ónuveirufaraldursins. Fjórir greind-
ust innanlands á fimmtudag með
veiruna en allir voru í sóttkví.
Neyðarstigi var lýst yfir 4. októ-
ber 2020 þegar þriðja bylgja farald-
ursins hófst og smitum tók að fjölga
verulega. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá almannavörnum. Þessi
breyting hefur þó ekki áhrif á þær
sóttvarnaráðstafanir, skv. reglu-
gerðum heilbrigðisráðherra, sem í
gildi eru.
Frá því að neyðarstigi var fyrst
lýst yfir, 6. mars 2020, hafa 6.033
smit verið staðfest, yfir 46.005 farið í
sóttkví og 488.851 sýni verið tekið
innanlands og á landamærum. Tutt-
ugu og níu einstaklingar hafa látist
vegna Covid-19. Hópsmit komu upp
á nokkrum stöðum frá því neyðar-
stig var sett á sem kallaði á hertar
sóttvarnareglur og frekari takmörk-
un á samkomum,“ segir í tilkynn-
ingu almannavarna.
Smitin sem greindust innanlands
á fimmtudag tengjast landamæra-
smiti og eru allir smituðu í sömu fjöl-
skyldu sem öll var í sóttkví. Þetta
staðfesti Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir í samtali við mbl.is.
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Lokið hefur verið við að bólusetja 5.538 Íslendinga.
Smit í sömu fjölskyldu
Almannavarnastig vegna faraldursins
fært af neyðarstigi niður á hættustig
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Almannavarnastig ríkislögreglu-
stjóra var í gær fært úr neyðarstigi
niður í hættustig. Ákvörðunin er
tekin í samráði við almannavarnir
og er til marks um þá góðu stöðu
sem uppi er í kórónuveirufaraldr-
inum á Íslandi um þessar mundir.
Neyðarstigið hafði verið í gildi frá 4.
október, þegar þriðja bylgja farald-
ursins fór að láta á sér kræla og
smitum fjölgaði hratt.
Nú er öldin önnur. Fjögur kór-
ónuveirusmit greindust að vísu á
fimmtudag, en þeir sem greindust
voru allir í sóttkví og tengdust sama
manni sem reyndist smitaður við
landamæraskimun. Aðeins hafa níu
smit greinst innanlands síðustu
tvær vikur, og nýgengi veirunnar
því um 2,5 (8,2 séu landamærasmit
meðtalin). Á uppfærðum lista Sótt-
varnastofnunar Evrópu sem gefinn
var út í gær fær Ísland, eitt landa,
græna einkunn en flest ríki álfunnar
eru rauð ef ekki dökkrauð.
Afhendingu bóluefna flýtt
Útlit er fyrir að Íslendingar fái
um 57 þúsund fleiri skammta af
bóluefni frá Pfizer á öðrum ársfjórð-
ungi en áður hafði verið gert ráð
fyrir. Það nægir til að bólusetja
nærri 28.500 manns.
Greint var frá því í gær að Evr-
ópusambandið hefði samið við Pfiz-
er um kaup á 200 milljónum
skammta af bóluefni umfram það
sem áður hafði verið samið um, og
auk þess kauprétt að 100 milljónum
skammta til viðbótar. Hluta þessa
verður úthlutað strax á öðrum árs-
fjórðungi.
Í frétt norska ríkisútvarpsins seg-
ir að Norðmenn fái 840.000
skammta til viðbótar frá Pfizer á
öðrum ársfjórðungi. Þar sem bólu-
efnum er úthlutað til Evrópuríkja í
beinu hlutfalli við íbúafjölda má
ætla að það samsvari um 57 þúsund
skömmtum fyrir Ísland.
Bresk-sænska lyfjafyrirtækið
AstraZeneca hefur enn fremur gefið
út að það hafi nú „fundið“ fleiri
skammta af bóluefni í verksmiðjum
sínum og muni geta aukið fram-
leiðslu sína um allt að 50% frá því
sem til stóð.
Evrópusambandið hefur beitt
fyrirtækið miklum þrýstingi fyrir að
hafa ekki getað staðið við fyrri af-
hendingaráætlanir.
170.000 bólusettir fyrir sumar
Sé miðað við áætlanir Norðmanna
um heildarfjölda bólusettra fyrir
sumarið ættu um 170.000 Íslending-
ar að hafa fengið bólusetningu fyrir
sumarið eftir nýjustu tíðindi.
Heilbrigðisráðherra hefur ítrekað
talað um að þorri þjóðarinnar verði
bólusettur fyrir lok annars ársfjórð-
ungs, þ.e. júnílok, án þess þó að
treysta sér til að gefa skýrari fyrir-
heit. Ljóst er þó að búist er við að
bólusetningar komist á skrið í vor.
Enn sem komið er hafa aðeins 5.538
lokið bólusetningu á Íslandi, en
3.010 til viðbótar fengið fyrri
skammt af tveimur.
Neyðarstigi vegna veirunnar aflétt
Hættustig í stað neyðarstigs Engin áhrif á takmarkanir Fjögur smit í gær – allir í sóttkví
Ísland eina græna landið í Evrópu Pfizer og AstraZeneca fjölga skömmtum til Íslands og ESB
Morgunblaðið/Eggert
Bylgjulok Ekki er lengur talin ástæða til að viðhalda neyðarstigi almanna-
varna vegna veirunnar. Táknræn endalok þriðju bylgju, segði einhver.