Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 18
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Smátt og smátt er 24 metra trefja- plastbátur að taka á sig mynd í Þor- lákshöfn. Trúlega er um stærsta trefjaplastbát að ræða sem smíðaður hefur verið á Íslandi og líklega stærsta fiskibát sem smíðaður hefur verið hérlendis síðustu þrjá áratugi eða svo. Á margan hátt er horft til framtíðar við hönnun og smíði báts- ins. Ingimundur Árnason og fyrirtæki hans, Ausus ehf., standa að smíði bátsins, en fyrirtækið Dug og Ómar Níelsson annast verkefnastjórn og smíði sem undirverktaki. Báturinn er smíðaður fyrir Manus útgerð, sem Ingimundur á ásamt félögum sínum, og gerir fyrirtækið bátinn Regin ÁR-228 út frá Þorlákshöfn. Ingimundur segir að stefnt sé að því að sjósetja bátinn í ágústmánuði og setja niður vélar og gera hann kláran fyrir lok ársins. Hann hyggst sjálfur gera bátinn út ásamt félögum sínum, en segist vona að fleiri sýni bátum sem þessum áhuga og að fleiri bátar verði byggðir í skemm- unni stóru í Þorlákshöfn. Nokkrir útgerðarmenn hafi litið þar inn og spurst fyrir um smíðina. Ingimund- ur telur líklegt að fullbúinn kosti báturinn um eða yfir 400 milljónir króna. Stend og fell með þessu Hann segir að með nýja bátnum sé stigið stórt skref inn í framtíðina, en báturinn verði umhverfisvænn, ódýr í rekstri og viðhaldsléttur. Mik- il breyting verði á þessum báti og gamla Regin, sem smíðaður var á Ísafirði fyrir hálfri öld og er 17 metra stálbátur. Kvótinn á honum er um 400 þorskígildistonn og segir Ingimundur að nýi báturinn geti afl- að mun meira en sem því nemur. „Ég stend og fell með þessu,“ segir Ingimundur, sem er 75 ára gamall. Báturinn verður að mestu rafdrif- inn og er framdrifsbúnaðurinn 400 kw rafmótor og rafgeymar sem hægt verður að hlaða í landi. Einnig verða ljósavélar um borð sem hægt er að nota til að hlaða inn á raf- geyma. Báturinn er hannaður af Skipasýn ehf. og er fjölnota skip fyrir ýmis veiðarfæri og einnig fyrir farþega ef því er að skipta. Fljótlegt og auðvelt verður að skipta um veiðarfæri þar sem þau verða í sérstökum einingum sem hægt verður að hífa í heilu lagi til og frá borði. Nýsköpun í skipasmíðum Ómar Níelsson hjá Dug hf. segir að um mikla nýsköpun í skipa- smíðum hér á landi sé að ræða. Skrokkurinn og allt burðarvirki sé steypt úr tvöföldu plasti með kjarna á milli. Kjarninn sé notaður til að forma skipið og síðan steypt á hann sitt hvorum megin með trefjaplasti. Kjarninn verði bæði einangrun og hluti af burðarvirki skipsins. Efnið í kjarnanum kemur frá Infuse ehf. og segir Ómar að 83% af burðarefni og einangrun skipsins séu endurunnið plast úr gosflöskum. Í skipið fari efni sem samsvari um 360 þúsund flösk- um. Báturinn verður 23,9 metra lang- ur og átta metra breiður. Þvermál skrúfu 2,5 metrar og djúprista 3,5 metrar. Lestin tekur 55-60 tonn af fiski. Um 55% af steypuvinnu er lok- ið og þá tekur við frágangur á vélum og búnaði. Með Ómari við skipa- smíðina starfa fjórir pólskir iðn- aðarmenn, sem Ómar segir að hafi mikla reynslu af plastsmíði. Þess má geta að í byrjun síðasta árs hóf nýr Bárður SH 81 róðra frá Ólafsvík. Hann var smíðaður í Rødby í Danmörku 2019 og er stærsti trefjaplastbátur sem smíð- aður hefur verið fyrir Íslendinga, tæplega 27 metra langur og sjö metra breiður. Tölvumynd/Skipasýn Fjölnota Í skut bátsins verður á fljótlegan hátt hægt að skipta um einingar fyrir ólík veiðarfæri. Ljósmynd/Ómar Níelsson Mörg handtök Fyrir nokkru var steypt utan á kjöl og neðsta hluta bátsins. Stórt skref inn í framtíðina  Stór umhverfisvænn plastbátur í smíðum í Þorlákshöfn  Að mestu rafdrifinn  Plast úr 360 þúsund gosflöskum Skipasmíðar Ingimundur Árnason og Ómar Níelsson við nýja bátinn. Stefnt er að því að hann verði sjósettur í ágústmánuði og verði tilbúinn í lok ársins. 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Faglegar heildarlausnir – allt á einum stað. Samkeppnishæf verð. Fáðu tilboð án allra skuldbindinga. Starfsfólk með áratuga reynslu og þekkingu, góð eftirfylgni og verkstjórn. IÐNAÐAR- OG NÝBYGGINGAÞRIF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.