Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Smoothease
ONE-SIZE buxur frá Fantasie
Nærbuxur í einni stærð, henta XS-XL
Sérstaklega mjúkar og teygjanlegar
Nokkrir litir í boði.
Verð 2.850,- stk.
Daði Már Kristófersson, varafor-maður Viðreisnar, hagfræði-
prófessor og tilvonandi frambjóð-
andi, var í viðtali á
Stöð 2 á miðvikudag,
þar sem hann flutti
þann fyrirsjáanlega
boðskap, að sér
þættu veiðigjöld of
lág og því yrði að
breyta með stjórn-
arskrárbreytingu,
enda hefði nágrannalöndunum vegn-
að betur með öðruvísi gjaldtöku.
Rökvísin þar að baki er óljós, Al-þingi getur fiktað í veiðigjöld-
unum að vild án fyrirmæla í stjórn-
arskrá. Eins sætir sjávarútvegur í
nágrannalöndunum ekki sérstakri
gjaldtöku umfram aðra atvinnuvegi
líkt og hér. Öðru nær, því þar er
sjávarútvegur alls staðar rækilega
niðurgreiddur af skattgreiðendum.
Varla er það það, sem Viðreisn vill?
Helgi Áss Grétarsson lögmaðurspyr í grein í Vísi til hvaða ná-
grannalanda hafi verið vísað, þar
komi Færeyjar einar til greina.
Hann segir: „Ástand verðmætustu
botnfisktegunda (þorskur, ýsa og
ufsi) á færeysku heimamiðunum
[hefur] lengi verið óviðunandi. Sókn-
ardagakerfi hefur verið við lýði við
stjórn þessara veiða og hefur enginn
auðlindaskattur verið lagður á þá
sem stunda þær. Árið 2016 [setti]
færeyska heimastjórnin hins vegar
[…] tiltekið magn aflaheimilda á
uppboð í uppsjávartegundum og í
tegundum sem eru veiddar utan
færeysku fiskveiðilandhelginnar.
[… Þessi] stefna er á engan hátt
óumdeild í Færeyjum og ekki hefur
verið sýnt fram á, með ótvíræðum
hætti, að hún hafi skilað þeim
árangri sem vænst var.“
Hér kemur aðeins tvennt tilgreina: Frambjóðandinn og
fræðimaðurinn veit þetta ekki eða,
sem verra er, hann veit betur.
Daði Már
Kristófersson
Fræðimaður
fer í framboð
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bótaskylda þýska eftirlitsfyrirtæk-
isins TÜV Reihnland gagnvart 203
íslenskum konum sem höfðuðu mál
vegna skaðlegra brjóstapúða var
viðurkennd fyrir áfrýjunardómstól í
Frakklandi í vikunni. Lögmaður
kvennanna segir að um mikilvægan
áfangasigur sé að ræða.
Yfir 400 íslenskar konur fengu
svokallaða PIP-púða í brjóstastækk-
un hér á landi á árunum 2000 til
2010. Síðar kom í ljós að púðarnir
láku og voru fullir af iðnaðarsílíkoni
sem ekki er ætlað til lækninga.
„Auðvitað er þetta ótrúlega mikill
áfangasigur í þessu máli. Að því
sögðu þá geri ég fastlega ráð fyrir
því að TÜV Reihnland áfrýi til
Hæstaréttar Frakklands,“ segir
Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður
kvennanna.
Hún ítrekar að málið snúist ein-
ungis um viðurkenningu á bóta-
skyldu TÜV Reihnland. Það verði
síðan lækna að meta fjárhæð bóta í
hverju tilfelli fyrir sig.
Mikilvæg niðurstaða
Saga segir mikilvægt að vinna
málið hjá áfrýjunardómstóli, en í
fyrri málsókn vegna púðanna tapað-
ist málið á því dómstigi.
Hún segir að til skoðunar sé að
bæta fleiri konum við, en fyrst verði
farið yfir forsendurnar í þessu máli.
„Þetta er búið að vera í umræðunni
og það hefði örugglega verið gert
fyrr ef ekki væri fyrir Covid-19, en
maður vill stíga varlega til jarðar áð-
ur en maður gerir fleiri konum það
að fara að afla gagna,“ segir Saga.
Í umfjöllun þýska miðilsins DW
kemur fram að TÜV Rheinland þurfi
nú að greiða milljónir evra í bætur til
alls 13.000 kvenna í kjölfar dóms
áfrýjunardómstólsins í gær. Saga
segir að íslensku konurnar séu hluti
þessa hóps, en að ekki sé um nýja
niðurstöðu að ræða. liljahrund-
@mbl.is
„Mikilvægur
áfangasigur“
Bótaskylda vegna brjóstapúða viðurkennd
AFP
Gallaðir PIP-brjóstapúðar.
Töluvert hægði á fasteignavið-
skiptum á landinu í janúar síðast-
liðnum og fækkaði gerðum kaup-
samningum um 28,8% frá því í
desember og fasteignaveltan lækk-
aði um 8,1%.
Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði
samningum um 30,7% á milli mán-
aða og veltan lækkaði um 37,7%.
Þetta kemur fram í upplýsingum
sem Þjóðskrá hefur tekið saman og
birti í gær um veltu á fasteigna-
markaði eftir landshlutum í seinasta
mánuði.
Fleiri kaupsamningar en í sama
mánuði á síðasta ári
Fram kemur að fjöldi fasteigna
sem gekk kaupum og sölum á land-
inu öllu var 967 talsins og var upp-
hæð viðskiptanna um 68,6 millj-
arðar króna þegar miðað er við
útgáfudagsetningu. Fasteigna-
viðskipti dragast oft saman í fyrsta
mánuði ársins miðað við undan-
gengna mánuði. Heildarvelta fast-
eignaviðskipta í janúar sl. á höfuð-
borgarsvæðinu nam tæplega 36
milljörðum króna og voru 25,7
milljarðar vegna íbúðarkaupa í
fjölbýli. Kaupsamningar á höf-
uðborgarsvæðinu voru 620. Til
samanburðar voru gerðir 529 kaup-
samningar í janúar í fyrra á höf-
uðborgarsvæðinu og heildarveltan
nam þá rúmum 27 milljörðum.
Hægði á fasteignaviðskiptum í janúar
Kaupsamningum fækkaði um 28,8% og veltan lækkaði um 8,1% milli mánaða
Morgunblaðið/Ómar