Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Lagarfoss, flutningaskip Eimskips,
hélt af stað í prufusiglingu í gær-
morgun að lokinni viðgerð. Skipið
hefur verið stopp vegna vélarbilunar í
einn og hálfan mánuð. Skipta þurfti
um sveifarás í vélinni.
Ef allt gengi að óskum var stefnt
var að því skipið sigldi á ströndina í
gærkvöldi. Komið verður við í nokkr-
um höfnum á landinu og að því búnu
siglir skipið til Færeyja og Bretlands
en það siglir á gulu leiðinni hjá Eim-
skip.
Það var sunnudaginn 27. desember
sl. að Lagarfoss varð vélarvana um
230 sjómílur suðvestur af Garðskaga.
Skipið var þá á leið til Kanada og
Bandaríkjanna fulllestað vörum.
Þegar ljóst varð að viðgerð bar
ekki árangur var varðskipið Þór kall-
að út til aðstoðar. Tók Þór Lagarfoss
í tog og komu skipin til Reykjavíkur
30. desember. Lá skipið í Sundahöfn
á meðan viðgerð fór fram.
Í ljós kom að alvarleg bilun varð í
sveifarási í vélinni og þurfti að skipta
um hann. Sveifarásinn, sem er um
átta metrar að lengd og um 11 tonn
að þyngd, var fluttur til Íslands frá
Þýskalandi. Orsök bilunarinnar ligg-
ur ekki fyrir en gamli sveifarásinn
verður sendur til Þýskalands til frek-
ari skoðunar, segir Edda Rut Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri sam-
skiptasviðs Eimskips.
Eimskip er tryggt fyrir svona
óhöppum, að sögn Eddu Rutar. Ekki
liggur fyrir hve tjónið er mikið.
Sveifarás er mjög mikilvægur hluti
aflvéla skipa. Í alfræðiritinu Wiki-
pedíu er honum lýst sem ás í bruna-
hreyfli, knúinn af aflslagi stimpla,
sem sér um að koma afli frá stimplum
til kasthjóls (svinghjóls). Hann sér
einnig um að snúa kambási, vatns-
dælu, rafal og stundum viftu, loftkæl-
ingu og forþjöppu.
Lagarfoss er 10.106 brúttótonn.
Skipið var smíðað í Kína 2014.
Nýr sveifarás 11 tonn
Viðgerð er lokið á Lagarfossi Fer strax á ströndina
Ljósmynd/Mats Svensson
Vélarrúmið Það var mikið verk að koma sveifarásnum fyrir í vél Lagarfoss enda stykki sem vegur heil 11 tonn.
Morgunblaðið/sisi
Sundahöfn Lagarfoss lá við Vatna-
garðabakka vegna viðgerðarinnar.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn hafði marg-
vísleg áhrif á rekstur Landspítalans
í fyrra, samkvæmt starfsemis-
upplýsingum Landspítala fyrir des-
ember 2020. Tæplega 300 ein-
staklingar þurftu innlögn á spítalann
í fyrra og 17% þeirra stuðning á
gjörgæslu, að því er Páll Matthías-
son forstjóri sagði í forstjórapistli.
Þetta hafði gríðarlega mikil áhrif á
rekstur spítalans sem alla jafna
keyrir á yfir 100% nýtingu rýma.
Meðalfjöldi inniliggjandi sjúk-
linga á dag árið 2020 var 560 eða
6,8% færri en árið 2019 þegar meðal-
fjöldinn var 601. Legudagar á legu-
deildum og bráðadeild í Fossvogi
voru 8,4% færri í fyrra en árið 2019.
Hlutfall sjúklingadaga í þyngstu
hjúkrunarþyngdarflokkunum (IV og
V) jókst hins vegar um 12% milli ára,
samkvæmt starfsemisupplýsing-
unum. Komur á allar bráðamóttökur
Landspítalans voru 14,6% færri árið
2020 en þær voru 2019. Komum á
göngudeildir fækkaði um 10,3% á
milli ára og komum á dagdeildir um
8,6%. Þá voru skurðaðgerðir 9,7%
færri árið 2020 en þær voru árið
2019.
Rannsóknir á þjónustusviði, það
er allar rannsóknir sem gerðar voru
á LSH, fyrir sjúklinga LSH og aðra
landsmenn auk aðsendra sýna, voru
13% fleiri árið 2020 en þær voru
2019. Fjöldi rannsókna í fyrra var
2.965.667 eða 340.377 fleiri en árið
áður.
Þrjár bylgjur faraldursins
Landspítalinn var á óvissustigi í
lok ársins 2020 vegna Covid-19-
faraldursins. Áður hafði spítalinn
verið settur á neyðarstig í fyrsta
skipti í sögu hans en það var í gildi
25. október til 12. nóvember. Hættu-
stig tók svo við og gilti 13.-23. nóv-
ember þegar spítalinn var settur á
óvissustig.
Í fyrstu bylgju faraldursins var
101 sjúklingur á spítalanum með Co-
vid-19. Fjórir áttu endurinnlögn
þannig að legur vegna sjúkdómsins
voru alls 105. Sjúklingarnir voru all-
ir í einangrun og meðhöndlaðir á
sérútbúnum legudeildum eða gjör-
gæslu. Alls fóru 27 þessara sjúklinga
á gjörgæslu og þurftu 15 þeirra að
fara í öndunarvél. Sjö létust vegna
sjúkdómsins. Flestir útskrifuðust á
Reykjalund eða heim.
Faraldurinn fór aftur á flug í
ágúst 2020. Í árslok voru legur í
bylgjum 2 og 3 orðnar samtals 193.
Þá hafði 21 lagst á gjörgæslu, þar af
fóru 11 í öndunarvél. Enginn lést
vegna sjúkdómsins á Landspítala í
annarri bylgju en andlát í þriðju
bylgju voru orðin 18 í lok ársins. Af
þeim tengdust 14 andlát hópsýking-
unni á Landakoti.
Covid-19 göngudeildin í Birkiborg
hefur tekið á móti sjúklingum með
Covid-19, sinnt skimunum og eftirliti
og stuðningi í gegnum síma. Yfir sex
þúsund manns hafa verið í slíku
símaeftirliti. Símtölin eru orðin um
35 þúsund það sem af er.
Faraldurinn hafði
margvísleg áhrif
Færri komur á Landspítala 2020 en
2019 en rannsóknum fjölgaði mikið
Morgunblaðið/Eggert
Landspítali Færri komu á bráða-
móttökur spítalans 2020 en 2019.
Biskup Íslands hefur auglýst laust
til umsóknar embætti sóknarprests
við Reykholtsprestakall í Borgar-
firði. Umsóknarfrestur er til mið-
nættis 25. febrúar 2021.
Miðað er við að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst, en í síðasta
lagi þremur mánuðum eftir að
niðurstaða um ráðningu liggur fyr-
ir.
Það er orðið æði langt síðan aug-
lýst var eftir presti í Reykholt síð-
ast. Séra Geir Waage lét af embætti
um áramótin síðustu fyrir aldurs
sakir. Hann hafði þá setið staðinn
frá nóvember 1978, eða í 42 ár.
Séra Jón Ragnarsson gegnir þar
prestsþjónustu uns nýr sóknar-
prestur verður kjörinn.
Kirkjuþing samþykkti á fundi
sínum í nóvember sl. tillögu biskups
um að Hvanneyrar- og Reykholts-
prestakall í Borgarfirði sameinist í
eitt nýtt prestakall, Reykholts-
prestakall. Í prestakallinu eru sex
sóknir; Bæjarsókn, Fitjasókn,
Hvanneyrarsókn, Lundarsókn,
Reykholtssókn og Síðumúlasókn.
Kirkjur hafa staðið í Reykholti
frá upphafi kristni.
Breiðabólstaðargoðar byggðu þar
kirkjur og fimm þeirra voru prest-
ar þeirra, þar til sóknin var seld
Snorra Sturlusyni árið 1206.
Tvær kirkjur eru nú í Reykholti:
Reykholtskirkja eldri sem reist var
árið 1886 og Reykholtskirkja yngri
sem vígð var árið 1996. Uppbygg-
ing nýrrar kirkju með áföstu
Snorrasafni og fræðasetri hófst
1988. Eldri kirkjan hefur verið í
vörslu Þjóðminjasafns Íslands síðan
árið 2001. sisi@mbl.is
Laust embætti
í Reykholti
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykholt Nýja kirkjan á staðnum
við Snorrasafnið var vígð 1996.
Fráfarandi prestur var þar í 42 ár