Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 11
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgdu okkur á facebook
NÝTT Í LAXDAL
Fisléttar dúnúlpur
og -jakkar
Skoðið laxdal.is
ÚTSÖLUVÖRUR
VERÐHRUN
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝ SENDING
Ullarpeysa
Verð: 22.980
Opið 11-14
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Algjört
VERÐHRUN
á útsölu
Aðeins 6 verð
1.000.-
2.000.-
3.000.-
4.000.-
5.000.-
6.000.-
Síðustu dagarnir
Fulltrúar launamanna í stjórn
Birtu lífeyrissjóðs
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að
taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2021 til 2023.
Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.9) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta
tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu
og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu
stjórnarmanna.
Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára, einn
stjórnarmann (karl) til eins árs og einn varamann (karl) til tveggja ára í stjórn sjóðsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð á útfylltu
framboðseyðublaði, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið
valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 18. febrúar 2021.
• vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð.
• ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar.
• vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv.
31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim
kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum
lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar.
• Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir
uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu.
Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og
sjóðinn má finna á vefnum birta.is
ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU
Birta lífeyrissjóður I Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta.is
Matvælastofnun hefur veitt Ögg
ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á
Kjarvalsstöðum við Hjaltadalsá í
Hjaltadal. Matvælastofnun auglýsti
tillögu að rekstrarleyfi á vef stofn-
unarinnar 5. október 2020 og var
frestur til að skila inn athugasemd-
um til 2. nóvember 2020.
Öggur ehf. sótti um nýtt rekstr-
arleyfi vegna 12 tonna hámarks-
lífmassa á seiða- og matfiskeldi á
bleikju á Kjarvalsstöðum.
Úttekt starfsstöðvar hefur farið
fram og staðfestir Matvælastofnun
gildistöku rekstrarleyfis Öggs ehf.,
segir á vef MAST. Starfsemin er
einnig háð starfsleyfi Umhverfis-
stofnunar. Heimilt er að kæra
ákvörðun MAST til úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlinda-
mála.
Leyfi til fiskeldis á Kjarvalsstöðum
Fiskeldi MAST hefur gefið leyfi til bænda
á bænum Kjarvalsstöðum í Hjaltadal.
Ragnhildur Þrastardóttir
Alexander Kristjánsson
Dómsmál Jóns Baldvins Hanni-
balssonar gegn dóttur sinni, Aldísi
Schram, og Sigmari Guðmunds-
syni, fréttamanni á Ríkisútvarp-
inu, er prófmál á tjáningarfrelsið,
einn hornstein lýðræðisins. Þetta
sagði Gunnar Ingi Jóhannsson,
lögmaður Aldísar, í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær á síðari degi að-
almeðferðar í málinu.
Jón Baldvin höfðaði meiðyrða-
málið vegna ummæla sem féllu í
Morgunútvarpi Rásar 2 19. janúar
2019, þar sem Aldís lýsti sifjaspell-
um auk nauðungarvistunar sem
hún segir Jón Baldvin hafa farið
fram á að hún sætti.
Sagði Gunnar, lögmaður Aldísar,
að niðurstaða dómsins myndi leiða
í ljós hvort mál manns sem hefur
verið sakaður um kynferðisbrot af
tugum kvenna væri æðra tjáning-
arfrelsi kvennanna.
Benti hann enn fremur á að Jón
Baldvin væri opinber persóna.
„Stefnandi þessa máls er ekki ein-
hver maður úti í bæ,“ sagði Gunn-
ar Ingi og hélt áfram: „Hann er
ekki maður úti í bæ sem kveikti á
útvarpinu einn góðan veðurdag og
það var allt í einu verið að tala um
hann.“
Þá fór Gunnar í máli sínu yfir
þau tímamót sem urðu á heimsvísu
þegar MeToo-byltingin reið yfir.
Hún hefði gert þolendum kynferð-
isbrota kleift að segja frá reynslu
sinni
„Það er mjög erfitt fyrir brota-
þola, sérstaklega þegar gerandi er
þjóðþekkt persóna, að koma á
framfæri frásögnum eins og þess-
um því aðstöðumunurinn er svo
mikill,“ sagði Gunnar Ingi.
Engin tengsl við MeToo
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lög-
maður Jóns Baldvins, hafnaði
málatilbúnaðinum og sagði að þótt
Jón Baldvin væri opinber persóna
ætti hann ekki að þurfa að sitja
undir ærumeiðandi ummælum.
Þá taldi hann meiðyrðamálið
gegn Aldísi og Sigmari ekkert
skylt MeToo-hreyfingunni.
Við réttarhöld í dag sagði Vil-
hjálmur að Jón Baldvin hefði aldr-
ei verið dæmdur fyrir kynferðis-
brot. Hann hefði einu sinni verið
ákærður en því máli verið vísað
frá. Vissulega hefði sú ákvörðun
nú verið kærð til Landsréttar og
sé málið til meðferðar þar.
Enginn taki lengur mark á
meintri geðveiki Aldísar
Gunnar Ingi, lögmaður Aldísar,
benti hins vegar á að fjöldi kvenna
hefði stigið fram og sakað hann
um kynferðisbrot. Svo margar
raunar að Jón Baldvin nyti „þess
vafasama heiðurs“ að halda Ís-
landsmeti í fjölda ásakana um kyn-
ferðisbrot. Ásakanirnar væru ekki
nýjar og hefðu lengi verið í um-
ræðunni.
Enginn hlustaði lengur á þær
skýringar Jóns Baldvins að rót
þeirra allra væru meint geðræn
vandamál Aldísar.
Reynir á ábyrgð blaðamanna
Auk þess að taka á rétti fólks til
að tjá sig um meint ofbeldi sem
það hefur orðið fyir, án þess að
dæmt hafi verið fyrir brotið, mun
dómurinn einnig þurfa að taka af-
stöðu til ábyrgðar fjölmiðla sem
gefa fólki færi á að segja frá sinni
hlið máls. Í stefnunni fer Jón
Baldvin fram á að Ríkisútvarpið
fyrir hönd Sigmars greiði honum
2,5 milljónir króna í miskabætur
vegna ummæla sem féllu í viðtal-
inu við Aldísi. Við aðalmeðferðina í
gær sagði lögmaður hans að öll
ummælin sem Jón Baldvin hefði
stefnt fyrir hefðu falið í sér ásak-
anir um lögbrot og ljóst að Sigmar
bæri ábyrgð á þeim ummælum
sem hann „samdi og las í eigin
nafni“.
Því hafnaði lögmaður Sigmars,
Stefán A. Svensson. Ljóst væri að
Sigmar hefði vitnað í ummæli Al-
dísar þegar hann flutti fréttir af
málinu og væri hann því ekki brot-
legur.
Reynir því hér enn á ábyrgð
blaðamanna vegna ummæla sem
höfð eru eftir viðmælendum, en
dómar í slíkum málum hafa fallið á
báða bóga hér á landi og hefur
Mannréttindadómstóll Evrópu í
nokkrum tilvikum komist að því að
brotið hafi verið gegn tjáningar-
frelsi fjölmiðlafólks með því að
gera það ábyrgt fyrir ummælum
sem höfð voru eftir nafngreindum
viðmælendum.
„Ekki einhver maður úti í bæ“
Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Jóns Baldvins Tekist á um réttinn til að tjá sig
um meint brot Ábyrgð fjölmiðla á ummælum viðmælenda einnig undir í málinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Héraðsdómur Jón Baldvin Hanni-
balsson gaf skýrslu fyrir dóminum.