Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
✝ Gunnar Jó-hannesson
fæddist í Reykja-
vík 4. febrúar
1936. Hann and-
aðist á heimili
sínu í Seattle í
Bandaríkjunum
30. janúar 2021.
Foreldrar hans
voru Jóhannes
Sigurðsson sím-
virki, f. 1. febrúar
1899, og Guðbjörg Bárð-
ardóttir saumakona, f. 23.
apríl 1895. Systir Gunnars
var Sigrún, f. 28. október
1933, d. 28. júlí 2014.
Gunnar kvæntist Rósu Sig-
urðardóttur, f. 19. febrúar
1936, hinn 16. júní 1956.
Rósa lést 24. febrúar 2014 í
heimabæ sínum í Seattle í
Bandaríkjunum.
Gunnar útskrifaðist sem
loftskeytamaður og raf-
eindavirki og starfaði sem
slíkur mestalla sína starfs-
ævi. Hann var virkur með-
limur í Flugbjörgunarsveit-
inni í Reykjavík og sá lengst
af um talstöðvar sveit-
arinnar.
Börn Gunnars
og Rósu eru: 1)
Sandra, f. 12.
apríl 1958, maður
Pétur Hall-
grímsson, börn
Söndru frá fyrra
hjónabandi eru
Arnar, Sigurrós
og Olgeir Sturla.
2) Birgir, f. 6.
desember 1961,
kvæntur Svövu
Björgu Sveinsdóttur Jóhann-
esson, börn þeirra eru
Sandra Dögg, Sveinn Ben,
Gunnar Ben og Kristján Ben.
3) Haukur, f. 15. júlí 1963,
kvæntur Lisu McKeirnan,
sonur Hauks frá fyrra hjóna-
bandi er Ódinn. Barna-
barnabörn þeirra eru 13 og
eitt barnabarnabarn.
Gunnar og Rósa fluttust til
Seattle í Bandaríkjunum árið
1978 og hafa búið þar síðan.
Þar var Gunnar meðal ann-
ars meðstofnandi Marel
Seattle.
Útförin fór fram í kyrrþey
í heimabæ hans, Seattle.
Minningarathöfn verður
haldin á Íslandi síðar.
Gunnar Jóhannesson er fall-
inn frá eftir skamma baráttu
við erfiðan sjúkdóm. Gunnar í
Seattle, eins og við gjarnan
kölluðum hann, kom inn í líf
okkar í árdaga útrásar Marels.
Með samstarfi við hann var
stofnað til kynna og vináttu
sem entist fram til æviloka.
Gunnar flutti til Seattle
1978. Hann var lærður raf-
eindavirki og hafði starfað sem
slíkur á Íslandi. Gunnar var
einn af frumkvöðlum Flug-
björgunarsveitarinnar og nýtti
m.a. þekkingu sína til að fara
með fyrstu heimasmíðuðu ber-
anlegu talstöðina inn á hálendi
Íslands.
Gunnar stundaði í upphafi
sjómennsku en síðar stofnaði
hann fyrirtækið Gunnar
Electronics sem tók að sér
þjónustu á Marelbúnaði á hin-
um vaxandi markaði fyrir
skipavogir. Rússneski flotinn
kynnist síðan skipavoginni í
gegnum Seattle. Skipavogin
var hornsteinn í tekjuöflun
Marels á þessum árum, skap-
aði möguleika til vaxtar og
frekari þróunar félagsins.
Það var gríðarlegt lán að
leiðir Marels og Gunnars lágu
saman. Gunnar tók sitt þjón-
ustuhlutverk mjög alvarlega,
lagði alla sína krafta sem og
fjölskyldunnar fram við að
tryggja bestu þjónustu. Síðar
tók hann við sölunni líka og
var það gæfuspor fyrir báða
aðila.
Minnisstæð eru fyrstu kynni
Gunnars af skipavoginni.
Kennslan fór fram á pool-borði
í kjallara Gunnars.
Þar var vogin rifin í tætlur
og sett aftur saman. Eftir það
varð ekki aftur snúið, Gunnar
var okkar maður. Óhætt er að
segja að með Gunnari var lagð-
ur grundvöllur að þeim miklu
sigrum Marels á fyrstu árum
fyrirtækisins. Síðar meir var
samkomulag um að Marel
keypti rekstur Gunnar
Electronics sem gerði Gunnari
og Rósu konu hans kleift að
hægja á ferðinni.
Fyrir okkur var Gunnar
ekki einungis mikill fagmaður,
heldur var hann einstaklega
hress og mikill gleðigjafi.
Hann opnaði heimili sitt fyrir
okkur þegar við áttum leið um
Seattle og þar var gestrisni,
gleði og bjartsýni í fyrirrúmi
hjá Gunnari og Rósu. Gunnar
var mikill Íslendingur í sér,
hjartað var alltaf þar. Hann
var einstaklega glöggur og
minnugur á land og staðhætti
og gat rakið helstu kennileiti
og fjöll á hálendinu eftir ferðir
á vegum Flugbjörgunarsveitar-
innar mörgum áratugum áður.
Á 60 ára afmæli Gunnars fór-
um við með hann í óvissuferð á
nútímajeppa þvert yfir Vatna-
jökul og var það ógleymanlegt
hvernig Gunnar naut ferðar-
innar á skyrtunni og blank-
skóm, ferð sem tók dagpart, en
hefði tekið vikur áður fyrr.
Í raun var Gunnar einn af
fáum Íslendingum sem nýttu
sér hin miklu tækifæri sem
sköpuðust í Seattle við eflingu
útgerðar og fiskiðnaðar. Gunn-
ar sá tækifærið í að stofna sitt
eigið fyrirtæki og reka það af
miklum myndarskap.
Gunnar var mjög virkur
meðal Íslendinga í Seattle.
Hann var alltaf til taks í Ís-
lendingasamfélaginu þegar
mikið lá við. Hann var afar
stoltur af Rósu sinni þegar hún
fór í hlutverk fjalldrottningar-
innar við heimsókn Vigdísar
forseta til Seattle 1983 og flutti
henni ljóð.
Við vottum Söndru, Birgi og
Hauki og fjölskyldum þeirra
okkar innilegustu samúð og
vonum að hann sé aftur kom-
inn í faðm Rósu sinnar. Bless-
uð sé minning Gunnars.
Lárus Ásgeirsson
og Pétur Guðjónsson.
Gunnar
Jóhannesson
Elsku amma
Mæsa.
Mikið á ég eftir
að sakna þín. Það
eru ófáar minning-
ar sem renna um huga mér þeg-
ar ég hugsa til þín, alveg frá því
að ég man fyrst eftir mér. Ég
man hvað ég hlakkaði alltaf til
að koma í heimsókn til þín á
Sauðárkrók og fá kjúkling og
franskar. Það einhvern veginn
náði enginn að gera það jafn vel
og þú. Eða þegar ég heimsótti
þig á Álfhólsveginn og við hlust-
uðum á Pál Óskar og Milljóna-
mæringana, það er ein af mínum
sterkustu minningum úr barn-
æsku.
Það var svo gaman að sitja
með þér yfir funheitum kaffi-
bolla og hlusta á þig rekja ættir
María J.
Valgarðsdóttir
✝ María J. Val-garðsdóttir
fæddist 28. apríl
1952. Hún lést 26.
desember 2020. Út-
för Maríu fór fram
9. janúar 2021.
fólks sem þú hafðir
aldrei hitt. Þú varst
svo klár. Það var og
hefur alltaf verið
svo afskaplega gott
að vera í kringum
þig. Það var líka
svo yndislegt að sjá
hvað þú varst góð
við Garðar Leó og
hin barnabarna-
börnin, þeim þótti
svo afskaplega
vænt um þig.
Við töluðum alltaf um það
þegar ég var gutti að ég myndi
leiða þig yfir götuna þegar þú
yrðir gömul kona, við náðum því
einu sinni rétt áður en þú
kvaddir okkur.
Mér þykir gott að hugsa til
þess að þú sért loksins komin til
Óla frænda. Ég veit að hann og
Raggi afi taka á móti þér með
opnum örmum.
Gæi litli biður að heilsa elsku
langömmu sinni.
Ég elska þig, amma.
Þinn
Ólafur (Óli).
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍN BJARNADÓTTIR
kennari,
frá Blöndudalshólum,
Bólstaðarhlíð 41,
lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 8. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju 19. febrúar klukkan 13.
Sigurjón Hauksson Sigrún Hrafnsdóttir
Bjarni Hauksson Laufey Hafsteinsdóttir
Anna Ágústa Hauksdóttir Magnús Gissurarson
Árni Guðmundur Hauksson Yoko Ozaki
barnabörn og langömmubörn
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTA HEIÐUR TÓMASDÓTTIR,
áður til heimilis á Rekagranda 5,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 9. febrúar á Hrafnistu
í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16.
febrúar kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Báruhrauns á Hrafnistu í
Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun.
F.h. aðstandenda,
Linda Guðný Róbertsdóttir Kjartan Heiðar Haraldsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR K. HJARTARSON
bifreiðarstjóri,
Fossvegi 8, Selfossi,
áður Bakkaseli 24 Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 28. janúar, verður
jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 17. febrúar
klukkan 13. Jarðsett verður í Laugardælakirkjugarði í Flóa að
athöfn lokinni. Ekki verður streymt frá athöfninni en allir
ættingjar og vinir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Þ. Harpa Jónsdóttir
Hjörtur V.W. Vilhjálmsson Sangwan Wium
Ragnhildur Vilhjálmsdóttir Ingibjörn Jóhannsson
Gunnar Örn Vilhjálmsson
Jón Vilhjálmsson Súsanna Gunnarsdóttir
Kristinn Þ. Vilhjálmsson Anna Lilja Rafnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN ÓSKAR ÁGÚSTSSON
frá Svalbarði, Vatnsnesi,
Víðimel 78, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítala
mánudaginn 1. febrúar. Útför hans fer fram frá Lindakirkju
í Kópavogi fimmtudaginn 18. febrúar klukkan 13.
Útförinni verður streymt á slóðinni:
facebook.com/groups/1339362149761623.
Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat.
Margrét Ósk Óskarsdóttir Jón Hermann Ingimundarson
Ágúst Sigurður Óskarsson Júdit Alma Hjálmarsdóttir
Stefán Páll Óskarsson
Haukur Óskarsson Ásta D. Baldursdóttir
Magnús Óskarsson Erla Guðrún Guðbjartsdóttir
Sverrir Óskarsson Ingunn Vattnes Jónasdóttir
Sigrún Óskarsdóttir Ásmundur Einar Ásmundsson
Sigursteinn Óskarsson María Gunnarsdóttir
Þráinn Óskarsson Elma Atladóttir
og fjölskyldur
Ástkær dóttir, systir, mágkona og frænka,
LÁRA MARÍA INGIMUNDARDÓTTIR,
Þórustíg 6, Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 7. febrúar.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
fimmtudaginn 18. febrúar klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt:
https://www.facebook.com/groups/laramariaingimundardottir.
Ingimundur Eiríksson Elín Högnadóttir
Helga S. Ingimundardóttir Geir G. Garðarsson
Birna Rúnarsdóttir
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...
Elskulegur faðir minn,
STEINAR FREYSSON
vörubifreiðarstjóri,
Mánatúni 2,
lést 29. janúar á Landspítalanum Fossvogi.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Jón Freyr Steinarsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVALA JÓNSDÓTTIR,
Lautasmára 1, Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi
6. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði miðvikudaginn 17. febrúar klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni: https://youtu.be/iVGMPejj7tM
Bragi Friðþjófsson
Sigurborg Bragadóttir Karl Helgason
Dagbjört Jóna Bragadóttir Skarphéðinn Skarphéðinsson
Göran Skog
Björk Bragadóttir Þorvaldur Kröyer
Roger Seager Jenny Seager
og ömmubörn
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
ÁRMANNS GUNNARSSONAR,
Steinsstöðum,
Akranesi.
Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk hjúkrunar- og
dvalarheimilisins Höfða og Heimahjúkrunar HVE fyrir hlýhug og
góða umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Helga Sólveig Bjarnadóttir
Kristín Ármannsdóttir Guðgeir Svavarsson
Gunnar Már Ármannsson Anna Kristjánsdóttir
Bjarni Ármannsson Helga Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn