Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Breiðablik fer liða best af stað í
Lengjubikar karla í fótbolta í ár.
Liðið vann öruggan 4:0-sigur á
Leikni Reykjavík á Kópavogsvelli í
gærkvöldi. Höskuldur Gunnlaugs-
son, Thomas Mikkelsen, Davíð
Ingvarsson og Viktor Karl Einars-
son voru allir á skotskónum hjá
Breiðabliki.
Þróttur vann Fjölni 4:3 í Laugar-
dal, Víkingur Reykjavík og KR
skildu jöfn, 1:1, á Víkingsvelli og
Afturelding vann öruggan 3:0-sigur
á Víkingi frá Ólafsvík á heimavelli
sínum í Mosfellsbæ.
Breiðablik skor-
aði fjögur mörk
Morgunblaðið/Eggert
Skotskór Höskuldur Gunnlaugsson
skoraði eitt marka Breiðabliks.
Pólska knattspyrnufélagið Lech
Poznan staðfesti í gærkvöldi komu
Arons Jóhannssonar til félagsins.
Framherjinn skrifaði undir samning
við félagið sem gildir út árið, með
möguleika á átján mánaða framleng-
ingu. Aron skoraði tólf mörk í 22
leikjum í sænsku úrvalsdeildinni
með Hammarby á síðustu leiktíð en
hefur verið án félags síðustu mánuði.
Aron, sem er uppalinn í Grafarvogi,
fæddist í Bandaríkjunum og hefur
leikið 19 landsleiki fyrir Bandaríkja-
menn. Lech Poznan er í tíunda sæti
pólsku úrvalsdeildarinnar.
Ljósmynd/Lech Poznan
Pólland Aron Jóhannsson er kom-
inn til Lech Poznan í Póllandi.
Aron kominn
til Lech Poznan
KÖRFUBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Bandaríski skotbakvörðurinn Ty
Sabin hefur komið eins og storm-
sveipur inn í Domino‘s-deild karla í
körfuknattleik á tímabilinu. Í fyrsta
leik hans, naumu tapi gegn Tinda-
stóli, stimplaði hann sig rækilega
inn með því að skora 47 stig. Eftir
það hefur það talist til tíðinda ef
Sabin hefur ekki skorað í kringum
30 stig í leik.
Hann er enda með besta stiga-
meðaltalið í deildinni, 28,7 stig, auk
þess að vera stigahæstur með 258
stig í níu leikjum. Sabin hefur verið
drjúgur í stigaskorun á ferli sínum
og setti fjöldann allan af metum á
háskólaárum sínum, þar sem hann
lék fyrir Ripon Red Hawks í Ripon-
háskólanum í Wisconsin-ríki í
Bandaríkjunum.
Þá var Sabin stigahæstur allra
með 731 stig í 33 leikjum í sænsku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili
þegar Wetterbygden Stars lenti
nokkuð óvænt í 5. sæti deildarinnar.
Í haust samdi hann svo við KR en
spilaði ekki sinn fyrsta leik fyrr en í
janúar vegna frestunar Íslands-
mótsins af völdum kórónuveiru-
faraldursins. En hvernig kom það til
að Sabin endaði hjá KR og samdi út
tímabilið?
„Ég og umboðsmaðurinn minn
vorum að leita að stöðum fyrir mig
að fara til og það var svolítið erf-
iðara vegna kórónuveirunnar, vegna
þess að sumar deildir voru ekki að
spila yfirhöfuð og aðrar voru að
byrja seint. Þess vegna var töluvert
meiri óvissa en venjulega, en við
vorum ánægðir með tilboðið frá KR.
Við áttum að byrja í október, það
gekk augljóslega ekki eftir þegar
tímabilinu var frestað fram til jan-
úar. Ég skrifaði undir samninginn,
fór heim og kom mér í gott stand,
kom aftur í janúar og núna erum við
að spila á fullu, sem ég er mjög
ánægður með. Þannig æxlaðist
þetta,“ segir Sabin í samtali við
Morgunblaðið.
Sigurhefð hjá KR
Eftir að hafa útskrifast árið 2017
hefur hann spilað í Danmörku,
Spáni og Svíþjóð áður en hann kom
til Íslands. „Ég spilaði í þriðju deild
í NCAA [bandaríska háskólabolt-
anum] þannig að þegar ég útskrif-
aðist úr háskóla þurfti ég í raun að
sanna mig. Hann stóð sig vel í þriðju
deild en hvernig mun hann standa
sig í atvinnumennsku með stærri
leikmönnum? Það gekk frekar vel í
Danmörku, ég skoraði 17 stig að
meðaltali þar.
Svo var gott að vera á Spáni, það
var mjög lærdómsríkt. Liðið okkar
stóð sig verr en búist var við en við
vorum með nokkra góða, reynslu-
mikla leikmenn þannig að ég lærði
heilan helling. Ég sá tækifæri
þarna, fór að skora svolítið meira og
varð líka skipulagðari og liðssinn-
aðri í leik mínum. Það var góð
reynsla. Svo fór ég auðvitað til Sví-
þjóðar og náði að bæta minn per-
sónulega leik nokkuð. Þetta hefur
verið svona leiðin mín hingað til,“
segir hann.
Sabin ber liðsfélögum sínum vel
söguna og segir það augljóst að mik-
il sigurhefð sé í herbúðum KR.
„Þetta hefur verið frábært hingað
til. Það er auðvitað svolítið öðruvísi
að mæta til liðs og fara strax í að
byrja leiki í stað þess að vera með
langt undirbúningstímabil. Að venj-
ast því var ekki endilega erfitt en
það var öðruvísi.
Sem betur fer eru allir strákarnir
hérna afskaplega fínir. Þeir eru allir
með eitt markmið og það er að vinna
Íslandsmeistaratitilinn í júní. Það er
augljóst að þeir hafa unnið mikið af
titlum því það endurspeglast í kúlt-
úrnum sem þeir hafa skapað sér.
Það er gott að vera hluti af því.
Þetta eru allt vinalegir strákar og
okkur kemur mjög vel saman. Það
er gott að hafa þannig hóp af leik-
mönnum þegar umspilið hefst.“
Sabin sjálfur er vitanlega með
sama markmið og liðsfélagar hans.
„Það er markmiðið okkar að vinna
Íslandsmeistaratitilinn, að vinna
þann sjöunda í röð. Það er það sem
við tölum um og það er sem það við
vinnum að.“
Hver einasti leikur erfiður
Aðspurður segir hann Domino‘s-
deildina vera erfiða, en að það sé
eitthvað sem honum líki vel. „Hún
er góð og erfið. Hver einasti leikur
er stríð. Það skiptir ekki máli þó
maður spili við sigurlaust lið eða
topplið, ef þú ert ekki klár í slaginn
verður þér skellt. Ég kann mjög vel
við það. Þú getur ekki gert neitt
með hálfum hug, þú verður að vera
tilbúinn að spila, annars verður
þetta erfitt fyrir þig. Það er eftirlæti
mitt við deildina, hversu samkeppn-
ishæf og erfið hún er.“
Hvað telur Sabin að framtíð hans
beri í skauti sér? „Ég reyni að hafa
ekki of miklar áhyggjur af því. Það
hljómar eins og klisja en ég tek bara
einn dag fyrir í einu og velti því fyrir
mér hvernig ég ætli að tækla næsta
dag, hvernig ég geti orðið betri
næsta dag. Ef þú hugsar vel um
smáatriðin þá munu stærri atriðin
sjá um sig sjálf. Ég veit ekki alveg
hvernig ég á að svara þessari spurn-
ingu þar sem ég tek raunverulega
bara einn dag í einu og þegar allt
kemur til alls trúi ég því að það sem
er ætlað að gerast gerist.“
Það er í það minnsta ljóst að hann
stefnir hærra. „Mig langar bara að
halda áfram að bæta leik minn og
fara upp á við. Hvort sem það yrði í
Evrópudeildinni eða annars staðar.
Ég veit það ekki alveg og svo vil ég
ekki setja óþarfa pressu á sjálfan
mig. Maður veit aldrei en ég er alla-
vega spenntur fyrir framtíðinni,“
segir Ty Sabin að lokum í samtali
við Morgunblaðið.
Ætlum að vinna sjöunda Ís-
landsmeistaratitilinn í röð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öflugur Sabin er stigahæstur í deildinni í vetur og er hér í leiknum gegn Stjörnunni á fimmtudag.
Bandaríkjamaðurinn skorar og skorar Deildin samkeppnishæf og erfið
Tyler Sabin
» Staða: Skotbakvörður
» Fæddur: 15. október 1994 í
Nýju-Berlín, Wisconsin, Banda-
ríkjunum
» Lék með Ripon-háskólanum
í Bandaríkjunum og skoraði þá
26 stig að meðaltali í 3. deild
NCAA.
» Hefur sem atvinnumaður
leikið með Hørsholm 79ers í
Danmörku, Leyma Básquet
Coruña á Spáni og Wetter-
bygden Stars í Svíþjóð.
» Hefur leikið níu leiki með KR
í vetur og skorað 28,7 stig að
meðaltali í leik.
Þýskaland
RB Leipzig Augsburg ............................. 2:1
Alfreð Finnbogason lék ekki með Augs-
burg vegna meiðsla.
Staðan:
Bayern München 20 15 3 2 58:26 48
RB Leipzig 21 13 5 3 37:18 44
Wolfsburg 20 10 8 2 32:19 38
Eintr.Frankfurt 20 9 9 2 41:29 36
Leverkusen 20 10 5 5 37:21 35
Dortmund 20 10 2 8 39:29 32
Mönchengladb. 20 8 8 4 37:31 32
Freiburg 20 8 6 6 35:33 30
Union Berlin 20 7 8 5 34:25 29
Stuttgart 20 6 7 7 37:34 25
Werder Bremen 19 5 7 7 24:27 22
Hoffenheim 20 6 4 10 30:37 22
Augsburg 21 6 4 11 21:34 22
Köln 20 5 6 9 20:33 21
Hertha Berlín 20 4 5 11 25:36 17
Arminia Bielefeld 19 5 2 12 15:32 17
Mainz 20 3 4 13 19:40 13
Schalke 20 1 5 14 15:52 8
Ítalía
Bologna Benevento ................................. 1:1
Andri Fannar Baldursson var allan tím-
ann á varamannabekk Bologna.
Danmörk
B-deild:
Fredericia................................................. 4:0
Elías Rafn Ólafsson var ekki í leik-
mannahópi Fredericia.
Dominos-deild karla
Njarðvík – ÍR........................................ 95:80
Valur – Keflavík.................................... 85:72
Staðan:
Keflavík 10 8 2 914:815 16
Þór Þ. 10 7 3 984:876 14
Stjarnan 10 7 3 952:879 14
KR 10 6 4 915:929 12
Njarðvík 10 5 5 862:872 10
ÍR 10 5 5 886:896 10
Tindastóll 10 5 5 922:926 10
Grindavík 10 5 5 874:911 10
Valur 10 4 6 813:839 8
Höttur 10 3 7 888:941 6
Þór Ak. 10 3 7 876:934 6
Haukar 10 2 8 833:901 4
1. deild karla
Álftanes – Skallagrímur ...................... 87:61
Breiðablik – Sindri ............................... 99:79
Hamar – Hrunamenn......................... 132:92
Staðan:
Álftanes 8 6 2 704:630 12
Breiðablik 7 6 1 683:589 12
Hamar 6 5 1 620:542 10
Sindri 7 3 4 598:593 6
Vestri 7 3 4 622:666 6
Skallagrímur 7 2 5 577:599 4
Fjölnir 5 2 3 445:462 4
Hrunamenn 7 2 5 597:715 4
Selfoss 6 1 5 450:500 2
Spánn
B-deild:
Real Canoe – Forca Lleida ................. 68:93
Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 10
stig, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsend-
ingar á 25 mínútum með Canoe.
Þýskaland
Bayern München – Fraport ............... 84:58
Jón Axel Guðmundsson skoraði sjö stig,
tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar
fyrir Fraport á 21 mínútu.
Litháen
Alytaus Dzukija – Siaulai ................... 87:81
Elvar Már Friðriksson skoraði 24 stig,
gaf fimm stoðsendingar og tók tvö fráköst
hjá Siaulai á 30 mínútum.
NBA-deildin
Golden State – Orlando.................... 111:105
Portland – Philadelphia ................... 118:114
Boston – Toronto .............................. 120:106
Houston – Miami ................................ 94:101
Detroit – Indiana ................................ 95:111
HANDKNATTLEIKUR
Olís-deild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – KA...............S13:30
Höllin: Þór Ak – Grótta ......................S16:30
Safamýri: Fram – Selfoss...................S19:30
Austurberg: ÍR – Afturelding ...........S19:30
Olís-deild kvenna:
Vestmannaeyjar: ÍBV – HK..............L13:30
Kaplakriki: FH – Haukar ..................L13:30
Framhús: Fram – Valur .........................L15
Mýrin: Stjarnan – KA/Þór......................L16
Grill 66 deild karla:
Víkin: Víkingur – Hörður........................L15
Grill 66 deild kvenna:
Selfoss: Selfoss – ÍR ...........................S13:30
Fjölnir-Fylkir – Valur U ....................S17:30
Kórinn: HK U – Fram U.........................S18
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Ísafjörður: Vestri – Hamar-Þór.............L14
Seljaskjól: ÍR – Tindastóll ......................L16
UM HELGINA!