Morgunblaðið - 18.02.2021, Side 6
Börn um allt land klæddu sig í grímubúninga á öskudeg-
inum í gær og fjölmargir fullorðnir gerðu slíkt hið sama í
sinni vinnu eða heima fyrir. Búningaveislan fór fram
með öðru sniði þetta árið vegna sóttvarnaráðstafana,
þar sem verslunarmiðstöðvar og ýmis fyrirtæki gáfu
börnum ekki kost á heimsóknum.
Almannavarnir beindu börnunum frekar inn í hverfin
eða mæltust til að skólar væru með dagskrá fyrir ung-
viðið. Þannig var kötturinn ekki sleginn úr tunnunni á
Glerártorgi á Akureyri þetta árið. Kaupmenn í mið-
bænum og víðar tóku hins vegar á móti krökkunum,
sumir utandyra framan við verslanir en aðrir innandyra.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Ungmenni heimsóttu fyrirtæki í bænum, mismikið grímuklædd, og fengu gotterí.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Öskudagur Fjórar vel klæddar og kátar stúlkur á ferð í miðbænum á Akureyri í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavík Nemendur í leikskólanum Hlíð slógu köttinn úr tunnunni með miklum tilþrifum eins og sjá má.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri Hægt var að syngja í skjóli ísbjarnar í miðbæ Akureyrar.
Öskudagur með öðru sniði
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 2021 verður haldinn
þriðjudaginn 23. mars 2021 kl. 18:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Vegna sóttvarnareglna stjórnvalda eru sæti í fundarsal takmörkuð.
Fundurinn er einnig rafrænn og eru sjóðfélagar hvattir til þátttöku
með þeim hætti, nánari upplýsingar verða birtar á vef sjóðsins,
www.live.is.
Dagskrá fundarins
• Venjuleg ársfundarstörf skv. grein 6.6 í samþykktum sjóðsins
• Önnur mál
Reykjavík, 21. janúar 2021
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Ársfundur 2021
Lífeyrissjóður
verzlunarmanna
—
live.is
Aukinn stuðningur við nautgripa- og
kindakjötsframleiðslu, óbreytt
gjaldskrá Matvælastofnunar, breytt
úthlutun tollkvóta, auknir mögu-
leikar til heimaframleiðslu og upp-
setning á mæla-
borði til að
fylgjast með
birgðastöðu og
sölu. Þetta eru
þættir í aðgerða-
áætlun til eflingar
íslenskum land-
búnaði sem Krist-
ján Þór Júlíusson
landbúnaðarráð-
herra kynnti í
gær. Hluti að-
gerðanna er kominn til framkvæmda
en aðrar eru að fara af stað í vinnu
sem Sigurður Eyþórsson, áður fram-
kvæmdastjóri Bændasamtaka Ís-
lands og nú verkefnisstjóri í sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
stýrir.
Aðgerðunum er m.a. ætlað að
styrkja landbúnaðinn í ljósi áhrifa af
kórónuveirufaraldrinum. Tilgangur-
inn er að skapa öfluga viðspyrnu fyr-
ir íslenskan landbúnað og auðvelda
bændum nýja sókn.
„Í þessari áætlun er fátt nýtt und-
ir sólinni. Þarna eru mál sem eru
þegar í vinnslu, hafa dregist og nú
eru dagsetningar uppfærðar. Ekki
er tekið nema að hluta á vanda kjöt-
framleiðslu. Hvíta kjötinu er sleppt,“
segir Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands.
Aðrar aðgerðir eru t.d. aðstoð við
bændur sem þurfa að fella sauðfé sitt
vegna riðuveiki. Þar er m.a. horft til
aðstæðna bænda í Skagafirði sem
misstu fé í riðuveiki sl. haust. Til-
lögur til að mæta þeim áttu að liggja
fyrir í október en eru að koma fyrst
fram nú, segir Gunnar. sbs@mbl.is
Bændur segja
fátt nýtt að finna
Ráðherra með aðgerðir í landbúnaði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landbúnaður Stutt verður við
sauðfjárbúskapinn með ýmsu móti.
Gunnar
Þorgeirsson