Morgunblaðið - 18.02.2021, Side 52
52 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Lengjubikar karla
Fylkir – ÍBV.............................................. 3:2
Meistaradeild Evrópu
16-liða úrslit, fyrri leikir:
Porto – Juventus.................................... (2:0)
Sevilla – Borussia Dortmund................ (1:3)
Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið
fór í prentun. Sjá mbl.is/sport.
England
Burnley - Fulham..................................... 1:1
Jóhann Berg Guðmundsson fór meiddur
af velli á 40. mínútu hjá Burnley.
Everton - Manchester City................... (1:1)
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliðinu
hjá Everton.
Leiknnum var ekki lokið þegar blaðið fór
í prentun. Sjá mbl.is/sport/enski.
Staðan:
Manch. City 24 16 6 2 47:15 54
Manch. Utd 24 13 7 4 50:31 46
Leicester 24 14 4 6 42:26 46
Chelsea 24 12 6 6 40:24 42
West Ham 24 12 6 6 37:28 42
Liverpool 24 11 7 6 45:32 40
Everton 23 11 5 7 35:31 38
Aston Villa 22 11 3 8 36:24 36
Tottenham 23 10 6 7 36:25 36
Arsenal 24 10 4 10 31:25 34
Leeds 23 10 2 11 40:42 32
Wolves 24 8 6 10 25:32 30
Southampton 23 8 5 10 30:39 29
Crystal Palace 24 8 5 11 27:42 29
Burnley 24 7 6 11 18:30 27
Brighton 24 5 11 8 25:30 26
Newcastle 24 7 4 13 25:40 25
Fulham 24 3 10 11 20:32 19
WBA 24 2 7 15 19:55 13
Sheffield Utd 24 3 2 19 15:40 11
B-deild:
Millwall - Birmingham............................ 2:0
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður hjá Milwall á 71. mínútu.
Spánn
Levante – Atlético Madrid ...................... 1:1
Staðan:
Atlético Madrid 22 17 4 1 45:14 55
Real Madrid 23 15 4 4 41:19 49
Barcelona 22 14 4 4 49:21 46
Sevilla 22 14 3 5 32:16 45
Real Sociedad 23 10 8 5 37:20 38
Villarreal 23 8 12 3 32:24 36
Real Betis 23 10 3 10 31:38 33
Granada 23 8 6 9 27:38 30
Celta Vigo 23 7 8 8 29:34 29
Athletic Bilbao 22 8 4 10 32:26 28
Levante 23 6 10 7 32:33 28
Osasuna 23 6 7 10 22:31 25
Valencia 23 5 9 9 28:32 24
Getafe 23 6 6 11 17:29 24
Cádiz 23 6 6 11 20:39 24
Alavés 23 5 7 11 20:34 22
Eibar 23 4 9 10 19:26 21
Real Valladolid 23 4 9 10 22:34 21
Elche 21 3 9 9 19:31 18
Huesca 23 2 10 11 18:33 16
Ítalía
C-deild:
Padova - Arezzo....................................... 2:0
Emil Hallfreðsson lék fyrstu 85 mínút-
urnar með Padova.
Belgía
Oostende - Genk....................................... 3:1
Ari Freyr Skúlason var ekki í leik-
mannahóp Oostende.
Jóhann Berg Guðmundsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, fór meidd-
ur af velli á 40. mínútu í leik Burn-
ley og Fulham í ensku
úrvalsdeildinni í gær.
Jóhann fór í tæklingu, lá eftir á
vellinum og meiddist líklega í fæti.
Í lýsingu BBC kemur fram að Jó-
hann hafi strax gefið merki um að
hann þyrfti að fara út. Leiknum
lauk með jafntefli, 1:1.
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrj-
unarliði Everton gegn Manchester
City en leiknum var ekki lokið þeg-
ar blaðið fór í prentun.
Jóhann Berg fór
meiddur af velli
AFP
Burnley Jóhann Berg Guðmunds-
son hitar upp fyrir leikinn í gær.
Íslensku leikmennirnir Elín Jóna
Þorsteinsdóttir og Steinunn Hans-
dóttir verða varla sakaðar um tapið
hjá liði þeirra Vendsyssel gegn
Randers í næstefstu deild danska
handknattleiksins í gær.
Randers hafði betur 22:20 á
heimavelli sínum en Elín Jóna varði
frábærlega í marki Vendsyssel.
Varði hún 21 skot í leiknum og var
með liðlega 54% markvörslu.
Steinunn skoraði 3 mörk og nýtti
marktækifærin vel en hún átti fjög-
ur skot á markið. Vendsyssel er í
neðsta sæti með 3 stig. kris@mbl.is
Elín með 54%
markvörslu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Danmörk Elín Jóna Þorsteinsdóttir
sýndi hvað í henni býr í gær.
ALPAGREINAR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Skíðakonan Hólmfríður Dóra Frið-
geirsdóttir er hluti af íslenska lands-
liðinu sem hefur leik á heimsmeist-
aramótinu í alpagreinum í dag en
mótið fer fram í Cortina D‘Ampezzo á
Ítalíu.
Hólmfríður, sem er 23 ára gömul,
byrjaði að æfa skíði þegar hún var
fjögurra ára gömul en hún keppir í
stórsvigi í Olympia della Tofane síðar
í dag.
Alls taka níu Íslendingar þátt í
mótinu í ár en þær Hólmfríður Dóra,
Hjördís Ingvadóttir, Katla Björg
Dagbjartsdóttir og Sigríður Dröfn
Auðunsdóttir taka allar þátt í svigi og
stórsvigi.
Bjarki Guðmundsson, Georg Fann-
ar Þórðarson og Sturla Snær Snorra-
son taka allir þátt í svigi og stórsvigi.
Þá keppir Gauti Guðmundsson í svigi
og Tobias Hansen í stórsvigi.
„Þetta leggst mjög vel í mig og ég
er virkilega spennt að hefja leik á
morgun [í dag],“ sagði Hólmfríður í
samtali við Morgunblaðið.
„Ég er búin að taka tvær mjög góð-
ar stórsvigsæfingar undanfarna daga
sem hafa báðar gengið vonum framar.
Stórsvigið er mín sterkasta grein og
ég er eins tilbúin og hægt er að vera
myndi ég segja. Ísingin verður meiri í
bakkanum í keppninni sjálfri en á æf-
ingabrautinni en ég er nokkuð vön því
enda búsett í Åre í Svíþjóð og það get-
ur verið ansi kalt þar þegar mest
lætur.
Ég flutti til Svíþjóðar haustið 2018
til þess að elta skíðadrauminn enda
komin á hálfgerða endastöð heima á
Íslandi. Ég byrjaði í háskólaliði sem
var í Östersund en svo var liðið flutt
til Åre. Ég hef verið þar síðan, ásamt
því að stunda fjarnám í Háskólanum
í Akureyri. Ég get alveg viðurkennt
það að þetta getur verið mikið hark
en ég er með gott bakland í fjöl-
skyldunni sem styður þétt við bakið
á mér,“ sagði Hólmfríður.
Æft af fullum krafti
Ólíkt nokkrum liðsfélögum sínum í
landsliðinu hefur Hólmfríður getað
æft af kappi fyrir HM þar sem hún er
búsett í Svíþjóð.
„Ég er búin að vera úti í Svíþjóð
síðan í ágúst þegar undirbúnings-
tímabilið hófst. Vanalega æfum við
mest í Noregi á undirbúnings-
tímabilinu en vegna kórónuveiru-
faraldursins náðum við einungis
tveimur æfingaferðum þangað. Planið
var að fara í þriðju æfingaferðina til
Noregs en þar sem öllu var skellt í lás
og landamærunum lokað vegna kór-
ónuveirufaraldursins þar í landi
ákváðum við að fara til Ítalíu í æf-
ingaferð í staðinn.
Við ákváðum að keyra þangað,
frekar en að fljúga, því við vildum
ekki taka neina áhættu ef einhver
myndi smitast af veirunni. Það var
geggjað að fá tækifæri til þess að æfa
þar en ég hef svo bara æft af krafti í
Svíþjóð síðan í október. Keppnis-
tímabilið byrjaði aðeins seinna í Sví-
þjóð en annars staðar í Evrópu vegna
kórónuveirufaraldursins en ólíkt Ís-
landi sem dæmi þá hef ég í raun bara
getað æft af fullum krafti síðan í
haust.“
Markmiðið að gera betur
Það er langt síðan Hólmfríður byrj-
aði að undirbúa sig fyrir heimsmeist-
aramótið á Ítalíu og hún viðurkennir
að það hefðu verið gríðarlega von-
brigði ef mótinu hefði verið aflýst.
„Ég er búin að undirbúa mig fyrir
þetta mót, bæði andlega og líkamlega
undanfarin tvö ár. Ég er búin að æfa
eins og brjálæðingur og það hefði ver-
ið virkilega leiðinlegt ef mótinu hefði
svo bara verið aflýst. Tímabilið í ár
hefur auðvitað verið mjög skrítið og
ég hef þurft að vera með grímu í öll-
um mótum sem ég hef keppt á og það
er ekkert grín í -20° frosti. Gríman á
það til að frjósa í andlitinu á manni en
fyrirkomulagið hérna á Ítalíu er öðru-
vísi og skipulagið til fyrirmyndar.
Þetta er mitt annað heimsmeist-
aramót og ég hafnaði í 49. sæti á síð-
asta heimsmeistaramóti í Åre stór-
sviginu. Markmiðið er að gera betur
í ár og reyna að standa sig gegn
þessum bestu skíðakonum heims í
dag. Ég hef lagt mjög mikið á mig
undanfarin ár og mig langar virki-
lega að sýna fólki afrakstur þess á
stærsta sviðinu og vonandi gengur
það eftir,“ bætti Hólmfríður við.
Óvanalegt á þessum árstíma
Dagbjartur Halldórsson, afreks-
stjóri Skíðasambands Íslands, er
fararstjóri íslenska liðsins á Ítalíu
og hann viðurkennir að það sé sér-
stakt að vera staddur á einu vinsæl-
asta skíðasvæði Evrópu án áhorf-
enda og skíðafólks á þessum tíma
árstíma.
„Allur undirbúningur fyrir mótið
í ár hefur gengið mjög vel fyrir sig
hjá Skíðasambandinu,“ sagði Dag-
bjartur í samtali við Morgunblaðið.
„Ég kom til Ítalíu tveimur dögum
á undan liðinu til þess að fara yfir
hótelið, staðsetningar, æfingasvæð-
ið og keppnissvæðið. Ég vildi vera
með allt á hreinu áður en liðið kæmi
út og ég get alveg viðurkennt það að
þetta hefur verið frekar skrítið.
Ég fór að skoða brautina þar sem
forkeppni í stórsvigi karla fór fram í
gær [fyrradag] og þar var enginn
nema bara starfsmenn sem voru á
fullu að undirbúa sem er mjög
óvenjulegt á svona stóru skíða-
svæði. Það voru allir með grímur í
fullri vinnu við að gera brautina
klára og það var mjög sérstakt að
sjá þetta allt saman og eitthvað sem
maður er alls ekki vanur.“
Prófatörn í undirbúningnum
Þrátt fyrir heimsfaraldur kom
aldrei til greina að hætta við þátt-
töku á mótinu í ár.
„Kórónuveirufaraldurinn gerði
allt skipulag í kringum mótið mjög
flókið í framkvæmd. Við þurftum til
dæmis að fara í þrjú kórónuveiru-
próf áður en við fengum að fara inn í
þorpið. Við fórum í eitt próf heima á
Íslandi, átta til tíu dögum áður en við
fórum út. Síðan þurftum við að skila
öðru neikvæðu prófi, sem mátti ekki
vera eldra en 72 klukkustundir, áður
en við komum til Ítalíu. Svo þegar
við komum á staðinn fórum við beint
inn í stórt tjald þar sem við þurftum
að fara í þriðja prófið þannig að þetta
hefur verið ágætis prófatörn hjá öll-
um hópnum.
Það er heldur betur sérstök til-
finning að þurfa að sækjast sér-
staklega eftir því að vera neikvæður
alltaf enda markmiðið á svona móti
að halda fast í alla jákvæðni. Við eig-
um landsliðsfólk sem er búsett er-
lendis og hefur því getað æft sem er
auðvitað frábært en þeir keppendur
sem koma frá Íslandi hafa ekki getað
undirbúið sig jafn vel vegna þeirra
takmarkana sem gilt hafa hér í landi
vegna kórónuveirufaraldursins.
Þrátt fyrir hátt flækjustig þá kom í
raun aldrei til greina að hætta við
þátttöku á mótinu. Markmiðið hjá
skíðafólkinu okkar er að taka þátt á
þessum stærstu mótum og við erum
bjartsýn á góðan árangur,“ bætti
Dagbjartur við í samtali við Morg-
unblaðið.
Langar að sýna árangur
erfiðisins á stóra sviðinu
Íslenska landsliðið í alpagreinum hefur leik á HM í Cortina á Ítalíu í dag
Ljósmynd/SKÍ
Stórsvig Landsliðskonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er búsett í Åre í
Svíþjóð en hún keppir í stórsvigi í dag sem er hennar sterkasta grein.
Keppnisdagar
Íslendinganna
18.2 - Stórsvig karla, undan-
keppni
18.2 - Stórsvig kvenna, aðal-
keppni
19.2 - Svig kvenna, undan-
keppni
19.2 - Stórsvig karla, aðal-
keppni
20.2 - Svig karla, undankeppni
20.2 - Svig kvenna, aðalkeppni
21.2 - Svig karla, aðalkeppni
Meistaradeild karla
B-RIÐILL:
Barcelona - Nantes.............................. 30:29
Aron Pálmarsson var ekki í leikmanna-
hóp Barcelona.
Barcelona 24, Veszprém 17, Motor Zapo-
rozhye 12, Aalborg 10, Kiel 9, Nantes 8x,
Celje 6, Zagreb 0.
Evrópudeild karla
C-RIÐILL:
CSKA Moskva - Alingsås .................... 28:27
Aron Dagur Pálsson skoraði 3 mörk fyr-
ir Alingsås og gaf eina stoðsendingu.
Magdeburg 12, CSKA Moskva 10, Mont-
pellier 8, Nexe 8, Alingsås 4, Besiktas 0.
Þýskaland
B-deild:
Hamburg - Bietigheim........................ 24:21
Aron Rafn Eðvarðsson varði sextán skot
í marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson
þjálfar liðið.
Gummersbach - Grosswallstadt ........ 28:29
Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Wilhelmshavener - Aue ...................... 20:25
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fjögur
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði tíu skot í marki liðsins. Rúnar Sig-
tryggsson þjálfar Aue.
Danmörk
Bjerringbro/Silkeborg - Kolding...... 34:24
Ágúst Elí Björgvinsson varði þrjú skot í
marki Kolding.
Randers - Vendsyssel.......................... 22:20
Steinunn Hansdóttir skoraði þrjú mörk
fyrir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 21 skot í marki liðsins.