Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 50
50 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
60 ára Sesselja er
Grindvíkingur en býr í
Kópavogi. Hún er
náms- og starfs-
ráðgjafi að mennt frá
HÍ og er náms- og
starfsráðgjafi við Fjöl-
brautaskólann í Breið-
holti. Sesselja hefur einnig umsjón með
Kvöldskóla FB.
Maki: Finnbogi Alfreðsson, f. 1956, við-
skiptafræðingur og hagfræðingur.
Börn: Hildigunnur, f. 1987, Alfreð, f.
1989, Margrét, f. 1995, og Alma, f.
1997, Finnbogabörn. Barnabörnin eru
orðin þrjú.
Foreldrar: Sigrún Jónsdóttir, f. 1932,
húsmóðir, og Pétur Antonsson, f. 1934,
var með eigin rekstur. Þau eru búsett í
Kópavogi.
Sesselja
Pétursdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Lífið hefur leikið við þig að undan-
förnu, ekki vera hissa þótt aðrir öfundi þig af
því. Einhver spyr þig spjörunum úr varðandi
gamalt mál.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert eins og milli steins og sleggju í
ákveðnu máli. Láttu samt ekki setja þig út af
sporinu. Þér finnst þú bundin/n í báða skó.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að nota daginn til að taka
til í ástamálunum, þessi óvissa gerir engum
gott. Hlustaðu án þess að dæma og segðu
þínum innri gagnrýnanda að fara í frí.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert eitthvað þung/ur í skapi núna
svo kannski er best að þú sért ekkert að
reka hornin í aðra svona rétt á meðan. Fjöl-
skyldan færir þér skemmtilega gjöf.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Farðu þér hægt í dag, krafturinn eykst
eftir því sem líður á vikuna. Sláðu á létta
strengi og vertu jákvæð/ur, það auðveldar
allt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Treystu á innsæi þitt og þá munu
hjólin fara að snúast eins og til er ætlast. Allt
er gott sem endar vel.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gerir bara illt verra með því að
stinga hausnum í sandinn og láta sem þú
sjáir ekki það sem gera þarf. Lestu smáa
letrið betur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að ganga frá smá-
atriðum sem tengjast skattamálum. Frum-
leiki þinn vekur kátínu og þú færð tilboð sem
þú getur ekki hafnað.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þegar margs er spurt má alltaf
reikna með að fá einhver þau svör sem falla
manni misjafnlega í geð. Spilaðu út öllum
þínum trompum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er allt í lagi að hægja aðeins
á ferðinni. Þú þarft ekki að eignast allan
heiminn strax.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú tekur hugsanlega þá ákvörð-
un í dag að hætta að eiga samskipti við ein-
hvern sem veldur þér bara áhyggjum. Þú ert
eitthvað týnd/ur þessa dagana.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhverra hluta vegna tekst þér ekki
að einbeita þér að því sem máli skiptir.
Staldraðu við og íhugaðu hvað það er sem
þú sækist raunverulega eftir. Reyndu ekki að
sýnast meiri en þú ert.
íslenskri náttúru, sjálfur Snæfells-
jökull, í aðalhlutverki. Sú sýning er
opin til 12. mars næstkomandi. „Á
sýningunni eru myndir alveg frá
1987 og fram á síðasta ár,“ segir
Steinunn enn fremur um sýninguna.
Þegar Steinunn er ekki að vinna að
list sinni þá kýs hún helst að ganga
úti í náttúrunni og hefur verið í
gönguhópum. „Göngur eru mér mik-
ið ánægjuefni og uppspretta hug-
mynda í myndlistinni.“
vinnustofum í París og Helsinki, ver-
ið bæjarlistamaður Mosfellsbæjar
(2003) og er heiðursfélagi í Leirlist-
arfélagi Íslands. Hún gaf árið 2016 út
bók um líf sitt og verk sem nefnist
Undir regnbogann.
Steinunn hefur haldið allmargar
málverkasýningar og í tilefni 85 ára
afmælis hennar er nú opin mál-
verkasýning í Listasal Mosfells-
bæjar sem ber nafnið Jökull Jökull,
en þar er nágranni hennar og vinur í
S
teinunn Sigríður Mar-
teinsdóttir er fædd 18.
febrúar 1936 í Reykjavík.
Fjölskyldan bjó í húsi afa
hennar, Bjarna Sæ-
mundssonar fiskifræðings við Þing-
holtsstræti 14. „Við áttum líka hús í
Merkinesi í Höfnum, en pabbi er
þaðan og við vorum þar á sumrin,“
segir Steinunn.
Hún hóf að loknu námi í Kvenna-
skólanum og Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1956 myndlistarnám
við Myndlista- og handíðaskólann og
hélt því áfram 1957-1960 við Hoch-
schule für Bildende Künste í Berlín.
Heim komin starfaði hún um tíma
hjá keramikverkstæðinu Gliti en
stofnaði eigið keramikverkstæði árið
1962.
Á Hulduhólum hefur Steinunn bú-
ið og starfað síðan hún flutti þangað
og hefur rekið þar keramikskóla „Ég
var fyrst með keramiknámskeið í
bænum þegar ég bjó þar og það var
afskaplega mikil þörf á námskeiðum
á þessum tíma. Það hópaðist að mér
fólk og ég var með biðlista,“ en Stein-
unn hóf að vera með námskeiðin
fljótlega eftir að hún stofnaði verk-
stæðið. Á Hulduhólum hefur Stein-
unn einnig haldið fjölda sýninga,
bæði einkasýninga og samsýninga.
Alls hefur hún allt frá árinu 1961 tek-
ið þátt í hátt í þrjátíu samsýningum,
bæði hérlendis og erlendis.
Steinunn hélt fyrstu stóru einka-
sýningu sína á Kjarvalsstöðum árið
1975 og hefur haldið nær tuttugu
einkasýningar síðan, stærri og
smærri. Framan af sýndi hún nær
eingöngu leirlistaverk en hefur í vax-
andi mæli lagt stund á málverk sl.
þrjá áratugi. „Ég teiknaði alltaf og
málaði eitthvað meðfram leirlista-
verkunum. En þegar ég var í lista-
mannaaíbúð Íslendinga í París 1986 í
tvo mánuði málaði ég eingöngu. Eftir
það hef ég eiginlega meira verið að
mála þótt ég hafi oft skipt á milli þess
að mála og vera í leirnum.“
Verk Steinunnar eru í eigu fimm
safna og allmargra stofnana og fyr-
irtækja. Steinunn hlaut heiðurs-
verðlaun á alþjóðlegri keramiksýn-
ingu í Valauris í Frakklandi árið
1976. Hún hefur dvalið á gesta-
Fjölskylda
Sambýlismaður Steinunnar er
Árni Bergmann, f. 22.8. 1935, rithöf-
undur og fyrrverandi ritstjóri. For-
eldrar hans voru hjónin Jóhann Stef-
ánsson Bergmann, f. 1906, d. 1996,
sjómaður og bifreiðarstjóri, og Hall-
dóra Árnadóttir, f. 1914, d. 2006, hús-
móðir. Þau voru búsett í Keflavík.
Steinunn giftist árið 1956 Sverri
Haraldssyni, 18.3. 1930, d. 22.2. 1985,
Steinunn Marteinsdóttir myndlistarmaður – 85 ára
Afmælissýning í Mosfellsbæ
JÖKULL JÖKULL Eitt af verkunum á sýningunni. „Þetta er ákall til Snæfells-
jökuls sem hefur fengið á sig kvenleg form þarna,“ segir Steinunn.
Myndlistarmaðurinn Steinunn sækir mikið í
náttúruna og fær hugmyndir að verkum sín-
um þaðan. Hér er hún stödd við Jökulsárlón.
Við Skógafoss Árni og Steinunn.
50 ára Halldóra er
Reykvíkingur en býr í
Reykjaskóla í Hrúta-
firði. Halldóra hefur
ásamt manni sínum
séð um rekstur og
kennslu í Skólabúð-
unum í Reykjaskóla sl.
20 ár, og er Halldóra rekstrar- og dag-
skrárstjóri þar. Þau reka hópahótel þar á
sumrin.
Maki: Karl B. Örvarsson, f. 1954, fram-
kvæmdastjóri Skólabúðanna.
Börn: Kristín Karen, f. 1995, og Dagbjört
Dögg, f. 1999, Karlsdætur. Synir Karls eru
Unnar Vilhelm og Ívar Daníel.
Foreldrar: Árni Þorvaldsson, f. 1950,
húsasmíðameistari, og Katrín Kristins-
dóttir, f. 1952, kennari. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Halldóra
Árnadóttir
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | www.kjotsmidjan.is Opnunartími8:00-16:30
Kíktu í verslun okkar að Fosshálsi 27
Gefðu elskunni þinni
gott að borða á konudaginn
Til hamingju með daginn
Reykjavík Bríet Heiða fæddist á fæð-
ingardeild Akraness hinn 6. ágúst
2020 kl. 17.43. Hún vó 3.690 g og var
50 cm löng. Foreldrar hennar eru Val-
gerður Rún Haraldsdóttir og Ellert
Heiðar Vilhelmsson.
Nýr borgari