Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 47
MINNINGAR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Kveðja frá Njarðvíkurskóla
Mér er það afar ljúft að minnast
Láru Maríu Ingimundardóttur en
Lára hóf störf við Njarðvíkur-
skóla haustið 2017.
Kynni okkar af Láru eru þó
lengri þar sem Lára gekk í Njarð-
víkurskóla og var afar stolt af
skólanum sínum alla tíð, þetta var
hennar skóli. Þegar hún sótti eftir
að starfa við skólann þá tókum við
vel í þá beiðni og fundum henni
starfsvettvang sem hentaði henni
best. Hún var mjög þakklát að fá
að starfa við skólann enda fannst
henni hún feta í fótspor móður
sinnar sem hafði starfað sem
kennari hér við skólann á árum
áðum. Lára setti mark sitt á starf-
ið hér með sinni einlægni, já-
kvæðni og litríka karakter.
Lára var mjög sýnileg í okkar
nærumhverfi og þegar við hitt-
umst utan skólans heilsaði hún
mér alltaf með „hæ boss“ og svo
kom skemmtilegt glott í framhald-
inu.
Hún var mikill félagsmaður
UMFN og dyggur stuðningsmað-
ur körfunnar hér í Njarðvík. Á
leikdögum vorum við hér í skól-
anum minnt á leikinn, þá sérstak-
lega ef það var heimaleikur, því á
þeim leikjum vann hún sem sjálf-
boðaliði. Hún stóð með sínum
mönnum og studdi þá alla leið.
Láru var margt til lista lagt og
hafði einstaklega gaman af því að
syngja og var gaman þegar við í
skólanum fengum boð frá henni á
tónleikana Hljómlist fyrir alla,
þegar hún söng með Jóni Jóns-
syni. Lára stóð sig líka vel í boccia-
keppnum með Nesi og mætti hlað-
in verðlaunagripum í skólann eftir
þá sigra og stoltið skein úr andliti
hennar. Lífið var svo skemmtilegt.
Við vorum því afar döpur þegar
hún lét okkur vita að nú væri hún
komin með annað verkefni sem
væri að vinna bug á krabbamein-
inu sem hún greindist með og hún
ætlaði að hafa sigur þar. Lára ætl-
aði ekki að láta það mein stöðva
sig og mætti í vinnuna eins og
heilsan leyfði og stundum var það
meira af vilja en mætti, hún vildi
standa sig.
Við getum mörg tekið Láru
okkur til fyrirmyndar hvernig hún
tókst á við lífið og þær áskoranir
sem það hafði upp á að bjóða, en
öll verkefni, bæði lítil og stór,
leysti hún með bros á vör.
Við í Njarðvíkurskóla þökkum
Láru einstaka samfylgd og send-
um aðstandendum hennar okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ásgerður Þorgeirsdóttir,
skólastjóri Njarðvíkurskóla.
Kæra vinkona, með örfáum
orðum kveð ég þig og um leið
þakka ég þér fyrir góða og gefandi
samfylgd. Vinátta okkar hófst í
byrjun árs 2007 þegar ég hóf störf
í frekari liðveislu hjá Reykja-
nesbæ, við náðum fljótt vel saman,
enda hálfgerðar býflugur báðar
tvær, alveg einstaklega iðnar.
Lára mín, þú varst einstök per-
sóna, traust og umhyggjusöm og
snertir svo sannarlega hjörtu
margra.
Daginn eftir andlát þitt hitt-
umst við vinir þínir í frekari lið-
veislu við kertaljós í bæn, samtali,
hlátri og gráti. Þú varst þeim svo
góð og alltaf varstu hvetjandi. Þau
syrgja nú sárt góða og trausta vin-
konu sem kvaddi allt of snemma.
Góðar og dýrmætar minningar
eru ómetanlegar og halda áfram
að bera ávöxt.
Við vinir þínir í frekari liðveislu
eigum margar dýrmætar minn-
ingar sem verða okkur fjársjóður
bæði í huga og hjarta og munu ylja
um ókomna tíð. Helga Björg mín
sem átti góða vinkonu í Láru sinni
mun sakna hlýja faðmsins og háu
fimmunnar.
Ég bið góðan Guð að hugga
ættingja og vini Láru og styrkja
þau í sorginni. Guð blessi minn-
ingu Láru sem gaf okkur er feng-
um að kynnast henni svo mikið,
fyrir það er ég óendanlega þakk-
lát, fimmtudagarnir verða litlaus-
ari án þín, Lára klára mín.
Þín vinkona
Heiða Björg Gústafsdóttir.
Í dag kveð ég yndislega vinkonu
mína, hana Láru Ingimundar eins
og hún var ávallt kölluð.
Við kynntumst í kringum 1990
og frá fyrsta degi urðum við góðar
vinkonur. Lára var einstök mann-
eskja og sá alltaf þá jákvæða í öll-
um. Hún var mikill húmoristi og
hafði gaman af því að fíflast og
hlæja. Lára var mikill Njarðvíking-
ur og vann mikið og gott starf fyrir
félagið okkar. Hún tók að sér fjöl-
mörg verkefni eins og t.d. að vera í
lukkudýrinu okkar ljóninu á leikj-
um. Á hverju ári hafði hún sam-
band þegar kom að Nettómótinu og
spurði hvort það vantaði ekki að-
stoð. Þar aðstoðaði hún okkur í
unglingaráðinu við hin ýmsu störf,
t.d. umsjón í íþróttahúsinu í Njarð-
vík og einnig mætti hún ávallt í
íþróttahúsið við Sunnubraut til að
aðstoða við frágang eftir kvöldvöku
og mótslok.
Á einu mótinu var hún aðstoð-
arþjálfari hjá mér og það þótti
Láru mjög skemmtilegt.
Lára sá alltaf til þess að ég
missti ekki af sýningunni Lista án
landamæra, hún lét mig alltaf vita
með nokkurra vikna fyrirvara og
minnti mig alltaf á þar til að sýning-
ardeginum kom.
Og á síðustu sýningu Láru söng
hún eins og engill með Páli Óskari
og Jóni Jónssyni.
Lára var góð söngkona og hafði
gaman af. Ég fékk þann heiður að
greiða henni þegar hún var fjall-
kona 2003. Það var góður dagur og
Lára stóð sig eins og hetja.
Hún kom stolt stuttu eftir þann
dag með mynd af sér og hafði hand-
skrifað ljóðið Ísland er land þitt á
græna stjörnu og færði mér.
Þegar Lára fagnaði 40 ára af-
mæli sínu hélt hún mikla veislu og
bauð fjölda fólks, svo þegar Lára
var 45 ára bauð hún mér líka heim
til sín. Ég dreif mig til hennar á
sunnudegi um miðjan dag á síðustu
stundu en þegar ég kom þá sá ég að
ég var fyrst og ég sagði: Lára mín,
áttu von á mörgum?
En það var nú alls ekki raunin
því hún hafði bara boðið mér og
öðrum vini sínum.Þetta sagði mér
hversu miklar vinkonur við vorum í
raun og veru.
Við áttum margar góðar stundir
á hársnyrtistofunni hjá mér og
einni setningu mun ég aldrei
gleyma sem Lára sagði alltaf þegar
ég sýndi henni útkomuna í spegl-
inum: „Þetta er allt annar munur.“
Þegar Lára veiktist kom hún
sérstaklega til mín og tilkynnti mér
um veikindin sín. Lára tók á veik-
indum sínum með miklu æðruleysi
sem lýsir henni best.
Elsku Lára, mér þótti afskap-
lega vænt um þig og er þakklát fyr-
ir vináttu okkar.
Og takk fyrir hvað þú fylgdist
vel með mínu fólki, bæði börnunum
mínum og barnabörnum.
Ég verð ævinlega þakklát fyrir
okkar vináttu, elsku besta Lára
mín, þú átt stóran stað í hjarta
mínu.
Þú mikli Njarðvíkingur.
Þín vinkona,
Bylgja Sverris.
Elsku besta vin-
kona mín, Jenný, er
látin. Ég veit eigin-
lega ekki hvernig líf-
ið verður án hennar en eitt er víst
að það verður mun fátækara.
Jenný var eldklár, töffari, með
stórt hjarta og hárbeittan húmor.
Einnig var hún mjög góður penni.
Orðaforði hennar var ótrúlegur og
hvernig hún talaði var yndislegt.
Hún var líka ötul við nýyrðasmíði
sem fékk mig oft til að skella upp
úr. Í samskiptum okkar var mikið
hlegið en stundum líka grátið.
Hún var eina manneskjan sem ég
gat sagt allt við og þá meina ég
allt.
Jenný var eins og akkeri mitt
og áttaviti. Þegar ég fékk mis-
gáfulegar hugmyndir var það hún
sem dró mig niður á jörðina eða
hvatti mig áfram eftir því sem við
átti. Hún hafði leiðinlega oft rétt
fyrir sér.
Saman fengum við líka mjög
góðar hugmyndir að eigin mati.
Eitt sinn sat ég uppi með hlut í
eigu annars og þurfti að losna við
hann. Ekkert glæpsamlegt en út-
skýring gerir söguna bara alltof
langa. Ég hringdi auðvitað í Jen-
nýju sem bað mig að sækja sig
strax svo við gætum afgreitt
dæmið. Ekki kom til greina að
henda honum bara í ruslið. Nei,
þessum hlut varð að eyða og
dreifa á leynilega staði. Hófst svo
leitin að hentugum stöðum og við
fórum að gámi úti á Granda. Þar
tókst ekki að losna við hann því við
tókum eftir manni í bíl sem horfði
grunsamlega á okkur. Við þvæld-
Jenný Anna
Baldursdóttir
✝ Jenný AnnaBaldursdóttir
fæddist 20. janúar
1952. Hún lést 28.
janúar 2021.
Útförin fór fram
í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
umst um allan bæ og
tókst að losna við
hlutinn, þar af einn
hluta sem við hent-
um inn í runna og
brunuðum á brott.
Við skemmtum okk-
ur konunglega í
þessari leynilegu að-
gerð og hlógum oft
að þeirri dellu í okk-
ur að henda hlutnum
ekki bara í ruslið. En
svona urðu lítil ævintýri til hjá
tveimur vinkonum með bilaðan
húmor.
Sálufélagi er sterkt orð en ég
ætla að leyfa mér að halda því
fram að Jenný hafi verið sálufélagi
minn. Saman vorum við Thelma
og Louise, Bing og Gröndal, Ingv-
ar og Gylfi, Simon og Garfunkel,
Silli og Valdi o.s.frv. Ég hef þurft
svo mikið að tala Jennýju þessar
síðustu tvær vikur síðan hún skildi
við og mun þurfa þess alla ævi.
Eins súrrealískt og það getur orð-
ið þá vantaði mig svo að hringja í
hana þegar ég var búin að vera við
útförina og bara fá að gráta og fá
hennar skilning.
Ég er glöð yfir því að seinustu
orðin sem við sögðum hvor við
aðra voru: „Ég elska þig.“
Stef um minningar
Stundum
þegar ég heyri fallegt lag
þá setur mig hljóðan.
Ég hafði heyrt þetta áður;
minningarnar
síbyljur mannshugans
og uppspretta góðs og ills
verða að deyjandi draumum.
… Mig setur hljóðan
- víst semja mennirnir ennþá falleg lög –
en lagið mitt litla kemur aldrei aftur
(Vilmundur Gylfason)
Ég votta Einari, Söru, Maríu
og Helgu Björk mína dýpstu sam-
úð.
Sigþrúður (Dúa).
Elsku pabbi
minn. Þegar Elín
Rós systir mín
hringdi í mig og
sagði að þú værir
látinn þá fannst mér það svo
óraunverulegt. Ég varð allur
máttlaus og dofinn. Ég horfði
til himins og niður runnu tár.
Ég er svo þakklátur fyrir að
hafa fengið að kynnast þér og
að við fengum að eiga margar
góðar stundir saman. Þú varst
svo fallegur, vel greindur og
hafðir mikla kímnigáfu.
Mér fannst svo gaman að
tala við þig um íþróttir og
margt annað sem var að gerast
hverju sinni og ég gleymdi oft
tíma og stað þegar þú rifjaðir
upp gamla góða tíma. Fjöl-
skyldan var þér mjög kær og
mikilvæg og þú varst mjög
Helgi Baldvinsson
✝ Helgi Baldvins-son fæddist 6.
mars 1945. Hann
lést 12. ágúst 2015.
Útför Helga fór
fram 21. ágúst
2015.
stoltur af börnum
þínum og barna-
börnum. Nú sakna
ég að heyra rödd
þína og yndislega
hlátur þinn. Ég
sakna þess að hafa
þig hjá mér. Það er
svo sárt að þú sért
farinn en ég trúi
því og treysti að við hittumst á
ný. Guð geymi þig, elsku pabbi
minn.
Þegar þú hefur vind í fang,
þá haltu höfðinu hátt.
Hræðstu ei myrkrið,
það mun birta til.
Því að ljós heimsins
mun þér lýsa
í gegnum dauðans dimman dal.
Hann fer á undan
í gegnum storm og regn.
Þú munt aldrei ganga einn,
munt aldrei ganga einn.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Davíð Páll Helgason.
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
PÉTURS JÓSEFSSONAR.
Fróðengi 9, Reykjavík
Helgi Pétursson Lísa María Pétursson
Halldór Pétursson Halldóra Ingibergsdóttir
Hildur Pétursdóttir Oliver Kentish
Hólmfríður Pétursdóttir Arnar Helgi Kristjánsson
Arnkell Logi Pétursson Marta María Hafsteinsdóttir
Marta María Hafsteinsdóttir Dröfn Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinsemd við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
HERMANNS ÁGÚSTS,
Engjavegi 53, Selfossi.
Þá eru starfsfólki á dagdvölinni Árbliki og á lyflækninga- og
göngudeild HSU sendar þakkir fyrir góða umönnun og hlýtt
viðmót. Einnig sérstakar þakkir til Karlakórs Selfoss fyrir söng
í kirkju og ógleymanlega stund fyrir utan kirkjuna að lokinni
athöfn.
Guðmunda Auður Auðunsdóttir
Auðunn Hermannsson Bergþóra Þorkelsdóttir
Birna Gerður Hermannsd. Björn Sigþórsson
Hulda Soffía Hermannsdóttir Gunnar Þór Jónsson
Auður Ágústa Hermannsd. Guðjón Sævarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, bróðir,
mágur, afi og langafi,
GUÐMUNDUR SVEINBJÖRN MÁSSON,
Skólabraut 10, Seltjarnarnesi,
lést sunnudaginn 7. febrúar.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
mánudaginn 22. febrúar klukkan 11.
Jóhanna Guðmundsdóttir Mohsen Khajeh
Árni Steinsson Jónína M. Árnadóttir
Theódór Þór Steinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SVEINN JÓHANN SVEINSSON
bifreiðastjóri,
Vallarbraut 4, Seltjarnarnesi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
laugardaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá
Neskirkju við Hagatorg þriðjudaginn 23. febrúar klukkan 13.
Útförinni verður streymt og má finna hlekk á mbl.is/andlat.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Blóðbankann sem safnar fyrir nýjum
blóðbankabíl.
Lilja I. Sveinsdóttir
Margrét Þóra Sveinsdóttir Sævar Már Kjartansson
Sigurður Ingi Sveinsson Signý Leifsdóttir
Logi Arnar Sveinsson
og barnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
KRISTINN Á. GUÐJÓNSSON
klæðskerameistari,
áður til heimilis í Langagerði 28,
lést á Hrafnistu Boðaþingi sunnudaginn
14. febrúar. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 23. febrúar
klukkan 13.
Ómar Kristinsson Kristín Geirsdóttir
Hörður Kristinsson Rut María Jóhannesdóttir
Pálmi Kristinsson Salóme Tynes
Svandís Kristinsdóttir Sveinn Bragason
Reynir Holm
barnabörn og barnabarnabörn