Morgunblaðið - 18.02.2021, Side 39

Morgunblaðið - 18.02.2021, Side 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Um síðastliðin ára- mót var skimun fyrir leghálskrabbameini færð frá Krabba- meinsfélaginu til heilsugæslunnar. Jafnframt var ákveð- ið að semja við danska rannsókn- arstofu um að greina sýnin en sú ákvörðun var tekin þvert á álit meirihluta fagráðs um leghálsskimanir og að því er virðist án samráðs við aðra en heilsugæsluna. Heilbrigðisráðherra segir það vera öryggismál að fá utanaðkom- andi aðila til að greina sýnin. Það er umhugsunarefni að ráðherra heilbrigðismála skuli tala niður ís- lenskar rannsóknarstofur og var- hugaverð þróun að sýni séu send úr landi á þeim forsendum að ekki sé hægt að tryggja gæði og öryggi rannsókna sem gerðar eru innan- lands. HPV-veiran veldur nær öllum forstigsbreytingum og krabba- meinum í leghálsi og meirihluti kvenna smitast af veirunni á lífs- leiðinni. Flestar sýkingar ganga fljótt yfir en sýking getur orðið viðvarandi og þá mögulega valdið frumubreytingum. Með HPV- veiruprófi er hægt að greina HPV-sýkingu. Sam- kvæmt nýju verklagi verður gert HPV- veirupróf á legháls- sýnum þeirra kvenna sem eru 30 ára og eldri og síðan ein- ungis gerð smásjár- skoðun á þeim sýnum sem reynast jákvæð í HPV-veiruprófinu. Þetta gerir frumu- skoðun í smásjá hnit- miðaðri enda fækkar eðlilegum frumusýn- um. Með þessari breytingu verður meiri þörf á veiruprófum en áður. Sýkla- og veirufræðideild Land- spítalans er gæðavottuð rann- sóknarstofa, með góða fagþekk- ingu, fullkominn tækjabúnað og mikla afkastagetu til að greina HPV-veiruna. Sýkla- og veiru- fræðideild Landspítalans hefur auk þess sinnt þessari þjónustu síðastliðin tvö ár fyrir Krabba- meinsfélagið. Innan meinafræðideildar Land- spítalans er starfrækt frum- umeinafræðideild þar sem skoðuð eru frumusýni frá ýmsum líf- færum. Þessi þjónusta skiptir sköpum þegar kemur að því að ákveða áframhaldandi meðferð sjúklinga. Tækjabúnaður, aðstaða og mannskapur til að sinna frumuskoðun á skimunarsýnum frá leghálsi er ekki til staðar á Landspítalanum núna. Hins veg- ar hefði auðvitað með viðeigandi ráðstöfunum verið hægt að færa þessa starfsemi inn á Landspít- alann og tryggja þar viðhalds- menntun, gæðaeftirlit og þjálfun starfsmanna. Félag íslenskra rannsókn- arlækna harmar að sú leið skuli ekki hafa verið valin að skimun fyrir leghálskrabbameini verði gerð innanlands. Félagið telur al- rangt að gæði og öryggi rann- sókna, og þar með heilsa og ör- yggi kvenna, séu best tryggð með samningum við erlenda aðila. Þvert á móti; boðleiðir verða styttri og skilvirkni meiri með því að halda áfram að gera þessar rannsóknir á Íslandi. Fyrir hönd Félags íslenskra rannsóknarlækna, Skimun fyrir legháls- krabbameini – opið bréf til heilbrigðisráðherra Eftir Önnu Mar- gréti Jónsdóttur Anna Margrét Jónsdóttir » Það er varhugaverð þróun að sýni séu send úr landi á þeim forsendum að ekki sé hægt að tryggja gæði og öryggi rannsókna sem gerðar eru innan- lands. Höfundur er formaður Félags ís- lenskra rannsóknarlækna og sér- fræðingur í meinafræði. Lakasta frammistaða íslenska handknattleiks- liðsins er staðreynd. Sæti númer 20. Algerlega óvið- unandi niðurstaða og gegn henni finnast engar afsak- anir. Það hefur held ég aldrei eða sjaldan áður verið til efnilegri og stæði- legri hópur ungra leik- manna en sá sem sendur var til Kaíró nú í janúar- mánuði sl. til að keppa fyrir hönd Ís- lands. Blandaður hópur hvað aldur varðar, margir atvinnumenn, reynslu- boltar og aðrir frábærir úr ýmsum fé- lögum á þröskuldi atvinnumennsk- unnar. Frábær hópur sem landsliðsþjálfar- anum tókst ekki að gera að sigrandi klukkuverki. Það sem maður sá til þeirra og var mest áberandi var að allir voru þeir með góða skothæfileika; gátu nánast skorað úr hvaða færi sem gafst. Enginn hörgull á því. Línuspil var af- leitt á köflum, lítið um snöggar gólf- sendingar, áttu í erfiðleikum með að gera usla í vörn andstæðinga, hraðinn ekki nægur. Hornamenn skiluðu sínu þegar þeir fengu boltann. Þetta virtist vera höfuðlaus her. Skipstjóri sem ekki fiskar er snar- lega settur í land. Þjálfari sem kemur ekki liði sínu í fremstu röð á að fara. Þjálfari sem gerir lítið annað en að væla og er sífellt að leita að afsökunum eins og meiðslum, ungu liði, þreytu og þar fram eftir götunum yfir hinum laka árangri er auðvitað villuráfandi og úr- ræðalaus. Eitt dæmi: Það arfavitlausa plan sem Guðmundur Þ. lagði upp fyrir leik- inn við Sviss er óskiljanlegt, leikmenn virtust bundnir einhverju óskiljanlegu leikkerfi og með blý- klump í skónum, með bremsurnar fastar í al- gerlega skipulags- lausum leik þar sem þjálfarinn gerði lítið annað en garga og góla af hliðarlínunni. Ekkert plan B eða C eins og sagt er. Að tapa fyrir þessu lélega liði Sviss er skandall. Fylgir ekki þjálf- arinn liðinu? Það er víst. Lið sem lendir í 20. sæti er því auðvitað með þjálfara sem er einnig í 20. sæti. Sem sagt: Afleit frammistaða þjálfara, sem hefur ekki náð nógu vel utan um lið sitt til að veita því léttleika í leik og fylla það sjálfstrausti. Öll lið verða fyrir meiðslum, öll lið þarf að yngja upp jafnt og þétt, þetta er ekki neitt nýtt og ekki hafandi orð um. Danir léku veikir með magakveisu lengi vel en urðu samt heimsmeistarar! Hvað segja menn við því? Það var sorglegt að horfa upp á þennan glæsilega og efnilega hóp sem hefði getað náð langt ef kunnáttumenn hefðu verið að verki. Svo þarf einnig að láta þennan sænska markmannsþjálfara taka pok- ann sinn, eftir hann liggur ekkert sem markvert er, við erum enn með miður góða markmenn, hann má missa sín. Það þarf að skipta alveg um í brúnni, og það sem fyrst, skipið fiskar ekki. 20. sæti Eftir Jóhann L. Helgason Jóhann L. Helgason » Frábær hópur sem landsliðsþjálfaranum tókst ekki að gera að sigrandi klukkuverki. Höfundur er húsasmíðameistari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.