Morgunblaðið - 18.02.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 18.02.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Sjáum um allar merkingar Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is Gísli, sölu- og markaðsstjóri vinnufatnaðar Sími 766 5555 | gisli@run.is ÖRYGGIS- SKÓR VANDAÐUR VINNUFATNAÐUR 6424 6202 55505536 3307 3407 SAFE & SMART monitor Rekstraraðili tímabundinna hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) auglýsa hér með eftir viðræðum við rekstraraðila, einn eða fleiri, á höfuðborgarsvæðinu sem getur tekið að sér rekstur hjúkrunarrýma til allt að fjögurra ára. Um er að ræða almenn hjúkrunarrými sem lúta lögum og reglum um færni- og heilsumat og greitt er fyrir með daggjöldum í samræmi við núgildandi samninga um rekstur hjúkrunarrýma. Stefnt er að því að verkefnið hefjist 1. júní nk. Upplýsingar má nálgast á heimasíðu SÍ undir: https://www.sjukra.is/heilbrigdisstarfsfolk/oldrunarthjonusta/ Einnig á vef stjórnarráðsins: https://www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti- media/media/skyrslur2016/Krofulysing_fyrir_hjukrunar_og_ dvalarrymi_20092016b.pdf https://www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti- media/media/rit-og-skyrslur-2014/Vidmid_um_skipulag_ hjukrunarheimila_2014.pdf Nánari upplýsingar veitir samningadeild SÍ í gegnum netfangið innkaup@sjukra.is Áhugasamir rekstraraðilar eru vinsamlega beðnir að tilkynna sig með tölvupósti á innkaup@sjukra.is fyrir 8. mars 2021. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftirspurn hefur verið mjög mikil eft- ir þjónustu sjúkraþjálfara síðustu misseri og víða eru langir biðlist- ar, að sögn Unnar Pétursdóttur, for- manns Félags sjúkraþjálfara. Hugsanlega megi rekja eitthvað af vandamálum fólks síðustu mánuði til kórónuveirusýk- inga og einnig verða sjúkraþjálf- arar varir við aukinn stoðkerfisvanda hjá fólki vegna meiri kyrrsetu við heimavinnu, að sögn Unnar. „Eins og staðan er núna er tals- verð óvissa um hversu margir og í hve miklum mæli fólk þarf á þjónustu sjúkraþjálfara að halda vegna kór- ónuveikinnar og vandamála sem tengjast henni,“ segir Unnur. Margir finna fyrir krankleika Hún segir að spurn eftir aðstoð sjúkraþjáfara hafi verið mikil og nokkuð stöðug í langan tíma. Stóra breytingin hafi orðið fyrir um tveim- ur árum þegar greiðslufyrirkomulagi var breytt og ekki varð jafn íþyngj- andi fjárhagslega fyrir fólk að sækja þessa þjónustu. „Síðan hefur verið endalaus eft- irspurn og langir biðlistar nánast hvar sem fæti er drepið niður,“ segir Unnur. „Stundum veit ég ekki hvort ég á að fagna eða harma það hversu mikið er að gera hjá sjúkraþjálfurum. Það er gott að mitt fólk hafi nóg að gera og sé í eftirspurn, en á móti kemur að þá finnur margt fólk fyrir krankleika, sem þarf að ráða bót á.“ Síðasta vor þurftu sjúkraþjálf- arar að draga mjög úr þjónustu sinni í um sex vikur vegna takmarkana í faraldrinum. Sumar stofur lokuðu al- veg þennan tíma, en aðrar veittu tak- markaða þjónustu og sinntu neyðar- verkefnum, sem ekki máttu bíða. Unnur segist telja að fyrir nokkru sé búið að vinna á þeim kúf sem mynd- aðist vegna þessa. Ný reglugerð áhyggjuefni Unnur segir að mesta áhyggju- efni sjúkraþjálfara þessa dagana tengist nýrri reglugerð heilbrigðis- ráðherra um að nýútskrifaðir sjúkra- þjálfarar þurfi að vinna á sjúkra- húsum eða öðrum stofnunum í tvö ár áður en þeir geti ráðið sig á einka- reknar stofur sjúkraþjálfara með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Á sama tíma og þörf sé á fjölgun á stof- unum megi ekki lengur niðurgreiða þjónustu sjúkraþjálfara nema hann sé kominn með tveggja ára starfs- reynslu. Unnur bendir á að í ár séu 40 ár frá því fyrsti árgangur sjúkraþjálfara útskrifaðist frá Háskóla Íslands og nú sé hópur sjúkraþjálfara í fyrsta skipti að fara af vinnumarkaði sökum aldurs. „Ráðherra skellir þessari reglu- gerð á okkur algjörlega fyrirvara- laust og án raka. Að óbreyttu verður þetta ekki til annars en að lengja bið- lista sem eru þó langir fyrir. Við höf- um skrifað ráðherra og rætt við ráðu- neytið, en ekki fengið svör önnur en þau að þetta sé heimilt að gera, sem við drögum reyndar í efa,“ segir Unn- ur. Þjónustuskerðing úti á landi? Hún segist hafa sérstakar áhyggjur af landsbyggðinni í þessu sambandi og óttist að þar verði þjón- ustuskerðing þvert á orð um að efla heilbrigðisþjónustu úti um land. Unn- ur segist eiga von á að þessi staða og óvissan sem henni fylgi verði rædd á Alþingi í næstu viku. Annir Sjúkraþjálfari að störfum, en víða eru langir biðlistar eftir þjónustu og hefur svo verið í talsverðan tíma. Víða langir biðlistar eftir sjúkraþjálfurum  Kyrrseta í kórónuveirufaraldri gæti hafa aukið vandann Unnur Pétursdóttir Matur Norðmenn áttu í gær eftir að veiða um 1.733 tonn af loðnukvóta sínum við landið, samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Heildarkvóti þeirra hér við land er 41.808 tonn. Alls hafa 57 norsk skip stundað veiðarnar, en 68 skip fengu leyfi. Í gær voru átta norsk skip að veiðum fyrir austan land, en þeim er heimilt að veiða loðnu í lögsögunni til og með 22. febrúar. Aflanum hafa Norðmenn landað í Noregi, Færeyjum og hérlendis; á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Eftir að gjósa upp vestar? Rúmlega tugur skipa var að veiðum á Meðallandsbug í gær, sjö íslensk, fjögur færeysk og eitt grænlenskt. Loðnan hefur haldið sig á þessum slóðum síðustu daga og lítil hreyfing verið á henni í vesturátt. Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 1.100 tonn af loðnu og á heimasíðu Síldarvinnslunnar er haft eftir Hjörvari Hjálmarssyni skipstjóra að hrygnu- hlutfall í aflanum hafi verið gott, hrognafylling 17% og át- an einungis 0,3. „Ég tel að þetta sé alls ekki fremsti hluti loðnugöngunnar og það eigi eftir að gjósa upp loðna í Háfadýpinu eða við Eyjar á næstu dögum. Annars er loðna mjög víða, meðal annars hérna fyrir austan,“ sagði Hjörvar. aij@mbl.is 68 norsk skip fengu leyfi  Íslensk, færeysk og græn- lensk skip á Meðallandsbug Venus NS Nótin komin á síðuna og loðnu dælt um borð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.