Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er glæsileg aðstaða og gestir hafa verið mjög ánægðir með endurbæturnar,“ segir Hafsteinn Ingi- bergsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í Reykja- nesbæ. Endurbótum er nú að ljúka við Vatnaveröld, sund- miðstöðina í Reykjanesbæ. Þær hófust síðasta sumar og átti að ljúka í október en seinkaði um nokkra mánuði. Settir voru upp nýir útiklefar, kaldur pottur, vaðlaug og heitur pottur mót morgunsól auk þess sem gufubað var endurnýjað og sánu bætt við. Rúsínan í pylsuendanum verður svo spánný vatnsrennibraut sem verður vonandi tekin í notkun eftir tvær til þrjár vikur að sögn Haf- steins. Áætlaður kostnaður við endurbæturnar var tæp- ar 100 milljónir króna. „Krakkarnir bíða spenntir eftir að fá þessa braut,“ segir Hafsteinn en nýja vatnsrennibrautin verður hreint ekkert slor. Hún verður tvískipt, sú hærri tíu metra há og sú minni sex metra há. Stærri rennibrautin verður 74 metra löng. Uppgönguturn að rennibrautunum verður lokaður og upphitaður og hvorki meira né minna en tólf metra hár. Þá verður hægt að stýra lýsingu og hljóði í brautunum til að auka upplifunina. Rennibrautin var keypt frá Tyrklandi og hefur þar- lendur sérfræðingur stýrt uppsetningu á henni að und- anförnu með verktökum af svæðinu. Litrík Nýja rennibrautin verður sett saman á næstu dögum og brátt tekin í gagnið. Sund Vatnaveröld í Reykjanesbæ þykir ein af skemmtilegri sundlaugum landsins. Gestir ánægðir með endurbæturnar  100 milljóna framkvæmd- ir í Reykjanesbæ  Vegleg rennibraut opnuð bráðlega Morgunblaðið/Eggert Endurbætur Skugginn af uppgönguturni rennibrautarinnar sýnir hæð hans. Ný vaðlaug og pottar njóta þegar vinsælda meðal gesta. „Sundlaugin er himneskur stað- ur, sá allra besti,“ segir Árni Ás- mundsson, einn fastagestanna í sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ. Árni og systir hans, Ása Ás- mundsdóttir, tóku vel á móti ljós- myndara Morgunblaðsins í vik- unni. Segir Árni að þau systkin hittist nær daglega í lauginni. Á- in fjögur eins og hann kallar þau. „Ég get ekki verið án sundsins. Ég er nú nýhættur að vinna en þegar maður var að koma af tólf tíma vakt í Fríhöfninni var maður eins og nýr maður eftir sund- ferð.“ Árni lætur vel af endurbótum á lauginni, nýju pottarnir lofi góðu og örtröð verði eflaust í renni- brautina í sumar. „Hér er gott starfsfólk og það er vel hugsað um mann. Eftir sundið getur mað- ur sest niður, fengið sér kaffi og lesið blöðin. Á þorranum er boðið upp á síldarbita og rúgbrauð. Eina sem vantar er að manni sé Himneskur staður Morgunblaðið/Eggert Sátt Systkinin Árni og Ása slaka gjarnan á í pottinum. BORÐ- OG GÓLFLAMPAR Kartell Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is BATTERY Borðlampi Fleiri litir Verð frá 21.900,-TAKE borðlampi fleiri litir Verð 12.900,- KABUKI Gólflampi – Verð 129.000,- Borðlampi – Verð 52.900,- BOURG Borðlampi – fleir Verð frá 39.9 CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- IE i litir 00,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.