Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 32

Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2020 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta hefur í raun verið alveg ótrúleg vegferð. Við höfum stækkað hratt og munum halda áfram að vaxa,“ segir Árni Þór Árnason, einn eigenda og framkvæmdastjóri við- skiptaþróunar AwareGO. Fyrir- tækið framleiðir stutt fræðslu- myndbönd um gagnaöryggi, en það var stofnað fyrir tólf árum. Starfs- mennirnir telja nú hátt í 30 og er fyrirtækið með starfsemi í fjórum löndum, á Íslandi, í Bandaríkjunum, Tékklandi og Króatíu. Með tilkomu kennsluhugbúnaðar sem þróaður var hjá AwareGO fyrir um þremur árum fóru hjólin að snúast hraðar. Á næstu dögum mun tæknifyr- irtækið greina frá samningi við stórt alþjóðlegt fyrirtæki, sem er með starfsstöðvar í um 140 löndum. „Þeir munu selja okkar lausnir merktar eigin vörumerki. Við erum að horfa fram á margföldun á veltu næstu misseri,“ segir Árni sem kveðst ekki geta greint frá verð- mæti samningsins. Það hlaupi þó á milljónum bandaríkjadala. Að- spurður segir hann veltu fyrir- tækisins í dag vera á annað hundr- að milljónir króna. „Við erum að velta á annað hundrað milljónum króna, sem eru kannski ekki miklar tekjur í sjálfu sér. Það er meira staðfesting á því sem við erum að gera.“ Þjálfun mjög mikilvæg Líkt og fyrr segir segir selur AwareGO fræðslumyndbönd og kennsluhugbúnað fyrir net- og gagnaöryggi til fyrirtækja. Alls hef- ur fyrirtækið komið að þjálfun átta milljóna starfsmanna um heim all- an. „Manneskjan er veikasti hlekk- ur í gagnaöryggi í dag. Menn fara aðrar leiðir en áður til að komast inn í kerfi fyrirtækja. Nú er reynt að fara í gegnum starfsfólkið þannig að þjálfun þess er orðið stærsta at- riðið,“ segir Árni og bætir við að fyrirtækið hafi stækkað mikið í gegnum samstarf við endursöluaðila um allan heim. „Við vinnum með öll- um. Við getum selt þjálfunarefni, hugbúnaðarlausnir og skýjalausnir. Okkar viðskiptamódel er þannig að við erum að vinna mjög mikið með endursöluaðilum sem sérhæfa sig í þjónustu við stærri fyrirtæki eins og til dæmis Advania, Eloomi og TrendMicro,“ segir Árni. Eru í miklum vaxtarfasa Ekki er langt síðan starfsmenn AwareGO voru einungis tveir tals- ins, Árni og stofnandinn Ragnar Sigurðsson. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar og fyrir- tækið vaxið umtalsvert. Mikill áhugi hefur verið á AwareGO undanfarið ár, en að sögn Árna hafa fjórir að- ilar lýst yfir áhuga á að fjárfesta í félaginu á umræddu tímabili. Eig- endahópurinn í dag samanstendur af fjárfestingafélaginu Eyrir Vent- ures með rétt yfir 30% hlut, starfs- mönnum og stjórnendum með hátt í 59% hlut og englafjárfestum. Segir Árni að fyrirtækið sé nú að vinna að svokallaðri vaxtarfjármögnun til að styðja við fyrirhugaðan vöxt á öllum sviðum rekstursins. Fyrirtækjaráð- gjöf Kviku banka hefur haft milli- göngu um ferlið, en stefnt er að því að sækja tíu milljónir bandaríkja- dala með sölu á nýju hlutafé. „Við erum í miklum vaxtarfasa og erum að undirbúa fjármögnun til að styðja við þennan mikla vöxt. Það þýðir jafnframt að við þurfum að ráða margt nýtt fólk og styrkja starfsstöðvar okkar erlendis. Ef vel gengur þá eigum við von á því að starfsmannafjöldinn tvöfaldist aftur á þessu ári.“ Gera risasamning við stórt alþjóðlegt fyrirtæki Framkvæmdastjóri Árni Þór á, ásamt öðrum starfsmönnum fyrirtækisins, stóran þátt í uppgangi AwareGO.  AwareGO hefur stækkað hratt  Ætla að sækja tíu milljónir dala í nýtt hlutafé Hagnaður Kviku banka nam 2,3 milljörðum króna á síðasta ári, sam- kvæmt tilkynn- ingu. Samanborið við árið á undan lækkar hagnaður félagsins um fjór- tán prósent, en hann var tæplega 2,7 milljarðar árið 2019. Arðsemi eigin fjár bankans á árinu var 14,2% en arðsemi eigin fjár á fjórða ársfjórðungi nam 21,9%. Eignir Kviku nema nú rúmum 123 milljörðum króna samanborið við tæplega 106 ma.kr. í lok árs 2019. Eigið fé nam 19,2 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall er 28,3% sam- anborið við 24,1% í lok árs 2019. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu er stefnt að samruna við TM hf. og Lykil fjármögnun hf. fyrir lok fyrsta ársfjórðungs. Eftirlits- aðilar og hlutahafafundir félaganna hafa ekki samþykkt samrunann. Kvika hagnaðist um 2,3 ma.kr. árið 2020 Marinó Örn Tryggvason 18. febrúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.15 Sterlingspund 178.19 Kanadadalur 101.25 Dönsk króna 20.924 Norsk króna 15.264 Sænsk króna 15.495 Svissn. franki 144.09 Japanskt jen 1.2142 SDR 184.77 Evra 155.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.9567 Hrávöruverð Gull 1823.45 ($/únsa) Ál 2079.0 ($/tonn) LME Hráolía 63.47 ($/fatið) Brent STUTT ● Ellefu prósenta vöxtur varð í inn- lendri verslun á síðasta ári, sam- anborið við árið á undan. Er þá litið bæði til innlendrar og erlendrar korta- veltu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Rannsókna- setri verslunar- innar sem ber yfirskriftina Árið í versl- un. „Samanlögð verslun (þ.e. innlend og erlend kortavelta á Íslandi) vex um 50 milljarða á milli ára, þrátt fyrir 60% samdrátt í verslun erlendra ferðamanna (erlend kortavelta),“ segir í skýrslunni. Í skýrslunni kemur fram að neyslu- hegðun Íslendinga breytist lítið á milli ára. Þeir eyði mestum fjármunum í stórmörkuðum og dagvöruverslunum. Þá segir að aukning mælist í flestum vöruflokkum innlendrar verslunar á milli ára, fyrir utan sam- drátt í tollfrjálsri verslun sem og bóka, blaða og hljómplötuverslun. Samkvæmt skýrslunni mælist vef- verslun 7% af innlendri verslun og vex um 152% á milli ára. Erlend verslun dregst saman um 60% að því er fram kemur í skýrslunni. Innlend verslun jókst um 11% á síðasta ári Net Vefverslun eykst um 152%. Tryggingafélagið TM hagnaðist um rúma tvo millj- arða króna á síð- asta fjórðungi síðasta árs, sam- kvæmt tilkynn- ingu. Þar segir að afkoma TM af vá- trygginga- starfsemi á fjórð- ungnum hafi batnað umtalsvert milli ára og sam- sett hlutfall hafi verið 94,9% sam- anborið við 106,6% á sama tímabili árið 2019. Segir jafnframt að lækkun samsetts hlutfalls á fjórðungnum megi einkum rekja til batnandi af- komu af eignatryggingum, sjótrygg- ingum og ökutækjatryggingum. Af- koma TM-samstæðunnar fyrir árið 2020 í heild var 5,3 milljarðar króna en hún var 1,9 milljarðar árið 2019. Eignir félagsins í lok ársins námu 83 milljörðum króna og hækkuðu úr 41 ma.kr. árið 2019. Eigið fé félagsins er nú tæpir 23 ma.kr. Eiginfjárhlut- fall var 27% í árslok 2020. TM hagnast um 2 ma. á lokafjórðungi 2020 Sigurður Viðarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.