Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Davíð Ólafsson,
löggiltur fasteignasali,
leigumiðlari og
viðskiptafræðingur
BERG Fasteignasala | Háholt 14 | Mosfellsbæ
Sími 588 5530 | berg@berg.is | berg.is
ATVINNUHÚSNÆÐI
SKRIFSTOFUR – IÐNAÐARBIL
Hafðu samband við okkur og við aðstoðum og finnum
rétta aðilann fyrir þig eða réttu eignina.
Þarftu að selja, kaupa, leigja út
eða taka á leigu?
Norðurhella 8 til sölu eða leigu
321,5 til 1798,1 fm
Sími 766 6633
Viðarhöfði 1 til leigu
391,8 fm
2.400.543 dauðsföllum og kostað
margfalt fleiri sjúkrahúsvist og
sýkt um 110 milljónir manna.
Verst hafa Bandaríkin orðið úti
með 485.337 dauðsföll, Brasilía með
239.245, Mexíkó með 174.207, Ind-
land með 155.732 og Bretland með
117.166.
Ekki upprætt með öllu
Auk þessa hefur kórónuveiru-
faraldurinn valdið nær ómælanlegu
efnahagstjóni og samfélagsröskun
sem á sér vart hliðstæðu í gjör-
vallri sögu mannkynsins.
„Það virðist líklegt að hún verði
hér áfram, verði ekki upprætt með
öllu,“ sagði Ammon. „Hún virðist
laga sig ágætlega að mannfólkinu
og við ættum því að búa okkur
undir það að hún verði hér áfram,“
bætti hún við. „Hún yrði ekki
fyrsta veiran til að dveljast hér um
aldur og ævi og það er ekki óvenju-
legt fyrir vírus.“
Þótt bóluefni dragi verulega úr
líkum á sýkingum af völdum kór-
ónuveirunnar, Covid-19, hefir vís-
indamönnum enn ekki tekist að
staðfesta að bóluefnið dragi úr
framferð sjúkdómsins. Og hvenær
verður það vitað?
„Það munu enn líða einhverjir
mánuðir þar til við komumst að því.
Það þarf vissan fjölda af bólusettu
fólki til að fylgjast með. Það er ver-
ið að setja í gang sérstakar rann-
sóknir til að finna út hvort bóluefn-
ið hindri útbreiðsluna,“ sagði
Ammon, en nú hafa 177,6 milljónir
sprautuskammta Covid-19-bóluefnis
ratað inn í axlarvöðva fólks um all-
an heim.
Víða gætir efasemda um gagn-
semi bóluefnisins gegn sumum af-
brigðum veirunnar, sérstaklega þó
gegn suðurafríska afbrigðinu og því
brasilíska.
Hlaupa verður endasprettinn
Ammon benti á að breyta þyrfti
árlega bóluefni gegn venjulegri
flensu þar sem veiran sjálf stökk-
breytir sér. „Það gæti orðið ofan á
að kórónuveiran geri slíkt hið sama
eða að einhvern tíma komist hún í
jafnvægi þar sem hægt verður að
beita einu og sama bóluefninu leng-
ur,“ sagði hún við frönsku frétta-
veituna AFP.
Ammon hvatti ESB-ríkin til að
viðhalda þvingandi aðgerðum í
vörnum sínum gegn veirunni þrátt
fyrir fækkandi sýkingartilfelli um
nær alla álfuna.
„Myndin er enn blandin. Við er-
um ekki úr hættu sloppin,“ sagði
hún og vísaði til þess að öll ESB-
ríkin að Finnlandi undanskildu
glímdu enn við faraldsfræðilegt
ástand sem ylli áhyggjum.
„Allir eru búnir að fá nóg af að-
gerðunum en þegar menn eru í
langhlaupi verður líka að hlaupa
endasprettinn síðustu kílómetrana,“
sagði hún af þunga.
Daglega eiga sér stað um 150.000
ný smit í Evrópu miðað við um
250.000 tilvik fyrir um mánuði,
samkvæmt opinberum gögnum sem
AFP-hefur safnað. Fara verður
hægt og jafnt í að létta á viðspyrn-
unni og „taka bara eitt skref í einu.
Ekki taka nýtt skref fyrr en hið
fyrra hefur komið á jafnvægi eða
valdið fækkun,“ sagði Ammon.
Vonarglæta
Eftir síðustu stóru ágjafirnar
birtist vonarglæta í því að dregið
hefur úr sýkingarhraða á jarðar-
kringlunni í heild um 44,5% síðasta
mánuðinn. Sérfræðingar í sjúk-
dómavörnum segja þó að bóluefni
muni ekki yfirbuga kórónuveiruna
og stöðva faraldurinn nema efninu
verði dreift fljótt og sem jafnast til
allra heimshorna.
Í opnu bréfi í breska læknaritinu
Lancet segja höfundar að birgða-
söfnun bóluefnis í ríkari löndum
gæti kostað það að mörg ár líði áð-
ur en kórónuveiran verði kveðin í
kútinn á heimsvísu.
Bólusetningaráætlun ESB átti að
fara í gang seint í jólamánuðinum
en byrjunin hefur verið mjög hökt-
andi vegna skorts á bóluefni og
truflunar og seinkunar á afhend-
ingu þeirra. Um síðustu helgi höfðu
aðeins 3% íbúa Evrópusambandsins
verið bólusett með fyrri skammti
og 1,4% höfðu fengið báða skammt-
ana, þ.e. að 20 milljónir skammta af
bóluefni höfðu verið gefnar.
Framkvæmdastjórn ESB hefur
sætt harðri gagnrýni fyrir hvernig
hún hefur haldið á verkefninu en
sambandið kveðst nú vænta þess að
lokið verði að bólusetja um 70%
íbúa sambandsins í sumarlok. „Allir
stefna í þá átt, öllum kröftum er
beitt í því skyni,“ sagði Ammon,
spurð að því hvort henni þætti það
raunhæft markmið.
Kórónuveiran ekki á förum
Kórónuveirufaraldurinn hefur á rösku ári valdið nær ómælanlegu efnahagstjóni um heim allan
Hefur leitt af sér samfélagsröskun sem á sér vart hliðstæðu í gjörvallri sögu mannkynsins
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Kórónuveiran mun að líkindum
halda áfram sveimi sínu um byggð
ból til langframa og það þrátt fyrir
tilkomu bóluefnis gegn henni.
Þetta sagði Andrea Ammon, for-
stöðumaður ECDC, heilbrigðis-
stofnunar Evrópusambandsins
(ESB), við AFP-fréttastofuna og
hvatti lönd álfunnar til að slaka
ekki á aðgerðum til að stemma
stigu við framrás veirunnar.
Rétt rúmt ár er frá því kórónu-
veikin kom upp í Kína en síðan hef-
ur hún breiðst út um allar jarðir og
á hádegi sl. mánudag valdið a.m.k.
Kórónuveirufaraldurinn í eitt ár: stiklað á stóru
Heimildir: AFP/pharmaceutical-technology.com/
thinkglobalhealth.org/who/NewScientist/ýmsir fjölmiðlar
Kínversk
stjórnvöld
segjast hafa
greint nýja
tegund
kórónuveiru
Alþjóða-
heilbrigðis-
málastofnunin
lýsir yfir
neyðarástandi
af völdum
heimsfaraldurs
Fyrsta
dauðsfall
af völdum
veirunnar
Heimilt að
opna verslanir
í Bretlandi
á ný. Dregið úr
takmörkunum
í New York
Bóluefni
Pfizer fær
markaðsleyfi
í ESB
Sérfræðingum
WHO hleypt inn
í Kína til að
rannsaka
uppruna
veirunnar
Sérfræðingur
WHO varar við
að hjarðónæmi
náist varla á
árinu þrátt fyrir
bólusetningar
Tilkynnt um mikla
virkni bóluefna
Pfizer/BioNTec
og Moderna
Fyrsta sending af bólu-
efni kemur til Íslands.
Bólusetning hefst daginn eftir
Samkomu-
takmarkanir
hertar á ný
á Íslandi vegna
aukins fjölda
smita
Rússar heimila
notkun á bólu-
efninu Sputnik 5
Víða um heim er gripið
til harðra sóttvarna-
aðgerða
7. janúar 11. jan
Fyrsta
tilfelli
utan
Kína
13. jan. 30. janúar
Tilkynnt um
fyrsta til-
fellið á
Íslandi.
Samkomu-
takmarkanir
fylgja í kjöl-
farið
28. febrúar
28. apríl
Júní
Júlí
Nóv.
Des.
Feb.
28. desember
30. desember
Bóluefni
AstraZeneca
fær markaðs-
leyfi í Bretlandi
14. janúar
Janúar 2021
Júní 22. des.
Byrjað
að aflétta
takmörk-
unum
á Íslandi
Huanan-
markaðnum
lokað og hann
sótthreinsaður
Rannsókn í Nature
bendir til þess að
leðurblökur séu líklegasti
hýsill veirunnar
og að beltisdýr kunni
að hafa borið veiruna
áfram í menn
Maí
30. júlíÁríðandi tilkynning
birtist á netinu frá
heilbrigðisyfirvöldum
í Wuhan í Kína um lungna-
bólgutilfelli af óþekktum
uppruna
30. desember 2019
1. janúar 2020
17. mars
Fyrsti Íslendingurinn
lést af völdum kórónu-
veirunnar. Daginn eftir
greindust 106 ný smit
23. mars
Nóv.
11. ágúst
200.000+ dauðsföll
300,000+
440,000+
1,3 m +
Okt.
1 m + 1,5 m +
2,4 m +
1,9 m +
Fram kemur að fyrsti sjúkl-
ingurinn hafi tengsl við
matarmarkað í Wuhan
Jan
Rannsókn
WHO lýkur
án niður-
stöðu
9. feb.
AFP
Bólusetning Læknir bólusetur 101 árs gamla konu við kórónuveirunni í þorpinu Guneyyamac í Tyrklandi.