Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna RAUÐRÓFUDUFT í hylkjum Lífrænt Rauðrófur innihalda nítrat sem er talið geta haft æðavíkkandi áhrif og aukið blóðflæðið. • Getur haft jákvæð áhrif á blóðþrýstinginn og súrefnisflæði í blóði getur aukist. • 100% náttúruleg innihaldsefni. „Ég hef lengi þekkt heilsueflandi eiginleika rauðrófunnar og þegar ég komst að því að hægt væri að taka duft í stað safans varð ég spennt að geta bætt þessu inn í mína daglegu bætiefnarútínu. Ég tek tvær töflur hálftíma fyrir æfingu því ég finn hvað líkaminn er fljótari að hitna og helst lengur heitur eftir upphitun ef ég geri það. Ég hef notað Beetroot í hálft ár núna og tek þau næstum daglega. Ég mæli eindregið með þessu bætiefni fyrir alla og þá sérstaklega íþróttafólk.“ segir Sólveig Bergsdóttir Íslandsmeistari og landsliðskona í fimleikum. Búið spil? Útlendingar, flóttafólk og „hvít- ir“ Íslendingar. Fyrir um áratug mátti víða heyra umræður um að fjölmenningarlegt samfélag Evrópu væri í vanda statt vegna þess að innflytjendur aðlöguðust ekki evr- ópsku samfélagi. Sú umræða hefur vel að merkja spunnist samhliða því að fólk af erlendum uppruna – og á margt hvert rætur að rekja til fyrr- um nýlendna þeirra Evrópulanda sem það býr í – hefur þurft að hlusta á svipaðar deilur og þær sem áttu sér stað hér á landi um Negrastrákana. Umræðan um vanda fjölmenn- ingarlegs sam- félags hefur ekki horfið í samtímanum, heldur breyst í áhyggjur af ógnum sem taldar eru steðja að Evrópu og Bandaríkj- unum vegna flóttafólks og hælisleit- enda (eða umsækjenda um alþjóð- lega vernd). Á sama tíma og umræðan um vanda fjölmenningar stóð sem hæst mátti einnig heyra rætt um að hafið væri tímabil eftir- rasisma þar sem kynþátta- fordómum væri í raun lokið og að við ættum að hætta að hafa áhyggj- ur af þeim. Þetta eru að mörgu leyti flóknar umræður sem ein- kennast af upphrópunum og því að merkja tiltekna hópa sem „góða fólkið“ annars vegar og „rasista“ hins vegar. Engu að síður er mikil- vægt að koma inn á þessa umræðu og hvernig hún lítur út þegar við höfum í huga það sem hefur verið haldið fram í fyrri köflum þessarar bókar. Að mínu mati hefur umræð- an um vanda fjölmenningarlegs samfélags verið á villigötum alveg frá upphafi. Hún gengur út frá röngum forsendum og felur í sér, rétt eins og umræðan um norrænu undantekninguna, minnisleysi sem er viðhaldið á margvíslegan hátt í samfélagi okkar og skapar þessa sakleysiskennd. Hið sama á við um- ræðuna um fólk á flótta í samtím- anum; hún hvílir á forsendum sem eru misvísandi, villandi eða rangar. Í þessum kafla tek ég fyrir þessa samtímaumræðu um fjölmenningu og velti upp þeirri spurningu hvernig umræðan lítur út ef við horfumst í augu við að rasismi er hluti bæði af fortíðinni og samtím- anum. Samhliða því bendi ég á hvernig umræðan um „fjölmenn- ingu í vanda“ og flóttafólk er ná- tengd viðvarandi hugmyndum um hvítleika sem á Íslandi hafa líkleg- ast skerpst frekar en dofnað. Á sama tíma og flestir eru á einu máli um að samfélög samtímans ein- kennist af vaxandi fjölbreytileika undir hatti þess sem er oftast kall- að fjölmenning, virðist jafnframt gengið út frá sífellt „hvítari“ fortíð Evrópu. Fjölmenningarhugtakið Þegar ég var krakki las ég af mikilli áfergju bækur Hals Foster frá miðri 20. öld um Prins Valíant, sem átti að vera uppi á tímum Artúrs konungs í Englandi. Þegar ég spyr nemendur mína hvort þeir þekki þessar bækur eru reyndar alltaf færri og færri sem þekkja þær, en fyrr á tímum lásu þær margar kynslóðir. Ég minnist að auki stundum á sakamálasögur Agöthu Christie sem einhverjir nemendur þekkja. Þær segja einnig frá fólki í Bretlandi og eiga flestar að gerast í samtíma Agöthu Chris- tie sjálfrar, á fyrri hluta 20. aldar. Hvað eiga þessar bækur eftir þessa ólíku höfunda þá sameiginlegt? Í bókum þeirra beggja eru fólks- flutningar undirliggjandi þráður sem kemur alltaf reglulega upp á yfirborðið. Í sögunum um Prins Valíant, riddara hringborðsins, er hann á stöðugum ferðalögum út og suður. Hann er skáldsagnapersóna en ferðir hans byggðust á sögum sem Foster las um ferðir annarra og því sem hann taldi að hefði mögulega getað gerst á þessum tíma, auk þess sem í sögunum koma fyrir ýmsir viðburðir sem áttu sér stað í Evrópu um þetta leyti. Að sama skapi sjáum við einnig að það er ekki bara Prins Valíant sem fer á milli staða heldur er sú Evrópa sem þá var til staðar Evrópa alls konar fólks, og allur bókaflokkurinn snýst um flutninga fólks á milli ólíkra heimsálfa. Í bók- um Agöthu Christie er þessi hreyf- anleiki fólks kannski ekki jafn mik- ið í forgrunni, en ef ólíkar bækur hennar eru skoðaðar frá sjónar- horni fólksflutninga áttar maður sig á að fólkið í bókunum fer fram og til baka á milli Bretlands og ann- arra landa eða svæða, einkum þeirra sem sem Bretar höfðu lagt undir sig. Þannig fer ofursti til Egyptalands, kennslukona kemur heim frá trúboði í Indlandi og þessi hópurinn eða hinn fer til Austur- landa í frí eða vegna vinnu. Árið 1871 er áætlað að um 750 þúsund breskir karlar væru við störf í þeim nýlendum sem Bretar réðu á þeim tíma. Ef þetta er haft í huga verður umræðan um fjölmenningu sem eitthvað nýtt bæði furðuleg og vill- andi. Hugtakið fjölmenning er oft- ast notað til að vísa til aukins fjöl- breytileika þjóðríkjanna og þeirrar staðreyndar að þau eru í auknum mæli samansett af fólki sem á ræt- ur sínar að rekja til ólíkra heims- hluta og hefur ólíkan menningar- legan bakgrunn og jafnvel litarhátt. Fjölmenningarhugtakið hefur þó ekki alltaf sömu merkingu, sem ræðst að einhverju leyti af því í hvaða landfræðilega samhengi það er notað. Í Kanada hefur fjölmenn- ing til dæmis lengi verið stefna stjórnvalda og hluti af þjóðarímynd Kanadabúa. Í Bandaríkjunum er fjölmenning aftur á móti oft tengd- ari baráttu minnihlutahópa fyrir réttindum og viðurkenningu sem gildir þátttakendur í samfélaginu, til dæmis með því að setja spurn- ingarmerki við fjölda bókmennta- verka hvítra karlmanna á leslistum í skólakerfinu, á meðan verk kvenna og fólks af öðrum uppruna en breskum hafa verið útilokuð. Í slíku samhengi snýst baráttan um að undirstrika að bandarískt sam- félag sé samansett af fleirum en eingöngu þessum forfeðrum. Í þjóð- ríkjum Evrópu er hugtakið oftast notað til þess að vísa til aukins fjölda innflytjenda sem eru taldir eiga sér annan menningar- eða trúarlegan bakgrunn. Hér virðist umræðan um fjölmenningarlegt samfélag oft ganga út frá því vísu að fjölbreyttur uppruni ein- staklinga sé nýr í samhengi þjóð- ríkjanna og að þess vegna þurfi að „aðlaga“ minnihlutahópa að ráðandi samfélagi. Rannsóknir hafa sýnt að tengsl við heimaland og samlanda á nýjum stað eru þvert á móti mikil- væg fyrir virkni í nýju samfélagi, eins og rannsóknir Unnar Dísar Skaptadóttur meðal Filippseyinga á Íslandi bera vott um. Enda þótt notkun hugtaksins fjölmenning feli oft í sér þá undirliggjandi forsendu að fjölbreytni sé ný dregur hug- takið engu að síður á mikilvægan hátt fram að fjölbreytileiki þjóð- ríkja er veruleiki. Þetta getur verið mikilvægt í stefnumótun hvað varð- ar ýmsa málaflokka í samfélaginu, til dæmis menntun. Í byrjun 21. aldar mátti víða í ríkjum Evrópu heyra því fleygt að nú væri komið „nóg“ af fjölmenn- ingarlegu samfélagi. Þær má meðal annars merkja í vexti stjórnmála- flokka og hreyfinga sem vilja berj- ast gegn fjölmenningu. Umræður um þessi mál stilla upp tveimur andstæðum fylkingum „heima- manna“ og „innflytjenda“. Oftast nær þó áherslan á „heimamenn“ einnig yfir einstaklinga sem eiga innflytjendabakgrunn en eru ljósir á hörund og eins getur merkimið- inn „innflytjendur“ vísað til fólks sem hefur búið í landinu í nokkrar kynslóðir. Breski félagsfræðing- urinn Gurminder Bhambra bendir til dæmis á þetta hvað varðar um- ræður um kosningahegðun í Bret- landi í tengslum við Brexit og kosn- ingu Trumps til forseta Bandaríkjanna árið 2016. Hún minnir á að í útskýringum sem byggjast á því að fólk hafi kosið Trump og útgöngu úr Evrópusam- bandinu vegna ótta við innflytj- endur gleymist oft að minnihlutar í þessum löndum hafa búið þar í margar kynslóðir. (Tilvísunum er sleppt.) Fjölbreytileiki þjóðríkja er veruleiki Bókarkafli | Í bókinni Kynþáttafordómar – í stuttu máli tekur Kristín Loftsdóttir kynþáttahugmyndir til skoðunar. Markmið bókarinnar er tvíþætt. Annars vegar að gefa greinargóða skýringu á kynþáttafordómum í ljósi nýlegrar fræðilegrar umræðu og hins vegar að sýna hvernig kynþáttahugmyndir hafa birst í íslenskri umræðu í ýmsum myndum, bæði í fortíð og samtíma. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Fjölmenning Kristín Loftsdóttir er prófessor í mannfræði við Háskólann og hefur meðal annars unnið að rann- sóknum á fordómum, nýlenduhyggju, hvítleika-hugmyndum og aðstæðum vegabréfslausra farandverkamanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.