Morgunblaðið - 23.02.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.02.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Vinna er hafin við uppsteypu með- ferðarkjarna Nýs Landspítala (NLSH) við Hringbraut og var t.a.m. byrjað að vinna við uppslátt og járnabindingu fyrstu undirstaðna hússins í seinustu viku. Á bilinu 50- 100 starfsmenn vinna á fram- kvæmdasvæðinu. Eykt hf., uppsteypuverktakinn á meðferðarkjarna Nýja Landspít- alans, er kominn á fulla ferð á verk- svæðinu við Hringbraut að sögn Gunnars Svavarssonar, fram- kvæmdastjóra NLSH ohf. Hann segir að vissulega hafi tekið tíma að koma sér fyrir og aðlaga sig verk- svæðinu en sá tími komi ekki að sök varðandi heildarframkvæmd verks- ins. Búnir undir vetrarhörkur Veðrið hefur ekki tafið fyrir fram- kvæmdum því einmuna blíða hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðast- liðnar vikur. Gunnar segir að menn séu alltaf búnir undir vetrarhörkur og það sé bónus fyrir alla aðila þegar snjóar ekki mikið „en um leið getur vissulega norðangarrinn í hörku- frosti verið erfiður. Nú eru menn þó það langt ofan í holunni að hún er eins konar skjól. Það kvartar í það minnsta enginn yfir veðrinu við Hringbraut,“ segir hann. Nýjar tæknilausnir hafa verið inn- leiddar í tengslum við framkvæmd- irnar og að sögn Gunnars hefur NLSH verið að kynna fyrir tækni- heiminum hér á landi m.a. í sam- starfi við Verkfræðingafélag Íslands svonefnda áætlunargerð í fimmtu víddinni sem er verkefni sem dansk- ir sérfræðingar frá Exigo A/S hafa þróað. Gunnar segir að vel sé af þessu látið í framkvæmdaáætl- unargerð og framkvæmdastjórnun með Exigo og Eykt í uppsteypuverki meðferðarkjarnans. Þetta séu í reynd risastór framfaraskref í þess- um fræðum. Nýr Landspítali kynnti útboðs- verk á árinu á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins á dögunum. Fyrirhugað er að bjóða út verk á árinu sem nema um ellefu milljörðum króna. „Það stærsta er samkeppnisútboð á útveggjum meðferðarkjarnans en einnig er jarðvinna vegna rann- sóknahússins á leið í loftið. Opnað var fyrir útboð á fullnaðarhönnun bílakjallarans fyrir viku og var hópur frá Verkís með lægsta tilboðið,“ seg- ir Gunnar. Fífilsgata boðin út í vor Þá er einnig fyrirhugað að ljúka lokuðum útboðum vegna rörpósts- kerfis, svokallaðs sorp&lín-kerfis, og alútboðsverki vegna bílastæða- og tæknihússins en forvali er lokið í öll- um þessum verkefnum. Áfram verði haldið með gatnagerðina m.a. í sam- starfi við Reykjavíkurborg og verður Fífilsgatan, sem áður hét Vatnsmýr- arvegur, boðin út á vormánuðum. NLSH hefur einnig verið að inn- leiða miklar breytingar á umliðnum mánuðum eftir að nýtt skipulag framkvæmdanna var sett á laggirnar af hálfu heilbrigðisráðuneytisins í samstarfi við fjármála- og efnahags- ráðuneytið. Að sögn Gunnars hafa línur skýrst vegna ábyrgðar á Hringbrautarverkefninu og NLSH hafa verið færð fleiri verkefni á þró- unar- og byggingarsviði af hálfu heil- brigðisráðuneytisins. Vinna á fullri ferð við uppsteypuna  Nýjar tæknilausnir innleiddar í tengslum við framkvæmdirnar við Nýjan Landspítala  Fyrirhug- að er að bjóða út verk á árinu sem nema um ellefu milljörðum kr  Vinnan gengið vel í blíðviðrinu Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Framkvæmd Uppsteypa meðferðarkjarna Nýs Landspítala við Hringbraut er hafin og sér Eykt hf. um verkið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa auglýst eftir viðræðum við rekstrar- aðila, einn eða fleiri, á höfuðborgar- svæðinu sem getur eða geta tekið að sér rekstur hjúkrunarrýma til allt að fjögurra ára. Óskað er eftir 100 rým- um að hámarki. Forsenda samnings er að rekstraraðili eða -aðilar leggi til húsnæði undir starfsemina. Stefnt er að því að verkefnið hefjist 1. júní næstkomandi. Um er að ræða allt að 100 hjúkr- unarrými á höfuðborgarsvæðinu til viðbótar við þau rými sem þegar eru í rekstri, að sögn Maríu Heimis- dóttur, forstjóra SÍ. „Um er að ræða tímabundið úr- ræði til að brúa bilið á meðan unnið er að uppbyggingu hjúkrunarheim- ila á svæðinu samkvæmt fram- kvæmdaáætlun til 2024. Eins og fram kemur í auglýsingunni er reiknað með að rekstraraðili útvegi húsnæði, hvort sem hann hefur sjálf- ur húsnæði til ráðstöfunar eða sem- ur við annan um að útvega það. Þar sem þjónustan á að hefjast innan skamms tíma er miðað við að nýtt verði húsnæði sem þegar er til stað- ar en ekki verði ráðist í byggingu nýs húsnæðis,“ sagði í skriflegu svari Maríu til Morgunblaðsins. Hún var spurð hvort með þessu væri verið að skapa grundvöll til að semja við aðila sem hafa boðist til að setja upp hjúkrunarheimili und- anfarið og kváðust geta útvegað hús- næði undir starfsemina? „Vel má vera að einhver þeirra aðila sem undanfarið hafa boðið t.d. hótelrými fyrir rekstur hjúkrunarrýma verði meðal þeirra sem svara auglýsingu SÍ,“ sagði í svari Maríu. Vísað í gildandi samninga Í tilkynningu SÍ kemur fram að um sé að ræða „almenn hjúkr- unarrými sem lúta lögum og reglum um færni- og heilsumat og greitt er fyrir með daggjöldum í samræmi við núgildandi samninga um rekstur hjúkrunarrýma“. SÍ vísa í þessu sambandi í frétt stofnunarinnar um öldrunarþjón- ustu. Þar kemur m.a. fram að sett hafi verið gjaldskrá vegna þjónustu hjúkrunarheimila sem tók gildi 1. janúar 2020. Einnig að Sjúkratrygg- ingar Íslands, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband ís- lenskra sveitarfélaga hafi skrifað undir samninga um þjónustu hjúkr- unarheimila sem gilda frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2021. Samið var við hvert hjúkrunarheimili um sig og voru samningarnir við þau samhljóða. Morgunblaðið/Eggert Hjúkrunarheimili Sjúkratryggingar vilja semja um allt að 100 ný hjúkr- unarrými á höfuðborgarsvæðinu til fjögurra ára. Mynd úr myndasafni. Vilja fá allt að 100 ný hjúkrunarrými  Rekstraraðili leggi til húsnæðið „Auðvitað eru þetta gríðarleg von- brigði fyrir alla aðila að það sé ekki búið að uppræta þetta enn þá. Sann- arlega vonum við að nú séum við komin á betri stað, því í sjálfu sér sjáum við þetta í færri og færri sýn- um og magnið er alltaf minna. Við vitum að við erum á réttri leið,“ segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg. Greining Náttúrufræðistofnunar Íslands á sýnum sem tekin voru í Fossvogsskóla sýndi að enn finnst mygla í skólanum þrátt fyrir miklar endurbætur á húsnæði hans. Sýnin sem leiddu þetta í ljós voru tekin 16. desember 2020. Helgi segist skilja óánægju for- eldra með skólann og magn myglu- gróa í skólanum sé óviðunandi. „Nið- urstöður mælinga sýna að á nokkrum stöðum er of mikið af myglugróum. Við athugun verk- fræðistofu kemur í ljós að það er óviðunandi frágangur á rakasperru í þaki hússins,“ segir Helgi. Hann segir mikilvægt að líta til þess að ekki hafi fundist mygluvöxt- ur í húsinu heldur einungis myglu- gró. Til útskýringar segir hann mun- inn vera þann sama og á fræi og blómi. Myglugró geti þó ert þá sem hafa þróað með sér ofnæmi. „Vonbrigði fyrir alla aðila“  Ekki er um mygluvöxt heldur myglugró að ræða í Foss- vogsskóla  Segir myglu minni og í færri sýnum í hvert sinn 22:47 FLÝTIVAL FYRIR KVÖLDMATINN SLÖKKT Á LEIKJATÖLVU KVEIKT Á BORÐSTOFULJÓSUM DYRUM LÆST Kvöldmatur kerfi virkt SAMSTARFSAÐILI Sérsniðið öryggiskerfi fyrir þitt heimili, enginn binditími.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.