Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 Páll Vilhjálmsson kennari ogbloggari hefur sett fingurinn á óefnið sem grunnnám þjóð- arinnar stefnir hraðbyri í. Og þar með er framhald sett í uppnám. Komi drengir litlu bættari úr grunnnáminu er fjandinn laus í framhaldinu:    Grunnskólinn erkvennaskóli, sé tekið mið af kennarastéttinni. Um 90 prósent kennara eru konur, já níu af hverjum tíu.    Aðeins einn karlkennari fyrirhverja níu kvenkennara. Drengjum er kennt, bæði beint og óbeint, að menntun sé fyrir stúlk- ur.    Kvenlægar kennsluaðgerðir,s.s. „yndislestur“ eru ráðandi eins og við er að búast í kvenna- skóla. Útkoman er fyrirsjáanleg, eins og meðfylgjandi ber með sér. Einungis þriðjungur þeirra sem útskrifast úr háskóla er karlar.    Munurinn eykst þegar litið ertil framhaldsnámsins. Karl- ar eru í miklum minnihluta þeirra sem útskrifast með meistara- og doktorspróf. Gjaldfall menntunar blasir við.    Háskólastéttir, sem óðumkvenvæðast, lækka í launum hlutfallslega við aðrar starfs- stéttir.    Háskólanám almennt lætur ásjá, samanber hjávísindin um manngert veður og kynja- fræði sem segja Darwin ómark- tækan og halda fram bábiljum um að kynin séu félagslega skilgreind en ekki líffræðilega.“ Páll Vilhjálmsson Tifandi sprengja STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Umskipti eru að verða á heimsmark- aði fyrir minkaskinn eftir nokkur erf- ið ár. Á netuppboði hjá danska upp- boðshúsinu sem nú stendur yfir hefur verið mikil eftirspurn og verðið hækk- að um 50-100%. Formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda segir að verðið á sumum tegundum nálgist framleiðslukostnaðarverð. Uppboðið er það fyrsta hjá Kopen- hagen Fur á þessu sölutímabili. Það átti að vera með fólki í sal en af því gat ekki orðið vegna ferðatakmarkana. Vegna mikillar eftirspurnar frá mörk- uðum var ákveðið að hafa netuppboð á helstu tegundum en eingöngu stórum skinnum af fyrsta flokks gæðum. Allt selst sem boðið er upp Þótt uppboðinu sé ekki lokið er ljóst að markaðurinn hefur tekið við sér eftir nokkurra ára lægð vegna of- framleiðslu og ládeyðu í sölu vegna kórónuveirufaraldurs. Nánast öll skinn sem boðin hafa verið upp til þessa hafa selst og verðið hefur hækkað mikið, eða frá rúmlega 50 og upp í tæp 100%. Ljóst er að helstu markaðir í Asíu eru að mestu lausir við veiruna og neytendur vilja kaupa skinn. Skinna- kaupmenn eru að búa sig undir að mæta eftirspurninni. Þá hafa óvenju- hörð vetrarveður, til dæmis í Banda- ríkjunum, aukið eftirspurn eftir hlýj- um fatnaði. Þeir minkabændur sem enn halda velli hér á landi selja skinn sín í Kaupmannahöfn. Einar Eðvald Einarsson, formaður minkabænda, segir að nokkur þúsund skinn frá Ís- landi séu á uppboðinu en fleiri verði boðin upp í apríl og júní. Hann kveðst ánægður með uppboðið það sem af er. „Ef þessi hækkun gengur út yfir alla liti og undirflokka sem eftir er að bjóða upp, þá verðum við nálægt framleiðslukostnaðarverði,“ segir Einar. helgi@mbl.is Minkaskinn hækka loks í verði  Aukin eftirspurn á mörkuðum leiðir til hækkunar á uppboðum eftir erfiða tíð Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samdráttur varð í framleiðslu Stolt Sea Farm á senegalflúru á Reykjanesi á síðasta ári. Flutt voru út um 300 tonn af heilli og ferskri flúru með flugi til Bandaríkjanna og Evrópu og er það um 100 tonnum minna en áætlað var. Sigurður Helgi Ólafsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins á Íslandi, segir að vandamál hafi komið upp í framleiðslunni, sem búið sé að ná tök- um á. Einnig hafi kórónuveirufar- aldurinn sett strik í reikninginn í fyrra og fiskur hafi um tíma safnast upp í kvíum fyrirtækisins. Loks megi nefna að í desember hafi Stolt Sea Farm opnað nýja eldisstöð með senegalflúru á Spáni og hafi framleiðsla þaðan komið til á sama tíma og markaðir voru erfiðir. Alls starfa 19 manns hjá Stolt Sea Farm á Reykjanesi og fyrst var slátr- að þar 2015. Fyrirtækið er norskt að uppruna og er með landeldi á sand- hverfu og flúru í 14 stöðvum á Spáni, Portúgal, Noregi og Íslandi. Í kvíunum á Reykjanesi hefur síð- ustu ár verið í gangi tilraunaeldi á um 200 styrjum, sem hefur gengið vel að sögn Sigurðar. Þær verða væntanlega komnar að hrygningu eftir 12-18 mánuði, en styrjuhrogn þykja lostæti og eru verðmæt. Margar rúmlega metri að lengd Sigurður segir að styrjurnar séu nú á bilinu 25-60 kíló og margar þeirra á annan metra að lengd. Styrjuhópur- inn hafi verið metinn og talinn á síð- ustu vikum og þá hafi komið í ljós að nokkurt bráðlæti hafi verið í fyrri upplýsingum um stærð þeirra og þyngd. Styrjurnar á Reykjanesi eru af teg- undinni Transmontanus. Fullorðnar í náttúrunni geta þær orðið allt að tveir metrar á lengd og 150 kíló að þyngd. Þær geta lifað í um 20 ár. Samdráttur í flúru- eldinu á Reykjanesi  Hafa náð tökum á vandanum  Um 200 styrjur þrífast vel Ljósmynd/Sigurður Helgi Ólafsson Reykjanes Á næsta ári má reikna með hrognum úr styrjunum. Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.