Morgunblaðið - 23.02.2021, Page 15

Morgunblaðið - 23.02.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 Skorradalur Þau voru einstaklega fögur norðurljósin sem glöddu landsmenn á laugardags- kvöldið. Hér má sjá þau stíga sinn fagra tangó við næturhimininn í Skorradalnum. Eggert Á komandi hausti verður kosið til Alþing- is við lok reglulegs kjörtímabils, líklegur kjördagur 25. sept- ember. Svo vill til að þingkosningar verða víðar en hérlendis í þessum sama mánuði, í Noregi til Stórþingsins 13. september og í Þýskalandi til Sam- bandsþingsins (Bund- estag) 26. september. Fyrir áhuga- fólk um stjórnmál og þróun í grannlöndum okkar er þannig af nógu að taka. Flokkarnir hérlendis eru í óðaönn að undirbúa framboð, hver með sínum hætti, og tíðindi af vettvangi þeirra fylla fréttatíma. Minna fer enn sem komið er fyrir málefnaáherslum af hálfu flokkanna og formleg starfsemi þeirra hefur ef- laust veikst og riðlast í skugga veir- unnar. Sem áhorfandi að formlegu stjórnmálastarfi síðastliðin átta ár finnst mér skorta mjög á að umræð- an snúist um málefni og meginlínur fremur en einstaka leikendur á póli- tíska sviðinu. Er þar með ekki lítið gert úr hlutverki og frammistöðu einstakra stjórnmálamanna, jafnt á þingi og í ríkisstjórnum. Farsæl ríkisstjórn á lokaspretti Undir venjulegum kring- umstæðum væru stefna og störf rík- isstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að- alumræðuefni nú undir lok kjörtímabilsins. Heildstætt mat á ferli hennar hefur þó eins og flest annað fallið í skuggann fyrir veiru- pestinni, sem umræða hefur snúist um nú í heilt ár. Stjórnin var mynduð við þær að- stæður haustið 2017 að við blasti annaðhvort fjögurra flokka „vinstristjórn“ með af- ar nauman þingmeiri- hluta á bak við sig, „hægristjórn“ studd af 35 þingmönnum, eða langvinn stjórnar- kreppa. Undirritaður taldi hins vegar strax og kosningaúrslitin lágu fyrir að þriðji kosturinn væri til staðar, þ.e. blandað þriggja flokka stjórnarmynstur frá hægri til vinstri með þátttöku VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sem hefði 35 þing- menn við að styðjast. Grein mín sem birtist í Morgunblaðinu 31. október 2017 bar fyrirsögnina „Óskorað full- veldi og náttúruvernd meðal brýn- ustu verkefna nýs þings og ríkis- stjórnar“. Þar sagði m.a.: „Að loknum kosningum fyrir ári taldi ég að mynda ætti slíka stjórn og skoðun mín er óbreytt, enda sýni viðkomandi flokkar sveigjanleika sem dygði til að koma á slíku samstarfi. Vænlegast er að slíkt samstarf væri undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur og félli þá fjármálaráðuneytið í skaut Bjarna Benediktssonar og utanríkismálin yrðu á hendi Lilju Daggar Alfreðs- dóttur.“ Þetta gekk eftir, nema Lilja fékk menntamálin í sinn hlut. Mánuð tók að koma þessu samstarfi á og það hefur haldið þótt kvarnast hafi úr bakstuðningnum á Alþingi. Framan af stóð stjórnin frammi fyrir margs konar áskorunum, ekki síst að tryggja frið á vinnumarkaði. Þá raun stóðst hún farsællega. Þá sá enginn fyrir sér þá eldraun sem biði með heimsfaraldri, sem Ísland gæti átt eftir að standa af sér flestum þjóðum betur eins og staðan er nú um stund- ir. Stórar alþjóðlegar áskoranir Alþjóðlegum áskorunum fjölgar stöðugt. Kjarnorkuváin sem hefur vofað yfir mannkyni í heilan manns- aldur er áfram til staðar, raunar nær en áður vegna fjölgunar ríkja sem yf- ir slíkri tækni og vopnum ráða. Til- koma sjálfvirkra flygilda (dróna) og nýting þeirra í hernaði hefur bæst við sem enn ný ógn, sem hleypt getur af stað styrjaldarbáli af litlu tilefni. Nýverið birtist um þetta fróðlegt við- tal, sem menn ættu að kynna sér (Ul- rike Franke: Tod von oben (Dauðinn ofan frá). Die Zeit, 4. febr. 2021). Baráttan gegn kjarnorkuógninni og stöðugt magnaðri vígvæðingu ætti að vera fremsta og nærtækasta áhersluatriði á alþjóðavettvangi. Þar getur vopnlaus smáþjóð eins og við Íslendingar lagt fram annan og drýgri skerf en hingað til, m.a. með því að halda sig utan hernaðarbanda- laga. Loftslagsváin sem lengi hefur blasað við er loksins komin rækilega á dagskrá í framhaldi af Parísarsam- komulaginu 2015. Sjálfskapaður voð- inn, sem þar blasir við mannkyni, er að verða á vitorði æ fleiri, ekki síst unga fólksins. Þeim þjóðum fjölgar sem setja sér róttæk markmið um að draga úr og stöðva losun gróðurhús- lofts. Enn er hins vegar verið að bæta í vandann sem er djúpstæðari en flesta grunar og með rætur í ríkjandi efnahagskerfi. Talið um sjálfbærni er innantómt nema til komi gjörbreyting á því gangverki, með hófstillingu og jöfnuð að leið- arljósi. Þau siglingaljós eru óvíða uppi enn sem komið er. Veirupestin sem nú herjar er að- vörun sem um munar. Samhliða því að stöðva hana með bólusetningu þarf hún að verða tilefni til átaks í að breyta róttækt um það gangverk sem fyrir var og leitt hefur mann- kynið á barm glötunar. Reynsla okk- ar Íslendinga með sjálfstæðum og vitrænum viðbrögðum stjórnvalda og almennings í glímunni við pestina getur orðið lærdómsrík í þeim hvers- degi sem við tekur, ef rétt er á haldið. Veik staða lýðræðis Í fróðlegri grein Arnars Þórs Jónssonar héraðsdómara í Morgun- blaðinu 13. febrúar síðastliðinn undir fyrirsögninni Kreppa lýðsræðisins? vekur hann athygli á að þjóðin hefur með EES-samningnum gefið frá sér mikilvæg stjórntæki í eigin málum. Arnar Þór spyr m.a.: „Getum við gengið að því vísu að Íslendingum sé betur borgið í umsjá erlendra emb- ættismanna og yfirþjóðlegra stofn- ana en lýðræðislega kjörinna hand- hafa íslensks löggjafarvalds og ráðherra sem bera ábyrgð gagnvart þingi og þjóð? Getur örríki eins og Ísland ekki tryggt hagsmuni sína í alþjóðlegu samstarfi án þess að fórna fullveldi sínu?“ – Nú er viðurkennt að samþykkt laga um EES-samn- inginn á Alþingi 1993 hafi gengið gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar á þeim tíma og átt síðan þátt í þeirri fjárhagslegu spilaborg sem leiddi til hrunsins 2008. Við inngöngu Íslands í EES var því haldið fram að Ísland gæti hafnað reglum sem samrýmast ekki þjóðarhagsmunum. Þrátt fyrir þetta samþykkti Alþingi á yfirstand- andi kjörtímabili, eins og einnig norska Stórþingið, þriðja orkupakka ESB og þær tilskipanir sem hann byggist á. Norsku samtökin Nei til EU töldu eins og fleiri að þurft hefði þrjá/fjórðu þingheims til að slík sam- þykkt stæðist ákvæði norsku stjórn- arskrárinnar. Nei til EU reka nú mál fyrir hæstarétti Noregs þar að lút- andi. Úrskurðar réttarins í málinu er að vænta innan tíðar. Hérlendis stefna bæði Viðreisn og Samfylking að inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Slík umsókn upp- tók þing og þjóð með ærnum kostn- aði og sundrungu í samfélaginu á ár- unum 2009-2013. Brigður VG þá á eigin stefnu og fyrirheitum við stjórnarmyndun með Samfylking- unni vorið 2009 varð flokknum dýr- keypt og verður væntanlega ekki endurtekið. Píratar virðast enga stefnu hafa sem flokkur, en vísa á þjóðaratkvæði. Afstaða stjórnmálaflokka og fram- bjóðenda til tengsla við Evrópusam- bandið sem og til annarra stórmála þarf að vera lýðum ljós nú í aðdrag- anda alþingiskosninga sem nálgast óðum. Eftir Hjörleif Guttormsson » Sem áhorfandi að formlegu stjórn- málastarfi síðastliðin átta ár finnst mér skorta mjög á að um- ræðan snúist um mál- efni og meginlínur. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Hver er stefna stjórnmálaflokkanna í meginmálum? Við stöndum frammi fyrir mikilli áskorun um að koma atvinnulífinu aftur af stað og skapa störf. Til þess þarf bæði hugrekki og þor. Lykilatriði er að draga hratt úr atvinnuleysi sem er nú í sögulegu hámarki. Tæplega 22 þúsund einstaklingar eru atvinnulausir og um 4 þúsund manns að auki á hlutabótum eða samanlagt 12,8% þjóðarinnar. Svo- kallaðir ráðningarstyrkir geta skipt sköpum við fjölgun starfa. Ráðningarstyrkir hafa það markmið að auðvelda atvinnurekendum að fjölga störfum og ýta með því undir hagvöxt. At- vinnurekanda gefst tækifæri til að ráða starfsmann í starf sem hann hefði ellegar ekki haft ráð á og starfsmaðurinn er að sama skapi virkjaður og skapar verðmæti fyrir samfélagið. Ráðningarstyrkur er því skyn- samlegt vinnumarkaðsúrræði sem gefur hæfileikaríku fólki atvinnutækifæri. Slíkt örvar svo atvinnulífið til hagvaxtar sem nauðsynlegur er svo unnt sé að standa undir samneyslunni. Samtök atvinnulífsins og Vinnumálastofnun hvetja fyrirtæki til að kynna sér ráðningarstyrk. Allra hagur ætti að standa til þess að úrræðið sé nýtt og að at- vinnulífið taki að vaxa og dafna á ný. Ráðningarstyrkur er fólginn í því að at- vinnurekandi getur fengið grunnatvinnuleys- isbætur auk 11,5% framlags í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði greiddar með nýjum starfskrafti eða samtals rúmlega 342 þúsund krónur í styrk á mánuði. Atvinnurekandi greiðir starfsmanninum umsamin laun með hefðbundnum hætti sem verða að lágmarki að samrýmast taxta kjarasamnings. Hjá at- vinnurekanda þarf að starfa að lágmarki einn starfsmaður. Úrræðið hefur verið einfaldað töluvert frá því sem áður var og geta at- vinnurekendur nú nýtt ráðningarstyrk þótt þeir séu með starfsmann á hlutabótum. Það er viðbúið að einhverjir munu stíga fram og gagnrýna fyrirtæki sem nýta sér úr- ræðið í umræðunni. Mikilvægt er í því sam- hengi að missa ekki sjónar á stóru myndinni. Sameiginlegt markmið okkar allra er að draga úr atvinnuleysi, skapa störf og koma hagkerfinu af stað á ný. Margt smátt gerir eitt stórt. Með samhentu átaki er hægt að ná kröftugri viðspyrnu öllum til hagsbóta. Reynslan sýnir að 80% þeirra sem ráðnir eru með ráðningarstyrk eru áfram á vinnumark- aði þegar styrktímabili lýkur. Úrræðið sem hefur verið við lýði frá því að Vinnumála- stofnun var sett á laggirnar hefur marg- sannað sig. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar má nálg- ast frekari upplýsingar um ráðningarstyrk en atvinnuráðgjafar Vinnumálastofnunar hringinn um landið eru til þjónustu reiðu- búnir. 24. febrúar nk. fer fram fjarfundur fyrir félagsmenn Samtaka atvinnulífsins um ráðningarstyrk sem haldinn er af sérfræð- ingum Samtaka atvinnulífsins og Vinnu- málastofnunar. Þar verða veittar frekari upplýsingar og spurningum svarað. Skrán- ing fer fram á heimasíðu Samtaka atvinnu- lífsins. Sköpum ný störf og höldum áfram Eftir Halldór Benjamín Þorbergs- son og Unni Sverrisdóttur Halldór Benjamín Þorbergsson »Um 22 þúsund einstakling- ar eru atvinnulausir og um fjögur þúsund manns á hlutabótum. Ráðningar- styrkir geta skipt sköpum við fjölgun starfa. Halldór Benjamín er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Unnur er forstjóri Vinnumálastofnunar. Unnur Sverrisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.